Dagblaðið - 05.02.1976, Page 10

Dagblaðið - 05.02.1976, Page 10
10 Dagblaðið. Fimmtudagur 5. febrúar 1976. BMBBIABIB frfálst, úháð dagblað Ctgefandi: Dagblaðið hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónás Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulllrúi: Haukur Helgason íþróttir: Hallur Símonarson Hönnun: Jóhannes Reykdal Blaöamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir, Ciissur Sigurðsson, Hallur Hallsson, Helgi Pétursson, Katrín Pálsdóttir, Ólafur Jónsson. Ómar Valdimarsson. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson, Ragnar Th. Sigurðsson. Ojaldkeri: Þrámn Þorlcifsson Dreifingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Askriftargjald 800 kr. á mánuði inrtanlands. í lausasölu 40 kr. eintakið. Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar, áskriftir og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022. Setning og umbrot: Dagblaðið hf.og Steindórsprent hf., Ármúla 5. Mynda- og plötugerð: Hilmir hf., Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Lauma Ríkisstjórnin reynir að lauma samn- ingum við Breta inn á þjóðina. Þótt hinum fráleitu tillögum Breta um samninga til lengri tíma væri að sjálf- sögðu hafnað, var sú leið valin að gefa kost á samningum til skamms tíma, svo sem þriggja mánaða. í stað þess að hafna öllum samningum, sem rétt hefði verið við núverandi aðstæður, valdi íslenzka ríkisstjórnin að hefja viðræður við Breta um slíkan skamms tíma samning. Svo sem til að venja þjóðina við undanlátssemi hefur landhelgin verið varin með hangandi hendi í rúma viku. Til lítils er fyrir ráðherra að lýsa því yfir opinberlega, að ‘skipherrar varðskipanna hafi alger- lega ráðið því, hvaða aðferðum þeir beittu. Enginn efar, að skipherrarnir hefðu gengið lengra og beitt klippunum, ef þeim hefði ekki verið falið annað. Vopnahléið á miðunum, sem Wilson fór fram á, hefur verið staðreynd þennan tíma. Rökin fyrir samningi til skamms tíma eru einkum, að þá verði áfram hindruð átök á miðunum og hafréttarráðstefna Sameinuðu þjóðanna muni hafa komið saman að nýju, áður en sá samningur yrði úr gildi. Þá muni koma fram, að Bretar beiti sér sjáflir fyrir 200 mílna fiskveiðilögsögu. Hins vegar kemur engum í hug, að hafréttarráð- stefnan muni komast að einhverri niðurstöðu innan þriggja mánaða. Flestir spá, að hún muni enn dragast og líklega fram á næsta ár. Það hafa einnig verið helztu rökin fyrir einhliða útfærslu landhelgi okkar nú, að við gætum ekki beðið eftir niðurstöðum hafréttarráðstefnunnar. Það tæki lengri tíma en verndunaraðgerðir gætu beðið. Sú afstaða Breta að beita sér fyrir 200 mílum fyrir sjálfa sig en beita hervaldi til að kæfa tilraunir íslendínga íil að færa út í 200 rnílur er þegar augljós. Þeir hafa haft forgöngu um slíka stefnu innan Efnahagsbandalagsins. Rökin fyrir samningi til skamms tíma eru því harla léttvæg. Tvímælalaust vill þorri þjóðarinnar ekki fórna aðalatriðum landhelgismálsins til að kyrrð ríki á miðunum. Þar hvílir mest á varðskipsmönnum, og um hug þeirra og dug efast enginn. Þeir eru reiðubúnir að halda baráttunni áfram. Hætt er við, að bak við hugmyndina um samning til þriggja mánaða búi vilji til að ganga lengra. Slíkan samning mætti framlengja, enda virðist að því stefnt. Við þriggja mánaða samning fá fylgjendur samninga við Breta tækifæri til aðbúa í haginn fyrir samninga til lengri tíma. Það hefur ekki farið fram hjá ríkisstjórninni, að yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar er andvígur öll- um samningum við Breta. Stefna ríkisstjórnarinnar hefur alla tíð verið miklu slappari en þjóðin hefði kosið. Þess vegna verður almenningur nú að knýja á og koma í veg fyrir að ríkisstjórnin gangi lengra þá braut að reyna að lauma að samningum við Breta. Kosningar fyrir dyrum í V-Malajsíu: Orlagaríkir dagar í Kota Kinabalu — Tun Mustafa Harum sigurstranglegur Undirbúningur fylkiskosninga í austur-malajíska fylkinu Sabah er hafinn þar sem Nascent- stjórnarandstaðan hefur fagnað væntanlegum kosningum, jafnvel þótt búast megi við að hinn umdeildi Tun Mustafa Harun komist aftur til valda. FlokkurTun Mustafas, Sameinuð þjóðernishreyfing, Sabah USNOS,' hefur verið við stjórn að undanförnu og það var að undirlagi flokksins að 22. janúar var boðað til nýrra kosn- inga. Daginn eftir lýsti þjóðhöfðing- inn, Datuk Mohamed Hamdan Abdullah, því yfir að þing hefði verið leyst upp vegna væntanlegra kosninga. Einkaval á frambjóðendum Tun Mustafa sjálfur sagði af sér. embætti forsætisráðherra fyrir nokkr- um mánuðum. Nú getur hann sjálfur valið frambjóðendur flokks síns og hefur aflað sér nægilegs fylgis innan flokksins til þess. Talið er líklegt að flokkur Tun Mustafas, USNO, muni vinna glæsi- legan sigur í kosningunum og að Tun Mustafa verði á ný æðsti maður fylkisins. Kosningarnar verður að halda áður en níutíu dagar eru liðnir frá því að þing var leyst upp. Kosið verður um fjörutíu og átta sæti af fimmtíu og fjórum í þinginu. í þau sex sæti sem eftir eru eru fulltrúar tilnefndir. Innanlandserjur og ráðherrafundur Meðal stjórnmálamanna í Kuala Lumpur, höfuðborg sambandsríkis- ins Malajsíu, er almenn skoðun sú að Sabah-kosningarnar geti verið hættu- legar hinum nýja forsætisráðherra landsins, Datuk Hussein Onn, sem./ tók við embætti þegar Tun Abdul Razak lézt úr hvítblæði í London í byrjun desember. í Kuala Lumpur hafði verið búizt við kosningum fljótlega í Sabah. Aftur á móti eru menn þeirrar skoðunar að Tun Mustafa hafi síður en svo í hyggju að hætta stjórnmálalegri stöðu sinni við lands- stjórnina einmitt nú. Datuk Hussein er sem stendur mjög upptekinn af innanríkismálum í Vestur-Malajsíu, þar sem kommún- istar heyja skærustríð á hendur stjórninni, og eins við undirbúning fyrsta ráðherrafundar SA- Asíubandalagsins (ASEAN), sem fimm þjóðir eiga aðild að. Tun Mustafa valdi sjálfur eftir- mann sinn er hann sagði af sér í október 1975. Hann er Tan Sri Mohamed Keruak. Hann hefur heimsótt Kuala Lumpur til að skýra fyrir Datuk Hussein að kosningarnar séu liður í þingræðinu þannig að USNO geti vitað með vissu hvort fólk vill hafa flokkinn áfram við völd í stað stjórnarandstöðuflokksins Berjaya. USNO er nú einráð á fylkis- þingi Sabah, þingmenn stjórnarand- stæðinga eru þrír talsins. Tan Mustafa Hárun tekur á móti gestum í Kota Kinabalu og fer ekki á milli mála hver er höfðinginn í þessu samkvæmi. Aðstoðarmenn Mustafas eru í kringum hann. Á litlu myndinni að ofan er Tun Abdul Razak, fyrrum forsætisráðherra Malajsíu, sem lézt í fyrra mánuði. Kokhreysti Þann 26. ágúst sl. birtist í blaði forsíðugrein með þriggja dálka svart- letursfyrirsögn: „ísland á og þarf að vera aflögufært með hey” og þar fyrir neðan cnn með breyttu letri: „Búnaðarmálastjóri bjartsýnn.” Þessar æpandi fyrirsagnir hljóta að hafa vakið athygli, ef ekki hins almenna borgara þéttbýlis þá í Jáað minnsta gamalla bændasona, aída- mótamanna, sem þrátt fyrir að þeir ekki gerðu starf feðra og forfeðra sinna að sínu lífsstarfi (illu heilli?) hafa fylgzt með hinni öru og stór- stígu vélvæðingu hjá íslenzkum bændum á flestum sviðum, fylgzt með ánægju með hinum augljósu framförum og lífskjarabótum sem hin almennu samtök bænda hafa komið á síðastliðin 50 ár og eru vinveittir bændum sem slíkum enda þótt sumir þeirra, svo sem undir- ritaður, hafi e.t.v. þótt óþarflega „krítískir” á ýmislegt sem gerzt hefur í þessari atvinnugrein, svo sem óþarf- lega mikið dekur við þessa heiðurs- menn sem ættu vissulega að hafa fullan tilverurétt án þess að þurfa að vera neinir styrkþegar eða þurfa- menn á almennu framfæri. Ef farið er um sveitir landsins blasir hvar- vetna við að bóndinn er ekki aðeins bústólpi og bú er landstólpi, heldur að bóndinn er orðinn einn bezt launaði og bezt tryggði borgari ís- lands. Hvarvetna, jafnvel í áður af- skekktum sveitum, eru glæsilegar ný- byggingar með öllum nútímaþæg- indum, stórfelldar nýræktarekrur, framræsla mýra, sumpart aðeins þurrkaðar en í flcstum tilfellum rennisléttir akrar þar sem sáðsléttur iða af hávöxnu töðugrasi eða þéttu sæti eða heybólstrum sem virðast standa óþarflega lengi, ýmist óyfir- breiddir eða með einhverja hessíandulu yfir toppnum. Flestar þessar hrúkur eru ólíklegar til þess að geyma hálfþurrt hey til langs tíma óskemmt eftir aldamótamanns- reynslu. Þeim er ýtt saman af nútímavélum, ósaxaðar og því Iausari fvrir en hinir gömlu bólstrar eða gaitar sem raunverulega gátu staðið af sér ekki aðeins nokkurra vikna óþurrk heldur heila vet'ra, þétt saxaðir, vandaðir og þéttir með góðri yfirbreiðslu. Einn til tveir bílar eru algengir á ósköp 'venjulegu bændabýli auk allra tegunda landbúnaðarvéla — 2-3 dráttarvélar með tilheyrandi alhliða tækjum, svo sem sláttuvélum, múga- vélum, áburðardreifurum, gnýblás- urum, heybindivélum o.fl. o.fl. að ógleymdum súgþurrkunarblásurum

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.