Dagblaðið - 05.02.1976, Side 11

Dagblaðið - 05.02.1976, Side 11
Dagblaóið. Fimmtudagur 5. febrúar 1976. Ásakanir um spill- ingu og samsæri Berjaya-flokkurinn var stofnaður í júlí í fyrra þegar nokkrir félagar sögðu sig úr USNO í mótmælaskyni við það sem þeir kölluðu spillingu, stjórnleysi og tilraunir til að slíta Sabha — þar sem gnótt er trjáviðar — út ríkjasambandi við Malajsíu. Forseti flokksins, Tun Fuad Mohames Stephens, fyrrum æðsti maður fylkisins, sagði nýlega í sam- tali við erlendan fréttamann að væntanlegar kosningar myndu veita íbúum Sabah tækifæri til að nota lýðræðisleg réttindi sín til að velja sér stjórn að eigin skapi. Tun Fuad sagði að Berjaya- flokkurinn myndi bjóða fram í öllum fjörutíu og átta kjördæmum landsins og að framboðslistar yrðu birtir fljótlega. Hann bætti því við að hann væri sannfærður um yfirburða- sigur sinn og flokks síns. Tun Fuad og Tun Mustafa sórust í fóstbræðralag fyrir mörgum árum. Tun Fuad sagði af sér forsætisráð- herraembættinu tveimur vikum eftir að Berjaya-flokkurinn var stofnaður með þeim ummælum að hann gæti ekki fyrirgefið Tun Mustafa að skipuleggja samsæri um sambands- slit við Malajsíu. Stuðningsyfir- lýsing á þingi Þegar flokkurinn var stofnaður í júlí var þegar hvatt til kosninga en aðskilnaðarþingmennirnir voru þá fimm. Fylkisþingið svaraði í næsta mánuði með því að samþykkja með yfirgnæfandi mririhluta stuðnings- og traustsyfirlýsingu til handa Tun Mustafa forsætisráðherra. Tun Mustafa sagði af sér í október eftir langvarandi pólitískar deilur við hinn látna forsætisráðherra sam- bandsríkisins, Tun Razak. Tun Mustafa lét sér ekki nægja að velja eftirmann sinn í embættið, hann hélt einnig lykilstöðu sinni sem flokksformaður. Kjósendur eru greinilega með Tun Mustafa. Það varð ljóst í tvennum aukakosningum, töluvert mikilvæg- umv þar sem Berjaya-flokkurinn missti tvo af fímm þingmönnum sín- um. Þessar kosningar voru í síðasta mánuði. Merkileg afsagnarbréf þingmanna stjórnar- andstöðunnar Aukakosningarnar voru haldnar eftir að embættismönnum fylkisins höfðu borizt afsagnarbréf þing- manna Begaya-flokksins. Leiðtogar flokksins halda því fram að þarna hafi verið um að ræða bréf sem allir þingmenn USNO hafi verið látnir undirrita, án dagsetningar, áður en þeir voru staðfestir á fram- boðslistum flokksins í kosningunum 1970. Tveir þeirra hafa nú farið frani á það við forseta þingsins að þeir geti afturkallað afsagnir sínar, að því er Tun Fuad sagði í nóvember sl. Þegar aukakosningarnar voru haldnar í desember fóru USNO- menn létt með að sigra Berjaya. Formaður Berjaya naut þó fylgis 40% kjósenda í heimahéraði sínu Labuan og í Kuala Kinabatangan hlaut frambjóðandi.flokksins 37% atkvæða. Þriðji flokkurinn önnur atkvæði fóru flest til USNO flokksins en þriðji flokkurinn, Pakemas, hlaut lítið brot atkvæða. Pakemas ætlar að leita hnekkingar gildis atkvæðagreiðslunnar. Jafn- framt hefur flokksforystan skýrt frá því að framboðslistar verði fljótlega lagðir fram, eða þegar ákvörðun hefur verið tekin um hve víða á að bjóða fram. Formaður Pakemas, Zainuddin Karim hershöfðingi, segir að því fari fjarri að flokksmenn séu í sárum vegna útreiðarinnar sem flokkurinn fékk í kosningunum. Frambjóðendur Pakemas hlutu eitt prósent atkvæða í Kuala Kinabatangan og aðeins hálft prósent í Labuan. Hershöfðinginn er sigurviss eins og aðrir frambjóðend- ur, hann telur flokk sinn eiga góða möguleika á að vinna nokkur þing- sæti. Hann bætti því við að Pakemas yki mjög fylgi sitt um þessar mundir, bæði í borgum og við sjávarsíðuna. Þjóðarminnismerkið í Kuala Lumpur var fellt til jarðar í október þegar kommúnistar réðust gegn því í skæruárás. Nú eru einkasýningar hafnar aftur í Norræna húsinu eftir stutt hlé og sam- sýningu. Fyrstur ríður á vaðið'Elías B. Halldórsson, en á eftir honum sýna þeir Gunnar örn Gunnarsson og Sigurður örlygsson hver á eftir öðrum. Elías er greinilega maður fjölhæfur og sýnir 88 myndir, olíumálverk, pastelmyndir, vatnslitamyndir, tréristurog teikningar. Hann hefur áður sýnt í Bogasal Þjóð- minjasafnsins í tvígang, en auk þess hefur hann haldið einkasýningar í heimahögum sínum, á norður- og aust- urlandi. Augljóst er að Elías kemur ekki af fjöllum listrænt séð, enda mun hann hafa gott nám að baki, — fyrst við Myndlista- og handíðaskólann, en síð- an við akademíur í Stuttgart og Kaup- mannahöfn. Verk Elíasar á þessari sýningu munu flest eiga uppruna sinn í landslagi, eða þá að þau eru hreinar landslagsmvndir. Hann hefur sterka tilhneigingu til þess að stílisera viðfangsefni sitt, hreinsa til á myndfletinum uns eftir eru láréttir fleygir í mjög samstilltum litátónum. Gott dæmi um þessi vinnubrögð er t.d. „Hauststemma” nr. 19 þar sem eftir er aðeins afstrakt litrím, vandlega upp- byggt. Er auðsætt að Elías hefur þróað með sér gott auga fyrir sterkum, oft munaðarfullum litum, en gerir scr þó gjörla grein fyrir hlutverki sterkra inn- viða. í bestu myndum sínum sameinar hann þetta tvennt, t.d. í mynd nr. 9 (keypt af Listasafni íslands) ásamt nr. 22 & 24. Hleður hann þar upp voldug- ar komposisjónir kletta eða blakka fremst á myndfleti sínum og undirstrika dulúðugir litir þeirra kraftmikla mynd- skipunina. En Elías hefur einnig til að bera rómantískt draumlyndi sem mýkir myndir, stundum um of, og ýtir undir fjólubláu litina. Kemur þetta helst fram í nýrri myndum, t.d. nr. 14-18, en aftur móti finnur maður einnig nýlegar myndir þar sem málarinn er hvasseygð- ari og er ekki að dedúa við litajaðra og verða þá til verk með snert af hressileg- um expresssjónisma, t.a.m. nr. 27 & 29. Pastelmálverk Elíasar eru gott dæmi um áðurnefnda dúnmýkt sem dreifir athygli áhorfandans á tvist og bast, þótt ekki sé að sakast við handbragðið sem er vandað eins og áður. Skarpari skil er að finna í vatnslitum Elíasar, en þar sýnist mér málarinn einfaldlega ekki vera í nægilegri æfingu og teikningar sínar hefði hann mátt grisja stórlega. Tréristur Elíasar eru hinsvegar áhugaverðari. Þar vinnur hann oft á sérstæðan hátt úr myndefni sínu, sjá t.d. „Rjúpan og valurinn” eða „Hold- rosi” nr. 65, auk þess sem hann spilar oft á glettilega útúrdúra í þeim. En smágerður formleikur og ofhlæði dregur gjarnan kraftinn úr mörgum ristunum, — en þessi tilhneiging er einnig áber- andi í nokkrum olíuverkum Elíasar. í tréristum sínum mætti hann taka sér danann Palle Nielsen til fyrirmyndar, en sá hefur einstakt lag á markvissri samþjöppun í dúkskurði sínum, eins og fram kom í grafíksýningu Listlánadeild- ar Norræna hússins. Nr. 9 ,,Lægðarmiðja” Nr. 65 „Holdrosi ” Myndlist AÐALSTEINN INGOLFSSON LITRÍM 0G BLAKKIR um sýningu Elíasar B. Halldórssonar í Norrœna húsinu og heybindivélum, sem binda heyið í járnsvírabagga, rétt skorna og rétt- hyrnda, hvort sem heyið er þurrt, hálfþurrt, úr sér vaxið eða marg- hrakið. Þetta hey er svo sett inn í hlöðu í erlendum vírböndum og súg- þurrkað. Þetta þykir e.t.v.heppileg meðferð fóðurs á íslandi 1975 en dálítið tormelt fyrir ómenntaðan aldamótadreng sem alinn var upp í þeirri óræku vissu að öflun góðra heyja (góðs fóðurs) fyrir búpening væri undirstaða landbúnaðar. Á okkar véla- og tækniöld er greinilegt að öflun fóðurs fyrir bú- pening hefur setið á hakanum eins og hjá Hrafna-Flóka forðum daga. Milljónaverðmætum í íslenzkum gróðri hefur árlega ýmist verrð spillt með of síðbúnum slætti, hrakningum eftir slátt eða eyðilagzt með vonlausri súgþurrkun. Ætti þetta að fara að verða Ijóst, jafnvel hinum trúgjörn- ustu bændum, að súgþurrkun leysir ckki neinn vanda í óþurrkatíð. Árið 1945-6 komu á markaðinn svokallaðir hevblásarar eða súgþurrk- un. Ba*ndum var ráðlagt að afla scr þessara tækja sem með öllum búnaði kostuðu allverulegt fjármagn og hafa sennilega ekki orðið neitt útundan í síðari tíma verðhækkunum. Hinir svokölluðu búnaðarráðu- nautar bænda virðast enn í dag ein- blína á súgþurrkun sem allsherjar úrlausn um heyöflun enda þótt hún ætti eftir reynslu að vera fordæmd sem eftirsótt úrræði. Hún getur e.t.v. komið að einhverjum notum í góðri tíð með aðgát, alúð og kostgæfni en er gagnslaus og jafnvel skaðvaldur í óþurrkatíð eins og hinir tíðu hlöðu- brunar sanna. Þessir trúnaðarmenn bænda, búnaðarráðunautar, virðast frá upphafi hafa verið mótsnúnir öllum tilraunum utanaðkomandi manna til þess að gera öflun óskemmds fóðurs úr íslenzkri töðu að veruleika. Þeir hljóta þó. að hafa fylgzt með því að þessi ómetanlegu gæði íslenzks gróðurs hafi ýmist verið eyðilögð fyrir ofvöxt, hrakning eftir slátt eða hlöðubruna eftir margra mánaða súgþurrkun. Allar tilraunir ómenntaðra manna í búfræði hafa verið kveðnar niður af þessum kjörnu trúnaðarmönnum og allt hefur átt að byggjast á hinni Kjallarinn Guðfinnur Þorbjörnsson svokölluðu súgþurrkun. „Við höfum súgþurrkun og þurfum því ekki neinar nýjar tilraunir.” Hins vegar er ekki hægt að loka augum fyrjr því að hey- og töðuöflun er vægast sagt á mjög frumstæðu stigi á okkar framfaratímum. Að setja á guð og gaddinn þykir ekki gott í dag og munu flcstir bændur hættir þeirri iðju, en að setja á guð og sólskinið virðist vera viðtekin .regla íslen?kra stórbænda enn í dag, samkvæmt kenningum súgþurrk- unarráðunauta þeirra, ásamt erlend- um fóðurbæti sem alltaf virðist vera tiltækur hvernig sem veðurfar er á voru landi, íslandi. Ég undirritaður hef lítils háttar komið við sögu við tilraunir um árvissa heyþurrkun án tillits til veðurfars ásamt Sigurlinna Péturs- syni, Benedikt í Hofteigi o.fl. án þess að hafa hlotið áheyrn hinna vel menntuðu búfræðiráðunauta sem ruddu súgþurrkuninni inn 1945-6 og töldu hana stórkostlega framför og allsherjarlausn í óþurrkasumrum. Þetta er enn þá eina lausnin (ásamt aðfluttum fóðurbæti sem sennilega reynist haldbetri ). „Við þurfum engar tilraunir með heyþurrkun, við höfum súgþurrkun.” Slík hafa verið viðbrögð búnaðarráðunauta allt frá því 1946 til þessa dags. Enn þá virðast þeir trúa á þessa aðferð hey- þurrkunar (eða heyeyðileggingar) og sú bjartsýni búnaðarmálastjóra sem kemur fram í erindi hans eða viðtali, og ég hef leyft mér að kalla KOK- HREYSTI, hlýtur að byggjast á ef ekki bara guði og sólskini þá fremur á hinni raunalegu reynslu súgþurrk- unar, súrheysgerð og öðru fálmi snöggsoðinna búfræðinga sem virðast hafa ráðið aðgerðum bænda og bændasamtaka undanfarna áratugi. Vissulega er íslenzk taða ein megin- auðsuppspretta íslands fyllilega sambærileg við hin marglofuðu fiski- mið sem löngu eru viðurkennd sem meginundirstaða þjóðarinnar en nú eru í alhcimssviðsljósi. Henni má þá ekki síður jafna við hina ný.'undnu gullnámu, jarðhitann, og hvers konar önnur landsnyt. En þetta allt virðist hafa farið framhjá nútímanum. Guðfinnur Þorbjörnsson vélstjóri.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.