Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 24.02.1976, Qupperneq 1

Dagblaðið - 24.02.1976, Qupperneq 1
Srfalst, aháa dagblað Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022. 2. árg. — Þriðjudagur 24. febrúar 1976 — 46. tbl Mjólk i dag Við' verðum að öllum líkindum tilbúnir að byrja á að keyra út mjólkina um hádegisbilið, sagði forsvarsmaður Mjólkursamsölunnar er nB-mcnn komu a iiiikí hans Kjarasamningarnir: Norglobatmenn beygðir- flestor sérkröfur fró en lisfinn yfir smóhópa, sem ósamið er við um sérkröfur, er býsna langur Stóru sérkröfurnar cru í aðalatrið- um frá, cn listinn yfir smáhópa, sem enn er ósamið við um sérkröfur, er furðu drjúgur. Norglobalmenn voru í nátt neyddir til að lofa að hætta móttöku loðnu, meðan verkfallið stendur. Atvinnurekcndur segja, að það sé algerlega ólöglegt að hindra loðnu- móttöku Norglobal, þar sem enn eru nokkur skip að veiðum og loðnumót- taka á nokkrum stöðum. Verkfallið sé því ekki algert. Jón Sigurðsson formaður Sjómannasambandsins fékk Björn Jónsson forseta Alþýðu- sambandsins í lið með sér í gær, og hótuðu þeir að láta allar samninga- viðræður stranda, ef ekki yrði orðið við kröfum þcirra varðandi Norglo- bal. í nótt, klukkan um hálftvö gáf- ust leigjendur skipsins upp. Jón ívarsson, annar leigjenda þess, tók fram að hann tæki 2 sólarhringa til umþóttunar um, hvort senda skyldi skipið burt frá íslandi. Því kann svo að fara, að skipið verði farið, þótt verkfall leystist næstu daga. Samningamcnn voru í morgun bjartsýnir á, að verkfallið færi að styttast og því kynni að Ijúka næstu daga. Enn eru eftir svokallaðar ,,sam- eiginlegar sérkröfur”, sem Alþýðu- sambandið ber fram í heild. Þar á meðal er fyrirkomulag um greiðslur í sjúkrasjóð, en ekki eru mörg slík atriði. Þá er auðvitað sjálf kaup- hækkunin eftir. í nótt var enn unnið að lausn sérkrafa, til klukkan þrjú. Þá hafði samningafundur staðið í 37 stundir. í dag klukkan tvö verður væntanlega enn haldið áfram með umræður um sérkröfur. Sumir vilja þó fara að snúa sér að öðru og láta það, scm eftir er af sérkröfum bíða lokanna. En listinn yfir þá, sem eiga sérkröfur ófrágengn- ar, er langur. Þar eru meðal annars: mjólkurfræðingar, netagerðarmenn, kjötiðnaðarmenn, brauða- og mjólk- ursölustúlkur, flugvirkjar, flugfreyj- ur, múrarar, bakarar, Sigöldumenn og sláturhúsafólk. Vinnuveitendur vilja hindra, að sumir þessara hópa komi á síðustu stundu með harða „pressu” eins og áður hefur gerzt. —HH INNFLUTT FLENSA íslenzk heilbrigðisyfirvöld leita nú frekari uplýsinga um innflúensutilfelli það, sem upp kom í bandarískum herbúðum í New Jersey í síðustu viku og leiddi til bráðadauða manns þess er veikina hafði tekið. Mcð vissu cr vitað um, að herinn á Keflavíkurflugvclli flutti inn inflú- cnsufaraldurinn, sem hér geisaði í fyrra. Hann barst hingað með her- mönnum, scm fluttir voru fra sýktum herbúðum í Bandaríkjunum. Var þá þcgar búið að greina inflúensu- stofninn þar vestra, þcgar flutningar á hermönnum hingað til íslands fóru fram. Víst er talið, að sá faraldur sé ekki hinn eini, sem þannig hefur bonzt hingað til lands og er því fullrar aðgátar þörf varðandi flutninga á hermönnum og öðru liði frá Banda- ríkjunum. Spánska veikin, sem svo hefur verið nefnd, er bráðsmitandi og banvæn. Þrátt fyrir að tilkynning hefur borizt fra Alþjóðaheilbrigðis- málastofnuninni þess efnis, að ekki sé hætta á ferðum út af þessu tilfelli í herbúðunum í New Jersey er mjög brýn ástæða fyrir íslenzk heilbrigðis- yfirvöld að hafa mikla gát á her- flutningum hingað til lands. Það er gert sem fyrr segir. -BS- borgarlæknis um 10 leytið í morgun. Borgarlæknir sagði að mjólkin yi’ði afgreidd út á sjúkrasamlagsskírteini eða hcilsufarsbækur frá ungbarna- cftirlitinu. Líklega verður afgrciddur einn lítri af mjólk á barn. Ráðgert var að opna átta mjólkurbúðir en ekki búið að ákveða hvcrjar þær yrðu, og heldur ckki upp að hvaða aldri börn fengju mjólk. ABj. Þessi hressilegi mjólkurbílstjóri var nýkominn ofan úr Borgarfirði með átta þúsund lítra af mjólk. Nærri lætur að það sé um helmingur þcss magns sem leyfð hafði verið vinnsla á, að sögn Sigurðar Runólfssonar mjólkurfræðings. Ekki voru vélar samsölunnar komnar í gang í morgun er Dagblaðsmenn komu þangað. Mjólkurfræðingurinn varðist allra frétta, sagði að þetta mál væri enn allt laust í reipunum og hann vildu engu svara eins og á stæði. Mjólkurbílstjórinn, Ragnar Felixson, var hinn hressasti.sagðist vera sinn eigin herra og ekki í neinu verkfalli. Mjólkin sem hann var með í tankbíl sínum var úr Melasveit og sveitunum í kringum Akranes. Ljósm. DB-Björgvin/ A. Bj. SAMDISTINOTT UM ÖLL HLUTASKIPTIN Sjómannasamningarnir eru nú Þetta hafði verið harðasti hnútur- til frá klukkan tvö í fyrradag. ekki væri gott að segja, hvenær verk- saman við það sem gerist í hinum langt komnir. í nótt náðist sam- inn í dcilunni. Fundur stóð til laust Björn Hermannsson tollstjóri, einn falli lyki. almennu kjarasamningum. Fleiri komulag um hlutaskipti á öllum teg- fyrir klukkan sex í morgun. Höfðu sáttanefndarmanna, sagði í morgun, Eftir er að ræða um kauptrygging- kröfur sjómanna eru einnig eftir. undum skipa. fundir þá staðið, þó með hléi, mikið þótt mikið hefði miðað í deilunni, að una, en hún hangir að verulega leyti —HH Norðlendingar og leiguíbúðirnar: //VIÐ VORUM BLEKKTIR" — sjá bls. 8 Gerrœðislegar aðgerðir barnaverndar- nefndar — Baksíða SIÐASTA BLAÐ FYRIR PRENTARAVERKFALL? Prentaraverkfall er boðað á miðnætti næstkomandi, svo að þetta verður síðasta blað fvrir vcrkfall. Hugsanlegt er þó, að verkfallinu verði frestað, cn engin ákvörðun hcfur vcrið tekin um það. Sáttafundur í prentaradcilunni hófst klukkan níu í gærkvöldi og stóð fram yfir klukkan tvö í nótt. Lítið scm ckkcrt gckk í samkomulagsátt. og sögðu samningamcnn í morgun, að „staðan væri óbreytt”. Raut var um sérkröfur. Næsti fundur er boðaður klukka.i níu í kvöld. -HH. Ellefu i steininum fyrir inn- brot í nótt — Baksíða

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.