Dagblaðið - 24.02.1976, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 24.02.1976, Blaðsíða 3
Dagblaðið. Þriðjudagur 24. febrúar 1976. Fylgjumst með þýzku togurunum „Sjómaður” skrifar: „Hverjir hafa eftirlit með afla þýzku togaranna hér við land? Er kannski sá möguleiki fyrir hendi, að þeir geti stundað mokfiskirí hér við land og haldið síðan á Færeyjamið, verið þar í tvo til þrjá daga, og síðan sagt, að aflinn sé allur fenginn þar? Ef svo er, þá finnst mér, að láta ætti þýzku togarana tilkynna sig til Landhelgisgæzlunnar eða staða í landi. Ef skip lætur vita af sér, þá á að skrá allan þann afla, sem fenginn er á íslandsmiðum. Og ef Landhelgisgæzlan verður vör við skip, sem ekki hefur tilkynnt sig, þá skal það tekið fyrir landhelgisbrot, fært til hafnar og strikað út af skrá yfir þau skip, sem veiðileyfi hafa. Ég vona, aö vel verði (eða sé) fylgzt með þessu, því að það er þjóðarhagur.” l.atum þý/.ku logarana tilkynna sig og aflann. Tannlœknirínn á Hornafirði: HANN ER LIPURMENNI OG NÝTUR TRAUSTS — segir sýslusamlag A-Skaftafellssýslu Þann 5. þ.m. birtist lesandabréf í Dagblaðinu og varðaði viðskipti 10 barna móður á Hornafirði við tannlækni staðarins. Með því að grein þessi er rætin og villandi fyrir ókunnuga, samþykkti stjórn sýslusamlags Austur-Skaft. á fundi sínum í dag eftirfarandi: Sigurður Eymundsson tannlæknir hefur um árabil starfað hér í sýslu með aðsetri á Höfn. Sigurður hefur að sjálfsögðu átt mikil viðskipti við sýslusamlagið og hafa þau ávallt verið hin ánægjulegustu. Tannlæknirinn er lipurmenni og nýtur trausts viðskiptamanna sinna. Aldrei hefur heyrzt að hann sé ósanngjarn í peningamálum, hvorki varðandi upphæðir, reikninga né hörkulegar innheimtuaðgerðir, þvert á móti. Því lýsum vér furðu okkar og andúð á þessum skrifum, enda eru þau mjög einhliða og málum blandin. Innheimtuaðferðir tann lœknisins ó Hornafirði TÍU BARNA MOÐIR á Hornarirði skrifar eflirfarandi: „Hér á Höfn er starfandi tann- krknir sem hamast i tönnunum á fóUti með misjöfnum árangri. En það er nú ekki máiið sem ég aetlaði að fjalla um heldur aðferðir hans við innheimtu á reikningum sinum. I fyrsta lagi sendir hann reikning- ana á útborgunarstað þar sem við- komandi vinnur og fær þá borgaða þar. Atvinnurekendur eiga þvi að draga reikningsupphzðina af kaupi viðkomandi. £g g*ti skilið þessa inn- heimtuaðferð ef reikningar vatru komnir i eindaga. Sjúkrasamlagið hér borgar ekki þann hluta tannviðgerða scm því ber, nema eftir sérstökum reikningi sem þessi ágaeti tannlaeknir útfyllir ekki fyrr en eftir visst margar við- gerðir heldur sendir venjulegar nótur eftir** hverja viðgerð til kaup- greiðanda. Sá tannskemmdi íær ekki endurgreiðslu á þessum viðgerðum fyrr en fyrrnefndi reikningurinn er kominn. Því spyr ég hvorr maður eigi ekki hcimtingu á að fá þcnnan sér- staka reikning um leið og grciðsla fer fram til að endurgreiðslan geti komið sem fyrst. Liggur tannlseknin- um meira á sinu en þeim sem er svo óhamingjusamur að þurfa að vera með krumlurnar á tannlzkninum uppi i sér alltaf öðru hvoru?" Höfn í Hornafirði, 14. feb. 1976 í stjórn sýslusamlags Austur-Skaft. Friðjón Guðröðarson, Höfn. Unnsteinn Guðmundsson, Höfn Aðalheiður Geirsdóttir, Höfn Arnór Sigurjónsson, Brunnhól, Mýrum. Sigurlaug Árnad., Hraunkoti, Lóni RAI 1 DDI ÍESl IR ENDA SÍMATÍMI ER MILU KLUKKAN 13 0G 15 AUGNVERKUR - TILBÚIÐ VIÐTAL VIÐ FORSÆTISRÁÐHERRA ERLINGUR skrifar: „Ég hef ekki farið varhluta af málflutningi ráðamanna í landhelgismálinu undanfarnar vikur, og þykir mér hann allur hinn undaríegasti. Frá mínu sjónarhorni gætu þau fréttaviðtöl, sem birzt hafa í málinu, litið út eitthvað á þessa leið: — Hr. forsætisráðherra. Hvaða augum lítið þér síðustu morðtilraunir Breta á miðunum? „Ég lít þær vissulega grafalvarlegum augum, þar sem líf varðskipsmanna voru í hættu. Ríkisstjórnin mun bregðast mjög hart við, með hörðustu mótmælum hingað til.” — En hvað með margumtöluð stjórnmálaslit, og hvaða afleiðingar myndu fylgja slíkri aðgerð? ,Já, stjórnmálaslit eru aðgerð, sem hleypur ekki frá okkur ef þú skilur hvað ég meina. Auk þess finnst mér slíkt allt of harkaleg aðgerð gagnvart vinaþjóð, sem við höfum átt „góð” (vöru)skipti við. Annars á alveg eftir að fjalla um þetta mál hjá kaupmannasamtökunum.” — Hvað um úrsögn úr NATO, eða að beita þeim styrk, sem við höfum innan þess bandalags? „NATO hefur þegar veitt okkur sinn stuðning. Það hefur lýst yfir samúð með málstað okkar, og það hefur hvatt okkur til samninga. Ég hef sagt það áður, meðal. annars í sjónvarpinu, að við vinnum þetta stríð aðeins sjálfir. Málstaðurinn er okkar megin á alþjóðavettvangi, en vegna herskipanna tel ég óumflýjanlegt að semja við Bretana, því aÖ þeir veiða meira án samninga en með.” — Hvað með sterka málstaðinn og þá geysilegu þýðingu, sem við höfum fyrir NATO? „Við getum alls ekki beitt NATO. Ég hef lýst því yfir áður, og get því ómögulega gengið þannig bak orða minna gagnvart Wilson og brezku stjórninni, sem er farin að treysta því að. það verði ekki gert. En málstaðurinn er okkar megin á alþjóðavettvangi, þótt Bretar haFi GEIR: „Mælirinn hefur verið fullur frá því að herskipin komu inn.” ekki skilið það enn, sem eðlilegt er. Við erum nefnilega smáþjóð!!” — Forsætisráðherra, nú hafa streymt inn fundarsamþykktir og áskoranir til ríkisstjórnarinnar frá flestum félögum, samtökum og bæjarstjórnum á landinu og efni þeirra oftast verið á einn veg. Svo hafa útgerðarmenn á Suðurnesjum og á Höfn í Hornafirði lokað herstöðvarhliðunum. Hvaða augum lítið þér þessi mál? „Eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu, þá álítum við að almenningur sé haldinn einhvers konar fundarsamþykktabrjálæði um þessar mundir og ekkert mark á þessu takandi. Við teljum að tilfinningahiti ráði öllu á þessum fundum, en skynsemi og raunverulegur vilji engu. Varðandi aðgerðir við herstöðina vil ég segja þetta: Ég fordæmi slíkar aðgerðir harðlega vegna þess að dæmi eru um að slíkar aðgerðir hafi verið gripnar á lofti af öfgamönnum og þeim beitt gegn upphafsmönnum sínum.” — Geturðu útskýrt þetta eitthvað nánar? „Nei.” — En má þá segja að ríkisstjórnin taki ekkert mark á skoðunum almennings, sýndum í orði og í verki? „Það fer eftir því, hvaða skoðanir almenningur hefur hvort mark er á því takandi, og svo má MEÐ GÓÐU ÁTAKI BREYTA SKOÐUNUM.” — Að lokum. Hvað þarf að gerast á miðunum til að mælirinn sé fullur? „Mælirinn hefur verið fullur allt frá því herskipin komu inn.” (Lengi tekur sjórinn við). — Hvað GERA ríkisstjórnir, þegar mælirinn er fullur? „Þá mótmælum við harðlega.”” 3 Spurning dagsins Hvernig lízt þér á þá ráðstöfun dómsmálaráðherra að loka áfengisútsölum og banna vínsölu á börum? JÚLfUS ARNÓRSSON tæknifræðingur: Þessi lokun er hlutur sem mátti búast við. Ég er henni meðmæltur að öðru leyti en því að mér finnst að hafa hefði mátt veitingahúsin opin, að minnsta kosti fyrir matarges'ti. ÞORLEIFUR ÓSKARSSON nemandi í M. T.: Ég tel þessa aðgerð dómsmálaráðherra óþarfa. Ég held að hver maður eigi að gera það upp við sjálfan sig, hvort hann eyðir peningunum í vín, hvort sem það er á verkfallstímum eða öðrum tímum. HRAFNHILDUR BERNHARÐS kennari: Ég veit það svei mér ekki. Og þó, ég skil ekki í því, að það hafi verið nein ástæða til að loka ríkinu. Nei, nei, þessi ráðstöfun kom sér ekkert illa fyrir mig. HELGI PÁLSSON leigubifreiðarstjóri: Mér fannst þetta nokkuð snjöll ráðstöfun hjá dómsmálaráðherra. Þessi lokun, ásamt mörgum fleiri, hlýtur að flýta fyrir lausn verkfallsins. Að minnsta kosti fær hún fólk til að hugsa um ástandið. KÁRL GUÐMUNDSSON verkfræðingur: Lokun fyrir vínið er mjög góð ráðstöfun og mætti vera lengur við lýði. GUNNUR GUNNARSDÓTTIR teiknari: Þetta var ágætis ráðstöfun, því að hún orsakar hvíld á buddunni. Þjónarnir? Ég hef enga samúð með þjónum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.