Dagblaðið - 24.02.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 24.02.1976, Blaðsíða 7
Dagblaðið. Þriðjudagur 24. febrúar 1976. 7 Byltingarráð hersins í Portúgal Vill kosningar í apríl n.k. Byltingarráð portúgalska hersins, sem er sterkasta stjórnmálaafl í land- inu um þessar mundir, krafðist þess í gær, að Francisco Costa Gomes forsetr efndi til lýðræðislegra kosn- inga í Iandinu þann 25. apríl nk. Verði af þessum kosningum verður þar kosin fyrsta lýðræðislega stjórnin í landinu sl. 50 ár og mun hún þá Aldo Moro, forsætisráðherra Ítalíu. leysa af hólmi núverandi stjórn hersins og borgara. 25. apríl er annar aimælisdagur byltingarinnar í Portúgal þegar hægri sinnaðri einræðisstjórn lands- ins var steypt af stóli. Innanríkisráð- herran, Manuel Almeida, sagði að vafasamt væri hvort unnt yrði að halda kosningar þennan tiltekna dag þar sem endurskoðunar stjórnar- skrárinnar yrði vart lokið þá. Eiturlyfjasala og neyzla í heimin- um fer vaxandi þrátt fyrir auknar aðgerðir til að koma í veg fyrir það, var eiturlyfjadeild Sameinuðu þjóð- anna í Vín tjáð í gær af heimildar- mönnum sínum. Þrátt fyrir tilburði Tyrkja að koma í veg fyrir ólöglega dreifingu á opíum* og þótt þeim hafi orðið talsvfcrt ágengt, og þrátt fyrir stóraukið sam- starf Bandaríkjamanna og Mexí- Holland orðið aðalmiðstðð dreifingarinnar kana til þess að koma í veg fyrir ræktum opíum valmúa í Mexikó, sér ekki högg á vatni, þegar á heiminn er litið. Segja heimildarmenn nefndarinn- ar að jafnskjótt og komið sé upp um einn ræktanda eða söluaðila, skjóti annar upp kollinum eða eflist í kjöl- far töku hins. Nú mun vera mikil gróska í ópíumrækt í Austur-Afríku og latnesku Ameríku. Þá stendur hún með miklum blóma í Marokkó og Malasíu og er Amsterdam í Hol- landi sögð vera höfuðborg dreifingar- innar í Evrópu og jafn vel víðar. Kemur það heim við reynsluna hér- lendis, en megnið af eiturlyfjum sem hingað berast, koma frá Kaup- mannahöfn, um Holland, eða beint frá Hollandi.— Kínoferð Nixons: MAO BIÐUR AÐ HEILSA FORD Mao Tse Tung bað Nixon, fyrr- um Bandaríkjaforseta, fyrir kveðjur sínar til Fords forseta, þegar hann færi aftur heim til Bandaríkjanna en Nixon og Mao ræddust við í gær í nærri tvær klukkustundir. Eftir fund- inn við Mao hélt Nixon áfram við- ræðum sínum við settan forsætisráð- herra Hua Kuofeng. Að því loknu horfði hann á leiksýningu með konu Maos og fleiru tignu fólki. í fréttum segir að Nixon hafi klappað fyrir öllum atriðum, einnig að loknu lagi, er fjallaði um frelsun Taiwan eða Formósu.— Erlendar fréttir ROM: VIÐTÆK VíRKFÖU Mann- rónó Ítalíu Enn eitt mannránið var framið á ttalíu í gær, er fimmtugum iðjuhöld var rænt í Mílanó. Hann heitir Virginio Vitalis og á snyrtivöruverk- smiðju. Hann var að leggja bíl sín- um fyrir utan heimili sitt er vopnaðir ræningjar réðust að honum og drógu hann út úr bíln- um. Fólk á nærliggjandi knæpu sá aðfarirnar og hugðist koma mann- inum til hjálpar, en þá hóf einn ræningjanna skothríð. Engan sakaði þó, en ræningjarnir komust undan með manninn og veit enginn hvar þeir eru niðurkomnir nú. PERON SETTIR ÚRSUTA- KOSTIR — staða hennar aldrei veikari Nánir samstarfsmenn Maríu Peron settu henni nrslitakosti í gær um að gera ýmsar umbætur, og þykir veikleiki hennar í stjórnarsessi aldrei hafa komið gleggra í ljós en þegar þessir menn settu henni kosti. Meðal skilyrða sem þeir settu Maríu var að hún losaði sig við klíku hægri sinnaðra ráðgjafa sinna og gerð'i þegar í stað róttækar aðgerðir til að koma í veg fyrir eða draga stórlega úr óðaverðbólgunni í landinu, sem ógnar öllu efnahagslífi þess. Þrátt fyrir að við íslendingar séum venjulega í efstu sætunum í heiminum hvað verðbólgu snertir, komumst við ekki með tærnar þar sem Argentínu- menn hafa hælana, því verðbólgan þar er 350 prósent á ári miðað við núver- andi ástand. Verði frúin ekki við þessu er Ijóst að þessir samstarfsmenn hennar, sem eru mjög valdamiklir, munu snúast gegn henni og reyna að beita þinginu til að fá hana setta af. Takist það ekki, er ekki ólíklegt að herinn kunni að grípa inn í og hefur staða Maríu Peron sennilega aldrei verið jafn veik og einmitt nú.— 1 REUTER Það eru fleiri borgir en Reykjavík í skugga verkfalla í dag, því nú stend- ur yfir sólarhrings allsherjarverkfall í Róm og nágrenni. Er starfsemi í borginni að mestu lömuð og þeir starfshópar, sem ekki taka þátt í verkfallinu, hafa lítinn sem engan starfsgrundvöll vegna ástandsins um- hverfis þá. Verkföll þcssi eru til þess að mótmæla minnihlutastjórn kristi- lega demókratans Aldo Moros.— Reynt að rœna eiginmanni leikkonunnar Audrey Hepburn f gær var firrð tilraim til að ræna sins. cn það cr stull leið. Rcðust þá ræningjana þar til lögrcgluaðstoð manni kvikmyntlalcikkonunnar tvcir ntcnn aftan að honum. gripu til barst, en þá lögðu ræningjarnir á frægu. Audrcy Hcpburn, i Rótn.. hans og biirðu hann mcð skamm- flótta og komust undan i hraðskreið- Hann hcilir Andrca Dotti og var á bvssu í höfuðið. Hann snerist til um bíl. Icjð frá skrifsioftt sinni lil hcimilis varnar og tóksl að hafa i fullu trc við z* W Sjúkrahús d Akureyri Tilboð óskast í að reisa og fullgera nýbyggingu við Fjórðungssjúkrahúsiö á Akureyri. Auk þess skal fullgera húsið að utan. Húsið skal vera fokhelt fyrir 1. des. 1977 og frágengið að utan að mestu, en verkinu skal að fullu lokið 1. júlí 1978. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri og skrifstofu bæjarverkfræðings á Akureyri gegn 15.000.- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 23. mars 1975, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS BORGAKTUNI 7 SÍMi 7,6844

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.