Dagblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 6
fi
Dagblaðið. Föstudagur 12. marz 1976.
Bretland:
Wilson stóð af sér
vantrauststillöguna
— áfall Verkamannaflokksins í tvennum
aukakosningum hjálpar ekki upp á sakirnar
Brezka stjórnin hlaut mikilvæga
stuðningsyfirlýsingu á þingi í gær-
kvöld, en um leið hefur komið í ljós,
að bitur ágreiningur er á milli ráð-
herra ríkisstjórnarinnar og vinstri-
sinna í Verkamannaflokknum.
Meirihluti með stjórninni í at-
kvæðagreiðslunni í gærkvöld varð
meiri en búizt hafði verið við —
297:280 — eða sautján atkvæði.
Aður hafði ýmislegt verið sagt í þing-
salnum og gamalreyndir og gleiðir
þingmenn íhaldsflokksins stóðu á
öndinni yflr hvössum orðsendingum
á milli þingmanna Verkamanna-
flokksins.
Skömmu síðar bárust Wilson for-
sætisráðherra heldur dapurlegar
fréttir. Flokkur hans hafði tapað í
tvennum aukakosningum. Þegar
skýrt var frá úrslitum í morgun var
ljóst að íhaldsflokkurinn var með
öruggan meirihluta atkvæða eins og
áður í þessum kjördæmum, sem eru
Carshalton út frá Lóndon og Wirral,.
dreifbýlissvæði í norðvesturhluta
Englands. Árangur Frjálslynda
flokksins í þessum kosningum var
lítill en ekki er talið að það muni
hafa veruleg áhrif á stöðu flokksleið-
togans Thorpes, sem sætt hefur
vaxandi gagnrýni að undanförnu.,
Patty fíggur í fíensu
— réttarhöldunum vfir Harris-hiónunum frestað
Réttarhöldunum í máli milljóna- og
blaðaerfingjans Patty Hearst hefur
verið frestað fram á mánudag vegna
veikinda sakborningsins.
Patricia, sem er 22 ára, var í gær flutt
til rannsóknar á sjúkrahúsi 40 km suður
af San Francisco. Þar var sjúkdóms-
greiningin inflúensa, að sögn lögmanns
hennar. Patty var síðan flutt aftur í
fangelsið.
Þegar rétturinn kemur saman á ný
verður fyrstur kallaður fyrir, af hálfu
saksóknara, sálfræðinginn Harry
Kozol. Honum er ætlað að vitna um
hvort Patty hafi tekið þátt í bankaráni
vegna morðhótana í sinn garð, eins og
lögfræðingar hennar segja.
Réttarhöldin hafa nú staðið í nærri
tvo mánuði og er enn óséð hver
útkoman úr þeim verður. Telja má
líklegt, að Patty verði dæmd sek, en fái
væga refsingu vegna þeirra undarlegu
aðstæðna, er voru í lífi hennar.
í Los Angeles hefur réttarhöldunum
yfir SLA-félögunum William og Emily
Harris,samferðamönnumPatty á flóttan-
um undan réttvísinni og fyrri lífshátt-
um, verið frestað um óákveðinn tíma.
Lögmaður þeirra hjóna fór fram á að
réttarhöldunum yrði frestað í eitt ár
vegna þeirrar miklu athygli sem mál
hjónanna hefur vakið. Þau eru sökuð
um mannrán, vopnað rán og líkams-
Líbanon:
SULEIMAN STÓDST
ÞVINGANIR HERSINS
lætisaðgerð.
Eftir að hann tók sér tignina, kcppt-
ust hann og forsetinn við. að útvarpa
andstæðum yfirlýsingum hvor um
annan og það á sömu bylgjulengdinni.
Fljótt á litið virtist Ahdab mjög sterkur
með herinn að baki sér, en brátt kom í
ljós að hann studdi hann ekki einhuga
og fór sundrung innan hersins vaxandi í
kjölfar þessara aðgerða hershöfðingjans.
Assad, forscti Sýrlands, mun hafa átt
únn þátt í að styrkja Suleiman í deilun-
um við Ahdab , en sem kunnugt er,
voru það Sýrlendingar, eða Assad, sem
tókst fyrir nokkru að koma á
v'opnahléi í Líbanon eftir níu mánaða
borgarastyrjöld.
Borgarastyrjöld í Líbanon: faðir flytur
særðan son sinn á brott en kona hans
fylgir hrópandi og grátandi á eftir.
Suleiman, forseti Líbanon, hefur nú I sem æðsta yFirmann hersins og krafðist
staðizt tilraunir hersins til að þvinga þess að forsetinn segði af sér innan viku.
hann til að segja af sér, en Ahdab Hershöfðinginn kallaði þessa aðgerð
hershöfðingi hafði sjálfur útnefnt sig | sína ekki uppreisn, heldur fremur rétt-
Nixon vissi allt um leyniþjónusturnar:
„Allt var í þágu
þjóðaröryggis"
— segir í eiðsvörnum
vitnisburði Nixons
í eiðsvörnum vitnisburði Richards
Nixons, fyrrum Bandaríkjaforscta,
sem gerður var opinber í gær, segir
að hann haFi samþykkt ólöglegar að-
ferðir við upplýsingaöflun banda-
rískra leyniþjónusta, þar sem slíkar
aðferðir hefðu gefið fyrri stjórnum
góða raun.
Vitnisburður Nixons er 37 vél-
ritaðar síður og svar við spurningum,
sein rannsóknarnefnd öldunga-
deildar Bandaríkjaþings beindi til
Nixons. Nixon heldur því nú fram,
að þessar starfsaðferðir haFi verið
löglegar, þar sem þær haFi verið
notaðar í þágu þjóðaröryggis.
Það voru iögfræðingar Nixons, sem
gerðu plagg þetta opinbert. En
formaður rannsóknarnefndarinnar,
þingmaðurinn Frank Church, var
ekki seinn á sér að snúast gegn hug-
myndum Nixons. Á blaðamanna-
fundi í gærkvöld sagði Church, að
rök forsetans fyrrverandi til réttlæt-
ingar vafasömum áætlunum væru
byggð á hættulegum og staðlausum
hugmyndum um stjórnarfar.
í vitnisburði Nixons kemur m.a.
fram, að hann vissi á einn eða annan
hátt um flestar ólöglegar aðgerðir
CIA innanlands og utan. Hann
viðurkennir jafnframt að hafa látið
hlera símtöl og samtöl Donalds
bróður síns til að ganga úr skugga
um að „hann eða mig sjálfan” ?æri
ekki verið að plata á einhvern hátt.
Þessi mynd af munaðarlausu stúlkubarni í Guatemala segir meira en mörg orö
um ástandið þar eftir náttúruhamfarirnar í fyrra mánuði. En heimamenn hafa
tekið að sér nær alla þd 4000 munaðarleysingja, sem hamfarirnar skildu eftir
sig.