Dagblaðið - 12.03.1976, Page 9
Dagblaðið. Föstudagur 12. marz 1976.
Fangelsið í Síðumúla.
Geirfinnsmálíð á nýtt stig:
Minnbleysi alvar-
legt og úlbreitt í
fangelsinu í Síðumúla
Þegar örn Höskuldsson sakadóm-
ari kvað upp þann úrskurð kl. 10.15 í
gærmorgun að þrír þeirra fjögurra
manna, sem sitja í gæzluvarðhaldi
vegna meintrar aðildar að hvarfi
Geirfínns Einarssonar skyldu hafðir í
haldi í 30 daga í viðbót urðu kaflaskil
í þessu hrollvekjumáli.
Það sem gerist næst er að ríkissak-
sóknari skipar dómara í málið og
síðan hefst hin eiginlega dómsrann-
sókn. Hún er frábrugðin lögreglu-
rannsókninni að því leyti að nú fá
réttargæzlumenn varðhaldsfanganna
að spyrja vitni og fylgjast með fram-
gangi málsins.
En svo getur farið að dráttur verði
á því að dómsrannsóknin geti hafízt,
ef varðhaldsfangarnir áfrýja úrskurði
Arnar Höskuldssonar. Dagblaðið
hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því
að sá fanganna, sem ekki áfrýjaði um
leið og hinir fljótlega eftir handtöku,
hafi í hyggju að áfrýja framhaldsúr-
skurðinum. Þá tekur töluverðan tíma
að matreiða skýrslur og gögn í
Hæstarétt.
Um gang rannsóknarinnar er lítið
vitað, enda mun minnisleysi vera
alvarlegt og nokkuð útbreitt vanda-
mál í fangelsinu í Síðumúla þessa
dagana. Þá liggur ljóst fyrir að ein-
hverjir þessara manna — ef til vill
allir ásamt fleirum — hafa viður-
kennt að hafa farið í sjóferð með
Geirfinni Einarssyni.
Þetta má m.a. skilja af úrskurði
Hæstaréttar þegar varðhaldsúrskurð-
ur Sakadóms var staðfestur á dögun-
um, en þar var vísaðti) framburðar
þeirra Sævars Marinós Ciesielskis og
Kristjáns Viðars Viðárssonar um
ákveðna ferð til Keflavíkur.
Þeir Sævar og Kristján eru því
flæktir í bæði hvarf Geirfinns og
Guðmundar Einarssonar, sem þeir
hafa raunar viðurkennt að hafa orðið
að bana. Kristján og Guðmundur
heitinn voru skólabræður áður.
Gæzluvarðhald þeirra og hinna
tveggja piltanna, sem viðurkennt
hafa aðild að sama máli, hefur verið
framlengt meira og minna eftir þörf-
um og mun verða svo unz dómur er
kveðinn upp.
Rannsókn þessara mála hefur til
þessa eingöngu beinzt að því að
upplýsa sjálf mannshvörfin, en ekki
„aukamálin”, sem komið hafa upp,
m.a. fjármálaumsvif Klúbbsins og
möguleg tengsl veitingahússins við
Framsóknarflokkinn. Ekki er þó loku
fyrir það skotið nú að með breyttri
aðstöðu rannsóknarmannanna
(vegna dómsrannsóknarinnar) gefíst
þeim tími og tilefni til að fara nánar
í saumana á ýmsu sem kann að koma
til á einn eða annan hátt. örn Hösk-
uldsson hefur lagt áherzlu á það að
lögreglurannsóknin hafí beinzt að
því að upplýsa glæpi, ekki annað.
Þannig virðist hafa breiðzt út sá
misskilningur að ákæra ríkissaksókn-
ara á hendur tveimur starfsmönnum
Klúbbsins, sem eru meðal gæzlu-
varðhaldsfanganna, fyrir margvísleg
brot á skattalöggjöfinni, sé í tengsl-
um við Geirfínnsmálið. Svo er ekki
og það var vegna Geirfinnsmálsins
sem „fjórði maðurinn” var hnepptur
í varðhald, eigandi Klúbbsins. Varð-
haldsvist hans á að ljúka 28. þessa
mánaðar. —ÓV.
Fisléttir og fallegir samkvœmisskór
Sérlega heppilegir til að dansa ú
Fjölmargar gerðir
Yerð kr. 7450.-
Skór í sérstökum gœðaflokki
Ætlar þú líka á
árshátíð
um helgina?
Littu þá inn hjá Sólveigu
Vélskólinn 60 ára:
NEMENDUR JAFNMARGIR NÚ OG
BRAUTSKRÁÐUST FYRSTU 30 ÁRIN
Skrúfudagurinn er á morgun
Hinn árlegi Skrúfudagur Vélskóla ís-
lands er á morgun, laugardag. Þessi
kynningar- og nemendamótsdagur skól-
ans er nú haldinn í 15. sinn. Þennan
dag eru nemendur við störf í öllum
verklegum deildum skólans, í vélasaln-
um, raftækjasal, smíðastofum, rafeinda-
tæknistofu, stýritæknistofu, kælitækni-
stofu og efnarannsóknastofu. Nemend-
ur veita upplýsingar um tækin og skýra
gang þeirra.
Að venju er margmenni á Skrúfudegi
Vélskólans. Væntanlegum nemendum
og foreldrum þeirra, svo og forráða-
mönnum yngri nemenda og ýmsum
Qðrum sem áhuga hafa, er þá sýnd öll
starfsemi skólans og unnt er að fá
upplýsingar um hvað eina er forvitni
vekur.
Ótrúleg þróun hefur orðið hjá Vél-
skólanum, ekki sízt síðustu 10—15 árin.
Skólinn er nú 60 ára, var stofnaður
1915. 1925 hafði hann brautskráð 69
vélstjóra, 1935 höfðu 205 lokið prófí,
1945 höfðu 350 lokið prófi, 1955 voru
515 með skírteini, 1965 voru þeir 787 og
1975 hafa 2045 hlotið vélskólapróf.
Nú eru nemendur á öllum stigum í
Reykjavík 350 talsins, en auk þess eru
vélskóladeildir í Vestmannaeyjum, fsa-
firði, Siglufírði og Akureyri með rúm-
lega 60 nemendur í fyrri hluta námsins,
en allir verða að ljúka síðari hluta í
Reykjavík. 52 nemendur útskrifast í
vor, þafínig að á 60 árum hefur skólinn
útskrifað 2097 vélstjóra.
Nú er skólarými orðið svo þröngt að
ef .fram fer sem horfir verður að neita
nemendum um skólavist í haust, komi
ekki til aukið húsrými, sagði Andrés
Guðjónsson skólastjóri í viðtali við
blaðamenn. Auk húsrýmis er og tilfinn-
anlegur skortur á tækjum til kennslu í
ýmsum greinum.
Dagskrá Skrúfudagsins hefst með há-
tíðafundi kl. 13.30. Þar munu m.a
koma fram fulltrúar ýmissa afmælis-
árganga, en þeir hafa oft fært skólan-
um gafír og gert sér dagamun á
Skrúfudaginn.
Kaffíveitingar verða á vegum
Kvenfélagsins Keðjunnar í veitinga-
sal Sjómannaskólans frá kl. 2. Auk
Keðjunnar standa að Skrúfudegin-
um skólafélagið og Vélstjórafélagið,
að ógleymdum skólanum sjálfum.
ASt.
Dalheiður Bjarnfreðsdóttir i sjálfsmynd — Leikritaskáldið
‘tic Cat — Náttbólið í Þjóðleikhúsinu — Ljómandi tertur —