Dagblaðið - 12.03.1976, Side 13
Dagblaðið. Föstudagur 12. marz 1976.
f
drrns^
Iþróttir
Iþróttir
þróttir
Sþróttir
Þegor vHakast var ckemt
vor loksins fknitað of!
— Æsispennandi viðureign Austur- og
ó Olympiuleikunum í Montreol. Leikið
Vestur-Þjóðverja um réttinn til að leika
fimm minútur yfir venjulegan leiktíma.
Dankersen 7. marz.
Vestur-þýzka landsliðið í handknatt-
leik hefur nú tryggt sér farseðilinn til
Montreal. Liðið tapaði fyrir A-
Þýzkalandi með ellefu mörkum gegn
átta í síðari leik liðanna, sem háður var
í Karl-Marx-Stadt í A-Þýzkalandi.
Þetta nægði V-Þjóðverjum — en tæp-
ara mátti það ekki standa, því þeir
sigruðu í fyrri leiknum með 17-14. Náðu
því betri heildarmarkatölu úr leikjun-
um — sigruðu Belga með meiri mun en
Austur-Þjóðverjar.
Þessi árangur vestur-þýzka liðsins er
stórsigur fyrir vestur-þýzkan hand-
knattleik í heild. Leikmenn liðsins hafa
lagt gífurlega mikið á sig til að ná þessu
takmarki. Hafa til að mynda verið
saman í 11 vikur samtals á þessu
keppnistímabili við undirbúning fyrir
leikina við A-Þjóðverja. Starf það, sem
hinn júgóslavneski þjálfari liðsins,
Vlado Stenzel, hefur unnið, er ólýsan-
legt. Hann gerði Júgóslava að
Olympíumeisturum 1972.
Leikurinn í Karl-Marx-Siadt var
æsispennandi frá byrjun til enda.
Taugaspenna, harka og æsingur í fyrir-
rúmi og hinir 4500 áhorfendur létu vel
til sín heyra — púuðu á Vestur-
Þjóðverja, en studdu vel við bakið á
sínum mönnum. Deckarm skoraði
fyrsta mark leiksins, en Ganschow svar-
aði fljótlega fyrir A-Þjóðverja. Síðan
komu tvö mörk í viðbót hjá A-
Þjóðverjum, sem Rost og Ganschow
skoruðu, áður en Deckarm tókst að
skora annað mark liðs síns á 11. mín-
útu.
En eftir það fylgdi mjög slæmur kafli
hjá vestur-þýzka liðinu, sem skoraði
ekki mark í 15 mínútur. Ásama tíma
skoruðu A-Þjóðverjar fjögur og staðan
var þá orðin 7-2 eftir 26 mín. leik. Úrslit
leiksins virtust ráðin, því allt sem V-
Þjóðverjar reyndu fór í handaskolum.
Deckarm var þó ekki á því að gefast
upp — skoraði tvö mörk í röð og það
síðara beint úr aukakasti á síðustu sek-
úndum hálfleiksins. Deckarm skoraði
því öll mörk V-Þjóðverja í hálfleiknum,
sem lauk með þriggja marka forustu
A-Þjóðverja 7-4.
Síðari hálfleikur bauð upp á enn
meiri spennu. Austur-Þjóðverjar
reyndu allt sem þeir gátu til að auka
forskotið, en fjögurra marka munur
nægði þeim til að tryggja sér keppnis-
rétt í Montreal. V-Þjóðverjar skoruðu
fyrsta markið í síðari hálfleiknum og
minnkuðu muninn í 7-5. Stuttu síðar
varði markvörður V-Þjóðverja, Hoff-1
mann, vítakast frá Axel Kahlert. En
hann kom engum vörnum við í næsta
vítakasti, sem A-Þjóðverjar fengu og
Þjálfari Vestur-Þjóðverja — Júgóslavinn Vladi Stenzel. Hann gerði Júgóslava að
Olympíumeisturum 1972 og kemur til með að sitja á bekk Vestur-Þjóðverja á
næstu leikum.
Engel tók. Staðan var þá 8-5 og nú
fylgdu margar misheppnaðar sóknartil-
raunir á báða bóga, þar til Brand
smeygði sér mjúklega í gegnum þéttan
varnarmúr A-Þjóðverja og minnkaði
muninn í tvö mörk, 8-6.
Níunda mark A-Þjóðverja skoraði
Engel, en Kluhspies svaraði — skoraði
sjöunda mark síns liðs eftir að hafa átt
margar misheppnaðar skottilraunir. Nú
var komið að lokakafla leiksins og
spennan í algleymingi. Deckarm var
vísað af leikvelli fyrir brot á Ganschow
og Böhme notfærði sér stöðuna með því
að brjótast inn úr horninu og skora
tíunda mark A-Þjóðverja.
. Stuttu síðar var brotið illa á Spengler
og Deckarm minnkaði muninn í 10-8 úr
vítakasti. Sama staða kom upp hinum
megin á vellinum. Brótið var á Engel —
dæmt vítakast, sem Engel tók sjálfur og
skoraði. Staðan 11-8 og tæpar tvær
mínútur til leiksloka. Austur-Þjóðverjar
spiluðu maður á mann — náðu boltan-
um, en sóknin varð árangurslaus. Sek-
úndurnar tifuðu og urðu að mínútum
og alltaf hélt leikurinn áfram. Þrjár
mínútur voru liðnar framyfir venjuleg-
an leiktíma og spennan í höllinni og
panikin á leikvellinum var ólýsanleg.
Það var engu líkara en austur-þýzku
tímaverðirnir ætluðu sér ekki að flauta
af fyrr en Austur-Þjóðverjum tækist að
bæta við einu marki. Sænsku dómar-
arnir, Nilsson og Olsson, stöðvuðu leik-
inn til að huga að tímanum. Komu
síðan aftur og leikurinn hélt áfram.
Þegar fimm mínútur höfðu verið
leiknar framyfir venjulegan leiktíma
brauzt Rost í gegn. Vítakast var dæmt
á Vestur-Þjóðverja og nú fyrst flautuðu
austur-þýzku tímaverðirnir hátt og
snjallt í flautur sínar.
Sem sagt — Austur-Þjóðverjar áttu
nú alla möguleika á að auka forskotið í
fjögur mörk, sem þýddi um leið þátt-
töku á Olympíuleikunum í Montreal.
Hinn leikreyndi Hans Engel stillti sér
upp, en á móti homum stóð Hoffmanp
í marki Vestur-Þjóðverja. Loftið var
þrungið spænnu og áhorfendur staðnir
upp — sumir héldu höndum fyrir and-i
lit sín, aðrir snéru sér undan. Engel
skaut, en með eldsnöggri fótahreyfingu
tókst Hoffmann að verja skot hans.
Hans Engel féll lamður í gólfið — en
Vestur-Þjóðverjar dönsuðu stríðsdans
um alla höllina. Þeim hafði tekizt það,
sem fyrirfram var talið ómögulegt.
Sérstaklega ber að lofa varnarleik
V-Þjóðverja í þessum leik. Hann var1
frábært i leikinn út í gegn og austur-
þýzku skyttumar fengu aldrei frið.
Óhætt er að líta björtum augum á
framtíð þessa unga liðs (meðalaldur
22r7 ár) og það mun örugglega standa
fyrir sínu, þegar til Montreal kemur. Á
hinn bóginn er það auðvitað sorgleg
staðreynd, að A-Þjóðverjar skulu ekki
vera meðal þátttakenda á næstu
Olympíuleikum, því lið þeirra er án alls
vafa í allrafremstu röð í heiminum í
dag.
• Mörkin. V-Þjóðverjar: Deckarm 5/1,
Kluhspies 2, Brand 1. — A-Þjóðverjar:
Ganschow 4, Engel 3/2, Kahlert 2/2,
Böhme 1 og Rost 1.
Auf Wiedersehen,
AXEL AXELSSON.
Mikil ólga h jó Standard
Yfir 20 þúsund áhorfendur voru
samankomnir á leikvellinum í
Charleroi, þegar Sporting Charleroi
fékk Anderlecht í heimsókn í 1.
deildinni. Það var skemmtilegur og
sögulegur leikur. í fyrri hálfleiknum,
náði Charleroi að sýna sínar beztu
hliðar — leikmenn liðsins léku skínandi
bæði í vörn og sókn.
Á 22. mín. léku þeir Guðgeir
Leifsson og Austurríkismaðurinn
Böhmer laglega í gegnum vörn
Anderlecht og átti sá austurríski skot á
markið. Ruiter markmanni tókst
naumleg að bjarga, en ekki betur en
svo, að boltinn hrökk fyrir fætur
Guðgeirs, sem sendi hann algjörlega
óverjandi efst í markhornið. Aðeins
nokkrum mín. síðar misnotaði Jakobs
upplagt tækifæri til að auka forustuna,
en skot hans hafnaði í hliðarnetinu
utanverðu. Henrotay, fyrrum
leikmaður Standard, átti heiðurinn af
síðara marki Charleroi, þegar hann lék
skemmtilega á Jan Dokex, vinstri
bakvörð Anderlecht, og sendi síðan
fastan bolta fyrir markið. Ruiter hafði
hendur á boltanum, en missti hann frá
sér til þýzkarans Gebauer, sem ekki var
seinn að senda hann í netið. Gebauer
hefur nú skorað 13 mörk og er
langmarkhæstur hjá Charleroi. í
hálfleik var staðan 2-0 fyrir Sebrana, en
Adam var ekki lengi í Paradís, því strax
aæ 9. mín. síðari hálfleiks minnkaði
Hollendingurinn Rensenbrink muninn
í 2-1. Tveimur mín. síðar jafnaði Van
Binst með rangstöðumarki, en
dómarinn dæmdi markið gilt. Eftir
þetta skiptust liðina á að sækja, án þess
að skoruð væru fleiri mörk.
Guðgeir átti prýðisleik með Charleroi
— einn albezti maður liðsins og hann
virðist nú orðinn góður af meiðslunum,
sem hafa háð honum. Guðgeir gerir það
gott í Charleroi og alveg næstu daga er
hann að flytja í nýtt einbýlishús með
fjölskyldu sína. Félagið hefur tekið
þetta nýbyggða hús á leigu fyrir Guð-
geir — og með því fylgir hinn fegursti
garður.
Standard Liege átti góðan leik við O-
stende og úrslitin 4-2 gefa ekki rétta
hugmynd um gang leiksins. Miklar
sviptingar hafa verið í herbúðum
Standard síðustu vikur. Eftir 3-0 tapið
fyrir Anderlecht var franska þjálfaran-
um Lucein Leduc sagt upp störfum
eftir aðeins þriggja mán. starf. Þá bjugg
ust allir við, að Van der Hart tæki aftur
við þjálfun aðalliðsins, en stjórn Stand-
ard tilkynnti að svo yrði ekki, heldur
myndi Maurice Lampreur, þjálfari
unglingaliðsins, halda áfram með liðið í
óákveðinn tíma. Þetta gat Van der
Hart ekki fallizt á og sagði upp störfum
samdægurs. Tveir þjálfarar hætta í
sömu vikunni og er Lampreur sá sjötti,
sem tekur við þjálfun Standard á þeim
þremur árum, sem ég hef leikið með
félaginu.
Leikurinn við Ostende var hraður og
mikið um markatækifæri. Undirritaður
skoraði fyrsta mark Standard á 22. mín.
Ostende jafnaði á 24. mín. eftir herfileg
mistök Teo Poel, sem lék nú hægri
bákvörð. Eric Gerets tók stöðu miðherja
'bg Gorez var settur út. Gerets átti mjög
góðan leik og skoraði tvö mörk á 43.
mín. og 72.mín. Fjórðá mark Standard
skoraði Carot á 76.mín. Simoen átti svo
lokaorðið í þessum leik og minnkaði
muninn í 4-2 með góðum skalla. í
byrjun síðari hálfleiks var einum leik-
manni Ostende vikið af leikvelli fyrir að
slá til línuvarðar. Ásgeir Sigurvinsson.
USA-stúlkurnar
unnu Víking
Bandaríska landsliðið lék i gær
æfingaleik við meistaraflokksstúlkur
Víkings í íþróttasal Réttarholtsskóla.
Bandarísku stúlkurnar sigruðu með 15-
14 í skemmtilegum leik.
Ástralíumet
Viða um heim stefna iþróttamenn mark-
visst að ná Olympiulágmörkum fyrir leikana í
Montreal í sumar. Ástralski hlauparinn Peter
Larkins setti nýtt ástraliskt met i gær i 3000
metra hindrunarhlaupi — hljóp vegalengdina
á 8.27 minútum og bætti met fyrrum heims-
methafa Kerry O’brien um 2 sekúndur.
Guðgeir Leifsson hefur átt skinandi iei^; með
Charlcroi - og er nú að flytja með fjölskyldu sina
i nýtt einbýlishús i Charleroi.