Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 12.03.1976, Qupperneq 14

Dagblaðið - 12.03.1976, Qupperneq 14
14 r Dagblaðið. Föstudagur 12. marz 1976. Maggi Kjartans, Jóhann Helgasoh, Pálmi Gunnars ag fleiri á skemmtun Klúbbs 32 á sunnudagskvoldto • önnur skemmtun Klúbbs 32, eftir að nýja stjórnin tók við, er fyrirhuguð í Tjarnarbúð næstkomandi sunnudag, 14. marz. Allmargt verður að ske á skemmtun þessari. Magnús Kjartansson mætir ásamt nokkrum félögum sínum, svo sem Hrólfi, Finnboga og fleiri góðum mönnum. Pálmi Gunnarsson kemur fram ásamt nokkrum öðrum, væntanlega meðlimum Blues company og fleirum. Þá mun Jóhann Helga- son kynna lög af væntanlegri LP plötu sinni. Honum til aðstoðar verða blásarar úr Pónik og fleiri sem leika á plötunni. Fleiri menn koma við sögu á þessu skemmtikvöldi Klúbbsins, en hverjir það eru kemur í ljós á sunnudaginn. Verðlag aðgöngumiða a fyrstu skemmtun Klúbbs 32 vakti töluverða reiði. Á sunnudaginn mun miðaverð verða 300 krónur fyrir klúbbmeðlimi og 600 fyrir þá, sem ekki hafa verið nógu forsjálir að fá sér félagsskírteini. Eftir sem áður verður hægt að ganga í klúbbinn og verður þá að borga 1.100 krónur ef fólk hyggst ganga í klúbbinn á sunnudagskvöldið. -ÁT- Meðal skemmtikrafta á Þjóðlagahátíð '76 verður væntanlega þjóðlagatríóið Þremill. Meðal annarra kemur Jóhann Helgason fram og kynnir nokkur lög af nýrri LP plötu sinni. Myndin ei eftir Pjetur Stefánsson. Er nýtt Irf oð fœrast í þjóðlagatónlistar- f lutning hér á landi? — Þjóðlagahátið '76 lofar öllu fögru um það Lítið hefur verið að gerast hjá flytjendum þjóðlagatónlistar hér á landi undanfarin ár Einna helzt eru haldin þjóðlagakvöld i framhaldsskólunum, — og þar með upp talið. Nú kann hins vegar að vera að renna upp ^etri tíð, því að á morgun, laugardaginn 13. marz, gangast nokkrir aðiiar fyrir þjóðlaga- tónleikum í Austurbæjarbíói. Fólkið virðist vera nokkuð stórhuga, því að skemmtunin á aö nefnítst Þjóðlaga- hátíð ’76. Á þessari þjóðlagahátið koma fram allmargir skemmtikraftar, svo sem Helga Möller, Sigrún Magnúsdóttir, Ciuðjón Þór Guðjónsson, Þremill og tríóið Við þrjú. Einnig vinna for- ráðamenn skemmtunarinnar að því að fá Spilverk þjóðanna, Diabolic In Musica og jafnvel fleiri til að koma fram. Hátíðin á að hefjast í Austurbæjarbíói klukkan tvö á laugardaginn. Hagnaður af aðgöngumiðasölunni rennur allur til Fórnarviku kirkjunnar. Miðaverðinu verður mjög stillt í hóf, svo að sem flestir sjái sér fært að koma á skemmtunina. Dagblaðinu var sagt að aðgangseyi ir yrði í mesta lagi 500 krónur, og þó sennilega ckki meiri en kr. 400. Því ætti uppsprengt aðgöngumiðaverð ekki að standa í veginum fyrir því, að sem flestir komi á Þjóðlagahátíð ’76. -ÁT- Leiðrétting Sú meinlega villa slæddist á poppsíðuna á miðvikudaginn að Ingvi Þór Kormáksson píanóleikari Experiment var nefndur Ingvar ögmundsson. Við biðjum Ingva og Ingvar ögmundsson innilega afsökunar á þessum mistökum. V Þess ma geta svona meðfram, að öll tónlistin, sem þeir Sumarliði, Veturliði og Yfirliði flutlu, var eftir Ingvn. D0GG W A UPP- LEIÐ — einbeitir sér að flutningi frum- saminna laga Ef litið er á feril hljómsveitarinnar Daggar frá upphafi vaknar sá grunur að hún hafi ávallt fylgt þeim hljómsveitum sem hæst bar hverju sinni, hvað tónlistarstefnu varðar. í byrjun var Dögg skipuð sex mönnum og Iek countrytónlist — sams konar og Brimkló gerði hvað vinsælasta. Brimkló var á þeim tíma með hæst skrifuðu hljómsveitunum í íslenzku poppi og naut meðal annars gífurlegra vinsælda á Keflavíkur- flugvelli. Síðan, í kjölfar hljómsveitarinnar Júdasar, flutti Dögg sig yfir á funky- línuna svonefndu. Þá tegund tón- listar flutti hljómsveitin, þar til hún lognaðist út af á síðastliðnu hausti. Síðar, er Döggin tilkynnti um mannabreytingar og hljóðfæraskip- •an, varð manni hugsað til þess hvort nú ætti að taka mið af tónlist Change. En strax í byrjun, er hljóm- sveitin kom fram eftir margra mán- aða þögn kom í ljós að Changetón- listin hafði algjörlega verið látin í friði. Meðlimir Daggar einbeita sér að flutningi frumsaminnar tónlistar. Fei það vel, þar sem lögin eru mjög áheyrileg allflest og eiga eflaust eftir að njóta mikilla vinsælda, er fram líða stundir og áheyrendur hafa vanizt þeim. Hlutfallið milli frumsaminnar tónlistar og eftirlíkinga er að sögn söngvarans, Páls Pálssonar, um það bil þrjú kópíeruð lög á móti hverjum tíu frumsömdum. Eftir frammistöðu Daggar á SAM- komunni á þriðjudaginn ma telja, að hljómsveitin verði meðal þeirra sem eiga eftir að gera það gott á sveita- dansleikjavertíðinni næsta sumar — það er, ef bætt verður á laga- prógrammið nokkrum léttum, dægurlögum, sem eru efst á baugi hverju sinni óg koma misdrukknum danshúsgestum í stuð. Annars er erfitt að spá um, hvaða hljómsveitir eigi eftir að verða stærstar næsta sumar. í raun og veru er engin hljómsveit starfandi nú er á þersónufylgi að fagna nema Paradís. En vafalaust eiga Dögg, Cabaret, Eik og jafnvel Dínaniit eftir að gera góða hluti, sem gæti skapað þeim nafn úti á landi, ekki síður en í Reykjavík. -ÁT.- DÖCCj. Meira en tveir þriðju af prógramminu eru frumsamdir. DB-mvnd: Björgvún.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.