Dagblaðið - 12.03.1976, Síða 15
Dagblaðið. Föstudagur 12. marz 1976.
15
Vignir Bergmann:
„BROTTFÖR
MÍNÚRJÚDAS
ER ÓSKÖP
EÐLILEG
ÞRÓUN"
Viðskilnaður Vignis Bergmann og
fyrrverandi félaga hans í
hljómsveitinni Júdas hefur vakið
nokkra athygli almennings, — og þá
að sjálfsögðu einnig umtal. Hver var
ástæðan? Tónlistarlegur ágreiningur?
Var Vignir orðinn leiður á hinum
eftir tæplega áratugs samstarf, eða
nennti hann ekki með til Banda-
ríkjanna? DB rætti stuttlega við
Vigni til að fá á hreint, hvers vegna
hann hætti.
„Það er margt sem spilar inn í
þessa uppsögn mína,” sagði Vignir,
„og ég get ekki talið upp neitt eitt,
tvennt eða þrennt, sem orsakar hana.
Fólk skiptir um leiðir af því að það er
orðið þreytt á að þræða gömlu
leiðina. öðruvísi get ég í raun og
veru ekki svarað þessu, nema með
því að þetta er ósköp eðlileg þróun.”
— Og hvað tekur nú við á tónlist-
arsviðinu?
„Ég reikna ekki með að spila neitt
opinberlega á næstunni alla vega
ekki næsta árið, og í danshljómsveit
fer ég ekki. Ég held að það sé bezt að
draga sig algjörlega í hlé, þegar
maður hefur ekkert fram að færa,
sem stórvægilegt getur talizt. Ég læt
hins vegar örugglega fra mér heyra,
um leið og ég hef eitthvað nýtt á
takteinunum.” -ÁT-
Eftir að George Harrison gaf samþykki sitt til
hljómleikahalds Bítlanna er þeim ekkert að vanbúnaði.
Horfurnar
bjartar ó því að
Bítlarnir komi
saman ó ný
* Allt frá því að þeir John, Paul,
Ringo og George slitu samstarfi
hefur verið orðrómur á kreiki um að
þeir hygðust koma saman aftur. Ef
ekki til langframa, þá til að lcika
saman í eitt eða tvö skipti. Ávallt
hafa þessar sögusagnir verið borna>
til baka af umboðsmönnum Bítlanna
— þangað til á síðasta ári. Nú hafa
þrír af þeim lýst sig fúsa til samstarfs
og sá fjórði George Harrison virðist
loksins vera orðinn heitur.
I Daily Mirrór var sagt frá því
fyrir skömmu að nú benti allt til þess
að efnt ýrði til éinna tónleika í
Bandaríkjunum bráðlega.
Daily Mirror fullyrðir - þetta á
þeirri forsendu að blaðið ræddi við
föður Georges, Harold Harrison, sem
hafði það eftir syni sínum, að hann
hefðl ekki lengur neitt á móti því að
leika á hljómleikum með sínum
gömlu félögum.
Hroðalegar pyntingar ó
hindrunarhlaupahestum
lótnar viðgangost
Viðurstyggilegar pyntingaraðferðir
eru notaðar víða þar sem
veðhlaupahestar eru þjálfaðir, til
þess að fá þá til að stökkva hærra og
vinna til fleiri verðlauna.
„Hestarnir sem fljúga yfir
hindranir og vekja hrifningu
viðstaddra og sjónvarpsáhorfenda
eru oft á tíðum óskaplega kvaldir og
vita að ef þeir koma við grindurnar í
stökkinu geta þeir fundið enn meira
til,” segir talsmaður dýraverndunar-
félags í Bandaríkjunum.
Meðal pyntingaraðferða sem
notaðar eru má nefna eftirfarandi:
Borin eru smyrsl á fætur hestanna
rétt fyrir ofan hófinn þannig að
fóturinn bólgnar, og er mjög sárs-
aukafullt ef hann rekst í grindurnar.
Illþyrmislegur gaddavírsspotti er
settur upp í hestinn með mélunum,
þannig að knapinn getur látið vírinn
skerast inn í viðkvæmt holdið í
munninum, ef hesturinn hikar hið
minnsta við að stökkva.
Lítilli rafhlöðu er komið fyrir á
reiðstígvélinu þannig að hægt sé að
gefa hestinum straum í kviðinn ef
hann þarf á sérstakri hvatningu að
halda.
Svipan er búin með hvössum
göddum sem skerast inn í holdið
þegar hún er notuð.
Efstu grindurnar í hindrunum eru
þakktar með hvössum nöglum eða
öfugum gosdrykkjaflöskutöppum.
Þá fara hestarnir annaðhvort hátt
yfir hindrunina eða rífa á sér fæturna
ella.
Joan Blue, forseti bandaríska
hestavinasambandsins segir: „Þessar
grimmilegu aðferðir eru notaðar
þegar verið er að æfa hindrunar-
hlaupshesta bæði í Bandaríkjunum
og um gjörvallan heim.
Litlum rafhlöðum er komið fyrir á
reiðstígvéíinu.
öfugir gosdrykkjaflöskutappar eru
negldir á efstu grindina í
hindruninni.
Litlum, hvössum nöglum er raðað á efstu grindina í hindruninni.
Beittur vír er látinn upp í hestinn ásamt méiunum.
Það tekur langan tíma að þjálfa
hest þannig að hann verði „meistari”
Sumir þjálfarar halda að þeir ílýti-
fyrir því með að pynta hestana. Ekki
eru til tölur um hve margir þjálfarar
nota þessar og aðrar ámóta
pyntingar, en gera má ráð fyrir að
um 10% sé að ræða.”
Ritari í bandaríska sýningarhesta-
félaginu hefur viðurkennt blákaldur
að þessar aðferðir séu notaðar.
„Ég hef heyrt um þessar aðferðir,”
segir ritarinn. „Það er til bæði gott
og vont fólk í öllum greinum.”
Það er hroðalegt til þess að vita að
þetta skuli vera látið viðgangast.
Reyndar skulum við fara hægt í að
hneykslast yfir útlendingum, sem illa
fara með skepnur. í Dagblaðinu í
fyrradag var birtur hæstaréttar-
dómur í máli bónda sem fór illa með
búpening sinn. Dæmdur var af
honum rétturinn til búpeningshalds í
fimm ár.
Þá hefur einnig oft í fréttum verið
getið um hroðalega meðferð á
köttum. Nú er búið að stofna katta-
vinafélag svo málefnum katta ætti að
vera borgið í bili a.m.k.
Aburður sem framkallar bólgu er
borinn á fótinn rétt fyrir ofan hófinn.
Oddhvassir naglariMu lálnirá svipuna.
Það væri óskandi að
dýraverndunarfélög um allan heim
sæju sér fært að sporna með
einhverju móti við álíka pyntingum
á hestum, eins og lýst var hér að
framan.
-A. Bj.