Dagblaðið - 12.03.1976, Blaðsíða 24
„Bóndi er bústólpi. Bú er landstólpi.” Halldór Kristjánsson virðir fyrir sér fjósið á Heynesi. Á rekajörðum viil oft safnast saman mikið af
alls kyns trjáviði. DB-mynd: Björgvin Pálsson.
„Ég held þó hausnum ennþá"
— segir Halldór bóndi Kristjánsson í Heynesi
,Jú mikil ósköp. Ég hef vitanlega
myndað mér ákveðna skoðun á þessu
máli. Hins vegar held ég að bezt sé
að vera ekkert að gefa hana upp,”
sagði Halldór Kristjánsson, bóndi á
Heynesi í Innra Akraneshreppi, er
DB brá sér í heimsókn til hns í gær
og spurði um álit hans á nýföllnum
hæstaréttardómi sem dæmir af
honum allar kindurnar. „Ásgeir
Pétursson sýslumaður hefur sífellt
verið að hamra á því við mig, að
þetta mál sé hvorki árás á eignarrétt
eða persónufrelsi. Ég held að sá góði
maður væri ekki alltaf að tala um
þetta, ef honum fyndist það ekki
sjálfum.”
Nú er búið að selja 54 kindur, en
níu hefur verið komið fyrir á
nágrannabæjunum. Ennfremur eru
tíu kýr á öðrum stöðum þar eð verið
var að hreinsa fjósið og mála.
Við spurðum Halldór Kristjánsson
að því, hvort ekki væri mjög bagalegt
að missa allar eignir sínar á þennan
hátt.
„Ég held þó hausnum enn þá,”
svaraði hann og hló við. „Einnig er
ég með hundana mína hérna og
hænsin auk tíu gripa í fjósi. Það
skrítnasta við þetta mál er ef til vill
það, að ég undirritaði leigusamning
á jörðinni 28. febrúar síðastliðinn, og
gekk leigan samstundis í gildi.
Þennan leigusamning vill Ásgeir
Pétursson ekki viðurkenna, — segir
að með honum sé ég að fara í kring-
um málið.
Því má kannski einnig bæta við,”
sagði Halldór ennfremur, „að svo
virðist sem flestir hafi lagzt á eitt
með að gera mér erfitt fyrir. Til
dæmis hef ég ekki getað selt mjólkina
úr kúnum um langan tíma, þó að
fjósið mitt sé ekkert sóðalegra en hjá
mörgum nágrönnunum. Ég benti
dýralækninum, Oddi Rúnari
Hjartarsyni, á að kippa þessu í lag.
Hann svarði því til, að nóg mjólk
væri á markaðinum, svo að það lægi
ekkert á slíku.”
—ÁT—
írfálst, úháð dagbl&ð
Föstudagur 12. marz 1976.
Forstjóro-
skipti í
Happdrœtti
Hóskólans
Páll H. Pálsson, forstjóri
Happdrætti Háskóia Islands,
hefur sagt starfi sínu lausu.
Skrifstofustjóri Happdrættisins,
Jón Bergsteinsson, gegnir
forstöðumannsstarfinu um sinn.
Páll H. Pálsson hefur veitt
Happdrætti Háskólans forstöðu
um margra ára skeið. Ör ogi
mikill víðgangur þessarar helztu
tekjulindar æðstu menntastofm
unar þjóðarinnar undanfarin ár
er «kki hvað sízt að þakka ágætu
starfi Páls í þágu Happdrættisins
og hugmyndum hans, meðal
annars trompmiðaframtakið.
-BS.
AFMÆLI
KRATA
Alþýðuflokkurinn heldur upp
á 60 ára afmæli sitt um þessar
mundir.
Skin og skúrir hafa skipzt á í
langri sögu flokksins en að
undanförnu hefur hallað undan
fæti.
Afmælishóf verður á sunnu-
daginn, kaffi, ræður, ávörp og
skemmtiatriði.
—HH
Á þó Ólafur ðngvan vin?
Hœtta Roy Hattersley og Perth sjóvarútvegsráðherra?
„HULDULOÐNA" GENGUR ÚT
AF VESTFJÖRÐUM
Brezka blaðið Guardian ræddi á mið:
vikudaginn um möguleikana á því að
Roy Hattersley, aðstoðarutanríkisráð-
herra Breta og helzti viðsemjandi okkar
í landhelgisdeilunni, láti af embætti
innan tíðar og taki við írlandsmála-
ráðuneyti brezku stjórnarinnar.
Blaðið íhugaði þessa möguleika í ljósi
þeirrar stöðu, sem upp kom í brezkum
stjórnmálum þegar hlutar fjárlagafrum-
varps ríkisstjórnarinnar voru felldir á
þingi. Einnig hefur verið leitt getum að
því, að Perth sjávarútvegsráðherra láti
af embætti, en við taki annaðhvort
Shirley Williams eða Melvin Rees, nú-
verandi írlandsmálaráðherra.
Nánari fregnir hafa ekki borizt af
þessum vangaveltum, en Helgi Péturs-
son, blaðamaður DB, sem nú er í
London, sagði í frétt þaðan í gær, að
manna á meðal og í hópi diplómata
væri nú mikið rætt um mögulega upj>
stokkun á brezku stjórninni.
—HP/ÓV.
BANKARÓK STOLIÐ Á MORGUNBLAÐINll
Miðborgarlögreglan var í gær
beðin að fara í skyndi í Verzlunar-
bankann. Ástæðan var að stolið hafði
verið bankabók frá einum af ljós-
myndurum Morgunblaðsins. En
upphringingin til lögreglunnar kom
of seint. Maður hafði komið í bank-
ann og tekið 30 þúsund krónur út
úr bókinni og horfið á braut. Þjófur-
inn varófundinn er síðast fréttisi.ASt
Roy Hattersley.
SJÓMAÐUR BJARGAR LÍFI
— er góð tíl frystingar
Við vitum í rauninni ekki hvaðan
þessi loðna kemur, en þetta virðist
svipað og í hittifyrra, að loðna fannst
skyndilega undan Jökli og virtist hún
hafa gengið suður með Vestíjörðum,
en ekki suður með Austfjörðum og
hringinn eins og vant er, sagði starfs-
maður Loðnunefndar í morgun.
Eins og DB sagði fyrir nokkrum
dögum, urðu Vestfjarðatogarar varir
við loðnu fyrir nokkru, en hún
var ekki rannsökuð nánar þá.
3.400 tonn veiddust af þessari nýju
göngu í nótt og er það góð loðna.
Virðist því Ásgeir RE hafa komizt í
feitt, þegar hann fann þessa göngu.
A.m.k. tíu bátar eru nú á þessum
slóðum.
Þá eru nokkrir bátar við veiðar
nálægt Dyrhólaey, í nýfundinni torfu
þar, en sú loðna er ekki eins góð og
sú fyrir vestan. Hins vegar er þróar-
rými nægilegt í Vestmannaeyjum,
sem ekki verður sagt um Breiða-
fjarðar- og Faxaflóahafnir. Má því
búast við að flotinn dreifi sér á þessi
tvö svæði næstú daga.
—GS
TIL HAMINGJU!
Alþýðusamband íslands 60 ára i dag
FÉLAGA SÍNS MED SNARRÆÐI
Með snarræði bjargaði sjómaður á
ms. Pétri Jóhannssyni skipsfélaga
slnum úr miklum háska, að sögn
fréttaritara Dagblaðsins í Ótafsvík,
Bárðar Jcnssonar.
'I'veir meuii voru aó leggja
nctatrossu í fyrradag, þcgar allt lcnti
í hönk. Settu þeir kröku með taug á í
nctin á uuðan úr greiddist.
Skyndilega slitnaði taugin í
krökunni. Kræktist hún í brjósti
Jónasi Gunnarssyni sem var annar
þcssara sjómanna. Dróst hann niður
og fram með skipinu. Slóst höfuð
hans í bátinn og missti hann
mcðvitund.
Sigurður Jónsson, félagi
hans, greip strax til Jónasar
þegar hann sá hvað verða
vildi. Náði hann taki sem hann
slcppti ekki, þrátt fyrir það ad hann
fékk netastein i höfuðið af svo
miklum krafti að hann hálfrotaðist.
Hlaut hann af steinhögginu skurð
þvert yfir augabrm niður á kinn,
auk þess sem í honum brotnuðu
tennur.
Hélt Sigurður í Jónas, þar tii aðrir
skipverjar komu til hjálpar. Gert var
að meiðslum mannanna og h'ður
þeim bærilega eftir atvikum. -BS.
Alþýðusamband ÍSlands er 60 ára í
dag, 12. marz. Innan ASÍ eru nú 189
félög með um 43 þúsund félagsmenn.
Hlutverk Alþýðusambandsins er
að hafa forystu í stéttarbaráttu og
félagsstarfsemi alþýðunnar á íslandi
með því meðal annars að móta og
samræma heildarstefnu samtakanna
í launa- og kjaramálum.
Á sjálfu afmælinu verður ekki
mikið gert af hálfu Alþýðusam-
bandsins til hátíðabrigða. Verður
það geymt til 33. þings sambandsins
sem haldið verður í haust í
nóvember, eða um svipað leyti og
framhaldsstofnþing ASI árið 1916,
sem endanlega gekk frá stofnun þess.
Starfsemi sambandsins á árinu
mun hins vegar mótast nokkuð áf
afmælinu. Meðal annars er nú að
störfum nefnd er semja skal drög að
stefnuskrá þess í félagslegum óg
menningarlegum efnum sem lögð
verða fyrir þingið.
Þá er gert ráð fyrir uppsetningu
sögusýningar í Reykjavík, auk þess
sem 1. maí-hátíðahaöldin bera
greinilegt svipmót af þessu merkisaf-
mæli. -BS.