Dagblaðið - 22.03.1976, Síða 24
r
v.
EGILSSTAÐABÚAR SJÁ
FRAM Á HITAVEITU
eftir að heitt vatn er tekið að seytla úr holu við llrriðavotn
Vatn cr nú tekið að seytla úr
borholunni á bökkum Urriðavatns,
s?m er 6 km frá Egilsstöðum. Fella-
hreppur hefur staðið þar að borun-
um. Lauk þeim í janúarlok en þá
hafði verið borað niður á 1152 m
dýpi. Var 77 stiga heitt vatn á botni
holunnar er frá var horfið, en ekkert
fékkst upp á yfirborð. Nú síðustu
daga hefur komið upp 43 stiga heitt
vatn og nú er ákveðin'frekari borun.
íbúar þéttbýliskjarnans við Egils-
staði mæna vonaraugum til sér-
hverra breytinga og aðgerða við
þessa holu, en svæðið umhverfis
hana er það eina á Austurlandi, þar
sem möguleikar eru á að fá heitt,
nýtanlegt vatn.
Er frá var horfið í janúarlok og
ekkert vatn fékkst upp á yfirborðið
var reynt að sprengja i holunni. Það
bar ekki árangur. Gengið var þá frá
holunni meðan jarðvegssýni voru
rannsökuð. í millitíðinni tók að
seytla úr holunni 43 stiga heitt vatn.
Við athugun revndist 35 stiga heitt
vatn renna inn í borholuna ofarlega,
en koma upp sem 43 stiga heitt
vegna hitans neðan frá.
Jaixifræðingur hefur litið á
aðstæður. Ráðleggur hann að holan
verði dýpkuð, því jarðlög á botni
holunnar bendi til að stutt sé á heitt
vatn.
Nú hefur verið ákveðið að bor
Orkustofnunar er borað getur niður
á 1800 m dýpi komi að Urriðavatni.
Borinn er nú á Húnavöllum við
Blönduós, en verður fyrst að fara til
Sigluíjarðar og e.t.v. víðar áður en
hann fæst að Urriðavatni.
Allar líkur benda því nú til að
nægilegt vatn fáist fyrir Fellahrepp
og Egilsstaði. Er mjög nauðsynlegt
að fá úr því skorið sem fyrst, því nú
er mikið byggt á Egilsstöðum t.d.
menntaskóli, sláturhús og mjólkur-
stöð auk annars. íbúar sem kynt
hafa fyrir ærinn kostnað mæna og
vonaraugum til aukinna möguleika á
hitaveitu fyrir Egilsstaði frá Fella-
hreppi. BA/ASt.
N
„ÞORSKURINN BLESSI DROTTNINGUNA"
(DB-mynd RagnarTh.).
— var kyrjað ó Kjarvals
stöðum i gœrkvöldi
,,Cod save our greedy Queen,
Long feed our goobling Queen, Cod
save the Queen” var söngurinn sem
dunaði á Kjarvalsstöðum í gærkvöld,
textinn saminn af Bretanum Keith
Armstrong sem stjórnaði fjölda-
söngnum. Var hann mættur þarna
ásamt tveim Iöndum sínum og fimm
íslenzkum skáldmennum sem fluttu
þarna afurðir sínar. Er þetta ein
þeirra tilrauna er forráðamenn Kjar-
valsstaða gangast fyrir um þessar
mundir til viðreisnar staðnum síðan
listamenn féllust á að fara að sýna
þar aftur. Auk skáldanna var þarna
hópur hljómlistarmanna sem flutti
tónlist í bakgrunninn með nokkrum
ljóðum Bretanna.
Á samkomuna voru mættir um
200 gestir sem fullvíst má telja að
hafi fiestir skemmt sér með afbrigð-
um vel, að vísu þarfnaðist Peter
Mortimer, hálf-írskur, ekki magnara-
kerfis af svo mikilli raust sem þann
þrumaði ljóð sín yfir fjöldann. Jafn-
framt var honum nokkuð til baga
reykingabann það sem ljósameistari
hússins setti á hann undir lok tón-
leikanna. Peter þessi ásamt Keith
Armstrong félaga sínum tilheyrir
hópi ungra skálda sem í Norð-
austur-Englandi i^efna sig nafninu
,,The Tyneside Poets” sem eitt
Keith Armstrong les úr ljóðum sínum.
íslenzku skáldanna sem fram komu í
gærkvöld nefndi, ,,Týnu bakka hój>
inn.” Við lok samkomunnar var
einnig sungið eitt frumsamda Ijóðið
Bretanna sem þeir ortu í tilefni komu
sinnar hingað, lauk ljóðir.u á þeim
frómu orðum: „So three big cheers
for Englands Brave navy” þar sem
skáldinu þótti lítið leggjast fyrir
brezka flotann við verndarstörf sín á
íslandsmiðum.
—BH
Verðhœkkanir meiri
en hœkkun kaupsins
Auk hækkunarinnar á búvörum
dynja margar aðrar yfir nú og eru
yfirleitt miklu meiri en sú sex prós-
enta hækkun kaups, sem varð 1.
mar/.
Áfengi og tóbak hækka í dag um
15 prósent, og verður sígarettupakk-
inn á 220 krónur. Þá mun bensín
hækka um sex krónur lítrinn.
Útvarps- og sjónvarpsgjöld hækka
um 30 prósent og gjöld hitavcitu um
27 prósent.
Rakarar og efnalaugar hafa fengið
nokkra hækkun. Hækkun áfengis og
tóbaks er „tekin út úr vísitölunni”,
þannig að hún hefur ekki áhrif á þær
vísitölubætur, sem hugsanlega koma
ofan á kaup samkvæmt kjarasamn-
ingunum.
Mikfð af hækkunarbeiðnum er nú
til meðferðar hjá verðlagsyfirvöldum,
en aðrar hækkanir hafa enn ekki
verið ákveðnar, að sögn skrifstofu-
stjóra verðlagsstjóraembættisins.
—HH
MA0 STÖÐUGT VINSÆLT MYNDAEFNI
>! 9< h W , m
» *, # jjm ' m
— kínverskar
myndir
á sýningu
Kínversk íslenzka menningar-
félagið heitir stofnun hér í borg. Á
laugardaginn var opnuðu þcir sal er
tekinn hefur verið á leigu í blindra-
heimilinu við Hamrahlíð og var
opnað með sýningu á ljósmyndum
frá Kína. Myndin hér sýnir er verið
var að koma sýningunni fyrir í saln-
um fvrir opnunarathöfnina. Eftir
mvndunum að dæma virðist svo sem
Maó formaður sé sívinsælt Ijós-
mvndacfni mcðal kínverskra ljós-
mvndara.
frýálst, óháð dagblað
Mánudagur 22. marz 1976.
Lögreglu-
þjönar
berja bíla
Nokkrir borgarar hringdu í Mið-
borgarstöð lögreglu síðdegis á
laugardag og spurðust fyrir „hvað
lögregluþjónir væru að fíflast niðri í
Lækjargötu.” Þar hafði m.a. sézt til
lögregluþjóns sem barði í ákafa í
vélarhlíf T rabants-bifreiðar.
í ljós kom að þarna var um kvik-
myndauuptöku á vegum Æskulýðs-
ráðs að ræða, en í henni koma fram
lögregluþjónar, sem láta óvenjulega.
Fengið hafði verið leyfi fyrir mynd-
inni, en það vakti athygli lögreglu-
manna að ekki hafði verið fengið
leyfi fyrir því að leikarar bæru full
kominn lögreglumannabúning, Sam
kvæmt 117. grein hegnii%arlaganna
er öllum óviðkomandi óheimilt að
nota einkennisbúning á almanna-
færi, nema til komi sérstakt leyfi.
Það var ekki fyrir hendi. ASt.
Mikil ölvun,
ryskingar
og pústrar
Það var mikið drukkið í Reykja-
vík um þessa helgi, einkum á föstu-
dagskvöldið. Lögreglan átti annríkt
bæði við skemmtistaði og í heima-
húsum, þar sem allvíða sauð uppúr.
Var óvenjulegur urgur í mörgum,
smáryskingar og pústrar, en hvergi
dró til alvarlegra tíðinda.
í Reykjavík voru 9 ökumenn
teknir ölvaðir við akstur. Fjórir voru j
teknir ölvaðir við akstur á Keflavík-
urflugvelli, 2 í Hafnarfirði og 4 í
Kópavogi. Alls eru þetta 19 ölvaðir
ökumenn. Er talan í lægra lagi í
Reykjavík en með hærra móti í
nágrannabæjunum. —ASt.
Að sló tvœr
flugur í
einu höggi
Ekki þykir í frásögur færándi þó
lögreglumenn taki mann eða konu
grunaða um ölvun við akstur. En að
þeir standi bæði karl og konu að því
að aka sama bílnum og bæði undir
áhrifum áfengis er sjaldgæft. Þetta
skeði fyrir framan Sigtún á laugar-
dagskvöldið. Þar voru lögreglumenn
(óeinkennisklæddir) við að telja út
úr húsinu. Sátu þeir í bíl' sínum.
Kom þá kona akandi og nam staðar
við hlið þeirra. Þar fóru fram skipti
á ökumönnum, maður sem í bílntnn
var tók við ökustjórn og ók af stað.
Lögreglumennirnir vildu athuga
þetta nánar og nú eru þau bæði
undir kæru fyrir ölvun við akstur.
—ASt.
í höfnina
Á sunnudagsnótt reikaði maður
inn á lögrcglustöðina í miðborginni
haugblautur og í olíumenguðum
fötum. Hafði hann fallið í höfnina.
Maðurinn var mjög við skál og gat
ekki tjáð sig um, hvort hann hefði af
cigin rammleik krafsað sig á land
eða hvort hann hefði fengið hjálp
Lögreglumenn fluttu manninn í
slysadeild til rannsóknar. —ASt.