Dagblaðið - 05.04.1976, Qupperneq 1
daghlað
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2, SÍMI 27022.
Akureyri:
28 6ra gamall maður fannst
látinn á götu af skotsáram
Stolinn riffill og skotpakkar fundust 200 m frá líkinu — Sjá baksíðu
HITAVEITAN
Á AKUREYRI:
Holurnar
áttu alltaf
að verða 3
„Vió vitum satt að segja ekki
hvað gerist í þessu máli”, sagði
Bjarni Einarsson, bæjarstjóri á
Akureyri, í viðtali við Dag-
blaðið, en Orkustofnun hefur
nú tilkynnt, að borinn Jötunn,
sem undanfarið hefur verið við
boranir á Laugalandi, verði nú
fluttur að Kröflu.
„Svæðið er langt frá því að
vera fullkannað og við gerðum
alltaf ráð fyrir því, að boraðar
yrðu þrjár holur,” sagði Bjarni
ennfremur. „Sérstaklega eftir
að hola númer tvö brást og ljóst
er, að hola númer eitt getur
ekki séó væntanlegri hitaveitu
fyrir nægilegu vátnsmagni,
eins og komið hefur fram.
Sagði Bjarni, að þeir óttuðust
nú, að framkvæmdir við hita-
veituna tefðust í a.m.k. eitt ár,
því hann taldi ólíklegt, að
unnið yrði að hönnun hitaveitu
á grunni þeirr.a upplýsinga,
sem nú lægju fyrir. Væru menn
undrandi yfir þessari ráðstöfun
yfirvalda í orkumálum, því að
hitaveituframkvæmdir á Akur-
eyri væru sennilega með hag-
kvæmustu framkvæmdum' í
landinu.
„Stofnkostnaður er tveir og
hálfur milljarður en menn
verða að gera sér ljóst, að
komist hitaveitan í gagnið,
sparast um 300 milljónir í
gjaldeyri á ári vegna olíukaupa,
sem eru um tólf prósent af
heildargjaldeyriseyðslu vegna
olíukaupa til húsahitunar,"
sagði Bjarni ennfremur. —HP.
Togarakaup
Bœjar-
útgerðar-
innar:
-AT/UB-myndir Ragnar.
Platoði íslendinga, Þjóðverja og Breta í 10 ár
Það gerist endrum og eins,
að fiskimönnum tekst að
krækja í þorsk, sem er kominn
af léttasta skeiði. Þetta gerðist
hjá skipverjum á Fram GK
fyrir nokkru.
Þorskurinn á myndinni er
eins og hálfs metra langur og
vegur 29 kílógrömm. Hann er
þvi rúntlega tvisvar sinnum
stærri en þessi venjulegu
þorskkóð, sem verið er að moka
úr sjónum.
Hreistrið á þorskinum sýnir
að hann er um tíu ára gamall,
svo að greinilega hefur honum
tekizt að gabba Þjóðverja,
Englendinga og aðra vonda
menn, sem gera sér það til
gamans að nturka lífið úr
þorskinum.
TIMBUR-
MENNIRNIR
KOMNIR?
Er mesta orkuvíman að líða hjá
og timburmennirnir komnir í
staðinn?
Jónas Elíasson prófessor
skýrir hvernig orkumálin
standa, í kjallaragrein í dag.
Sjó bls. 10—11
Sihanouk
lœtur af
embœtti,...
— Sjá erl.
fréttir
bls. 6 og 7
Fjárkláðinn
kominn til
Hœsta-
réttar
- Sjá bls. 8
Keyptu 4 ára togara á
350 milljónir
gátu fengið hálfs árs
togara fyrir 260 milljónir
Bæjarútgerð Keykjavikur
leitaði ekki eðlilegra tilboða er-
lendis frá, þegar ákvörðun var
tekin um kaup á togaranum
Freyju fyrir 350 mill.jónir
króna nú fyrir skemmstu. Að
sögn kunnugra manna stóðu
sambærileg skip til boða er-
1 lendis fyrir verð, sem er allt að
eitt hundrað milljónum króna
lægra en það, sent Freyja var
keypt fyrir.
Menn hljóta að velta l>ví fyrir
sér, hvernig það má vera, að
opinbert fyrirtæki eins og
Bæjarútgerð Reykjavíkur, fer
ekki að vióurkenndum leiðum
við kaup á hundruða milljóna
króna tækjum eins og togara.
Enda þótt hiiðstæður þekkist
úr opinberum rekstri, eru þær
ekki til fyrirmyndar eða eftir-
breytni.
í Útgerðarráði eru menn
nákunnugir útgerðarmálum
svo sem Páll Guðmundsson
skipstjóri, og Einar Thorodd-
sen hafsögumaður, fyrrverandi
skipstjöri, Telja sumir, að þess-
ir menn lúti algerlega í lægra
haldi fyrir mönnum, sem ekki
þekkja nægilega til útgerðar
eða skipa- og tækjakaupa til
þess atvinnureksturs.
Bæjarútgerð Reykjavikur
er merkilegt fyrirtæki, sem á
sérstakan sess í atvinnusögu
Reykjavíkur. Útgerðin hefur
stundum átt í tímabundnum
erfiðleikum. Að undanförnu
hefur eitt slikt skeið gengið
yfir. Nú vantaði Bæjarút-
gerðina togara, meðal annars til
þess að tryggja atvinnuástand
og rekstur fiskvinnslufyrir-
tækja borgarinnar.
Togarakaup voru eðlileg.
Jafneðlilegt var að leita tilboða,
t.d. erlendis frá, um hagstæð-
ustu kaup á góðu skipi. Auk
þess verður ekki séð, að at-
vinnuástand verði á neinn hátt
frekar tryggt með þvi að kaupa
togara, sem gerður hefur verið
út frá Reykjavík og lagt upp
afla sinn hjá Bæjarútgerðinni,
nema seljandinn ætli að kaupa
nýjan togara sjálfur.
Hvað sem því líður, er nauð-
synlegt að afdráttarlaus skýr-
ing.sé gefin á þessari ráðstöfun
um framangreind togarakaup.
Sérstaklega er nauðsynlegt, að
það komi umbúðalaust fram,
hvort þess hefði verið kostur að
fá erlendis frá sambærilegt
skip fyrir allt að 100 milljónum
króna lægra verð.
Formaður Útgerðarráðs
Bæjarútgerðarinnar er Ragnar
H. Júlíusson. skólastjóri, en
meðal annarra ráðsmanna má
nefna Sigurjón Pétursson,
trésmíðameistara. —BS