Dagblaðið - 05.04.1976, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. APRÍL 1976.
7
Sihanouk lœtur af embœtti
þjóðarleiðtoga í Kambódíu
Norodom Sihanouk yrins,
þjóöarleiótogi Kambódíu, hefur
sagt af sér embætti og stjórn
landsins fallizt á lausnarbeiðni
hans, að sögn útvarpsins í
Phnom Penh.
í síðasta mánuði voru haldn-
ar í landinu fyrstu kosningarn-
«
Örlög Sihanouks prins hafa smátt og smátt
verið að ráðast. Andspyrnuöflin gegn hon-
um hafa nú náð takmarki sínu og komið
honum frá embœtti sínu, sem heldur var
oröið vandalitiö. fólst aðaljega í skálarrœð-
um og móttökum.
ar síðan Rauðu khmerarnir
tóku völdin í apríl í fyrra. Kosið
var til löggjafarsamkundu þjóð-
arinnar, Fulltrúaþingsins.
Meðal hlutverka þingsins var
að velja nýja stjórn, móta
stefnu i innan- og utanríkismál-
um og skipa „ríkisráðið”, sem
greinilega var ætlað að annast
skyldur þjóðhöfðingjans.
Sihanouk, sem nú er 53 ára,
var flæmdur frá völdum af her-
sveitum undir stjórn Lons Nols
í marz 1970. Hann sneri aftur
til Phnom Penh eftir að her-
sveitir Rauðu khmeranna unnu
sigur í fimm ára baráttu sinni
gegn stjórn Lons, er naut dyggs
stuðnings Bandaríkjastjórnar.
En þegar prinsinn, sem
talinn er vera litríkur persónu-
leiki, er kann því vel að láta
berast á, tók við stöðu þjóðhöfð-
ingja í Kambódíu á nýjan leik,
var hann valdalaus maður —
Rauðu khmerarnir ákváðu
stjórnarstefnuna.
Eitt helzta hlutverk
Sihanouks í hinni rauðu stjórn
heimalands síns hefur verið að
ferðast um heiminn fyrir hönd
stjórnaf Rauðu khmeranna og
útskýra stefnu þeirra og mark-
mið í Kambodíu, sem nú orðið
er í nær algjöru sambandsleysi
við umheiminn.
Nýjar leyniskýrsjun
Litlu munaði að fsraef
beitti kjarnorku vopnum
Israelmenn eiga 13 kjarnorku-
sprengjur i geymslum og tilbúnar
til notkunar, segir 1 vikuritinu
Time.
Sprengjurnar eru um 20 mega-
tonn, sem er svipaður styrkleiki
og sprengjurnar, sem varpað var
á Hirosima og Nagasaki í síðari
heimsstyrjöldinni.
Hægt er að varpa sprengjunum
á óvinaskotmörk úr sérstökum
Kfir og Phantom þotum eða
Jerieo eldflaugum. Voru sprengj-
urnar settar saman í mesta flýti í
leynilegum neðanjarðargöngum
fyrstu 78 tima október-
styrjaldarinnar 1973.
Þá var staða Israelsmanna
verulega slæm, ósigrar og undan-
hald á öllum vígstöðvum. Var
búið að koma sprengjunum fyrir í
flugvélum, er ljóst varð, að þeir
voru að vinna á. Þá var þeim
komið fyrir í sérstöku neðan-
jarðarbyrgi, þar sem þær eru enn.
Erlendar
fréttir
ÓMAR
VALDIMARSSON
REUTER
CIA GCYMDIBIRGDIR AFISD UM ALLAN HtlM
Bandaríska leyniþjónustan
CIA hefur geymt birgðir af
ofskynjunarlyfinu LSD í
Bandaríkjunum, Japan og á
Filippseyjum, segir í dagblað-
inu Yomirui í Tokyo.
Segir þar, að samkvæmt
skýrslu frá leyniþjónustunni
frá 1. desember 1953 hafi lyfið
verið geymt í Bandaríkjunum,
í flotastöðinni Atsugi, skammt
irá Tokyo og í herstöð í Manila
á Filippseyjum.
John Mark, einn af starfs-
mönnum við rannsóknastöð
leyniþjónustunnar, er þar
sagður álíta, að hægt hefði
verið að nota lyfið á kínverska
og norður-kóreska fanga í
Kóreustríðinu. Þá mun lyfið
einnig hafa verið notað til þess
að reyna að lækna ameríska
hermenn, sem heilaþvegnir
höfðu verið af Kínverjum en
með misjöfnum árangri þó.
Eins mun CIA hafa íhugað að
nota lyfið á „hættuleg öfl” í
stjórnmálalífi i Japan.
Teng
hrasar á
braut auð■
valdsins í
Kína
Aukin þjónusta
Almenn bankaviðskipti
Aðstoðarforsætisráðherra
Kína, Teng-Hsiao-Ping, hefur
verið úthúðað fyrir að reyna að
koma á ný á auðvaldsstefnu í
Kína. Þessar nýju ákærur á
hendur honum birtust í mál-
gagni kínverska kommúnista-
flokksins, Rauða fánanum, og
voru þær einnig lesnar 1 út-
varpið í Peking.
Teng var ekki nefndur með
nafni, en rætt var um hinn af-
vegaleidda auðvaldssinna, sem
ekki vildi betrumbæta sig.
Allsherjaráætlun sú er hér
um ræðir var lögð fram á
flokksþinginu í september í
fyrra og eru þar gerðar umtals-
verðar breytingar á framtíðar-
áætlunum flokksins og þjóðar-
innar. Sagði í gagnrýninni, að
augljóst væri, að Teng ætlaði
sér að striða gegn boðskap Mao
formanns og slíkt væri ekki i
anda menningarbyltingarinnar.
Er þetta í þriðja skipti á jafn-
mörgum dögum, sem áætlunin
hefur verið gagnrýnd svo harð-
lega og telja ntargir að hér geti
verið um mikla innri valdabar-
áttu að ræða,
Til þess að geta haldið áfram að
veita viðskiptavinum sínum per-
sónulega þjónustu, samfara auknum
umsvifum í almennum sparisjóðs-
viðskiptum, mun Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis lengja
daglegan afgreiðslutíma sinn um
þrjár klukkustundir.
Framvegis verður afgreiðslutími
okkar:
Kl. 9.15 til 12.00
Kl, 13.00 til 16.00 (NÝRTÍMI)
Kl. 17.00 til 18.30
SPARISJÓÐUR HEIMILANNA
Afgreiðslutímarnir verða fyrir all-
ar viðskiptagreinar sparisjóðsins, svo
sem ávísanareikning, sparisjóðsbæk-
ur, innheimtu, vixla og skuldabréf,
bankahólf, gíróþjónustu, greiðslur
Tryggingastofnunar ríkisins, m.a.
ellilífeyri og eftirlaun.
^Darisjóður Reykjavíkur og ná-
gre .nis væntir þess að hinir nýju af-
greiðslutímar verði til hagræðis fyrir
viðskiptavini sína.
SPARISJOÐUR
Reykjavikur& nágrennis
Skólavöröustíg 11