Dagblaðið - 05.04.1976, Qupperneq 13
Iþróttir
Tvö Islandsmet
ó Meistaramólinu
Lára Sveinsdóttir, Ármanni,
setti ágætt íslandsmet í 50 metra
grindahlaupi á Meistaramóti
Reykjavíkur, sem fór fram um
helgina. Hún hijóp vegalengdina
á 7.2 og bætti þar meö íslandsmet
Ingunnar Einarsdóttur um 1/10
úr sekúndu. Þetta ásamt íslands-
meti Þórdísar Gísiadóttur í
hástökki var hápunktur mótsins
— Þórdís bætti metið um 2
sentimetra — stökk 1.65.
Að öðru leyti var mótið fremur
dauft — margir okkar beztu
frjálsíþróttamenn ekki á
landinu og óneitanlega setti það
svip sinn á mótiö. Undirbúningur
frjálsíþróttamanna miðast
eðlilega við Olympíuleikana í
Montreal í sumar.
Asa Halldórsdóttir sigraöi í
langstökki kvenna, stökk 5.25 og
eins sigraði hún í kúlunni,
varpaði 10.48.
Valbjörn Þorlaksson sigraði í
stangarstökki, stökk 4.20 og átti
góðar tilraunir við 4.35, þö ekki
tækist. Magnús Jónasson,
Ármanni, sigraði í 50 metra
hlaupi á 6.0 en Sigurður Sigurðs-
son gat ekki tekið þátt í
hlaupinu vegna meiðsla. Hins
vegar sigraði Sigurður í Iang-
stökki, stökk 6,95. Óskar Jakobs-
son ÍR sigraði í kúluvarpi,
varpaði kúlunni 15.78 .
Ingunn Einarsdóttir sigraði í
50 metra hlaupi á ágætum tíma,
6.5. Þannig ma setja að þetta mót
hafi verið mót kvennanna.
h halls.
Franskur Evrópu-
meistari i borð-
tennis
Jacques Secretin, Frakklandi,
varð Evrópumeistari í karlaflokki
í borðtennis, en Evrópumötið var
háð í Prag um helgina. í
úrslitaleiknum sigraði Secretin
sovezka leikmanninn Anatolij
Strokatov með 21-16, 26-28, 21-14,
13-21 og 21-12 eftir hörkukeppni.
Það vakti talsverða athygli, að
tveir frægir kappar voru slegnir
úr í 4. umferð. Svíinn Stellan
Bengtsson tapaði þa mjög óvænt
fyrir Leiss, Vestur-Þýzkalandi, í
fimm lotum, og Bretinn Dennis
Neale sigraði Júgóslavann
Dragutin Surbek.
í kvennaflokki varð Jill
Hammersley, Bretlandi, Evrópu-
meistari — sigraði Maríu
Alexandru, Rúmeníu, í úrslita-
leiknum með 23-21, 21-16, 17-21
og 21-19.
•
Stjaman vann ó
Seltjarnarnesi
„Stóra bikarkeppnin" hjá litlu knatt
spyrnuliðunum hófst á lau«ardan. I»á voru
tveir leikir. Á Seltjarnarnosi sÍKi'árti Stjarn
an, íiarrtabæ. (íróttu mert 2-1 — en í Þorláks-
höfn vann Selfoss Þór mert 5-0. Keppnin
heldur áfram næsta lau«arda« — en fimmta
lirtirt í keppninni er Virtir. (iarrti.
•
Mikið stuð á
Evrópumeisturunum
Þaö er heldur betur komið stuð á Evrópu-
meistarana í knattspyrnunni, Bayern Munchen.
Á laugardag voru átta-liða úrslit i vestur-þýzku
bikarkeppninni. Bayern lék þá á útivelli í Köln
og sigraði með 5-2. Úrslit í öðrum leikjum urðu
þessi:
Hamborg SV — FC Hamburg 2-1
Kaiserslautern — Dusseldorf 3-1
Hertha — Roechling 1-1
í 1. deildinni sigraði Eintracht Brunswick
Karlsruher með 2-0.
Vestur-Þýzkaland
vann ó útimarki
Vestur-Þjóðverar unnu sér rétt i úrslitakcppni
UEFA-móts unglinga i knattspyrnu, þegar þeir
gerður jafntefli 0-0 við Svía i Heilbronn i gær.
Áhorfendur voru sjo þusund. Fyrri leiknum i
Sviþjóð lauk 1-1 og Þjóðverjarnir sigruðu þvi a
útimarkinu þar. Urslitakeppnin hefst i Ungverja-
landi 28. mai og ísland hefur alla möguleika að
komast i úrslitin.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUÐAGUR 5. APRtL 1976.
íþróttir
Iþróttir
iþróttir
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 5
Iþróttir
iþróttir
Iþróttir
Útlitið dðkkt
í Charleroi
— eftir tapleik gegn efsta liðinu FC
Brugge, en Standard sigraði
Áslandið er nú orðiö mjög al-
varlegt hjá okkur í Charleroi. Lið-
ið tapaði eins og við var búizt
fyrir efsta liðinu, FC Brugge, 5-1
Valur hlaut
þrjú stig!
Valsmenn gerðu sér lítið fyrir
og hlutu þrjú stig í fyrsta leikn-
um í Reykjavíkurmótinu. Unnu
Ármann á laugardag með 4-0 og
hlutu tvö stig.fyrir sigurinn og að
auki eitt stig fyrir að skora meira
en þrjú mörk.
Valsliðið sýndi ágætan leik
gegn Ármanni og MelavöIIurinn
var í prýðilegu ástandi — virki-
lega góður— en hins vegar komst
Armannsliðið ekki vel frá leikn-
um. Valur skoraði tvö mörk í
hvorum hálfleik. Guömundur
Þorbjörnsson skoraði fyrsta mark
Reykjavíkurmótsins — og Atli
Eðvaldsson kom Val í 2-0 fyrir
hlé. Í síðari hálfleiknum skoruðu
þeir Guðmundur Þorbjörnsson og
Kristinn Björnsson mörk Vals.
Valsliðið er að mestu leyti skipað
sömu leikmönnum og í fyrra —
þó léku tveir nýliðar með liðinu
að þessu sinni, og Halldór Einars-
son var meó á ný sem miðvörður,
með Dýra Guðmundssyni. Berg-
sveinn Alfonsson og Hermann
Gunnarsson léku ekki með Val að
þessu sinni.
Sovézki þjálfarinn er enn ekki
kominn til Vals — og raunveru-
lega engar fréttir borizt frá
honum síðustu vikurnar.
á útivelli. Eg veit nú lítið um
leikinn. — Gat ekki leikið vegna
meiðsla sagði Guðgeir Leifsson,
þegar Dagblaðið ræddi við hann í
morgun.
Charloreoi er nú þremur
stigum á eftir Beringen, sem er
fjórða að neðan, en hefur leikið
einum leik minna. Við leikum við
Liege á miðvikudag á heimavelli
og þann leik verðum við að vinna,
sagði Guðgeir ennfremur, og þá
reikna ég með að leika í liðinu.
Eina mark Charleroi i Brugge
skoraði Van Torm úr
vítadspyrnu.
Standard Liege lék á útivelli og
sigraði. Það var gegn Beringen og
Standard vann 3-2. Ásgeir Sigur-
vinsson - skoraði fyrsta markið
fyrir Standard í leiknum.
Urslit urðu annars þessi um
helgina:
La Louviere — Waregem 2-2
Lokeren — Antwerpen 2-0
Liérse — CS Brugge 2-0
Beringen — Standard 2-3
Beerschot — Malines 1-0
Malinois — Ostende 3-1
Molenbeek — Anderlecht 0-2
Liegeois — Berchem 0-1
FC Brugge — Charleroi 5-1
Brugge • er nú að verða nær
öruggt með meistaratitilinn —
hefur fimm stiga forskot á
Lokeren og átta stig á Anderlecht,
sem er í 3ja sæti með 38 stig.
Standard er í níunda sæti með 33
stig — en neðstu liðin eru La
Louviere með 23 stig, Beringen 22
stig, Charloroi 19 stig, Berchem
18 stig og Malines 13 stig.
Guðmundur Þorbjörnsson skorar fyrir Val gegn Armanni. DB-mynd
Bjarnleifur.
Umkringdur Dönum reynir Gústaf Björnsson, Fram, að brjóta sér leið í gegnum dönsku vörnina en fjórir til varnar stöðva hann. DB-mynd
Bjarnleifur.
Oruggur sigur Dana
en ísland í þriðja sœti!
— ó Norðurlandamóti pilta, sem hóð var í Reykjavík
Island hafnaði í þriðja sæti á
Norðurlandamóti pilta sem háð
var hér í Reykjavík um helgina.
Danir voru hinir öruggu
sigurvegarar, unnu alla sína leiki
og í síðasta leik mótsins
yfirspiluðu Danir slaka
Íslendinga — lokatölur 17-8.
Islenzka liðið virkaði alls ekki
sannfærandi í mótinu. Liðið var
bundið í klafa leikkerfis —
virkaði sem „mini-ísland” og leik-
menn náðu aldrei að siíta sig
lausa úr kerfinu, lítið um
einstaklingsframtak einstakra
leikmanna. Tilfinnanlega vantaði
í liðið skyttur og algengt var að
leikmenn væru látnir spila stöður
sem þeir greinilega áttu ekki
heima í.
Danir höfðu á að skipa
skemmtilegasta og bezta liðinu.
Snaggaralegir leikmenn, Ieku
frjálsan handknattleik. í liðinu
voru góðar skyttur, línan var
ógnandi og eins úr horninu. Þeir
sem voru valdir breztu leikmenn
mbitsins voru allir Danir og segir
það sína sögu. Jörgen Hertz-
sprung var valinn bezti mark-
vörður mótsins, Keld Nielsen
1 bezti sóknarleikmaður mótsins og
Henrik Pedersen bezti varnar-
leikmaður mótsins.
Nú, ef við lítum á einstaka leiki
islenzka liðsins þa byrjaði ísland
á sigri gegn Noregi 18-11. Það var
þó ekki fyrr en í lokin sem Island
náði hinu örugga forskoti. Þegar
rúmar 15 mínútur voru eftir var
jafnt 10-10, en með góðum enda-
. sprett yfirspiluðu íslendingar
Noreg og á síðustu tveimur
mínútunum skoruðu piltarnir 3
mörk.
í næsta leik sigraði Danmörk
Sigurður Haraldsson orðinn
kóngurinn í badminton
Sigurður Haraldsson hefur
tekið við hlutverki Haralds
Kornelíussonar sem ókrýndur
konungur hadminton á tslandi.
Hann undirstrikaði það á Íslands-
mótinu uppi á Skaga nú um
helgina, þegar hann vann Harald
i úrslitalcik í einliðaleik 18-15 og
15-9. Þar með cndurfók Sigurður
leikinn l'rá siðasta Reykjavíkur-
moti, þegar hann sigraði Ilarald
og sannaði að sá sigur var engin
tilviljun.
Ilins vegar gekk það ekki
átakalaust fyrir Sigurð að komast
í úrslil. Ilann lék við Friðleif í
undanúrslitum og sigraði eftir
harða baráttu 15:12. 18:15.
Sigurður Haraldsson og Jóhann
Kjartansson urðu íslands-
meistarar í tviliðaleik. Sigruðu þa
Sigfús Ægi Árnason og Ottó Guð-
jónsson, TBR, i úrslitum, 15:13,.
15:8. Áður höfðu Sigurður og
Jóhann sigrað Iiarald
Kornelíusson og Steinar Peder-
sen í undanúrslitum 15-13, 11-15
og að lokum í síðustu lotunni 15-
13. Hörð barátta þar.
Haraldur Korneliusson mátti
sætta sig við að fara heim án
Íslandsmeistaratitils. t tvenndar-
leik Iek Haraldur ásamt Hönnu
Láru Pálsdóttur til úrslita við
Steinar Pedersen og Lovísu
Sigurðardóttur og Haraldur mátti
sjá af titlinum — Steinar og
Lovísa sigruðu eftir hörku-
baráttu, 15-8, 9-15 og síðan 18-17.
i einliðaleik kvenna sigraði
Lovísa Sigurðardóttir TBR
stallsystur sina úr TBR, Hönnu
Láru Pálsdóttur, örugglega 11-1,
11-1. Síðan í tvíliðaleiknum bætti
Lovísa Hönnu upp tapið með því
að sigra ásamt henni þær
Svanbjörgu Pálsdóttur og Ernu
Fanklín 15-8, 15-5.
Þannig fóru allir titlar í
meistarflokki til TBR.
Sigurður Kolbeinsson, sem er
aðeins 16 ára, vann í A-flokki —
sigraði þar i einliðaleiknum
Walter Lenz í úrslitum 15-11, 15-
10. Sigurður flyzt því upp I
meistaraflokk fyrir næsta
íslandsmót.
I tvenndarieiknum tapaði Siííurður hins
vegar ásamt Sipríði Jónsdóttur fvrir þeim
Asdisi Þórarinsdóttur ÍA. op Friðrik
Arníírimssyni 11-15. 15-1 og 16-17.
Bjarnheiöur ívarsdóttir Val sigraöi í
einliðaleik kvenna i A-flokki — sigraði önnu
Njálsdóttur TBH 11-8 op i annarri hrinu varð
Anna art dra>>a si« í hle vegna meiðsla er
startan var 8-7. I tvilirtaleiknum sigruðu þeir
Inpólfur Jónsson og Frirtrk Arngrimsson úr
KH. I tvilirtaleik báru þær Lilja Viðarsdóttir
oj> Ásdis Þórarinsdóttir ÍR sigur úr býtum.
Þeir (lisli (lurtlaugsson ok Raítnar Haralds-
son TBR sitírurtu i old-boys flokki.
Maenús Klisson var mótstjóri. Mótið
heppnartist mjöjt vel op var mótstjórn <>«
Skapamönnum til mikils sóma.
h. halls.
Svíþjóð og Danir leiddu lengst af
í leiknum og sigur þeirra var
verðskuldaður.
Næsti leikur íslands var gegn
Svíþjóð. Þrátt fyrir stærðarmun á
liðunum var leikurinn jafn og
segja iha að Ísland hafi verið
óheppið að ná ekki jafntefli, eða
öllu heldur rha segja að klaufa-
skapur hafi ráið þar mestu um.
Ösigur 13-15.
Eins og alltaf átti island í
mestu erfiðleikum með Finnland
og það var ekki fyrr en á síðustu
10 mínútunum að íslandi tókst að
síga framúr og sigra 17-15.
Síðasti leikur íslenzka liðsins
var hörmungarleikur —
yfirspilaðir af dönsku liði áttu
íslenzku piltarnir aldrei von og
slæmt tap — 18-17.
Lokastáða mótsins varð:
Danmörk 4 4 0 0 62-42 8
Sviþjóð 4 3 0 1 60-45 6
Ísland 4 2 0 2 56-58 4
Noregur 4 1 0 2 42-55 2
Finnland 4 0 0 4 48-68 0
Markhæstu leikmenn voru
Sjögren, Svíþjóð með 18 mörk,
Hamme, Finnlandi 16. Markhæsti
leikmaður íslenzka liðsins var Jón
Hauksson, Haukum með 14 mörk.
h. halls.
Hamborg féll
í 2. deildina
— Öll lið Islendinganna í Þýzkalandi
töpuðu um helgina. Dankersen leikur
úrslitaleikinn í Evrópukeppni
bikarmeistara ó Spúni
Nýi kóngurinn í badmintnn — Sigurður Haraldsson.
Liðum Islendinganna í vestur-
þýzka handboltanum gekk ekki
vel um helgina, Hamborg, liðið,
sem Einar Magnússon leikur
með, tapaði og féll niður í 2. deild
— Göppingen, liðið, sem Gunnar
Einarsson leikur með, tapaði
einnig og verður að keppa um
fallbaráttusæti við 3ja neðsta lið
norðurdeildarinnar — og Danker-
sen tapaði á heimavelli fyrir stór-
körlum Gummersbach.
Það var mikið fjör í leiknum
við Gummersbachog hvert sæti
íþróttahöllinni skipað —'uppselt
og áhorfendur um 3000, sagði
Ólafur H. Jónsson, þegar Dag
blaðið ræddi við hann í gær. Við
töpuðum leiknum með 14-17 — en
samt held ég að nokkuð öruggt sé,
að Dankersen nái öðru sæti og
leiki því til úrslita um Þýzka-
landsmeistaratitilinn, sagði
Ólafur ennfremur.
Við Axel Axelsson gátum verið
allánægðir með okkar hlut í leikn-
um. Axel er alveg að ná sér eftir
meiðslin og var markhæstur leik-
manna Dankersen — skoraði fjög-
ur mörk og var eitt þeirra úr
vítakasti. Ég skoraði eitt mark —
og fiskaði að auki tvö viti. Hins
vegar brugðust þýzku landsliðs-
mennirnir hjá Dankersen i þess-
um leik að nokkru — og Kater var
okkur erfiður. Átti stórleik í
marki Gummarsbach, sagði Ólaf-
ur. Deckarm skoraði mest leik-
manna Gummersbach — fimm
mörk — Feldhoff skoraði þrjú, en
Hansi Schmidt ekki nema tvö.
Á miðvikudag leikur Danker-
sen á heimavelli gegn Kiel og þarf
helzt að vinna þann leik til þess
að komast i úrslitakeppnina um
Þýzkalandsmeistaratitilinn.
Derschlag er eina liðið, sem þar
ógnar Dankersen, en til þess þarf
liðið að vinna Gummersbach í síð-
asta leik sínúm. Derschlag er frá
Wilkie bonda-
rískur meistari
Skotinn snjalli i bringusund-
inu, David Wilkie, varð banda-
rískur meistari í 200 m. bringu-
sundi, þegar hann sigraði heims-
methafann John Hencken í gær.
Wilkie synti á frábærum tíma
2:18.48. mín., en Hencken varð
annar á 2:21.58 mín. eftir að hafa
haft forustu fyrstu 100 metrana.
Á fimmtudag varð Wilkie einnig
meistari í 100 m bringusundi.
John Naper, 20 ára, setti nýtt
bandarískt met í 100 m. baksundi
— synti á 56.99 sek. og Linda
Jezek, 16 ára, setti bandarískt
met á sömu vegalengd kvenna
1:04.51 mín. í 200 m. flugsundi
náði Mike Brunner bezta tíma
ársins 2:02.49 min.
smáþorpi rétt hjá Gummersbach
— og leika þar margir fyrrver-
andi leikmenn Gummersbach.
Hamborg tapaði fyrir Welling-
hofen og skoraði aðeins sex mörk
— irslit 10-6 og við tapið féll
Han.borg niður í 2. deild. Bad
Schwartau sigraði í Kiel. Göpp-
ingen lék við Huttenberg í suður-
deildinni og tapaði 22-18 þannig,
að lið Gunnars Einarssonar
verður að leika aukaleik um fali-
sætið — sennilega við Bad
Schwartau.
Það hefur nú verið ákveðið, að
úrslitaleikur Dankersen við
spænska liðið Granollers verður
háður á Spáni — leikið í Barce-
lona næstkomandi laugardag.
Spánska liðið keypti úrslitaleik-
inn ef svo má segja — keypti
réttinn til að leika á Spáni og þar
er reiknað með fullu húsi áhorf-
enda, eða um 6000 manns. Þó að
Oppsal hafi náð jafntefli á dögun-
um á Spáni held ég — sagði
Olafur H. Jónsson — að leikurinn
á Spáni verði mjög erfiður fyrir
okkur hjá Dankersen. Við förum
á fimmtudagsmorgun til Spánar.
Upphaflega var ákveðið að úr-
slitaleikurinn í Evrópukeppni
bikarmeisara yrði háður í
Bremen í Vestur-Þýzkalandi —en
því hefur sem sagt verið breytt.
Staðan í Englandi
QPR
Liverpool
Man. Utd.
Derby
Leeds
Tottenham
Man. City
Leicester
Middlesbro
Ipswich
Stoke
Norwich
West Ham
Newcastle
Arsenal
Everton
Coventry
Aston V.
Birmingh.
Wolves
Burnley
Sheff. Utd.
Bristol Citv
Sunderland
WBA
Bolton
Notts. Co.
Luton
Southampton
Nottm. Forest
Charlton
Blackpool
Fulham
Chelsea
Plymouth
Hull City
Oldham
Bristol Rov.
Orient
Blackburn
Carlisle
Oxford
Portsmouth
York City
38 21
37 19
36 20
37 20
37 20
38 13
35 14
37 11
37 14
36 12
36 13
37 13
38 13
36 12
37 12
36 11
37 10
37 9
36 11
37 8
38 7
37 3
14 11
11 10
17 9
10 13
14 10
11 12
9 15
9 16
9 15
9 16
11 14
13 14
14 14
6 -19
10 19
10 21
9 25
57- 27 53
54-27 51
62- 35 50
63- 46 50
62-40 48
58- 56 40
54-31 39
42-46 39
39- 35 38
41- 38 38
42- 40 37
52-54 35
44- 60 35
64- 54 33
42-45 33
49- 61 33
38-50 33
45- 55 32
50- 67 28
42-60 26
40- 62 24
27-76 15
38 18
37 20
37 17
36 17
36 16
37 16
35 16
37 14
36 14
37 12
36 13
36 12
38 12
37 13
37 12’
36 10
36 11
37 10
37 10
37 10
36 8
36 8
13 7
8’ 9
12 8
11 8
8 12
8 13
7 12
11 12
10 12
13 12
10 13
11 13
11 15
9 15
11 14
15 11
12 13
13 14
12 15
11 16
6 22
6 22
55- 31 49
56- 33 48
43-30 46
51-32 45
49-37 40
49-46 40
56-43 39
47-38 39
54-60 38
35-41 37
40-38 36
46-45 35
46-49 35
40-43 35
51-56 35
32-37 35
32-34 34
39-45 33
38-54 32
35-48 31
26-49 22
31-61 22
ísland í 4. sœti
á NM í Karlstad
Islenzku stúlkurnar höfnuðu
i fjórða sæti á Norðurlandamóti
stúlkna sem fram fór í Karlstad í
Svíþjóð um helgina. Aðeins sigur
í einum leik — þrjú töp er eftir-
tekja íslenzka liðsins.
Svíþjóð sigraði í mótinu —
vann dönsku stulkurnar i úrslita-
leik mótsins 11-11 og fekk 8 stig.
Danmörk varð í 2. saúi með t>
stig, Noregur fékk 4 stig, ísland 2
stig og Finnland varð eins og í
Reykjavík að sætta sig við tap í
öllunt leikjum sinum.
ísland sigraði finnsku
stúlkurnar 14-8, en síðan tap gegn
Svíþjóð 20-11. Fvrir Danmörku
máttu stúlkurnar sætta sig við 6
marka tap —14-20.
í leiknum um þriðja sætið gegn
Noregi var tapið 12-17.
íþróttir
Heimsmet
í lyftingum
Evrópumeistaramótið í
lyftingum hófst í Austur-Berlín í
gær. Alexander Voronin, Sovét-
ríkjunum, setti nýtt heimsmet í
fluguvigt — snaraði 108.5 kílóum.
Bætti heimsmet Japanans Tage-
ucki um eitt pund. Voronin
sigraði í þ.vngdarflokknum —
lyfti samtals 240 kg. Ungverjinn
Koeszegi varð annar með 235 kg. 1
bamtamvigt sigraði Nurikian,
Búlgaríu, með 255 kg samtals —
en annar varð Skorupa, Póllandi,
með 252.5 kg. Keppendur frá
Austur-Evrópu urðu í sex fyrstu
sætunum í báðum flokkunum.
Svíinn Veikko Kontinen varð
sjöundi í fluguvigt með 205 kg og
landi hans Bo GiIIusson níundi i
bamtamvigt með 225 kg.
Drengjamótið
í judó
íslandsmótinu í judo lauk
laugardaginn 3. apríl með keppni
í flokkum drengja 11—14 ára.
Keppendum er fyrst skipt í tvo
aldursflokka, og síðan eru tveir
þyngdarflokkar í hvorum aldurs-
flokki. Geysilega mikil þátttaka
er í þessum aldursflokkum og
verður að takmarka þátttöku í
aðalkeppninni. Forkeppni er háð
í judofélögunum, en hverju félagi
er síðan heimilt að senda tvo
keppendur í hvern flokk.
Úrslit urðu sem hér segir:
11—12 ára
Léttari flokkur
1. Stefán Kristjánsson, UMFG
2. Sveinn Sveinsson, ísaf.
3. Karl.Ásgeirsson, ísaf.
4. Garðar Magnússon, UMFG
Þyngri flokkur
1. Jón Kr. Haraldsson, JFR.
2. Halldór Smith, Gerplu.
3. Kristján Valdimarsson, Á.
4. Þorfinnur Andersen, UMFG.
13—14 ára
Léttari flokkur
1. Finnbogi Jóhannesson, ísaf.
2. Gísli Bryngeirsson, Gerplu.
3. Gunnar Jóhannesson, UMFG.
4. Kristinn Kristinsson, ísaf.
Þyngri flokkur.
1. Óli Bieldvedt, Á.
2. Einar Ólafsson, ísaf.
3. Ketilbjörn Tryggvason, JFR
4. Öli Antonsson, ísaf.
Japan vann ísrael
Japan sigraði ísrael 17-15 í fyrrí leik land-
anna — af tveimur — um réttinn til aö leika á
Olympíuleikunum í Montreal í handboltanum.
Leikiö var í Tel Aviv. Staöan í hálfleik var 10-8
fyrir Japan.
Júgóslavneska liöiö Radnicki Belgrade varö
Evrópumeistari í handknattleik kvenna —
sigraöi Svift, Hollandi, meö yfirburðum 22-12 í
úrslitaleiknum í Belgrad í gær.
Úrslit í Hollandi
PSV Eindhoven, sem mikla möguleika hefur
til aö komast í úrslit í Evrópukeppni meistara-
liöa, vann góöan sigur á Nac Breda í 1. deildinni
hollenzku í gær. 4-0 á heimavelli. Van der
Kuylen, tvö, Dahlquist og Dejkers skoruöu
mörkin.
Önnur helztu úrslit urðú þau, aö Fojenoord
sigraði Ajax 4-1. Sparta vann Amsterdam 1-0,
en Nec og Twente geröu jafntofli 0-0. PSV
Eindhoven er efst meö 41 stig. Fejenoord hefur
40 stig, Twente 37 stig, Ajax 36 stig og Nec 33
stig.
Álafosshlaupið var háð á laugar-
dag. Gunnar Páll Jóakimsson, ÍR,
sigraði í karlaflokki — en Ragn-
hildur Pálsdótlir, KR, i kvcnna-
flokki.
raa