Dagblaðið - 05.04.1976, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. APRlL 1976.
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
D
Sigurmark QPR skorað
10 sek. fyrir leikslok!
— og liðið hefur enn tveggja stiga forskot. Liverpool i öðru sœti
Meistaraheppnin er farin aö
f.vlgja Queens Park Rangers —
auk stórgóós leiks. Aðeins 10
sekúndum fyrir leiklok í New-
eastle á laugardag tókst Stan
Bowles aö skora sigurmark
QPR — og þá haföi Newcastle
verió betra liðið i siðari háif-
leiknum, en ekki tekizt að nýta
þá yfirburði í mörk. QPR vann
1—2 og fátt virðist nú geta
komiö í veg fyrir að liðið hljóti
. enska meistaratitilinn í fyrsta
sinn. A fjóra leiki eftir og þrír
þeirra eru á heimavelli, aðeins
einn úti gegn Norwieh. í
síðustu 11 leikjunum hefur
QPR hlotið 21 stig af 22 mögu-
legum. — Unnið 10 leiki, en
gert eitt jafntefli á þessum
tíma og það við neðsta liðið,
Sheff. Utd.
Alan Gowling skoraði fyrir
Newcastle á 16 mín. og rétt á
eftir slapp QPR við frekara
áfall, þegar Malcolm
MacDonald var kominn í færi
innan vítateigs, en illa var
brotið á honum. Áhorfendur og
leikmenn Newcastle voru vissir
um að vítaspyrna yrði dæmd —
en dómarinn lokaði augunum
og lét leikinn halda áfram.
Ekkert dæmt og á 21 mín. fór
garnla kempan Frank
MacLintock upp í hornspyrnu
og skallaði knöttinn í mark.
QPR náði frumkvæðinu um
tíma og Bowles átti hörkuskot í
þverslá. En í síðari hálfleiknum
var Newcastle betra liðið þar til
alveg í lokin, að Stan Bowles
skoraði og áhorfendur urðu
hljóðir á áhórfendasvæðunum.
Enn einn tapleikur Newcastle á
heldur klaufalegan hátt og
ósanngjarnan.
Liverpool skauzt upp í annað
sætið meó sigri á nágranna-
liðinu Everton. Leikurinn var
háður á laugardagsmorgun
vegna Grand National-
veðhlaupanna, sem fóru fram i
Liverpool eftir hádegið. Lengi
vel leit út fyrir, að Liverpool
ætlaði ekki að takast að ná sigri
— en tveimur min. fyrir leiks-
lok bjargaði „super-sub” —
varamaðurinn stórsnjalli,
David Fairclough, málunum.
Skoraði hreint frábært mark.
Náði knettinum af Roger
Kenyon, lék síðan á þrjá
varnarmenn Everton áður en
hann sendi knöttinn með
hörkuskoti í mótstætt mark-
horn. Vel að unnið af 19 ára
pilti, en hann kom inn fyrir
John Toshack á 63. mín. þegar
stóri John meiddist. Fairclough
hefur skorað ákaflega
þýðingarmikil mörk fyrir
Liverpool að undanförnu —
mörk, sem hafa gefið Liverpool
6 stig í þremur leikjum. Á síð-
ustu mín. gegn Everton fékk
Liverpool vítaspyrnu — en Phil
Neal, bakvörður, spyrnti knett-
inum meter framhjá markinu.
En lítum á úrslitin á laugar-
dag:
1. deild
75. mín. skoraði varamaðurinn
Peter Hampton sigurmark
Leeds og liðið hefur enn örlitla
möguleika að hljóta meistara-
titilinn.
Mest á óvart kom sigur
neðsta liðsins, Sheff. Utd. í
Norwich, þó sá sigur breyti
engu. Sheffield-liðið er fallið —
en það kemst kannski hjá því,
að setja nýtt botnmet í 1. deild.
Það vafasama met eiga Leeds
(1946) og QPR (1969) aðeins
18 stig. Sheff.Utd. komst í 3-0
með mörkum Gunthrie,
Steward og Currie, þegar hálf-
tími var af leik, en Boyer
skoraði eina mark Norwich rétt
fyrir hléið. Þar við sat. Fleiri
mörk voru ekki skoruð i leikn-
um.
Mikill baráttuleikur var milli
Birmingham-liðanna og
Birmingham náði í tvö
þýðingarmikil stig. Það bjargar
sér sennilega frá falli enn einu
Arsenal-Tottenham 0-2
Birmingham-Aston V 3-2
Coventry-Leicester 0-2
Leeds-Burnley 2-1
Liverpool-Everton 1-0
Middlesbro-Ipswich 2-0
Newcastle-QPR 1-2
Norwich-Sheff.Utd. 1-3
West Ham-Wolves 0-0
A föstudagskvöld léku Stoke og Manch.City. Jafntefli varð
0-0.
2. deild
Blackburn-Luton 3-0
Blackpool-Bristol C. 2-1
Bolton-Nottm. Forest 0-0
Bristol Rov.-Orient 1-1
Hull City-Charlton 2-2
Notts Co.-Sunderland 0-0
Oxford-York City 1-0
Plvmouth-Oldham 2-1
WBA-Carlisle 3-0
Leeds — án Alan Clarke og
Eddie Gray — átti i nokkrum
erfiðleikum með Burnley, en
sigraði 2-1 og sendi þar með
Lancashire-liðið nær örugglega
niður í 2. deild. Duncan
McKenzie skoraði fyrir Leeds á 20. mín., en Burnley-liðið barð- ist af krafti og rétt fyrir hléið tókst Ray Hankin að jafna. Á
Erfitt hjá Celtic
með neðsta liðið
Efsta liðið í aðaldeildinni
skozku, Glasgow Celtic, lenti á
laugardaginn í hinu mesta
basli gegn neðsta liðinu, St.
Johnstone, og það þótt leikið
væri á Parkhead, leikvelli
Celtic í Galsgow. En Celtic
tókst að na báðum stigunum úr
leiknum — sigraði 1-0 — og var
allt annað en sannfærandi í
leik sínum, að sögn BBC. Þetta
eina mark í leiknunt skoraði
Kenny Dalglish á 23ju mínútu.
Mörg góð tækifæri misnotaði
Celtic í leiknum.
Á sama tíma vann Rangers
góðan sigur í Edinborg —
sigraði Hibernian, sem er í 3ja
sæti í deildinni, með 3-0 og það
er gott á útivelli. Þeir Alex
MacDonald, Martin Henderson
og Derek Johnstone skoruðu
mörkin.
Úrslit i leikjunum urðu
annars þessi:
Celtic-St. Johnstone 1-0
Dundee-Ayr 1-2
Hibernian-Rangers 0-3
Motherw.-Dundee Utd. 3-2
Ayr United vann óvæntan
sigur i Dundee og gæti bjargað
sér frá falli kostnað Dundee,
sem gengið hefur illa að
undanförnu. Annars er staðan
nú þannig í deildinni.
Celtic 29
Rangers 29
Hibernian 30
Motherw. 29
Aberdeen 30
Hearts 29
Ayr 29
Dund.Utd.29
Dundee 30
St. Johnsí. 30
Dumbarton og Hearts léku í
undanúrslitum i skozku bikar-
keppninni á Hampden á
laugardag og voru áhorfendur
aðeins 16.087.
Leikurinn var ákaflega
slakur og lauk án þess mark
væri skorað. Dumbarton var
mun betra liðið og hefði
verðskuldað sigur. Liðin leika á
ný í kvöld um réttinn til að
leika við Rangers í úrslitum
keppninnar.
20 4 5 62-30 44
19 5 5 52-22 43
15 6 9 48-37 36
14 7 8 50-40 35
10 7 13 44-43 27
9 8 12 32-41 26
11 4 14 36-48 26
9 7- 14 43-55 25
9 7 14 43-55 25
2 3 25 26-73 7
sinni — ekki vegna eigin getu,
heldur vegna þess hve önnur
lið á botninum eru slök. Á 18.
mín. skoraði Terry Hibbitt frá-
bært mark með spyrnu frá víta-
teig — en Andy Gray jafnaði
fyrir Aston Villa mínútu fyrir
leikhléið. Á 57. mín. náði
Birmingham aftur forustu með
marki Ken Burns — Graydon
jafnaði fyrir Villa á 70 mín. úr
vítaspyrnu. Fimm mín. síðar
skoraði Trevor Francis og það
reyndist sigurmark leiksins.
En nú verðum við að fara
fljótt yfir sögu. Tottenham
sigraði í fimmta leiknum i röð
— vann nágrannaliðið í
Norður-Lundúnum, Arsenal,
auðveldlega, þó svo leikið væri
á Highbury. Pratt og Duncan
skoruðu fyrir Tottenham í f.h.
og liðið er nú komið upp í sjötta
sæti. Þeir Mills og Armstong
skoruðu mörk Middlesbro gegn
Ipswich — og Keith Weller
skoraði eftir aðeins 45
sekúndur fyrir Leicester í
Coventry. Úlfunum tókst ekki
að sigra West Ham i Lundún-
um. Ekkert mark var þar
skoraði I slökum leik — og
staða Úlfanna versnar stöðugt.
Efsta liðið í 2. deild, Bristol
City, tapaði óvænt fyrir Black-
pool og það þó Ritchie skoraði
eftir aðeins 4 mín. En Kevin
Moore jafnaði fyrir Blackpool á
40 mín. og Lloyd skoraði sigur-
markið í s.h. Sunderland er nú
aðeins einu stigi á eftir Bristol
City — og það getur liðið
þakkað hinum frábæra mark-
verði sínum, Jim Montgomery.
Hann bjargaði vítaspyrnu frá
Alan Birchenall, sem leikur
með Notts County sem láns-
maður frá Leicester. Gegn York
fyrr í vikunni varði Montgo-
mery einnig vítaspyrnu og
Sunderland vann 1-0. WBA er
komið í 3ja sæti og vann
Carlisle létt með mörkum
Brown, Martin og Mayo — en
Bolton á enn í erfiðleikum.
Náði þó stigi á heimavelli gegn
Nottingham Forest — liði
Brian Clough, sem óðum fikrar
sig upp töfluna, en of seint til
að komast í 1. deild í vor.
I 3ju deild hefur Hereford
enn fimm stig forskot — hefur
53 stig. Brighton, Crystal
Palace og Millvall hafa 48 stig,
Cardiff 47 og Walsall 46. Fram-
undan er hörkubarátta um
sætin í 2. deild — en nýjasta
deildaliðið, Hereford, ætti að
vera öruggt með að ná einu
þeirra. í 4. deild er Lincoln efst
með 61 stig og hefur skorað 94
mörk — miklu fleiri mörk en
nokkurt annað deildalið. Nort
hampton hefur 58 stig, Reading
52, Tranmere 51, Huddersfield
49 og Doncaster 48.
Meístarar Derby grótt leflcnír
— Manch. Utd. og Southampton leika til úrslita í ensku bikarkeppninni
í
Strákarnir hjá Manch. Utd.
komu enn á óvart í undanúr-
slitum ensku hikarkeppninnar
á laugardag — höfðu algjöra
yfirburói gegn Eng-
landsmeisturnm Derb.v
County á Hillsborough, leik-
velli Sbi'ff. Wed og si„iuðu
meö 2-0 og var það mótstætt við
nær alla spádóma um leikinn í
Englandi. Ekki nóg með það —
Derby liðið var grált leikið og
Manch. Utd. var mun nær því
að skora fleiri mörk í leiknum
en Derby aö skora eitt. í hinum
leiknum í undanúrslitum
sigraði Soulhampton Crystal
Palace úr 3. deild með sömu
markatölu á Stamford Bridge í
Lundúnum og var það verð-
skuldaöur sigur. Það verða því
Manch. Uld. og Southampton,
sem teika m ui.sma i pi'ssum
mesta sýningarleik enskrar
knattspyrnu — úrslitaleik
hikarkeppninnar — fyrsta
laugardaginn í maí — eða 1.
maí. Annað árið í riið, sem liö
úr 2. deild leikur IiI úrslita. í
fyrra lek l'ulham úr 2. deild viö
West Ham — og West Ham
varð bikarmeistari.
Ahoijendm a Ilillsborough á
Iaugardag voru rúmlega 55
þúsund eða eins og þar frekasl
rúmaðisl á hinum glæsilega
leikvangi — þeim bezta í
Englandi að sogn og er nú liðið
fræga, Sheff. Wed., sem á
völlinn, á leið niður í 4. deild.
Stemning var strax mikil — en
greinilegt, að Derby saknaöi
Charlie George og var ekki
sannfærandi í leik sínum, en
hins vegar virtist ekki koma að
sök hjá Manch. Utd. þó Lou
Macari gæti ekki leikið vegna
meiðsla. Tekjur af leiknum
námu 140 þúsund sterlings-
pundum.
Strax á 12. mín. náði Manch.
Utd. forustu með glæsilegu
marki. Brian Greenhoff náði
knettinum eftir mistök Colin
Todds og spyrnti langt fram
völlinn til Gordon Hill. Hann
iók -KK, siöai. „ Laly og
fékk aftur knöttinn rétt utan
vítateigs. Þar spyrnti Gordon
Hill á markið og þrumufleygur
hans þandi netmöskva Derby-
marksins — algjörlega
óverjandi fyrir Graham
Moseley, markvörð. Þetta þótti
nokkuð d.jarft hjá Hill, því
Steve Coppell var frír i víta-
teigs Derby.
Landsliðsmennirnir í vörn
Derby virkuðu seinir gegn
hinum eldfljótu framherjum
Manch. Utd., þar sem Hilljig
háskólastúdentinn Coppell
voru þeim Thomas og Nish afar
erfiðir — en Roy McFarland
átti hins vegar stórleik og
bjargaði Derby frá algjöru
hruni. Framlina Derby náði sér
ekki á strik, þrátt fyrir allgóðan
leik Roger Davies, sem lék í
stað Charlie George — Kevin
Hector sást varla i
leiknum og í síðari
hálfleik tók Franciis
Lee stöðu hans, og Alex
Forsyth, hægri bakvörður
Manch. Utd., hafði algjör tók á
Leighton James ,,lek hann út úr
leiknum" að sögn BBC. Þar
með var mestu broddurinn úr
sókn Derby, en í lok fyrri hálf-
leiksins náði liðið þó nokkuð
góðum sóknarlotum, en Alex
Stepney varði auðveldlega það,
sem á markið kom — og í heild
hafði hann lítið að gera í
markinu.
I siðan halíleik voru yfir-
burðir Maneh. Utd. enn meiri
— en mörkin létu á sér standa.
Leikmenn Derb.v voru oft mjög
grófir í leik sinum „það var
greinilegt að Derb.v er á leið út
úr bikarnum. þegar leikmenn
liðsins byrjuðu að sparka mól-
herjana niður, " sagði þulur
i'diiiu„ sio iodd Stuart
Pearson niður án þess að
dómarinn frægi, Jack Taylor,
veitti þvi athygli, en
áhorfendur bauluðu þess
meira. Leikurinn var talsvert
grófur og Pearson var svo
bókaður rétt á eftir fyrir brot á
Bruce Rioch. Atta mín. fyrir
leikslok tryggði Hill svo algjör-
lega sigurinn. Hann tók auka-
spyrnu rétt utan vítateigs — og
spyrnti fast á markið.
Knötturinn kom i einn varnar-
mann Derby og hrökk í markið.
2-0 og sigur Manch. Utd. var
öruggur. Lokakaflann sótti
liðið nijög — fékk— nokkrar
hornspyrnur og MacCrerry var
nálægt því að auka muninn í
þrjú mörk.
Gordon Hill, leikmaðurinn,
sem fyrir ári var að berjast með
Millvall í fallbaráttunni í 2.
deild var stjarna leiksins — en
þeir Coppell, Daly og Mellroy
léku einnig snilldarlega,
svo og flestir varnarmenn
liðsins.
Stopney elsti leikmaður á
vellinum, 33 ára, var öruggur í
marki — og sá yngsti, Mac-
Greery, 18 ára lék, eins og
þrautreyndur landsliðsmaður.
Derbyliðið olli vonbrigðum —
Reynsla leikmanna liðsins
nægði ekki gegn hraða og leikni
mótherjanna.
Leikur Crystal Palace og
Southampton í Lundúnum var
daufur lengi vel — Peter
Taylor hjá Palace náði sér ekki
á strik og þar með var mesti
broddurinn úr Palaceliðinu, og
ensku landsliðsmennirnir hjá
Southampton, Mike Channon
og Peter Osgood, virkuðu
heldur ekki sannfærandi.
Áhorfendur höfðu þvi
lengstum litlum að fanga, en
22 þúsund þeirra höfðu komið
frá Southampton. Loks á 72.
mín. tókst Poul Gilchrist að
skora fyrir Southampton með
góðu skoti af 25 metra færi —
og eftir það voru úrslit ráðin.
Southampton fékk vitaspyrnu
fimm mínútum síðar og David
Peaeh. bakvörður, skoraði
örugglega úr henni.
Manch. Utd. leikur sinn
sjötta úrslitaleik i bikarnum 1.
maí þrivegis hefur félagið
sigrað, 1909, 1948 og 1963, en
1957 og 1958 tapaði United í
úrslitaleikjum. Southampton
leikur í þriðja sinn i úrslitum
bikarins — en hefur aldrei
sigrað í bikarkeppninni. Og
langt er siðan Southampton
hefur leikið slikan stórleik —
felagið komst i úrslit 1900 og
1902. en tapaði i bæði skiptin.