Dagblaðið - 05.04.1976, Side 24

Dagblaðið - 05.04.1976, Side 24
MADUR FANNST LATINN AF SKOTSÁRUM Á AKUREYRI Byssan fannst í 2-300 m fjarlœgð — Talið víst að henni hafi verið stolið úr skotfœraverzlun 28 ára gamall maður fannst látinn af skotsárum skammt frá heimili sínu á Akureyri kl. rúmlega 7 á sunnúdagsmorgun- inn. Nærri líki mannsins fundust nokkrar riffilpatrónur og ónotuð skot af algengri stærð af Remington-gerð. í 2- 300 metra fjarlægð frá líkinu fannst 22 cal. riffill, sem talið er víst að stolið hafi verið úr skotfæraverzlun á Akureyri aðfaranótt laugardagsins eða sunnudagsins. Stóð riffillinn uppi við skúr. sem þarna stendur og hjá honum nokkrir pakkar af riffilskotum, sömu gerðar og áður getur. Skot- vopnið er magasjn-riffill. Hinn látni er 28 ára gamall járniðnaóarmaður, Guðbjörn Tryggvason, sem bjó að Hrauni í Glerárþorpi. Lætur hann eftir sig konu og tvö börn. Þau hjónin voru fyrir skömmu komin heim til sín um kl. 4.30 um morguninn, en þau höfðu verið í fagnaði hjá kunn- ingjum sínum. Fór þá Guðbjörn heitinn að heiman og ætlaði eftir því sem næst verður komizt heim til kunningja sins. Segir ekki frekar af hans ferðum, en lík hans fannst, sem áður segir, skammt frá heimili hans ekki alllangt frá barna- skólanum við götuna Heiðar- lund. Þarna er að öðru leyti að mestu óbyggt svæði. Engin slóð var sjáanleg á milli líksins og byssunnar þar sem hún stóð við skúrinn. Sem fyrr segir, er taiið full- víst, að banavopninu hafi verið stolið úr skotfæraverzlun aðfaranótt laugardags eða sunnudags, nóttina fyrir þennan voðaatburð og að kass- inn utan af vopninu hafi verið skilinn eftir á innbrots- staðnum. Nokkrir menn hafa verið yfirheyrðir, en ekkert hefur enn komið fram sem skýrir ferðir Guðbjörns heitins, eða það, hvernig dauða hans bar að. Virðist mega greina nokkra áverka eftir riffilskot á höfði hins látna, meðal annars aftan tií á því. Líkið verður sent til nákvæmrar réttarkrufningar í Reykjavík í dag. —BS Tveir drengir 7 og 8 ára drukkn- uðu á Selfjarn- arnesi Umfangsmikil leit fór fram á Seltjarnarnesi á föstudagskvöld að tveim drengjum, þeim Geir Jóhannssyni átta ára og Kristjani Geir Þorsteinssyni sjö ára. Fundust drengirnir drukknaðir í vök í Bakkatjörn á Seltjarnar- nesi á föstudagsnóttina. Fóru drengirnir, sem eru bræðrasynir, að heiman frá sér um miðjan dag á föstudag og hugðust veiða hornsíli í Bakka- tjörn. Einnig fór með þeim lítil stúlka sem kom svo heim til sín um kvöldmatarleytið. Um klukkan átta á föstudagskvöldið var svo farið að svipast um eftir drengjunum og hófst skipulögð leit um kl. 22. Tóku þátt í henni félagar úr björgunarsveit Slysa- varnafélagsins Albert og seinna komu fleiri björgunarsveitir og einstaklingar. Alls tóku þátt í leitinni 4-500 manns þegar flest var. Um klukkan hálftvö fannst vettlingur annars drengsins á floti i Bakkatjörn og voru þa kafarar kallaðir á vettvang og fundu þeir fljótlega lik ungu drengjanna i vokintu. Hefur lögreglan á Seltjarnar- nesi brýnt fyrir foreldrum hversu hættuleg Bakkatjnrn er börnum og unglingum að vetrarlagi þegar tjörnin er ísi lögð. Dýpi úti í tjörninni er um einn ufa halfur metri þar sem vökin er. -BH. Leitin að litlu drengjunum tveimur beindist fljótt að Bakka- tjörn. Hér eru nokkrar myndir frá leitinni. DB-myndir Ragnar Th. Sig. SLEGIZT UPPA GAMLA MATANN í ÓLAFSVÍK Á FRÍHELGI Fyrsta fríhelgi sjómannanna í Ölafsvík á þessu ári virðist hafa verið vel þegin til skemmt- anahalds eftir látunum að dæma, sem voru þar á laugar- dagskvöldið síðasta. Þá um kvöldið var haldinn dansleikur. Talsvert var um slagsmál og læti, eins og gengur og gerist á íslenzkum dansleik. Það var þó ekki fyrr en eftir dansleik, sem annir lögreglunn- ar jukust verulega. Þá lentu lögregluþjónar í eltingaleik við ökumann, sem ók á um 100 kíló- metra hraða um þorpið. Elt- ingaleikurinn barst út fyrir bæ- inn og þar gómaði lögreglan ökuþórinn. s Sagan var þó ekki þar með sögð. Á leiðinni til þorpsins mætti lögreglan öðrum öku- fanti, sem fór heldur geyst, — ók á um 130 km hraða. Einn lögregluþjónninn brá sér því út úr bifreiðinni og hugðist stöðva bifreiðina. Ekillinn var ekki á því að ræða við lögregluna, heldur jók hraðann verulega og átti lögregluþjónninn fótum fjör að launa. Þessi bíll var þegar eltur og eftir góða stund lenti ökumað- urinn í sjálfheldu inni í Ólafs- vík. Hann var mjög ölvaður og var þegar sviptur ökuleyfi. Daginn eftir, er yfirlögreglu- þjónninn, Adolf Steinsson, var við vinnu sína á lögreglustöð- inni, veitti hann athygli manni sem skoðaði lögreglubif- reiðina í krók og kring. Adolf þótti framferði mannsins und- arlegt, svo að hann fylgdist náið með honum. Eftir góða stund og mikla rannsókn á lögreglu- bifreiðinni hélt maðurinn að Range Rover bifreið, sem stóð þarna skammt frá. Hann snaraði sér upp í bílinn og ók af stað. Adolf Steinsson hljóp þegar til og tókst að ná taki á hurðar- húni Range Rover bifreiðarinn- ar, er hún ók fram hjá honum. Bílstjórinn var þó ekki að hafa fyrir því að stoppa, þótt einn lögregluþjónn héngi á bílnum, heldur hélt sínu striki. Yfirlög- regluþjónninn hljóp með bif- reiðinni nokkra metra, áður en honum tókst að opna hurðina og snara sér inn. Þessi ökumaður reyndist einnig tölu- vert ölvaður. —ÁT— LOÐNUVEIÐIN BARA í ÚTVARPINU Eina loðnuveiðin um helgina var í þætti Páls Heiðars á sunnudaginn, er hann lýsti ferð með loðnubáti fyrir skömmu, en að öðru leyti voru bátarnir að koma inn aðfaranótt laugar- dags og síðan hefur ekki viðrað. Síðast þegar þeir voru að, veiddu þeir undan Jökli og vona bjartsýnir menn að þar sé eitthvað eftir verði veiðiveður. Aðeins sjö til átta bátar bíða nú veðurs, hinir eru hættir og vantar nú um 120 þús. tonn upp á að ná aflamagninu í fyrra, sem var 457 þús. tonn. Síðasta loðnulöndunin í fyrra var 9. april, svo vertíðin er nú á síð- ustu 100 metrunum, eins og sagt er á íþróttamáli. —G.S frjálst, úháð dagblað MÁNUDAGUR 5. APRlL 1976. STAL STRÆTIS- YAGNI Skömmu eftir miðnætti á laugardagskvöld hefur einn sjálfsagt langþreyttur af að bíða á Hlemmi eftir leigubíl eða strætisvagni gert sér lítið fyrir, brugðið sér upp í strætis- vagn sem stóð á biðstöð við Hlemmtorg og ekið honum af stað. Vagnstjóranum hefur sennilega brugðið í brún er hann uppgötvaði að vagninn var horfinn en skömmu seinna fann lögreglan vagninn öllum til léttis þar sem hann stóði inni í Skeifu hjá öllum verzl- ununum þar. —BH 150% nýting ísfirzkra fangageymsla Fangageymslurnar á ísafirði voru óvenju þéttsetnar á laugardagsnóttina, en þær gistu sex manns þrátt fyrir að geynmslurnar séu ekki ætlaðar nema fjórum. Mennirnir voru teknir yrir ölvun og óspektir, ekki alvarlegar, og voru tveir hinna sex sendir til ísafjarðar frá Súgandafirði. Ekki er það algengt að hafa þurfi tvo menn saman í fangaklefum vestra en kemur þó fyrir, þegar svo stendur á helgum sem nú, fyrstu helgina í manuðinum. -BH. 26 TEKNIR ÖLVAÐIR VIÐ AKSTUR Þrátt fyrir það að ekki sé mikið um að menn séu settir inn fyrir ölvun á almanna- færi er tala þeirra sem teknir eru ölvaðir við akstur alltaf nokkuð há. 1 Keflavík voru þrír teknir fyrir meinta ölvun við akstur, allir á að- faranótt laugardagsins og virðist svo sem ölvun hafi nokkuð færzt frá laugardegi yfir á föstudaginn þar sem víðar. í Kópavogi voru teknir tveir fyrir ölvun við akstur svo og í Hafnarfirði þar sem þeir voru einnig tveir. Reykjavík á metið þessa helgi sem aðrar, en þar voru nitján marins teknir vegna ölvunar við akstur. Þar af var einn sem ekið hafði bíl sínum út af á Vesturlandsvegi viðKorpúlfs staði og var tekinn upp af lögreglunni á leið sinni í bæinn. —BH METSALA HJÁ TOGARANUM JÚNÍ meðalverð aflans var 51.40 kr. Togarinn Júní setti nýtt sölu- met hérlendis, er hann kom með um 320 tonn af fiski á miðvikudaginn var. Fyrir þenn- an afla fengust 16.6 milljónir króna, sem er um 51.40 króna meðalverð á hvert kíló. Megin- hluti fisksins fór i fyrsta flokk. Aflann fékk Júni suður af landinu. — Engey RE var á svipuðum slöðum og fékk einn- ig mjög góðan afla. — Um 176 tonn af afla Júní voru þorskur, 90 tonn ýsa og afgangurinn ufsi og karfi. Af þessuro 16.6 milljönum króna, sem fengust fyrir afla Júní, verður hásetahluturinn um 130—140 þúsund krónur, sem telst mjög gott, ekki sízt ef litið er á það. að veiðiferð togar- ans tók 13 daga. Júní er 942 lesta skuttogari, sntiðaður árið 1973 á Spáni. Eigandi skipsins er Utgerðar- félagið Júní, og skipstjóri er Guðmundur Jónsson. —ÁT— V

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.