Dagblaðið - 24.04.1976, Page 3
3
DAC'.BLAÍMt). I.AU(;AHDAC;iU{24. AI’KlL 1976.
.............n"7* .
Lélegir leikir i sjónvarpinu:
Jötnar Southampton gegn hvít-
maurum Crystal Palace — slakt
Friðrik Guðni tónlistarkennari
og Haildór G. Kristjánsson
íþróttakennari, Hvoisvelli,
skrifa:
„Stöku sinnum hendir það að
við vinirnir setjumst hlið við
hlið og horfum á íþróttaþáttinn
í sjónvarpinu. Annar horfir þó
sjaldan, enda kenndur vió flest
annað en líkamsrækt. Þó hefur
hinn, sem er íþróttakennari,
kennt honum margt, sem lýtur
að iðkun íþrótta. Laugardaginn
10. apríl rak að því að
„meistari” og „lærisveinn urðu
sammála enda þurfti stóra hluti
til.
jötnar Southampton gegn hvít-
maurum Cr.vstal Palace —
leikurinn tilgangslaus spörk og
hlaup enda annað liðið í 3. deild
hitt í 2 drild — Öskiljanlegt að
anntið liðið skuli hafa tinnið—
ekki bæði tapað! Síðan kórónar
háttvirtur umsjónarmaður
enskrar knattspyrnu allt með.
því að tilkynna að endursýning
á þessum líka „frábæra” leik
verði næsta laugardag.
Það hlýtur að vera lágmarks-
krafa allra þeirra, sem fylgjast
með umræddum dagskrárlið, að
boðið sé upp á boðlegt efni,
hvort heldur er „lærisveini”
eða „meistara”.”
Enska knattspurnan er dag-
skráratriði er furðu margir
horfa á. Meira að segja tón-
listarmenn! Þegar dregur að
því að úrslit fáist í hinum ýmsu
viðureignum, sem brezk lið
heyja sín á milli, eykst eftir-
væntingin. Og síðan — fáum
við ekki að sjá einhvern af betri
leik.junum? Fer það nokkuð á
milli mála að Bjarni Felixson
býður upp á leik Manchester
United og Derby í undanúrslit-
um bikarkeppninnar í Eng-
landi? Tvö skemmtilegustu lið
Englands höfðu leikið viku
áður á Hillsborough, jú, fjandá-
kornið, hugsuðum við. Við
hljótum að fá að sjá United og
Derby. En nei, ekki aldeilis
góðurinn! Á skerminum birtast
Frá umræddum leik — Southampton og Crystal Palace. Channon og Osgood, Southampton sækja að
marki Palace. Southampton vann leikinn 2—0 og leikur til úrslita í bikarkeppninni við Manchester
United. .
SJÓMENN FÁISINA
SAMNINGA SEM FYRST
Raddir
lesenda
Sjómaður hringdi:
„Hvað eiga sjómenn að sitja
lengi við þessar aðstæður?
Hversu lengi eiga sjómenn að
vinna án fastra launakjara?
Utvegsmenn geta skammtaö
okkur eitt í dag og annað á
morgun, hvað getur þetta
gengið langt áður en við fáum
samninga eins og aðrar stéttir?
Við vinnum, en vitum ekki
fyrir hvaða kaupi við vinnum
og svona er ekki farið með
nokkra aðra stétt en þá sem
vinnur að undirstöðuatvinnu-
vegi þjóðarinnar.
Við erum varla metnir eft-
ir merkingu orðanna. Þetta
skapar mikla óvissu fyrir okkur
sjómenn og það er skylda
fulltrúa okkar að fara nú að
hugsa um anna.ð en eigin hags-
muni. Við sjómenn viljum at-
vinnuöryggi eins og aðrar stétt-
ir og ef þjóðin hefur ekki efni á
þvi að veita okkur það þá held
ég að fæstar stéttir ættu að
njóta þess.”
SAMVINNUSKOLANEMAR STOFNA
FÉLAG GEGN
REYKINGUM
— Sjöttu bekkirnir i
barnaskólunum vinna
fróbœrt starf
Matthías Gunnarsson skrifar:
„Það var fyrir um það bil
einum mánuði sem sjöttu-
bekkingar Fellaskóla í Breið-
holti voru mættir í skólann
sinn til þess að kynna skaðsemi
tóbaks. Ég er viss um að þessi
fundur vakti mikla athygli.
Þetta er stórkostlegt framtak
til þess að spyrna gegn reyking-
um sem eru komnar á mjög
hættulegt stig, því miður. Ekki
má eiga sér stað að sjöttubekk-
ingar, og aðrir sem vinna gegn
þess máli, leggi árar í bát.
Það var greinilegt að það eru
fleiri en sjöttubekkingar sem
vilja tóbakið burt. Nú hafa
nemendur Samvinnuskólans á
Bifröst stofnað með'sér félags-
skap, sem þeir nefna „Sam-
vinnuskólinn úr reyknum,”
Félagarnir sýndu myndir og
fluttu erindi fyrir nokkru og í
viku var lögð mikil áherzTa á
áróður gegn reykingum. Það er
vonandi að fleiri skólar á land-
inu fari að fordæmi þeirra á
Bifröst.
Það héldu kannski einhverjir
að sjöttubékkingar legöu árar
í bát, en þessir krakkar sýna
annað. Atta hundruð börn
skrifuðu undir yfirlýsingu þess
efnis að vinna gegn reykinguni
og gegn öllum hugmyndum um
að þær séu fínat' eða álitsauk-
andi. Þetta starf er frábærl.”
V
Niöur með sigarettuna. DB-mynd Björgvin.
✓
Spurning
dagsins
Ferðu
oft út að
borða?
Jóna Þórisdóttir afgreiðslu-
stúlka: Nei. Það kemur einstaka
sinnum fyrir þegar ég hef efni á
því og þá fer ég auðvitað þangað
sem er ódýrast.
Linda Leifsdóttir nemi: Það
kemur fyrir. kannski svona einu
sinni á ári, þá fer ég bara þangað
sem bezt er að borða.
Einar Einarsson fv. skólastjóri:
Nei, það geri ég ekki. Eg er
orðinn gamall maður og Jield
mig mest innan dyra svo er það
líka svo dýrt.
Kristján Þórðarson nemi: Nei,
það er ekki oft, ég hef ekki efni á
því. Ef ég fer þá eitthvað út að
borða kem ég heizt á grillstaði.
Jóhanna Björnsdóttir afgreiðslu-
stúlka: Aldrei. Ég er orðin það
gömul að ég sæki ekki mikið á þá
staði.
Arni Sigurðsson starfsmaður
BSÍ: Nei, það er svo dýrt að
maður gerir alls ekki mikið af því
nú orðið. Aður för maður
stundum á Borgina eða Sögu.