Dagblaðið - 19.05.1976, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 19.05.1976, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MAl 1976. „ÉG VAR AÐ VESLAST UPP í DRYKKJUSKAP OG SJÚKLEIKA" — þrótt fyrir alla velgengnina þekktur Hollywood-söngvari, Ode Wannebo, WANNEBO — lifir i kristnu samfélagi með Roy Rogers, Johnny Cash, Doris Day og öðrum stjörnum kvikmyndaborgarinnar Hoilywood. (DB-mynd Bjarnleifur). heldur tónleika í Reykjavík „Góðan daginn, góðan daginn," hljómaði djúp bagsa- rödd Ode Wannebos er við litum inn á æfingu hjá honum í Dómkirkjunni í gærmorgun. Ode Wannebo er þekktur bassasöngvari af norskum ættum en búsettur í Hollywood. Hann er staddur hér á landi til að halda tónleika áður en hann heldur áfram til meginlandsins, en þar mun hann koma fram við ýmis tækifæri og syngja. Ode Wannebo er hér á vegum Kristilegra skólasamtaka og fl. O.W.: Eg er fæddur í smábæ við Nansenfjörð um miðbik Noregs. Þar hlaut ég mína fyrstu tónlistarmenntun er móðir min kenndi mér á gítar. Síðar hélt ég til listnáms í Osló og hóf síðan söngnámið af miklu kappi og komst fljótt í norsku óperuna, þaðan lá leiðin svo út um víðan heim til frekara tónlistarnáms og tónleikahalds. Að lokum settist ég að í Bandaríkjunum og bý nú í Hollywood. Blm: ' Hvernig stóð á þvi að þú varðst kristinn? O.W.: Guð bókstaflega greip inn í lif mitt þar sem ég var að veslast upp í drykkjuskap og sjúkleika, þrátt fyrir alla vel- gengnina. Eg frelsaðist á Hawaii fyrir fjórum árum og síðan hefur lif mitt verið fullt gleði og ánægju yfir að vera til. Blm: Er ekki óvanalegt að fólk I skemmtanaiðnaðinum í Holly- wood snúi sér að kristindómi? O.W.: Nei, það er orðið mjög algengt. Fólk sem hefur þetta að atvinnu uppgötvar fljótt að peningarnir, frægðin og glæsi- bragurinn veita þvi enga gleði. Eg get nefnt þekkt nöfn eins og Johnny Cash, Mickey Rooney, Doris Day, Roy Rogers, Pat Boone og fjölda annarra. Þetta fólk sækir flest allt sömu kirkju og ég og við komum saman þrisvar til fjórum sinnum í viku til að lesa Biblíuna og íhuga hana. Svo erum við að opna nýtt leikhús, sem heitir frjálsa Hollywood-leikhúsið, og þar er áformað að sýna kristi- legt efni. Það bætast æ fleiri í hópinn. Blm: Telur þú þig vera trúboða? O.W.: Já, ég býst við því. Ég reyni að boða guðsorð með söng mínum og þeirri tónlist sem ég sem sjálfur, en ég hef gert mikið af því sfðan ég varð kristinn. Blm: Hvað er góð tónlist? O.W.: Ég tek alltaf gömlu tón- skáldin eins og Hándel, Beethoven og Mozart fram yfir en að sjálfsögðu er mikið samið af góðri tónlist í dag. Frekar get ég nú ekki skilgreint þetta. Blm : Hvernig finnst þér nútímatónlist heyra til kristindómi? O.W.: Sumt af henni á afar vel heima í kirkjunni. Fólk verður að aðlagast breyttum tímum og heimfæra kristindóminn meira upp á nútimann. Annars trúi ég nú að hinn gullni meðalvegur sé beztur í öllu. Og frekar gátum við ekki tafið Ode Wannebo að sinni þar sem undirleikarinn, Ragnar Björnsson dómorganisti, beið hans og þeir þurftu að halda áfram æfingum. Og á leiðinni út hljómaði til okkar aría úr Messías eftir Hándel sem lofaði góðu um tón- leika Wannebos hér á landi. ■JB Stórskisaður eftir mikið fall: FÉLL OFAN AF 4. HÆÐ HÓTELS í LISSABON Flugmaður frá Fli^gleiðum, Þór Sigurbjörnsson, fell út um glugga á hóteli, sem íslenzk áhöfn gisti í, og hlaut af mikla áverka. Þór var nýkominn á hótelið, þegar slysið varð, en vélin hafði flogið með farþega frá íslandi til Malaga og síðan til Kanaríeyja en millilent í Lissabon. Gluggar í hóteli þessu munu ná niður undir gólf og er talið að slysið hafi orðið þess vegna. Þór liggur á sjúkrahúsi í Lissa- bon og mun vera með meðvitund en mjög mikið slasaður og langt frá því að vera úr hættu. ’ -JBP Fjölgoð í liði ríkissaksóknara Ríkissaksóknari hefur farið fram á fjölgun í liði slnu vegna vaxandi verkefnaþunga, en hann hefur nú einn aðstoðar- rikissaksóknara og þrjá fulltrúa. Einn fulltrúanna, Jón Erlendsson, er nú að hætta og hefur verið auglýst eftir manni í hans stað en ríkisstjórnin hefur veitt samþykki sitt fyrir aukningu, líklega um einn fulltrúa. Ekki hefur fjölgað I liði saksóknara í nær áratug en embættið er 15 ára í sumar. — vaxandi verkefnaþungi kallar d aukið starfslið Baldur Möller, ráðuneytis- stjóri I dómsmálaráðuneytinu, sagði við DB í gær að fjölgunin væri nú i afgreiðslu. Sagði hann að aðalverkefnaaukning embættisins væri vegna ölvunaraksturs en einnig lægi aukningin til fleiri átta. -G.S. Winston reynir að koma út auglýsingafénu: BÝÐUR UPP Á STÓRA SKÁKKEPPNI — Skdksambandið telur keppnina sér óviðkomandi Skurðlœknar bera saman bœkur sínar Þriðja þing Skurðlæknafélags Islands verður haldið í Reykjavik þ. 15. júní nk. Meðal verkefna þingsins er að flutt verða 23 fræðileg erindi. Erindin skiptast I eftiifarandi flokka: Brjósthols- skurðlækningar, bæklunar- lækningar, þvagfæralækningar, skurðaðgerðir á slagæðum, slysa- meðferð og almennar skurð- lækningar. Fyrirlesarar eru starf- andi læknar við Landakotsspítala, Landspítalann og Borgar- spítalann. Að loknum fræðilega hluta þingsins verður aðalfundur Félags íslenzkra skurðlækna haldinn. Fundarstaður ér Hótel Holt. Auglýsingabannið á sigarettum hefur ekki haft nein sjáanleg áhrif í þá átt að minnka reykingar á Islandi. Einu áhrifin eru þau að félítil dagblöð og aðrir fjölmiðlar misstu af ærnum auglýsinga- tekjum sem fengnar voru utan- lands frá. Winston-sígaretturnar munu hvað mest reyktar hér á landi og í sambandi við það fyrirtæki eru til reiðu milljónir árlega I erlendu fé til að auglýsa vöruna hér á landi. En hvað er þá til bragðs? Rolf Johansen & Co. hefur umboð fyrir Winston og hefur með mörgu móti reynt að koma í lóg auglýsingafénu en stundum hafa þær aðferðir vakið deilur. Nú er ákveðið að efna til mikils skákmóts á Hótel Loftleiðum og hefur 250 virkum skákmönnum verið boðin þátttaka í mótinu, sem fer fram dagana 8. og 13. júní í Víkingasal. Boðið er upp á verðlaun sam- tals að verðmæti 250 þúsund krónur. Keppt verður í 20 flokkum. Skáksamband Islands hefur þegar sent frá sér orðsendingu um að. skákmótið sé sambandinu með öllu óviðkom- andi. Fulltrúi hjá Rolf Johansen tjáði blaðinu í gær að afstaða sam- bandsins breytti engu um það að mótið mundi fara fram á til- settum tíma. Taldi hann að örugg- lega mætti búast við mikilli þátttöku í mótinu sem fram fer eftir svissnesku kerfi. .irp.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.