Dagblaðið - 19.05.1976, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 19.05.1976, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1976. MÉBIAÐID frjálst, áháð dagblað (JtKofandi: Da^blaðid hf. FiamkvaMiuiast.jói i: Svoinn H. Eyjólfsson. Hitstjóri: Jónas Kristjánsson. Frúttast.jóri: Jön Bir^ir Pótursson. Hitst.jórnarfulltrúi: Haukur Hcluason. Aöstoöarfrétta- stjóri: Atli Stoinarsson. íhróttir: Hallur Símonarson. Hönnun: .lóhannes Hoykdal. Handrit: A.sjínmur Pálsson. Blaðamenn: Anna Bjarnason. As«eir Tömasson. Boili Húöinsson. Bra^i Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir. (lissur Sigurösson. Hallur Hallsson. Iielgi Pðtursson, Katrin Pálsdóttir. Olafu? Jónsson. Ómar Valdimarsson. Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarníeifsson. Björgvin Pálsson, Ragnar Th. Sigurðsson. (íjaldkeri: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson. Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið. Ritstjórn Síðumúla 12. sími 83322, auglýsingar. áskriftir og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022. Setning og umbrot: Dagblaðið hf. og .Steindörsprenl hf., Ármúla 5. Mynda-og plötugerð: Hilmir■hf„Slðumú’a 12.Prer.tun: Arvakurhf Skeifunni 10. Stórfellt njósnamál íDanmörku: Njósnaranum var I svefnrofunum Þingmenn láta yfirleitt lítið fara fyrir sér. Flestum þeirra nægir að fylgja fyrirmælum flokksforingjanna. Þó eru á hverju þingi fluttar nokkrar þingsályktunartillögur um merk mál. En í þeim tilvikum fá flutn- ingsmenn sjaldnast stuðning þingheims. Þessar tillögur eru allajafnan svæfðar. Þær fást ekki afgreiddar. í sumum tilvikum er þeim vísað til ríkisstjórnarinnar, sem kallað er, það þýðir oftast svæfing. Þess voru merki nú í þinglokin, að þingmenn væru loks að vakna í landhelgismálinu. Sá merki atburður gerðist, að þingmenn úr öllum flokkum fluttu tillögu til þingsályktunar um, að kalla ætti heim sendiherra íslands hjá Atlantshafsbandalaginu vegna yfirgangs NATO-ríkisins, Bretlands við okkur. Það er alltof sjaldan, að þingmenn sinni þeim skyldum sínum að hafa vit fyrir ríkisstjórn. Hver sem ríkisstjórnin hefur verið, hafa þing- menn þeirra flokka, sem að stjórninni hafa staðið, yfirleitt látið leiða sig sem svín til slátrunar, 1 hverju sem er. Þótt vitað væri, að mörgum stjórnarþingmönnum hefur að undan- förnu ofboðið undansláttur ríkisstjórnarinnar í landhelgismálinu, var löng bið á að frá þeim heyrðist. Síðastliðið haust létu stjórnarþing- menn til dæmis hafa sig í að styðja samningana við Vestur-Þjóðverja. Samt var vitað, að margir þeirra voru andvígir samningunum fram á síðustu stundu. Stjórnarþingmenn hafa í vetur undantekningalítið þagað við afsláttarpéli- tíkinni í landhelgismálinu. Það er gott innlegg í málið á þessum tíma, að stjórnarþingmennirnir Steingrímur Hermannsson, Framsókn, og Pétur Sigurðsson, Sjálfstæðisflokknum, skuli hafa staðið að tillögu um heimköllun sendiherrans hjá NATO. í þessari afstöðu þingmannanna og skoðana- bræðra þeirra felst að sjálfsögðu vantraust á ríkisstjórnina. Þessir þingmenn munu þó telja sig stjórnarsinna áfram, en þeir eru í raun og veru að segja, að undansláttur ríkisstjórnar- innar dugi ekki lengur. Hún hafi verið á villi- götum. Gallinn er sá, að þessir þingmenn þögðu of lengi. Takmarkað gagn er að tillögu í lok þingsins, þegar allt starf þess einkennist af tímahraki, og jafnvel merkum málum, svo sem frumvörpum dómsmálaráðherra um dómsmál, er kastað fyrir borð. Því miður eru íslenzk stjórnmál ekki nógu þróuð til þess, að risið hafi upp fyrir löngu úr röðum stjórnarliða á Alþingi vökumenn um landhelgismálið, sem hafi veitt ríkisstjórninni aðhald. Við værum sennilega betur stödd, ef sú hefði verið raunin. Betra er seint en aldrei. Þingmenn hafa sofið vært, en þingsályktunartillagan er merki þess, að þeir kunni að vera aö vakna. fylgt eftir í meira en eitt og hólft ór V /* v í rúmlesa eitt og hálft ár fylgdi leyniþjónusta Dana 37 ára gömlum manni eftir þar til hann var handtekinn úti á götu nú fyrir skömmu. Damnn nafði samoana vio mann einn sem tengdur var sovézku verzlunarnefndinni í Kaupmannahöfn. Þeir tveir mæltu sér mót með merkingum á gluggarúður og áttu fundir þeirra sér alltaf stað á götuhornum eða á veitinga- húsum. Og með þessu öllu fylgdust menn frá leyniþjón- ustu lögreglunnar, PET. En Victor Kedrov sleppti ekki hendinni af hinum danska kaupsýslumanni. Eftir að honum hafði verið vísað úr landi fór hann margoft til Helsingfors og KGB, rússneska leyniþjónustan, borgaði farið báðar leiðir. Ævintýrið er ó enda Ævintýrinu er nú lokið fyrir kaupsýslumanninum þar sem hann situr í varðhaldi í Hróars- keldu. Eiginkona hans, sem er 39 ára, hefur einnig verið hand- tekin og báðum er gefið að sök að hafa stundað njósnir í þágu Sovétríkjanna. Viðurlög við slíkum afbrotum eru ekki mikil í Danmörku, geta í mesta lagi orðið sex ár, þó allt að tólf árum, ef um hernaðarlega mikilvæga staði er að ræða. Verjandi hjónanna, Knud Rolund segir, að lögregluyfir- völd séu hér að gera úlfalda úr mýflugu, og hefur þegar krafizt þess að lögreglan veiti meiri upplýsingar um málið en orðið er. Veit ekki allt Lögreglustjórinn í Hróars- keldu, Henning Christiansen, segir: „Verjandinn veit að sjálf- sögðu ekki allt. Við höfum enn ekki látið uppi neitt nema það sem nægði til þess að handtaka fólkið. Ekki er búizt við því að fleiri verið handteknir, en um- fangsmikil rannsókn er í uppsiglingu.” Kaupsýslumaðurinn erfði fjölskyldufyrirtæki eftir lát föður síns. Fyrirtækið er Þessa mynd tók PET á laun árið 1968 er Austur-Þjóðverjinn Holm Haase byggði upp mjög fuilkomið njósnanet i Danmörku. Fjöldi svipaðra mynda hefur verið tekinn af kaupsýslumanninum við iðju sína. Leikhúskjaliarinn: STÖVLER OG SKOR Gestaleikur frá Folketeatret í Kaupmanna- höfn. Þaó er ekki því að neita: þegar fréttist að von væri á einhvers lags danskri revíu í heimsókn í Þjóðleikhúsið fór ég beinlínis að hlakka til að sjá hana. Ekki spillti að höfundur hennar var sagður Erik Knudsen, ágætis atómskáld danskt, sem á seinni árum hefur í vaxandi mæli gefið sig að pólitískum skáldskap, leik- rita- og revíugerð og ýmislegum umræðuverkum sem svo eru nefnd. En það er ekki heldur því að neita því miður, að þegar til kom urðu mestpart vonbrigði að sýningu dananna frá Folketeatret. Var það út af því að maður hefði búist við of miklu, í öllu falli einhverju öðru en til stóð? Nú er það svo að í Danmörku eru til alveg prýðilegir pólitískir leikhópar ungra leikenda og höfunda, og hafa meira að segja sumir borist hingaðtil lands (Banden á listahátíð ’74). Kannski

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.