Dagblaðið - 19.05.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 19.05.1976, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1970. Hljómsveitin Haukar hélt i vik- ing suður til Spánar á vegum Ferðamiðstöðvarinnar og SAM- klúhbsins 25. apríl síðastliðinn. Eins og hjá venjulegum ferða- löngum kom ýmislegt, bæði skemmtilegt og leiðinlegt, fyrir. Eftir að heim kom fékk Dag- blaðið rótara hljómsveitarinnar, Randa (guð má vita hvað hann heitir fullu nafni), til að rifja ferðina upp. Byrjaði með töfum ..Ferðalagið byrjaði eiginlega strax á veseni,“ sagði Randi og glotti við tönn. „Við vorum öll komin stundvíslega klukkan hálf- sex á sunnudagskvöldið út á Keflavíkurflugvöll. Um það leyti sem átti að stíga um borð var okkur sagt að því miður væri eitt dekkið á vélinni sprungið, svo að við urðum að gera svo vel að bíða i sjö klukkutíma þar til nýtt dekk var komið frá Englandi og búið að setja það undir. Eins og við var að búast var næsta lítið skemmtilegt við að vera i flugstöðvarbyggingunni svo að við stunduðum bara barinn af því meira kappi. Afleiðingin varð líka sú að þegar við loksins dröttuðumst af stað um eittleytið um nóttina voru allir orðnir gífur- lega hressir og kátir. Kátínan entist svo langleiðina í flugvélinni eða allt fram undir klukkan fjögur þegar allir voru búnir að fá sér að éta. Þá fór svona eins konar værð að falla á einn af öðrum og surnir fengu sér blund. Það var þó einn sem stóð uppi alla nóttina og slakaði aldrei á, — Kristján Guðmundsson píanóleikari frá Akureyri.’’ Kiddi rœndur „Nú, og Kiddi lét ekki sitja við orðin tóm heldur hélt stuðinu áfram um morguninn,” hélt Randi rótari áfram frásögn sinni Ljósmyndir: RANDI spurði hann hvernig honumfyndisthljómsveitin. Hann sagði að Haukarnir væru óvenju ferskir og léttir og minntu sig einna helzt á Bítlana þegar þeir voru að byrja. Stemningin hjá þeim væri líka svipuð og þegar bítlaæðið var að byrja. Annars hlaut hljómsveitin alls staðar góðar viðtökur. Það gerði Jóhann Helgason einnig. Fólki líkaði stórvel við lögin hans. Biggi varð líka betri og betri með hverju kvöldinu sem leið og féll vel inn í hljómsveitina enda þótt lítill tími hefði gefizt til að æfa hann upp áður en við fórum utan. Tímaskynið brenglast Eftir kvöldin fjögur á Papa TILBtiIN A BALL: Kiddi búinn sínu bezta skarti. Kiddi hafði það af að sofa þarna í heila sex klukkutíma. Þegar hann vaknaði aftur....”, og þarna varð Randi að gera langt hlé á frásögn sinni sökum ofboðs- legs hláturkasts yfir óförum Kidda vinar síns. „...Já, og þegar hann vaknaði aftur var búið að ræna bókstaflega öllu af honum sem hægtvar að stela, svo að vel- sæmisins væri gætt. Farmiðarnir og vegabréfið voru horfin og ekki nóg með það. Þjófurinn, eða þjóf- arnir, höfðu klætt hann úr jakk- anum, stolið af honum peysunni og síðan klætt hann í jakkann aftur. Annars stóð Kiddi sig með af- brigðum vel þarna á Benidorm,” hélt Randi áfram. „Hótelstjóran- um á Hotel Tropicana, — þar sem við bjuggum — leizt svo vel á steppari. Eftir að hafa dvalið þarna góða stund fórum við á annað diskótek sem ökkur leizt illa á. I þriðju tilraun lentum við loksins á diskótekinu Papa Wiskey sem átti eftir að koma talsvert við sögu hjá okkur. Birgir Hrafnsson var með okkur þetta kvöld. Honum fannst allt of mikið bruðl að borga 150 peseta fyrir að fara inn á Papa Wiskey svo að honum tókst að prútta aðgangseyrinn niður um helming gegn því að við kæmum oftar. Þarna dvöldum . við síðan fram eftir nóttu. Kvöldið eftir komum við aftur á Papa Wiskey og fórum þá frítt inn. Þriðja kvöldið töluðum við við klúbbeigandann og buðum honum að spila hjá honum. Hann svaraði því til að við mættum svo Gunnlaugur Melsted háði þarna harða keppni við starfsmann Ferðamiðstöðvarinnar og tapaði þar eftirminnilega. Þá reyndi Randi einnig hæfni sfna en áður en til þeirrar sýningar kom þurfti kappinn nauðsynlega að snúa sér við til hálfs með þeim afleiðing- um að kvöldmaturinn gekk upp úr honum. Ekki tókst betur til en svo að gusan lenti inn í opinn Mercedes Benz bíl. Ahorfendum fannst það atvik benda eindregið til þess, hve Randi væri snobb- aður, að geta ekki komið kvöld- matnum á annan betri stað en í dollaragrín. Ferðamiðstöðin — Ferðamistökin Af og til í ferðaendurminning- um Randa kom upp beizkur tónn, það er þegar minnzt var á frammi- stöðu Ferðamiðstöðvarinnar. „Hún ætti eiginlega ekki að heita Ferðamiðstöðin heldur Ferða- mistökin,” sagði hann. „Flest af því sem hafði verið lofað var svikið og ábyggilega 75% af ferðalöngunum þurftu einhvern tíma að kvarta út af þjónustunni. Það var helzt eldra fólkið sem umbar hlutina með þögn því að ástandið bitnaði ekki eins á því og yngra fólkinu. Eini starfsmaður ferðaskrif- stofunnar, sem reyndi að gera fyrir okkur það sem hann gat, var ítali, Salvador aðnafni.Hann stóð sig vonum framar. Eftir allt vesenið við að ná Ferðaminningar Randa rótam og hló nú tryllingslega að at- burðum ferðarinnar. „Þegar við vorum komin á hótelið og allir ætluðu að fara að sofa fór Kiddi niður á strönd og hugðist taka sér sólbað. Hann lagði sig i sandinn, eins og þreytt- um ferðalangi sæmir, en vegna undanfarandi skemmtilegheita og alls fjörsins í flugvélinni var hann orðinn þreytturogsteinsofn- aði þarna í sandinum. stuðið í piltinum að hann bauð honumað koma aftur og framreiða dinnermúsík fyrir gestina. Papa Wiskey uppgötvað Að kvöldi fyrsta dagsins fórum við síðan í bæinn til að leita að fjöri. Fyrst dutturri við niður á eitthvert diskótek þar sem sæmi- leg mexíkönsk hljómsveit lék. Þar kom einnig fram þrælgóður sem prófa það en bjóst greinilega ekki við neinu sérstöku frá svona íslendingahljómsveit. Við þeystum því strax af stað daginn eftir til að ná í hljóðfærin út á flugvöll. Biggi var hins vegar með alla pappíra, sem fylgdu þeim, svo að okkur var tekið með mikilli tortryggni. Það var loksins eftir þrjá klukkutíma sem við fengum hljóðfærin og þá höfðumivið einnig þurft að borga tryggingu fyrir þeim. Við flýttum okkur með tækin í Papa Wiskey og stillt- um upp. Ég varð að ráða mér aðstoðarmann, Sigurð að nafni, sem hjálpaði mér mikið allan tím- ann. Það var nefnilega alveg ómögulegt að vinna þarna nokkuð að ráði vegna hitans, — maður kófsvitnaði alveg upp fyrirhaus. Framkvœmdastjórinn stórhrifinn Þegar uppstillingunni var lokið léku strákarnir nokkur lög fyrir klúbbeigandann. Hann varð stór- hrifinn og sagði að þetta væri bezta hljómsveitin sem hefði nokkru sinni leikið hjá sér. Hann réðst strax í að reyna að útvega atvinnuleyfi fyrir okkur en það hafði Ferðamiðstöðin trassað að gera, eins og svo margt annað. Það tókst hins vegar ekki. Um kvöldið léku Haukarnir síðan í klúbbnum. Aðsóknin var sérstaklega góð þarna, um 500 manns og þar af helmingurinn íslendingar. Hljómsveitin fékk mjög góðar viðtökur og Spánverjagreyin höfðu aldrei séð neitt þessu líkt. Klúbbeigandinn varð svo ánægður með aðsóknina að hann bauð okkur að vera miklu lengur í húsinu. Þarna lékum við þrjá daga í viðbót en urðum þá að hætta því að ágreiningur reis um hvort Papa Wiskey ætti að borga Haukum eða Ferðamiðstöðinni fyrir vinnuna. Alveg eins og Bítlarnir Haukarnir spiluðu síðar tvö kvöld á Hotel Tropicana,” hélt Randi áfram frásögn sinni. „Annað kvöldið ræddi ég við Eng- lending, sem bjó á hótelinu. og Wiskey segir Randi að tímaskyn allra hafi farið meira og minna úr skorðum. Dagarnir urðu allir hver öðrum líkir, enda þótt eitt- hvaðfrásagnarvertgerðist á hverj- um degi. Til dæmis fór hópurinn allur kvöld eitt á næturklúbb sem nefndist Bobby’s. Fyrir utan staðinn var hægt að heyja skot- keppni og urðu þar ýmsir til að reyna að sýna skotfimi sína. hljóðfærunum af flugvellinum og koma þeim þangað aftur, svo og að reyna að útvega okkur eitthvað að gera, held ég að allir hafi verið þeirri stund fegnastir þegar við settumst upp í flugvélina,”sagði Randi að lokum. „Eftir átján daga dvöl á Spáni hafa vafalaust flestir verið dauðfegnir að komast heim á leið enda þótt vínið hafi verið bæði ódýrt og ljúffengt og veðrið eott ” —AT — KRISTJAN GUÐMUNDSSON: Það er þægilegt að geta virt fyrir sér næturlífið af svölunum. GUNNLAUGUR MELSTED: Spilamaskínur og kappakstursbrautir ýmiss konar freistuðu Haukanna.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.