Dagblaðið - 19.05.1976, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 19.05.1976, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1976. á.8 iMI LMUftdMBdbuSQHHBiBI r§| á i Veðurguðir leika við golfmenn! Það má segja að veðurguðirnir hafi leikið við kylfinga á laugar- daginn var og raunar alla þá sem útivistar nutu. A milli 90 og 100 manns iéku golf á Grafarholts- vellinum þann dag og við höfum fréttir af því, að á Nesvellinum og á Hvaleyrarvellinum, hafi allt að 50 manns verið við golfleik á hvorum velli. Það fer ekki á milli mála, að þetta var bezti golfdag- urinn á þessu ári, og spurning hvort margir dagar í fyrra hafi verið betri. Eins og að líkum lætur varð flaggakeppnin, sem fram fór á laugardag, venju fremur fjölsótt og létu 48 kylfingar skrá sig í keppnina. Þó var tekið eftir því, að aðeins 3 konur og 4 gestir mættu til keppni. Gestirnir voru frá Selfossi og Vestmannaeyjum. Kylfingar stóðu sig almennt vel í keppninni og má ætla, að inniæfingar í Laugardal í vetur og aðstaðan á Korpúlfsstaða- svæðinu nú í vor hafi sagt til sin. Kylfingar GR eru greinilega í betri þjálfun á fyrsta mótinu en oft áður. Ár.angur í keppninni var sem hér segir: Tveir urðu aó flagga á 14. holu, 6 á 15., 11 á 16, 8 á 17. og 21 komst á 18. holu. Auðvitað stóðu ungu mennirnir sig bezt, Óli Sævar Laxdal var rétt um fet frá 18. holu, þegar hann var búinn með sín högg, Sigurður Hafsteinsson var rétt sjónarmun nær, en Ragnar Ölafsson gerði sér lítið fyrir og notaði sitt síðasta högg til að setja kúluna niður í 18. holuna af 6 metra færi. HALLUR SlMONARSON í Jóhannes 01 beint á œf — þegar þeir komu til Osló í gœr. Landsleiki á Ulleval-leikveliinum íkvöld. Íslem verður valið rétt áður en leikur Rúmenska stúlkan Nadia Comaneci, sem aðeins er 14 ára, er talin hafa góða sigurmöguleika á Olympíuleikunum í Montreal, þrátt fyrir sinn unga aldur — enda hefur hún sýnt hreint ótrúlega hæfni. Myndin að ofan var tekin nýlega á Madison Square Garden í New York, þar sem Nadia sigraði í ölium fjórum greinum kvenna í fyrstu bandarisku bikarkeppninni. Ekki nóg með það. Nadia hlaut í meðaltal 39.70 stig í hverri grein af 40 mögulegum!! „Ullival leikvangurinn var okkur lokaður í gær og eins verður hann lokaður, þegar við förum á létta æfingu nú kl. hálf- ellefu: Ástæðan er, að völlurinn er svo illa farinn, holóttur, lítið gras og svo er hann afskaplega harður. Það er verið að vinna i honum, reyna aðgera það bezta úr eftir því sem aðstæður leyfa,” sagói Jens Sumarliðason, for- maður landsliðsnefndar KSl þegar Dagblaðið ræddi við hann í Osló í morgun. Island leikur landsleik við Norðmenn í kvöld klukkan sex að íslenzkum tíma. Jón As.geirsson mun lýsa leiknum og hefst lýsing hans kl. 7.15. Landsliðið kom til Oslóar í fyrradag og hefur tíminn aðallega verið notaður til hvíldar og léttra æfinga. „Jóhannes Eðvaldsson og Ár ni Stefánsson komu í gær og voru drifnir á æfingu," sagði Jens enn- fremur. „Það var einhver þreyta í strákunum svo Tony Knapp, landsliðsþjálfari gaf þeim frí frá æfingu. Þannig voru aðeins þeir Jóhannes og Arni á æfingu í gærkvöld. Það verður tekin létt æfing fyrir hádegi. Síðar í dag verður Landsleikur við Færeyinga í bad- minton: Færeyingar hafa óskað eftir því við BSt að hin árlega landskeppni þjóðanna í badminton fari að þessu sinni fram í Þórshöfn Fær- eyjum föstudaginn 28. maí nk. Hefur BSt ákveðið að taka því boði. Leiknir verða 3 einliðaleikir karla og tveir tvíliðaleikir karla. Aukaúrslitaleikur milli TBR-liðanna Síðastliðinn laugardag gat lok orðið af leik TBR a og TBS i liðakeppninni í badminton, en sökum þess að búið er að taka gólfið upp í íþróttahúsinu á Siglu- firði, varð keppnin að fara fram á Akureyri. Lið KR fór einnig norður til keppni við Siglfirðing- ana. TBR a varð að sigra TBS 13:0 til þess að fá úrslitaleik við TBR b, sem þegar hefur lokið öllum sínum leikjum í keppninni. Menn voru ekki beint trúaðir á að TBR a tækist þetta, en það tókst nú samt og því verða TBR a og TBR b að leika til úrslita um hvort liðið sigrar í liðakeppni BSl í efri flokki. KR-ingar sigruðu Siglfirðing- ana einnig en ekki nema 9:4. Þau úrslit skipta ekki neinu máli um endanleg úrslit í keppninni. Loka- staðan í liðakeppninni i efri flokki urðu því þessi: TBRb TBRa KRa TBS 6 leikir 5 stig 50:28 6 leikir 5 stig 50:28 61eikir 2 stig 44:34 6 leikir 0 stig 12:66 fundur þar sem farið verður yfir hlutina, lögð á ráðin. Liðið verður hins vegar ekki valið fyrr en stuttu fyrir leikinri. Það hefur verið venja okkar og henni höldum við hér. Enn sem komið er hefur lítið verið rætt um leikinn. Hann virðist hafa fallið I skuggann af þjóðhátíðarhöldum Norðmanna en þeir munu gera honum skil í norsku pressunni í dag. Það hafa verið hér blaðamenn, rætt við okkur og aflað upplýsinga. Þó virðist mér áhugi fyrir leiknum meðal fólksins og það er búizt við 8—10 þúsund manns á leikinn í kvöld, þar sem landslið Norð- manna og íslendinga leika á hinum holótta leikvelli, Ulli- val.” Kjarni norska liðsins sem leikur í kvöld er svipaður og í fyrra. Þó hafa sjö leikmenn bætzt i hópinn sem ekki voru með. Eru það ungir menn sem hafa komið fram á sjónarsviðið, svo sem hinn marksækni Pal Jakobsen. Norski landsliðshópurinn er skipaður: Jan Birkelund Skeid, Svein Gröndalen Rosenborg, Jan Hansen Rosenborg, Gabriel Höy- land Bryne, Pal Jakobsen Ham Kam, Tom Jakobsen Fram, Tor Egil Johansen Lilleström, Helge Karlsen Brann, Svein Kvia Viking, sem er fyrirliði, Tom Lund Lilleström, Jan Erik Olsen Mjöndalen, Ole Chr. Olsen Mjön- dalen, Helge Skueseth Start, Sigbjörn Slinning Viking, Stein Thurnberg Start og Björn Tron- stad Brann. Þarna eru gamlir kunningjar íslenzkra knattspyrnuáhuga- manna eins og Tom Lund, sem hefur verið Islendingum þungur í skauti þegar við höfum leikið við Norðmenn. Svein Kvia leikur með en hann var ekki með í fyrra vegna meiðsla. Höyland frá Bryne skoraði tvö mörk gegn okkur í fyrra, svo gætur þarf að hafa á honum. Norðmenn eru sigurvissir fyrir leikinn gegn Islendingum, þó Gífurleg harka ó toppnum Staðan var. 1. Italía 229 stig. 2. Bretland 209 stig. 3. Kanada 197 stig 4. Bandaríkin og Frakkland 192 stig 6. Danmörk 183 stig og 7. Spánn 182. Síðan komu Sviss 179, Astralía 176, Brazilía 166, Irland 153, Suður-Afríka 149, Vestur- Þýzkaland 130, Grikkland 128, Holland 122, Belgía 119, Mexikó 113, Svíþjóð 111, ísrael 95, Monakó 70 og Finnland 40. Monte Carlo, miðvikudag. Það var góður dagur hjá okkur á Olympiumótinu. Tvær umferðir spilaðar og ísiand hlaut 39 stig af 40 mögulegum. í 31. umferðinni spiluðu Guðmundur og Karl, Hjalti og Asmundur gegn Hollenzku Antilleseyjum og ísland vann með 20 stigum mínus tveir. Í 32. umferðini i nótt spilaði Ísland við Grikkland og vann með 19-1. Við Stefán, Ásmundur og Hjalti spiluðum leikinn. Eftir þessa umferð var Ísland í 20. sæti af 45 þjóðum með 327 stig. ítalir eru með 479 stig. Bretar í öðru sæti með 461 stig og Svíar í þriðja sæti með 460 stig. I kvöld spila Ítalía og Bret- land saman — og gæti sa leikur haft úrslitaáhrif í mótinu. Staðan í toppnum í opna flokknum er ákaflega spennandi. Eftir 31. umferðina var Italía í efsta sæti með þremur stigum meira en Bretland, en fast á hæla þessum þjóðum fylgdu Svíþjóð, nesía-Tyrkland 20—0. 24. Island 308 Pólland, Brazilía og Frakkland. Staðan eftir þessar umferðir 25. Spánn 306 Sviss og Vestur-Þýzkaland hafa var þannig: 26. Holland 296 dregizt aftur úr — og bandarísku 1. Italía 459 27. Júgóslavía 288 heimsmeisturunum hefur ekkert 2. Bretland 456 28. N-Sjáland 286 tekizt að drága á efstu þjóðirnar. 3. Svíþjóð 444 29. Tyrkland 278 Þeir hafa sennilega misst af 4. Pólland 444 30. Finnland 278 möguleikanum að verða Olympíu- 5. Brazilía 433 31. Jamaíka 275 meistarar í bridge í fyrsta sinn. 6. Frakkland 433 32. Suður-Afríka 263 I 31. umferðinni urðu þessi 7. Sviss 404 33. Ungverjaland 262 úrslit helzt: Ítalía-Irland 15—5, 8. V-Þýzkaland 397 34. Thailand 257 Brazilía-Mexikó 20-mínus 5, 9. Bandaríkin 395 35. Monakó 252 Noregur-Iran 12—8, ísrael- 10. ísrael 392 36. Kolombía 227 Bermuda 15—5, Bretland-Sviss 11. Marokkó 387 37. tran 209 13—7, Argentína-Austurríki 12. Formósa 377 38. Panama 202 18—2, Svíþjöð-Nýja-Sjáland 13. Kanada 353 39. Venesúela 130 12—8, Japan-Danmörk 11—9, Pól- 14. Noregur 350 40. Bahamas 129 land-Thailand 20-mínus 5, Frakk- 15. Ástralía 350 41. Bermuda 111 land-Kolombía 20-mínus 5, 16. Belgía 348 42. Antilleseyjar 100 Astralía-Belgía 19—1, Vestur- 17. Argentína 347 43. Mexikó 73 Þýzkaland-Venesúela 20-mínus 3, 18. Grikkland 335 44. Nýja-Gínea 68 Suður-Afríka-Finnland 20—0, 19. Indónesía 333 45. Filippse.vjar 28 Formósa-Júgóslavía 20-mínus 2, 20. Danmörk 329 Grikkland-Ungverjaland 12—8, 21. Irland 326 Eftir 15 umferðir — af 21 — Kanada-USA 11—9, Island- 22. Austurríki 322 hafa ítölsku konurnar heilan Antilleseyjar 20-mínus 2, Indó- 23, Japan 314 vinning í forustu í kvennaflokki. Stofnun Fimleika- dómorafélags Eitt af stærstu verkefnum Fim- leikasambands islands hefur verið að sjá íslenzku fimleika- fólki fyrir hæfum dómurum. Sambandið hefur staðið fyrir nokkrum dómaranámskeiúum, og er hópur fimleikadómara óðum að stækka. Stjórn FSl hefur séð um skipan undirbúningsnefndar fyrir stofn- un dómarafélags. I nefndinni eru frá dómurum Ingveldur Braga- dóttir, Kristján Ástráðsson, Ölafur Sigurjónsson formaður tækninefndar FSl, sem er jafn- framt formaður hennar. Stofnfundur Fimleikadómara- félagsins verður haldinn í Hlíða- skóla 19. maí kl. 20.30.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.