Dagblaðið - 19.05.1976, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MAl 1976.
13
g Árni
ingu!
jr Noregs og íslands
:ka landsliðið
inn hefst!
hefur þjálfari Norömanna, Kjell
Schou Andersen, varað við of
mikilli bjartsýni. Hann benti á að
íslendingar væru ákaflega líkam-
lega sterkir og því þyrftu Norð-
menn að taka á öllu sínu svo sigur
fengist.
Norðmenn eru í sjöunda himni
yfir framlínumönnum sínum, en
þeir telja sig eiga á að skipa mjög
góðri framlínu um þessar mundir.
Benda á að Tom Lund hafi alltaf
ver’ið okkur erfiður en hann er
markhæsti leikmaður norska
liðsins. Við hliðina á Lund og
Kvia leiki svo Jakobsen frá Ham
Kam en þessi ungi leikmaður
hefur verið með afbrigðum mark-
heppinn í leikjum sínum það sem
af er keppnistímabilinu. Hann
skoraði meðal annars 5 mörk í
stðrsigri Hammer Kamaratana
gegn Vard, 6-1. h.halls
Víkingur hefur farið fram á að
leik liðsins gegn Breiðabliki þann
26. maí verði frestað vegna farar
unglingalandsliðsins á Evrópu-
mót piita, sem verður háð í Ung-
verjalandi nú síðast í
mánuðinum.
Víkingur á þrjá menn í
ungiingalandsliðinu, fyririiðann
Róbert Agnarsson, Haraid
Haraldsson, sem skoraði glæsi-
Iegt mark gegn Fram um síðustu
helgi og Ioks Þorgils Arason en
hann hefur verið á varamanna-
bekkjum Víkings. Víkingar
leggja þunga áherzlu á að fá
leiknum við Breiðabiik frestað
þar sem allt snýst orðið um
Róbert í vörn Víkings.
Stefna KSÍ hefur verið að
reyna að hrófla eins litið við
leikjum sem þegar er búið að
finna leikdaga, slíkt kemur ailtaf
raski á. Þegar iið hafa haft einn
leikmann i aðalliði sinu, sem er
úr unglingalandsliðinu, hafa þau
ekki fengið frestun. En þar sem
Víkingur á fleiri en einn er senni-
legt að leiknum gegn Breiðabliki
verði frestað. Þróttur á þrjá Ieik-
menn i unglingalandsiiðinu, sem
eru í aðaliiði félagsins og þeirra
lcikur var færður til, tii 16. maí.
HESTAMENN!
Allt til reiðmennsku:
★ reiðtygi
★ verkfœri
★ olíur
★ sópur
★ vítamín
★ skeifur
★ hóffjaðrir
★ reiðbuxur og
vatnsheldur
fatnaður
Ölafur H. Jónsson — Guðrún
Arnadóttir, eiginkona hans, og
dóttirin Kristin við komuna til
Reykjavíkur í gær.
DB-mynd Bjarnleifur.
lærdómur í því — en annars er
það mál allt í undirbúningi. Axel
Axelsson leikur einnig með
Dankersen næsta keppnistíma-
bil, en hann á eftir um tveggja ára
nám í verzlunarfræðunum.
Breytingar hja Dankersen?
Nei, ég held það verði litlar sem
engar mannabreytingar 1
DAnkersen-liðinu. Við höfum alla
möguleika á að verða mun betri
— leikmenn eru farnir að
þekkjast vel. Eg hef mikla trú á
þvi, að Dankersen-Iiðió verði gott
— og æfingar leikmanna verða
ekki eins slitnar í sundur á næsta
leiktímabili og var sl. vetur vegna
Olympíuleikanna.
Það verður strax fjör hjá okkur
og meðal annars mun Dankersen
leika við Fram í byrjun
september í Minden. Meistara-
flokksmenn Fram hyggja á Þýzka-
landsför þá — til undirbúnings
fyrir Islandsmótið — og munu
leika við nokkur þýzk lið úr 1.
deild auk Dankersen. Og í
október mun Dankersen leika í
boði Fram í Reykjavik.
Ef við snúum okkur aðeins að
úrslitaleiknum við Gummersbach
á laugardag — hvað er þá helzt að
segja um hann?
Eins og ég sagði 1 byrjun, þá
var munurinn miklu minni á
liðunum en reiknað hafði verið
með fyrirfram. Ég tel ástæðurnar
þrjár fyrir því að Dankersen
tapaði leiknum. I fyrsta lagi var
farið illa með nokkur „dauða-
færi”, sem okkur áskotnuðust 1
leiknum. I öðru lagi báru leik-
menn Dankersen — liðið í heild
— of mikla virðingu fyrir
mótherjum sínum og i þriðja lagi,
þá munar miklu að leika fyrir lið,
sem heitir Gummersbach —
frægðarljóminn, sem leikur um
félagið er mikill.
Dómgæzlan var okkur hjá
Dankersen óhagstæð — og það
var sagt, að bezta dómarapar
Vestur-Þýzkalands hefði dæmt
leikinn. Má ég þá biðja um
íslenzka dómara.
Siðásta mark leiksins, sem gaf
Gummersbach sigur — mark
Munur að leiko fyrir lið
sem heitir Gummersbach!
— sagði Ólafur H. Jónsson, þegar hann kom heim frá Vestur-Þýzkalandi
Dankersen stóð sig miklu betur
í úrslitaleiknum við Gummers-
bach um Þýzkalandsmeistara-
titilinn í handknattleik tölulega
séð en nokkur hafði reiknað með.
Það var búizt við — og skrifað um
það mikið í þýzku biöðin — að
Gummersbach mundi sigra með
þetta þriggja til fimm marka
mun, sagði Ólafur H. Jónsson
fyrirliði islenzka iandsliðsins í
handknattleik, þegar hann kom
heim frá Vestur-Þýzkalandi
ásamt f jölskyldu sinni i gær — en
Ólafur Iék sem kunnugt er með
Dankersen síðasta leiktímabii
með mjög góðum árangri. Eins
mark sigur Gummersbach 12-11 i
úrslitaieiknum var því ekki
mikill — og það munar fyrir leik-
menn liðsins að ieika fyrir lið,
sem heitir Gummersbach — það
nafn er svo frægt og á svo merka
sögu i handknattleiknum — sagði
Ólafur ennfremur og brosti.
Eg er kominn heim til að taka
lokaprófin í viðskiptafræðinni
hér i Háskólanum — en þau
munu standa fram í júni. Það er
því nauðsynlegt að einbeita sér að
náminu og bókunum næstu
vikurnar, sagði Ólafur, en hand-
knattleikur verður aftur ofarlega
á dagskrá eftir prófin.
Hvað tekur við eftir prófin?
— Það verður hvíld fyrst, en ég
held svo til Vestur-Þýzkalands
aftur ásamt fjölskyldu minni í lok
júnímánaðar eða byrjun júli — og
ég mun leika með Dankersen
næsta keppnistímabil að minnsta
kosti. Hinn 15. júlí fara leikmenn
liðsins í æfingabúðir í Grikklandi
— en’heima fyrir verður tekið til
við æfingar í byrjun ágúst. Þá
verður æft vel og leiknir æfinga-
leikir, þvi Bundeslígan vestur-
þýzka hefst fyrr en á síðasta leik-
tfmabili. Fýrstu leikirnir f
deildunum verða 18. september
— og verður leikið mjög stíft
framan af. Aætlað er, að
keppninni í Bundeslígunni ljúki í
marz — eða mun fyrr en var að
þessu sinni, en þar spilaði undan-
keppnin fyrir Olympíuleikana
mjög inn i.
Framhaldsnám í Þýzkalandi?
— Jú, ég hef hug á því að læra
meir — vonast helzt til að komast
í fjárhagsdeild stórfyrirtækisins
Melitta, þar sem ég vann sl. vetur.
Það verður áreiðanlega mikill
Schlagheck 45 sekúndum fyrir
leikslok var ólöglegt. Ég sá
greinilega, að leikmaðurinn steig
á línuna áður en hann sendi
knöttinn í markið — en það var
erfitt fyrir dómarana að sjá það,
þar sem hart var barizt. Það
viðurkenni ég og ekki um það að
sakast eins og komið er. Það var
mikil spenna jafnt á leikvelli sem
áhorfendapöllum, sem voru þétt-
skipaðir — og kannski skiljanlegt
að mönnum verði á mistök í svo
mikilli taugaspennu.
Gummersbach-liðið er ekki hið
sama og áður fyrr — leikmenn
farnir að eldast — og það má
reikna með miklu fjöri i vestur-
þýzka handknattleiknum næsta
keppnistímabil, sagði Ólafur H.
Jónsson að lokum.