Dagblaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 11.06.1976, Blaðsíða 4
 4 DAGBLA'ÐIÐ — FÖSTUDAGUR 11. JUNÍ 1976 r LISTAHÁTÍÐ Kammertónleikar F.f.T. Kjarvalsstaöir: Kammertónleikar á vegum Fólags íslenskra tónli starmanna. 9.6. '76. Efnisskrá: Jón Ásgeirsson: íslensk þjóölög fyrir píanókvintett. Johannes Brahms: Klarinett-kvintett. Hafliði Hallgrímsson: íslensk þjóölög. Mauríce Ravel: Tzigane. Igor Stravinsky: Oktett fyrír blásara. Ekki viróist kammertónlist vera vinsæl hjá hinum almenna tónleikagesti ef marka má að- sóknina á tónleikum Félags fs- lenskra tónlistarmanna á Lista- hátióinni sl. miðvikudagskvöld. Þar misstu margir af stór- góóum leik konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar tslands, Guðnýjar Guðmundsdóttur, er hún fór hamförum i Tzigane Ravels. Þar flaug hún í gegnum alls konar tæknibrellur fiðl- unnar af miklum og áreynslu- lausum krafti, samt slíkum léttleik, að unun var á að hlýða. Var það tvímælalaust besta verk tónleikanna, flutn- ingur hennar og hins ágæta píanóleikara, Halldórs Haralds- sonar, en ekki er laust við að Guðný hafi skyggt á leik Hall- dórs með snilli sinni. Oktett Stravinskys var sömu- leiðis mjög vel fluttur af blás- urum Sinfóníuhljómsveitar ts- lands undir stjórn Páls P. Páls- sonar. Samt var eins og eitt- hvað vantaði í flutninginn, allur leikurinn var nákvæmur og vandvirknislega unninn, — mér fannst vanta eitthvert sálarinnlegg hljómlistarmann- anna. Flutningur þjóðlagaútsetn- inga Jóns Ásgeirssonar náði sér eiginlega aldrei á strik, var það verr, því útsetningar Jóns eru alltaf skemmtilegar. Þá var flutningurinn á þjóðlagútsetn- ingum Hafliða Hallgrímssonar mun betri, en ekki þykir mér þær eins skemmtilegar og út- setningar sömu laga fyrir selló og píanó, sem Hafliði og vinur hans fluttu á tónleikum Tón- listarfélagsins um árið. í klarinett-kvintett Brahms bar lítið á Sigurði Snorrasyni, klarinettuleikara, og i heild fannst mér einna minnst til flutnings þessa verks koma. Framlag listamannanna var til sóma, — en þeir gáfu allir vinnu sína og mun það hafa haft í för með sér að ákveðið var endanlega að halda Lista- hátíð 1976 ^(UFSTOM TOURIST ^ FERÐA$KRIF§TOFA RtKI§I^§ SnœfeHsnes og Vestfirðir Kynnist náttúrufegurð Snæfellsness og Vestfjarða. Ferðaskrifstofa ríkisins efnir til 7 daga hringferða um Snæfelisnes, Breiðafjörð, Barðaströnd og Vestfirði til ísafjarðar; heim um Djúpveginn nýja, Laxárdalsheiði og Borgarfjörð. Kunnugur leiðsögumaður verður með í förinni, gist á hótelum. Verð kr. 54.900 á mann, allt innifalið. Brottför 20. og 27. júní, 4., 11. og 25. júlí. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni, Reykjanesbraut 6, símar (91) 1 15 40 og 2 58 55. í Ólafsvík starfar sumarhótel í fyrsta sinn nú í sumar. ★ 38 vel búin tveggja manna herbergi. Vistlegur matarsalur. Heimilislegur matur, kaffi og kaffibr'auð, grill réttir allan daginn. Þægileg setustofa þar sem spjallað er saman og horft á sjónvarp. ★ ★ Snæfellsnes er frægt fynr stórbrotið og fagurt landslag SKOÐIÐ SNÆFELLSNES, — GISTIÐ HJÁ OKKUR. SJÓBÚÐIR HF. Óiafsvík, — Sími (93)6300 Skjalafundurinn í Bernhöftstorfunni: Eitt af skjölunum, sem Gísli fann, var bréf frá Valtý Guðmundssyni. I þessu bréfi virðist bréfritari vera með ráðagerð um að útrýma lands- höfðingjaembættinu. — og tókst að bjarga nokkru af skjölunum Gísli Gíslason var ekki sá eini sem reyndi að bjarga skjölum úr brunarústunum við Amtmanns- stíg f siðustu viku. Nokkrir starfs- menn þjóðskjalasafnsins komu á vettvang þegar verið var að fjar- lægja leifar kofans sem stóð við hlið hússins. Þeir sáu þá, að alls kyns pappírar hrundu úr gröf- unni, þegar hún var að lyfta múr- steinunum. Þjóðskjalasafnsmenn- irnir fylgdu síðan bílnum eftir sem fjarlægði draslið. Þeim tókst að ná nokkrum hluta af skiölun- um, örfáum kössum. Mennirnir sem unnu við hreinsunina skýrðu hins vegar þannig frá að mann- hæðarháir staflar hefðu áður verið fluttir brott. Öhapp skeði meðar, skjala- mennirnir voru að reyna að bjarga því sem bjargað yrði. Aðal- geir Kristjánsson skjalavörður skarst illa á fæti, var það egg- hvass múrsteinn sem hann lenti á mitt i öllum ákafanum. — B.A. SKJALAVERÐIR ELTll VÖRUBÍL Á ÖSKUHAUGANA MIKILVÆGUR SAGN- FRÆÐIFRÓÐLEIKUR KANN AÐ HAFA FARIÐ FORGÖRÐUM — segir Þorsteinn Thorarensen rithöf undur ,,Það er hörmulegt að vita til þess að skjölin skuli hafa farið forgörðum,“ sagði Þorsteinn Thorarensen rithöfundur er hann var spurður um skjölin, sem fund- ust í rústum hússins við Amt- mannsstíg 1. Hann sagði að svo virtist sem skjalasafn biskups hefði einnig verið geymt í þessu húsi. Tímabilið sem skjölin sem fundust spanna er frá árinu 1875 til 1935. Má ætla að Biskups- skjalasafnið hafi náð yfir svipað- an tíma. Safn þetta hefur verið einn allra mikilvægasti þáttur þjóðskjalasafnsins. Þorsteinn benti á að embættis- mönnum væri skylt að skila öllum skjölum til þjóðskjalasafnsins. Þetta hefur verið vanrækt ákveðin árabil og kann að valda því að mikilvægur sagnfræðilegur fróðleikur sé farinn forgörðum. Hann sagði ennfremur að það væri heldur leiðinlegt fyrir ís- lendinga að þessi slóðaskapur skyldi einmitt hafa átt sér stað á árunum þegar ráðherraembættið var að flytjast til íslands og þjóð- in var að fá æ meiri stjórn í eigin málum. Þorsteinn var að lokum beðinn um að segja örlítil deili á íbúum hússins að Amtmannsstíg 1. Húsið mun vera byggt í kringum 1840. Þar bjuggu á síðustu öld ýmsir kunnir borgarar. Má nefna Stefán Gunnlaugsson bæjar- fógeta og nafna hans Thoraren- sen sálmaskáld. Þá bjó þar og, umsvifamesti kaupmaðurinn íl Reykjavík. Hann hét Martinus Mitt og reisti kaffihús við Hafnar- stræti, örskammt frá gömlu lög- reglustöðinni. Guðmundur Björnsson land- læknir lét reisa turninn meðan hann bjó þar. — ba — Vantar þig bíl eða vinnuvél frá Evrópu með nœstu skipsferð? Sölumaður okkar er staddur i Þýzkalandi þessa dagana i innkaupaferð. Kf ykkur vantar vandaðan fólksbil eða goða uuuuvel til afgreiðslu strax. þá góðfúslega hafið samband við skrifstofuna. Trapst val kunnáttumanna. Markaðstorgið. bilasala. Kinholti 8. sími 28590. Ileimasimi 74575.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.