Dagblaðið - 22.07.1976, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JULl 1976.
Sex ungir auðmenn
frömdu barnaránið
Erlendar
fréttir
n
Til þess að gera eitthvað spennandi"
Samkvæmt upplýsingum skóla-
barnanna og bílstjóra skóla-
bílsins gæti ránið hafa farið
fram eitthvað í þessa áttina.
Lögreglan í San Ffansico
hefur umkringt landareignir
tveggja auðugra fjölskyldna í
úthverfi borgarinnar. eftir að
grunur hefur fallið á a.m.k.
sex unga menn úr fjölskyldun-
um um að hafa rænt börnunum
26 úr þorpinu Chowchilla um
síðustu helgi.
Wood-fjölskyldan, sem á aðra
landareignina, er umkringd
hefur verið, á einnig námuna,
þar sem börnin voru höfð í
haldi. Engar handtökur hafa
farið fram, þar eð lögreglu-
mennirnir hafa enn ekki fengið
handtökuskipun, en þeir fengu
heimild til húsrannsóknar og
leituðu 1 meira en 15 húsum,
sem eru á landareigninni.
Hafa þeir tekið með sér ýmis
sönnunargögn, m.a. dráttarvél,
sem talin er hafa verið notuð
við að draga skóiabílinn niður f
gil það, þar sem hann fannst.
Á blaðamannafundi, sem
haldinn var í morgun að ísl.
tíma í San Fransico, sagði
lögreglustjórninn, að sennilega
yrðu mennirnir handteknir á
morgun, og að eini augljósi til-
gangurinn með ráninu hefði
verið „svolítið gaman".
2. Sértilboð
Akrasmjörlíki
129,- stk.
3. Sértilboð
Ora baunir
1/1 dós 178.-
4. Sértilboð
Ritz kex
122.- pr. pk.
i
'REUTER
D
KYRRTIS-AFRIKU - IBILI
Greinileg breyting á hugarfari
dómsmálaráðherra S-Afríku,
James Kruger, virðist ætla að
binda enda á óeirðir i landinu
a.m.k. í bili. Á fundi með leiðtog-
um blökkumanna í gær lofaði
hann að skólar skyldu opnaðir að
nýju, en hann hafði fyrirskipað
að þeim skyldi haldið lokuðum,
þar eð hann ætlaði að óeirðir
kynnu að brjótast út að nýju er
nýtt skólaár hefst.
Hefur þessi ákvörðun hans hins
vegar haft þveröfug áhrif.
Oeirðirnar hafa brotizt út vegna
þess að hann lét loka skólunum.
Hefur því kyrrð færzt yfir, en
eftir óeirðirnar í gær og í fyrra-
dag liggja tveir menn l valnum og
yfir 20 eru særðir.
IdiAmin:
ERBÚINNAÐ
GRENNSLAST
FYRIRUM
BLOCHÚTUM
ALLT
Idi Amin Ugandaforseti sagði 1
útvarpsræðu I gær í Kampala að
frú Dóra Bloch, 73 ára gömul
kona sem saknað hefur verið frá
því að atburðirnir gerðust á
Entebbe-flugvelli, hefði verið
meðal þeirra 47 farþega, sem veitt
var frelsi ogflogiðmeð til Parísar.
Er þetta alveg ný skýring á
högum gömlu konunnar, sem
talin er hafa horfið sporlaust af
sjúkrahúsi í Kampala, þar sem
hún var til meðferðar vegna sjúk-
leika í hálsi.
„Ég er mjög forvitinn að vita,
hvar frú Bloch er,“ sagði Amin
við sendiherra Frakka í Kampala.
„Ég er búinn að spyrja eftir henni
út um allt.“
H
Þessi stúlka gæti verið af
kúbönskum uppruna, en við
teljum okkur vita með vissu, að
jólasveinar séu fáir á Kúbu.
JOLAHALDIER
LOKIÐ Á KÚBU
5. Sértilboð
Libby's
tómatsósa
143.-fl.
íbúar á Kúbu héldu jólin
hátíðleg fyrir skömmu og öll
börn fengu þá „eitthvað
fallegt", eins og stendur í
kvæðinu. Stjórn Fidels Castró
flutti sem kunnugt er jólin
fram á mitt sumar, þar eð
annars færiof mikill tími í
jólahald, þegar mest er að gera
við sykurreyruppskeruna.
I stað jólanna kemur „Dagur
barnanna" og hann ber upp á
mitt sumarfrí skólabarna.
Ríkisstjórnin gaf börnunum
„jólagjöf" — nýjar sumarbúðir
í Tagagua, um 380 km austur af
Havanna. Castró vígði búðirnar
sjálfur.
Skömmtun á leikföngum
vegna „jólanna“ hófst fyrir
hálfum mánuði og lauk í fyrri
viku. Hvert barn undir 13 ára
aldri á rétt á því að fá í mesta
lagi þrjú leikföng. Eins og
flestar munaðarvörur á Kúbu
eru leikföng tiltölulega dýr en
þar er engin verðbólga, svo
verðið hefur staðið í stað frá
þvi í fyrra.
KJÖT & FISKUR
SELJABRAUT 54
SÍMI 74200-74201
H
F
2 PRESTAR SUNDUR-
SKOTNIR JI/IEÐ HENDUR
BUNDNAR Á BAK AFTUR
Lík tveggja franskra presta
hafa fundizt um 100 kílómetra frá
bænurn La Rioja í norðvestur-
hluta Argentínu. Líkin voru
sundurskorin og báðir höfðu
prestarnir hendurnar bundnar
fyrir aftan bak.
Franska sendiráðið í Buenos
Aires sagði i gær, að því miður
væri lítið vitað um þessa presta
nema að þeir hafi heitið Jose
Rogelio og Carlos de Dios Muriat.
Talið er að þeir hafi starfað meðal
fátækra smábænda í héraðinu,
þar sem þeir fundust myrtir.
Yfirvöld í Argentínu telja að
aftökusveit hægrimanna í
Argentínu hafi staðið að þessum
morðum, en engar óyggjandi
sannanir eru fyrir því.