Dagblaðið - 22.07.1976, Blaðsíða 7
7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JULÍ 1976.
r
Morðið á sendiherranum:
\
ENGINN HEFUR ENN
LÝST SIG ÁBYRGAN
Enn hafa engin skæruliðasam-
tök viðurkennt, að hafa staðið að
baki sprengjutilræðinu gegn
sendiherra Breta á írlandi, er
bifreið hans var ekið yfir jarð-
sprengju, með þeim afleiðingum,
að sendiherrann, Christopher
Ewart-Biggs lét lífið, ásamt einka-
ritara sínum, ungfrú Judith Cook.
Þó liggur Lýðveldisherinn IRA
sterklega undir grun. Þeir hafa
beitt svipuðum aðferðum gegn
hermönnum Breta í Norður-lr-
landi og hafa margsinnis hótað að
beita sprengjum gegn brezkum
embættismönmun, hvar sem til
Atburðurinn átti sér stað, er
sendiherrann var á ferð í bílalest
fjögurra bíla undir vernd lögregl-
unnar í Dublin á leið til fundar
við írska utanrikisráðherrann
Fitzgerald. Var bílunum ekið á
um 80 km hraða er sprengingin
varð og létust Ewart-Biggs og
ungfrú Cook samstundis. Þá
slasaðist Brian Cubbon, einn
helzti ráðanautur Breta i mál-
efnum N-írlands, mjög illa.
Sendiherrann tók við embætti
fyrir hálfum mánuði og hafði ný-
verið yfirgefið bústað sinn til þess
að halda til fundar við írska utan-
ríkisráðherran, eins og áður
saeði.
CHRISTOPHER EWART-
BIGGS: Tók við embætti fyrir
hálfum mánuði.
Mars:
Rauðbrúnn á litinn og
lífrœnar lofttegundir
Rautt yfirborð plánetunnar
Mars, sem vakið hefur furðu
manna, frá því að sögur hófust, er
í raun og veru rautt. Kom það
greinilega í Ijós, er fyrstu lit-
myndir frá Mars bárust til jarðar
í gær.
Ljósmyndirnar, sem geimferja
Víkings 1. tók, sýndu, að jarð-
vegurinn umhverfis var rauð-
Flóttakona
handtekin í
V-Berlín
Lögreglan í Vestur-Berlín
handtók í gær eina af konunum
fjórum, sem sluppu úr kvenna-
fangelsi í borginni fyrir tveimur
vikum.
Sú sem náðist heitir Monika
Berberich. Hún kippti þegar
byssu upp úr handtösku sinni, er
hún sá lögregluna nálgast. Til
bardaga kom þó ekki, þar er lög-
reglan náði strax að afvopna
hana.
Frú Berberich hafði verið
dæmd i 12 ára fangelsi fyrir
bankarán og að tilheyra glæpa-
samtökum. Hún hafði engin per-
sónuskilríki á sér, er hún var
handtekin, en fjölda af passa-
myndum. Talið er að hún hafi
ætlað að falsa sér passa til að
sleppa frá Vestur-Berlín.
Þrjár kvennanna, sem sluppu
um leið og frú Berberich ganga
enn lausar.
Monika Berberich var hand-
tekin í gær.vopnuð, með fjölda
passamynda í farangrinum.
Waldhei m:
Fleiri konur
Aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna, Kurt Waldheim hefur
viðurkennt, að allt of fáar konur
séu í ábyrgðarstöðum á vegum
samtakanna, enda þótt nægilegt
framboð sé af vel menntuðum
konum.
Hefur hann lofað að beita sér
persónulega fyrir því, að þetta
ójafnvægi verðF bætt, eins fljótt
og auðið verður.
„Við munum öll fagna þeim
degi, er karlmenn og konur verða
metin að verðlcikum en ekki kyn-
ferði,“ sagði aðalritarinn.
brúnn á litinn og klettar í gíga-
hlíðum ljósbrúnir. Himinninn er
ljósblár. Minnir litasamsetningin
á eyðimerkur Suðvestur-Ameríku
og Ástralíu.
„Þessi litadýrð vekur auðvitað
mikla athygli... — þetta er mjög
frábrugðið öllu á tunglinu," sögðu
vísindamenn í gær, er fyrstu
myndirnar höfðu borizt.
Sendinefnd Palestínumanna er
nú farin áleiðis til Damaskus í
Sýrlandi, eftir að friðarsveitir
Araba hafa tekið sér stöðu á
friðuðu svæði milli hinna stríð-
andi afla í Beirút.
Er hermennirnir, skfýddir hvít-
um hjálmum, tóku sér stöðu á
breiðgötu sem skilur að stöðvar
hægri og vinstri menn í borginni,
var þeim heilsað með öflugri stór-
Þá hefur ferjan efnagreint
andrúmsloftið umhverfis og á það
eftir að vekja mikla athygli.
Komust vísindamenn að því, að
það var að mestu samsett úr
carbon díoxíði, en allt að þrjú
prósent nitrogen, sem er nauðsyn-
legt til þess, að líf I því formi, sem
við þekkjuip hér á jörðu megi
kvikna. , ,
skolaliðsárás.
Þó var talið, að sæmilegur
friður væri kominn á um miðjan
dag i gær.
Með sendinefndinni er for-
sætisráðherra Líbýu, Jalloud, en
hann hefur manna mest reynt að
koma á friði milli Sýlendinga og
Palestínumanna. Eru þetta alvar-
legustu friðarumleitanirnar til
þessa.
BIAÐID
ÞAD UFI!
Gífurlegt mannfall hefur orðið á báða bóga í borgarastyrjöldinni i
Libanon og liggja líkin og rotna viða um Beirút.
Beirút:
Alvarlegustu friðar-
umleitanir til þessa?
Síðasta ár var „morðár"
á Filippseyjum
Meira en 5.000 morð voru
framin á Filippseyjum fyrstu
níu mánuði ársins 1975, að því
er segir í skýrslum lög-
reglunnar i Manila. Þetta mun
vera um helmingi hærri tala
en fyrir allt árið 1974.
1 skýrslu lögreglunnar segir
að 5.158 morð hafi verið
framin frá janúar til október
'75, en „asðeins" 2.839 allt árið
1974.
ALLT í FÓKUS HJÁ OKKUR
I. Pálmason hff
Vesturgötu 3 - Símar 2-22-35 og 2-22-36 •
Tilsölu
eru eftirtaldar bifreiðar:
1. Range Rover 1976
2. Cijrolen CX 1975 Nýr.
3 Volvo 144 GL 1972
4. Mercedes Benz 2201970
5. Mercedes Benz 280S 1968
6. Volga 1974
Höfum fjölda annarra bifreiða á söluskrá. Glæsilegt
úrval Mercedes Benz bíla, bensin, dísilog fiutningabíla.
Útvegum úrvals notaðar bifreiðar, vinnuvélar og vara-
hluti frá Þýzkalandi og víðar.
Markaðstorgið, Einholti 8, sími 28590
Einholti 8, sími 28590
Höfum kaupendur að
1. Wagoneer 1973-1974
2. Bronco 1972-1974
3. Blazer 1973-1974
4. Volkswagen 1973-1974
5. Plymouth Duster 1972
Vantar ýmsar gerðir bifreiða á söluskrá. Bjóðið bílinn á
Markaðstorgið,
Einholti 8, sími 28590.
NÝK0MNAR
Petri 7 S
med
gleidhorns-
og addráttar-
linsu.
FÓkuS, Lœkjargötu 66, sími 15555
ELDUR
I. Pálmason selur
BÍLASLÖKKVITÆKIÐ