Dagblaðið - 22.07.1976, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JULÍ 1976.
J3
jndrabarnið
erðlaunin!
stari í f jölþraut í f imleikum kvenna í gœr
lið til fimm gullverðlauna á leikunum
lig 10 og varð önnur
— 9.80 — 9.85 og 9.90 nægðu bara
ekki nema í 3ja sætið að þessu
sinni. önnur rúmensk stúlka,
Teodora Ungureanu, sem er 16
ára, var einnig með í hinni miklu
keppni — hlaut tvívegis 9.90 en
það dugði ekki nema i fjórða
sætið. Einkunnir í fimleikum
kvenna hafa aldrei verið eins
háar — fimm sinnum í alit hefur
Nadia fengið 10, og slík einkun
var óþekkt fyrir Olympíuleikana í
Montreal. í gær bættist hin Nelli
Kim í þann hóp.
Urslitin í fjölþrautinni urðu
þessi.
1. N. Comaneci, Rúmeníu, 79.275
2. Nelli Kim, Sovét, 78.675
3. L. Tourischeva, Sovét, 78.625
4. T. Ung’ureanu, Rúmeníu78.375
' 5. O. Korbut, Sovét, 78.025
íslandsmet
Þórunnar
Þórunn Alfreðsdóttir setti nýtt
íslandsmet í 100 m flugsundi á
Olympíuleikunum í gær. Hún
synti vegalengdina á 1:09.63 mín.
en eldra met hennar var 1:09.80
mín. Þórunn setti íslandsmet í
báðum þeim greinum, sem hún
keppti í á leikunum.
6. G. Escher, A-Þýzkal. 77.750
7. M. Egervari, Ungverjal. 77.325
8. M. Kische, A-Þýzkal. 76.950
9. K. Gerschau, A-Þýzkal. 76.800
10. A. Pohludkova, Tékk. 76.775
Keppt er í fimm einstaklings-
greinum kvenna í fimleikum á
leikunum — og Nadia litla gæti
þvi hlotið fimm gullverðlaun, þó
það sé ólíklegt í hinni. hörðu
keppni. Sú bezta fyrir þessa leika,
Ludmila Tourischeva, var næst í
röðinni á undan Nadíu í gær — og
beið eftir þeirri rúmensku eftir
æfingar hennar á jafnvægis-
slánni. Þar hlaut Nadia 10 og
Ludmila fór til hennar og klapp-
aði henni á öxlina.
Olga virtist óhamingjusöm —
eftir keppnina á jafnvægisslánni
fór þjálfarinn sovézki, Larissa
Latynina, og mótmælti einkunn
Olgu við dómarana. Mótmæli
hennar voru ekki tekin til greina
— og eftir keppnina gekk Olga út
úr höllinni og stakk lítillega við
fæti. Meiðsli hennar í ökkla segja
enn til sín. Taugaspennan hafði
líka sín áhrif á hana til hins
verra.
En ekki hjá Nadiu — nýju
drottningunni. Hún sagði eftir
keppnina. — Eg er taugaóstyrk-
ari, þegar ég' slaést við bróður
minn.
Nadia Comaneci fagnar eftir að hafa fengið 10 á tvíslánni i gær.
Kornelía stefnir
í 3ju verðlaunin
SIGLDIJUG0SLAVIU
Júgóslövunum. Staðan í hálfleik
var 55-51, Slövum í vil.
í siðari hálfleik juku Banda-
ríkjamenn hraðann — skoruðu
mikið úr hraðaupphlaupum og á
skömmum tíma breyttu þeir
stöðunni sér í vil, náðu sjö stiga
forustu sem þeir juku síðan smám
saman.
Stigahæstir Bandaríkjamanna
voru Adrian Dantley 27 og Scott
May 26. Dalipagic og Delibasic
voru stigahæstir Slavanna með 20
stig.
Sovétmenn áttu hins vegar
aldrei í erfiðleikum með
spútníklið Kanada, sem hafði
unnið tvo fyrstu leiki sína.
Það stefnir því í úrslitaleik
þessara stórvelda. Nokkuð sem
allir vilja því í Munchen sigruðu
Sovétmenn í sögufrægum leik 51-
50.
önnur úrslit: a-riðill: Kúba —
Japan 97-56. Ástralía — Mexíkó
120-117 eftir framlengdan leik. B
riðill: Ítalía — Tékkóslóvakía 79-
69, Puerto Rico — Egyptaland
2-0. Egyptar mættu ekki, farnir
heim.
Kornelia Ender setti nýtt
Olympíumet i 100 metra flug-
sundi kvenna þegar hún synti í
undanrásunum í gær 1:01.03. Fast
á hæla hennar kom landi hennar
Andrea Pollack Hún synti á
1:01.39.
í undanrásunum varð Kornelia
Ender aðeins sjöunda. Hún tók
lífinu með ró, getur leyft sér það
þessi glæsilega drottning sunds-
ins í dag.
Urslit í undanúrsiitum 100
metra flugsunds kvenna, fyrri
riðill:
1. K. Ender A-Þýzkalandi
Olmet 1:01.03
2. A. Pollack A-Þýzkalandi 1:01.39
3. Wendy Quuirk Kanada 1:01.54
4. R. Gabriel A-Þvzkalandi 1:01.93
5. L. Fonoimoana USA 1:02.23
6. M. Paris Costa Rica 1:03.27
7. Y. Hatsuda Japan - 1:03.33
8. S. Jenner Bretlandi 1:04.06
Siðari riðill:
1. Wendy Boglioli USA 1:01.75
2. C. Wright USA 1:01.89
3. T. Shelofastova Sovét 1:02.40
4. H. Boivin Kanada 1:02.90
5. S. Sioan Kanada 1:02.91
6. L. Hanel Astralíu 1:03.30
7. L. Rowe N-Sjálandi 1:04.06
8. K. Banno Japan 1:04.21
Ur fyrri riðlinum fóru fimm
fyrstu í úrslit — þeim síðari þrjár
fyrstu.
Fyrstu 01-verðlaun konu
í keppni við karlmenn!
— Bandarísk kona varð í öðru sœti í skotkeppni með sömu
stigatölu og sigurvegarinn
of auðveldar. Það var þó ekki hjá
þeim finnska á fyrsta degi keppn-
innar í reiðmennsku fimmtar-
þrautarinnar.
Konurnar sækja alls staðar á —
það sannaðist á Olympíuieikun-
um í gær. í fyrsta skipti í sögu
Olympíuleikanna hlaut kona
verðlaun í keppni, þar sem karl-
menn eru þátttakendur. Það var í
opnum flokki í skotkeppni með
riffil og bakvið þennan merkisat-
burð stóð bandaríska frúin
Margaret Murdock. Ekki nóg með
það. Hún hlaut sömu stigatölu og
bandariski kapteinninn Lanny
Bassham — 1162 stig af 1200
mögulcgum, en tapaði gullverð-
launum, þar sem lokaumferðin
var lakari hjá henni en Bassham.
I fyrstu tilkynningu um úrslit
keppninnar var frú Murdock í
fyrsta sæti — stigi á undan
kapteininum. En þegar keppnis-
spjöldin höfðu verið endurskoðuð
hlaut Bassham eitt stig til við-
bótar. Þar með voru þau með
sömu stigatölu — og þá var liðinn
þrír og hálfur tími frá því síðasta’
skotinu var hleypt af!
Taugaspenna var mikil.
Bassham var reiður — og hótaði
jafnvel að taka ekki við gullverð-
laununum í fyrstu. Hann sagði, að
það ættu að vera tveir olympískir
meistarar í slíku tilfelli — eða þá
aukakeppni um verðlaunin. Frú
Murdock stóð við hlið hans,
greinilega mjög vonsvikin — leit
niður og sagði ekki neitt, en
nokkru áður hafði hún grátið af
gleði, þegar fyrstu tölur bárust af
keppninni, og sagði: ,,Ég er svo.
glöð — ég er svo glöð."
Urslit keppninnar réðust á því,
að Bassham náði 98 s.tigum af 100
mögulegum í síðustu lotunni, en
frúin 96.
Verðlaun verða afhent í dag.
Samkvæmt fréttum frá Quebec í
nótt mun Bassham, sem hlaut
silfurverðlaun í greininni í
Munchen og er fyrirliði banda-
rísku skotsveitarinnar, ekki
beygja sig niður til að taka á móti
verðlaunum sínum, heldur rétta
frú Murdock hönd sína og biðja
hana að koma upp á efsta þrep
verðlaunapallsins.
Urslit urðu þessi:
1. L. Bassham, USA
2. M. Murdock, USA
3. W. Seibold, V-Þýzkal.
4. S. Pejovic, Júgósl.
5. S. Johannsson, Svíþjóð
6. Jun Li, N-Kóreu
1162
1162
1160
1156
1152
1152
Skipting
verðlauna
í Montreal
Gull — silfur — brons, nú er
hart barizt um þessa góðmálma í
Montreal. Bandaríkjamenn hafa
unnið til flestra verðlauna-
peninga það sem af er keppninni
— 18 þar af 8 gull. A-Þjóðverjar
fylgja Bandaríkjamönnum fast á
eftir með 14 — þar af 6 gull.
Þær þjóðir sem hafa unnið til
verðlaunapeninga í Montreal eru:
gull=g, silfur=s, brons=b:
Bandaríkin
A-Þýzkaland
Sovétríkin
V-Þýzkaland
Búlgaría
Rúmenla
Japan
Pólland
Ungverjaland
Portúgal
Belgía
Bretland
Kanada
Danmörk
Ástralía
íran
Ítalía
Holland
b
3
4
3
1
0
0
2
0
0
0
0
0
2
2
1
1
1
1
Þegar hafa því keppendur 19
þjóða unnið til verðlauna 1
Montreal — þar af 7 þjóðir til
gullverðlauna. Danir háfa fengið
2 bronspeninga — báða í hjól-
reiðum.
Andrianov
só bezti
Sovétmenn og Rumenar einoka
gull, silfur og brons í kvenna-
greinum fimleikanna. Einnig í
karlagreinum eru Sovétmenn
afar sterkir. Þar veita Japanir
þeim mesta keppni og eftir sex
greinar í einstaklingskeppni
hefur Sovétmaðurinn Nikolai
Andrianov forystu — hefur hlotið
116.650 stig. Honum fylgja tveir
Japanir en Andrianov hefur eins
stigs forskot á Sawao Kato 115.650
stig.
Annars er staðan eftir grein-
arnar sex nú:
1. N. Andrianov, Sovét 116.650
2. S. Kato, Japan / 115.650
3. M. Tsukahara, Japan 115.575
4. A. Ditiatin, Sovét 115.525
5. H. Kajiyama, Japan 115.425
Keppnin er geysihörð um
bronsið — þar er Sovétmaðurinn
aðeins 0.050 stigum á eftir
Japananum. Hins vegar verður
erfitt fyrir Kata að vinna upp
forustu Andrianovs. Þar þarf
Sovétmanninum að fatast illa —
hingað til hefur hann verið ör-
yggið uppmálað.
íþróttir