Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 22.07.1976, Qupperneq 8

Dagblaðið - 22.07.1976, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚLt 1976. ' 8 /■ Tuttugu dragnótabátor stunda nú veiðar allt að Reykjanesi Ákvörðun tekin í samráði við f iskif rœðinga vekur úlfúð á Suðurnesjum ,,Það er alvarlegt mál fyrir alla færabáta að fá flota drag- nótabáta inn á sín veiðisvæði,“ sagði Júlíus Árnason skipstjóri í Keflavík i viðtali við blaðið. Taldi Júlíus að Ölafsvíkurbátar og fleiri væru í órétti við drag- nótaveiðar við Hafnarleir og á Sandvík við Reykjanes. Dag- blaðið leitað' því upplýsinga hjá ráðuneytinu. „Dragnótasvæðin hafa verið stækkuð frá þvf sem var I fyrra. Á það bæði *dð um dragnóta- svæði vestur af landinu og eins svæði fyrir norðan og austan,“ sagði Þórður Ásgeirsson skrif- stofustjóri sjávarútvegsráðu- neytisins. Er leyfi voru siðast veitt í fyrra, var svæðið frá Horni að Gálavíkurvita á Snæfellsnesi. Nú er hins vegar heimilt að stunda dragnótaveiðar sam- kvæmt sérstöku leyfi ráðu- neytisins í hverju tilfelli frá Horni að Reykjanesaukavita, sagði Þórður. Faxaflói er hins vegar lokaður af linu sem hugs- ast dregin frá Garðskagavita í Malarrif. Breiðafjörður er sömuleiðis lokaður innan línu, sem hugsast dregin úr Selskeri í Eyrarfjall. Vestfirðirnir eru nú sem fyrr lokaðir fyrir dragnótaveiðum. Þórður taldi að báðir þeir staðir, sem skipstjórinn frá Keflavík nefndi, væru utan þeirrar línu, sem heimilt væri að fara að með dragnót. Þórður sagði að nú hefðu 20 bátar fengið leýfi til dragnóta- veiða á svæðinu vestur af land- inu. Það voru allt bátar frá Breiðafirði og af Barðaströnd. Enginn Keflavíkurbátur væri meðal þeirra, sem leyfi hafa til dragnótaveiða. Þórður sagði að svæðið vestur af landinu hefði verið stækkað ásamt svæðum til dragnótaveiða fyrir norðan og austan. „Jafnframt," sagði hann, „var ákveðið að stækka möskva dragnótanna í 170 millimetra. Með þeirri stækkun var talið útilokað að annar fiskur en flat- fiskur og allra stærsti þorskur kæmi upp í dragnótina. Allur annar fiskur fer í gegnum slíka möskva. Til samanburðar má geta þess að möskvi botnvarpa er 135 millimetrar." Þórður sagði að ákvörðun um stækkun dragnótasvæðanna hefði verið tekin í samráði við Hafrannsóknastofnunina og Fiskifélagið. —ASt. 15ára stúlka brenndist illaaf maurasýru Var flutt íflugvél suður og er úr Irfshœttu Það óhapp varð að bænum Saurbæ skammt frá Blönduósi á mánudaginn, að 15 ára stúlka úr Kópavogi, Halla Sigurgeirsdóttir, brenndist illa af maurasýru sem yfir hana slettist. Stúlkan var fyrst flutt í sjúkrahúsið að Blönduósi en þaðan var hún flutt í sjúkraflugvél til Reykjavíkur og lögð inn á gjörgæzludeild Land- spítalans. Jón Sigurðsson læknir gaf Dag- blaðinu þær upplýsingar í gær um líðan stúlkunnar, að hún væri úr allri lífshættu og væri nú á góðum batavegi. Slysið bar til með þeim hætti að brúsi með maurasýru féll I grennd við stað er stúlkan sat á. Maurasýra er notuð við verkun súrheys. Slettist úr brúsanum aðallega yfir fætur hennar og læri. Stúlkan fór úr buxum er hún var í í snatri og náðist fljótt í vatn. Maurasýrubruni er hins vegar varhugaverður og var því full ástæða til að flytja hana í flugvél suður. í gjörgæzludeild- inni hefur hún hlotið brunaað- hlynningu og er sem fyrr segir á góðum batavegi. — ASt Olympíumótið íHaifa: Skáksambandið sendir afboð Stjórn Skáksambands íslands hefur samþykkt að skákmenn frá tslandi taki ekki þátt í keppni á Olympíuskákmótinu í Haifa í tsrael. Þetta mun verða tilkynnt FIDE og Skáksambandi Israels, auk þess sem stjórn SSÍ harmar þau pólitísku átök, sem orðið hafa í sambandi við mótið. Meðal annarra hafa Rússar til- kynnt, að þeir muni ekki taka þátt í mótinu. Búizt er við, að fleiri Austur-Evrópulönd fylgi fordæmi þeirra. Stjórn Skáksambands tslands telur aðalástæðuna fyrir því að senda afboð þá, að megintilgang- ur sambandsins, sé að efla starf- semina innanlands og vill því ekki leggja í kostnaðarsamt ferða- lag, með krappan fjárhag sam- bandsins í huga. íslenzktflug til Þuslaraþorps: ÞRJAR ORVAR, BEINT í HJARTASTAÐ Það er óhætt að fullyrða að Flugleiðir beina örvum sínum beint að hjarta Evrópu. Félagið hefur nú hafið vikulegar áætlunarferðir til Dilsseldorf I Mið-Þýzkalandi. Þar með eru örvarnar í áðurnefnt hjarta orðnar þrjár, því félagið heldur einnig uppi áætlunarferðum til Frankfurt I Þýzkalandi og til Lúxemburgar. Yfirvöld i Þýzkalandi hafa sýnt félaginu góða fyrirgreiðslu á undanförnum árum og nú síðast með veitingu þessa flug- leyfis. Flugleiðir hafa lendingarréttindi í Hamborg og Frankfurt, en I raun réttri voru réttindin upphaflega miðuð við Hamborg og Díisseldorf. Leyfi til lendinga I Diisseldorf voru aldrei notuð, en óskað eftir að fá Frankfurtarleyfi I stað þess, enda er áframhaldsflug þaðan I allar áttir eins og bezt verður á kostið. Á laugardaginn .var lenti Gullfaxi, Boeing 727 þota félagsins á flugvellinum í „gull- borginni" Diisseldorf, Þuslaraþorpi, eins og Laxness hefur kallað borgina, þar sem peningajöfrar sambandslýð- veldisins hafa haslað sér völl undanfarin ár í æ ríkara mæli. Á flugvellinum voru mættir fulltrúar samgöngumála í V- Þýzkalandi ásamt flugvallar- stjóra flugvallarins og aðstoðar- flugvallarstjóra. Halldór E. Sigurðsson samgönguráðherra hafði brugðið sér yfir til Dtisseldorf frá London, þar sem hann var staddur, og tók þátt I stuttu hófi í flugstöðvar- byggingunni, þar sem þessum áfanga var fagnað. Halldór E. Sigurðsson ávarpaði viðstadda nokkrum orðum og lét i ljósi óskir um enn meiri og víðtækari við- skipti milli landanna, — benti m.a. á að tslendingar hefðu ærið nóg að hinu bezta lamba- kjöti til að selja Þjóðverjum. Af hálfu Þjóðverjanna ávarpaði Heinz Trauturin flugvaiíar- stjóri samkomuna og þakkaoi ráðherra sérstaklega fyrir að leggja ferðalag á sig milli landa til að taka þátt í opnuninni. Fyrst í stað mun aðeins ein ferð verða farin I hverri viku og aðeins fram á haustið. Að sögn Sveins Sæmundssonar blaða- fulltrúa, er þegar vel bókað í þær fáu ferðir sem verða milli þessara borga í sumar, bæði af Þjóðverjum, sem eru á leið til tslands, og eins Islendingum sem ætla sér að kanna hin fögru Rínarlönd. eða sækja kaupstefnurnar miklu I Diisseldorf og I Köln. Flug til Frankfurt mun halda áfram eins og verið hefur, einu sinni 1 viku. —JUP Það var létt yfir mönnum á flugvallarhlaðinu. Hér heilsar Brynjólfur Ingólfsson upp á Jón Sæmund Sigurjónsson hagfræðing, en hann starfar 1 Bonn. Gullfaxi í fyrsta sinn á Dusseldorfflugvelli, — boðsgestir tygja sig til heimferðar. Þeirra á meðal er ráðherra samgöngumála og ambassador ísiands í v-Þýzkalandi, Níels P. Sigurðsson, Gunna Sigurðsson flugvallarstjóri á Reykjavíkurflugvelli og Brynjólfur Ingólfsson ráðuneytisstjóri, sem allir vöru viðstaddir opnun nýju flugleiðarinnar (DB-myndir JBP) — HP.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.