Dagblaðið - 22.07.1976, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JULÍ 1976.
Dagskróin
á 01. í dag
Dagskrá leikanna í dag —
fimmti keppnisdagur. Allir tímar
sem gefnir eru upp eru GMT —
Greenwich Mean Time. Það er
sami tími og hér heima.
13.00 Körfuknattleikur: Meðal
annars verður ieikur Júgó-
slava, og ítala, sem sker úr um
hvor þjóðin keppir um bronsið,
leikur þeirra fer fram í kvöld.
13.30 Sund: Keppt verður í 100
metra baksundi kvenna, undan-
rásum. Einnig í undanrásunum
í 400 metra skriðsundi karla.
200 metra skriðsundi kvenna,
undanrásum og 4x400 metra
boðsundi karla, undanrásir
Síðar í kvöld: 100 metra bak-
sund kvenna, undanúrslit. 400
metra skriðsundi karla, úrslit.
100 metra flugsundi kvenna,
úrslit og 200 metra skriðsund
kvenna, úrslit. Að lokum
verður úrslitasund 4x400
metra boðsund karla.
13.30 Sundknattleikur, þrír leik-
ir.
14.00 Róðrarkeppnin.
' ■ s
Annarstór- |
sigur Frakka
Frakkar tryggðu sér rétt í 8-liða
úrsiit á Olympíuleikunum í
Montreal í knattspyrnu. í gær-
kvöld sigruðu Frakkar örugglega
lið Guatemala 4-1. Þetta var
annar stórsigur Frakka — áður
höfðu þeir sígrað Mexíkó 4-1.
Hvaða lið fylgir Frökkum úr
b-riðli er óljóst. Öli iiðin eygja
þar möguleika. Mexikó og ísrael
gerðu jafntefli í gærkvöld 2-2.
tsrael hefur því hlotið tvö stig en
á eftir að leika við Frakka.
Guatemala og Mexíkó hafa hlotið
eitt stig hvor þjóð — og leika
síðasta ieikinn saman. Því getur
allt gerst í b-riðli.
i d-riðii sigraði N-Kórea gest-
gjafa Kanada 3-1 eftir að Kórea
hafði haft yfir 1-0 í hálfleik.
Kanadamenn jöfnuðu í byrjun
síðari hálfleiks en leikni og
snerpu Kóreumanna, sem komu
svo á óvart í HM á Englandi ’66,
réðu Kanadamenn ekki við. N-
Kóreumenn skoruðu tvö síðustu
mörk lciksins og tryggðu sér rétt í
8-liða úrslit ásamt Sovétmönnum.
☆
STAÐANí
2. DEILD
Úrslit ieikja í 2. deild:
Haukar — Þór 1—2
KA — Völsungur 1—4
Reynir — Selfoss 1—2
Staðan i 2. deild:
ÍBV 10 8 2 0 32-9 18
Þór 11 6 4 1 22-11 16
Ármann 10 4 3 3 18-13 11
Völsungur 11 4 3 4 16-15 11
KA 11 4 3 4 21-22 11
ísafjörður 10 3 3 4 13-14 9
Haukar 10 3 2 5 18-20 8
Seifoss 11 2 2 7 18-32 6
Reynir 10 2 0 8 11-34 4
Rúmenska i
hlaut gullv
— Nadia Comaneci varð olympískur meí|
Hlaut tvívegis 10 í œfingu og gœti unn
NelliKim hlauteinr
sæl meðal áhorfenda,“ sagði
Sveinn ennfremur, þegar Dag-
blaðið ræddi við hann i morgun.
í gær var ný drottning krýnd af
áhorfendum Olympíuleikanna —
Nadía hin 14 ára frá Rúmeníu.
Hún lagði hina 18 þúsund áhorf-
endur í Forum-iþróttahöllinni í
Montreal að fótum Sér. Hún er
drottningin — hefur setzt í hásæti
Tourishevu og Olgu Korbut.
Drottning fimleikanna — drottn-
ing 21. Olympíuleikanna. Tvi-
vegis hlaut hún hæstu fáanlega
einkunn í gær, þegar hún varð
olympískur meistari i fjölþraut.
Tvívegis 10 fyrir æfingar á tvislá
og jafnvægisslá 9.85 fyrir stökk á
hesti. í þeirri grein hlaut Nelli
Kim, Sovétríkjunum, tíu og í gólf-
æfingum hlaut Nadia 9.90 stig.
I fjölþrautinni í gær hafði Kim
forustuna í eftir tvær fyrstu
greinarnar, stökkið og tvíslána,
með 19.90, en Nadía var með
19.85. A jafnvægisslánni fékk
Nadia 10 — en Kim ekki nema
9.70 og eftir það var sigur
rúmensku stúlkunnar í höfn.
Áhorfendur beinlínis réðu sér
ekki af gleði. Ludmila og Olga
féllu í skuggann — og á jafn-
vægisslánni fékk Olga ekki nema
9.50, en það var hennar sterkasta
grein áður. Ludmila var ákaflega
jöfn eins og áður, einkunnir 9.95
USA KAF
Nú stefnir allt í úrsiit Banda-
rikjanna og Sovétríkjanna í
körfuknattleiknum á Olympíu-
leikunum í Montreal. Bæði liðin
unnu mikilvæga sigra i gærkvöld
— Bandaríkin sigruðu Júgóslavíu
112-93, Sovétmenn sigruðu
Kanada 108-85. Bæði Júgósiavía
og Kanada voru ósigruð fyrir
leikina í gærkvöld.
Bandaríkjamenn þurftu
sannarlega að hafa fyrir sigri
sinum gegn Júgóslövum, sem
voru mun betri i fyrri hálfleik.
Áttu Bandaríkjamenn í vök að
verjast gegn hávöxnum
— en þrefaldur USA-sigur í f lugsundinu
Matt VogeL Bandaríkjunum,
nauðrakaður eins og féiagi hans
Mike Bruner, sem sigraði í 200 m
flugsundinu á sunnudag, gerði
sér lítið fyrir og stórbætti
árangur sinn í úrslitum 100 m
flugsundsins í Montreai í gær.
Það nægði til sigurs — en elzta
heimsmetið á metskránni, —
metið, sem Mark Spitz setti á
Olympíuleikunum í Munchen,
stóðst átökin. Vogel synti á 54.35
sek. — en heimsmet og um leið
olympíumet Spitz er 54.27 sek.
Bandarísku sundmennirnir
gerðu sér lítið fyrir og urðu í
þremur fyrstu sætunum í 100 m
flugsundinu í gær. Austur-
Þjóðverjinn Roger Pyttel, sem
átti bezta heimstímann fyrir ieik-
ana, þoldi ekki taugaspennuna
frekar en á sunnudag í úrslitum
200 m flugsundsins. Þá sá hann á
eftir þremur Bandaríkjamönnum
í mark og það sama skeði í gær.
Meira að segja munaði sáralitlu
að félagi hans, baksundsmeistar-
inn mikli, Roland Matlhes, yrði á
undan Pyttel. Aðeins tveimur
hundruðustu úr sek. munaði á
þeim í markinu — Matthes náði
sínum bezta árangri á vegalengd-
inni.
Nýj olympíumeistarinn Vogel
er 19 ára. Annar var Joe Bottom,
21 árs. og 3ji kappinn frægi, Gary
Hall „gamli maðurinn" í banda-
ríska liðinu, 24ra ára, en hann
hlaut silfurverðlaun í fjórsundi á
leikunum í Mexíkó 1968 (400 m)
og Munchen 1972 (200 m).
Eftir þessa grein hafa banda-
rísku sundmennirnir sigrað í
þeim sjö greinum karla, sem
keppt hefur verið í — og stefna í
að sigra í öllum 13.
Urslit í 100 m flugsundinu
urðu þessi.
1. Matt Vogel, USA, 54.35
2. J. Bottom, USA, 54.50
3. Gary Hall, USA, 54.65
4. R. Pyttel, A-Þýzkal. 55.09
5'R. Matthes, A-Þýzkal. 55.11
6. C. Evans, Kanada, 55.81
7. H. Hara, Japan, 56.34
8. N. Rogers, Ástralíu, 56.57
Bandarísku kapparnir bættu
aliir tíma sína stórlega í úrslita-
sundinu.
’ Finninn Heikki Hulkkonen,
sem keppir í nútíma fimmtar-
þraut á Olympíuleikunum fékk
heldur betur flugferð, þegar
hestur hann fell við eina hindrun-
ina. Hún reyndist hestinum erfið
— en annars voru uppi raddir um:
það, að hindranirnar hefðu verið
Mike Bruner, Bandaríkjunum, sem rakað hefur hvert einasta hár af
iíkama sínum, varð sigurvegari i 200 m fiugsundinu í Montreal. A
myndinni að ofan er hann nauðasköllóttur efstur á verðlauna-
pallinum, en Steve Gregg til hægri og Robert Forrester urðu í öðru og
þriðja sæti. í gær varð Bruner aftur olympískur meistari í 200 m
skriðsundi — en það merkilega var, að enginn þessara kappa komst i
bandaríska liðið í 100 m flugsundi. Þar áttu Bandaríkin einnig þrjá
fyrstu menn í gær.
„Það er stórkostlegt að fá tæki-
færi til að sjá slíka keppni — það
er ekki hægt að lýsa henni með
orðum. Þessi litla, rúmenska
stúlka, Nadia Comaneci, er frá-
bær og reyndar hinar ailar líka,“
sagði Sveinn Björnsson, aðal-
fararstjóri ísienzka olympiuhóps-
ins, eftir að hafa horft á fimleika-
keppnina í Montreal í gærkvöid.
„En mér fannst dómararnir
ósanngjarnir gagnvart Olgu
Korbut. Hún átti að fá hærri
stigatölu og er enn ákafiega vin-
Bandaríska sveitin
tvíbœtti heimsmetið
— í4x200 m skriðsundi d Olympíuleikunum í gœr
Bandaríska sveitin í 4x200 m
boðsundi hafði gífurlega yfir-
burði í úrslitasundinu í gærkvöld
og setti glæsilegt heimsmet,
7:23.22 min. Bætti heimsmetstím-
ann, sem sveitin setti fyrr um
daginn í undanrásum, um 7.10
sek. — en í úrsiitasundinu um
kvöldið komu tveir frægir kappar
í sveitina, John Naper og Jim
Montgomery, sem urðu í öðru og
þriðja sæti i úrslitum 200 m
skriðsundsins á eftir Bruce
Furniss, í stað þeirra Tim Shaw
og Doug Northway, sem synt
höfðu í undanrásunum ásamt
Furniss og Mike Bruner. Þá synti
sveitin á 7:30.33 min. og náði
langbezta tímanum.
Þar með hlutu þeir Bruner,
Furniss og Naper önnur gullverð-
laun sín á leikunum — og hafa
ekki sagt sitt síðasta orð. Banda-
ríska sveitin náði strax forustu,
Bruner synti fyrsta sprett, og jók
síðan forskotið nema hvað Naper
náði ekki sínu bezta.
Sovézka sveitin varð í öðru sæti
og setti nýtt Evrópumet. Synti
einnig langt undir gamla heims-
metinu. I sveitinni syntu Raska-
tov, Bogdanov.Kopliakov og Kry-
lov. Brezka sveitin náði 3ja sæti
eftir harða keppni við þá vestur-
þýzku. Eftir keppnina var vestur-
þýzka sveitin dæmd úr leik — en
eftir nánari endurskoðun var
þeim dómi hnekkt og sveitin hélt
fjórða sætinu.
Urslit í sundinu urðu þessi:
1. Bandaríkin 7:23.22
2. Sovétríkin 7:27.97
3. Bretland 7:32.11
4. Vestur-Þýzkaland 7:32.27
5. Austur-Þýzkaland 7:38.92
6. Holland 7:42.56
7. Svíþjóð 7:42.84
8. Ítalía 7:43.39
í sænsku sveitinni syntu Par
Arvidson, Peter Pettersson,
Anders Bellbring og Bengt Ging-
sjö.
Olympíumet
Spvtzhélt!