Dagblaðið - 22.07.1976, Page 14

Dagblaðið - 22.07.1976, Page 14
14 DACBI.AÐH). FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1976. d íþróttir Iþróttir Iþróttir þróttir I Tvœr austur- þýzkarurðu í fyrstu sœtum Tvær austur þýzkar stúlkur urðu fyrstar í úrslitum 100 m baksundsins í gær. Ulrika Richter, sem setti nýtt olympískt met í undanúrslit- um, sigraði á 1:01,83 mín. og bætti þvi enn oiympíumetið. Hins vegar var tími hennar aðeins lakari, en þegar hún setti heimsmet á austur-þýzka meistaramótinu í Berlín fyrir mánuði. Þá synti hún á 1:01.51 mín., þegar austur-þýzku stúlkurnar bókstaflega endur- rituðu heimsmetaskrána. Ulrika er 17 ára og hafði forustu allt sundið — varð næstum tveimur sek. á undan Birgit Treiber í mark, sem er 16 ára. Kanadíska stúlkan Nancy Garapick, sem er aðeins 14 ára, hlaut bronsverðlaunin — en þekktasla baksundskona Austur-Þýzkaiands hér áður fyrr, Antje Stille, varð aðeins sjöunda. Hollenzka stúlkan Enith Brigitha, sem hlaut bronsverðlaun i 100 m skrið- sundi, hafði unnið sér rétt í úrslitasundið, en var óánægð með árangur sinn og hætti við þátttöku. Diane Edelijn, Hol- landi, tók sæti hennar, og varð í siðasta sætinu. Urslit i sundinu urðu þessi: 1. U. Bichter, A-Þýzkaland, 1:01.83 2. B. Treiber, A-Þýzkaiand, 1:03.41 3. N. Garapick, Kanada, 1:03.71 4. W. Hogg, Kanada, 1:03.93 5. C. Gibson, Kanada. 1:05.16 6. N.Stavko. Sovét, 1:05.19 7. A. Stiile, A-Þýzkaland, 1:05.30 8. S. Edelijn, Holiand, 1:05.53 Flugkapteinn- inn bandaríski hefur forustu Heimsmeistarinn í dýfingum á f jaðrabretti, Bandaríkjamaðurinn Phil Boggs, sem er kapteinn í bandaríska fiughernum, náði öruggri forustu í dýfinga- keppni í gær. Boggs, sem er 26 ára og varð heimsmeistari bæði 1973 og 1975, hlaut þá 621.51 stig — næstum fjörutiu stigum á undan landa sínum Robert Cragg — en olympíu- meistarinn frá Munchen 1972, ítalinn Klaus Dibiasi, er í fimmta sæti. Hann var annar fyrir lokaæfinguna í gær, en mistókst þá herfilega og féll niður í f jórða sætið. Atta beztu dýfingamennirn- ir í gær komust í úrslita- keppnina, sem háð verður í dag — og staðan fyrir hana er þannig: 1. P. Boggs, USA, 621.51 2. R. Cragg, USA, 582.99 3. F. Hoffmann, A-Þýzk. 573.00 4. K. Dibiasi, Ítaliu, 572.82 5. A. Kosenkov, Sovét, 557.52 6. C. Giron, Mexikó, 547.14 7. F. Cagnotto, Ílalíu, 542.31 8. G. Louganis, l'SA, 530.85 Kappinn frægi, Mark Spitz, sem hlaut sjö gullverðlaun i sundkeppninni á Olympiuleikunum í Munchen 1972, er í Montreal sem fréttamaður bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar ABC. Olympiumetin hans hafa fallið eitt af öðru — nema eitt sem stóðst öll átök í gær — metið í 100 m flugsundi 54.27 sek., sem jafnframt er eina heimsmetið, sem tilheyrir nú Spitz. Myndin að ofan er tekin af Mark Spitz við vinnu sína í Montreal. Tékkarenní fyrsta sœti Tékkar hafa enn forustu í nútíma fimmtarþraut eftir keppnina í fjórðu greininni í gær — sundi. Síðasta greinin — hlaup — er í dag. í sundkeppn- inni í gær hafði bandaríska sveitin yfirburði og komst upp i fjórða sæti. Er rétt á eftir Ung- verjalandi og Póllandi og hefur möguleika til að komast upp fyrir þessi lönd í dag. Hins vegar virðist forusta Tékka örugg. í sundinu hlaut bandaríska sveitin 3768 stig. Kanada kom næst með 3716 og síðan Póliand með 3544. Tékkar urðu í áttunda sæti með 3400 stig. Auslur-þýzka ein- okunin var rofinl — Þrjór sovézkar stúlkur fyrstar í 200 m bringusundi og þar var sett nýtt heimsmet Eftir þessar fjórar greinar er staða efstu landa þannig. 1. Tékkósióvakía 12145 2. Ungverjaland 11831 3. PóIIand 11758 4. Bandaríkin 11739 5. Bretland 11608 6. Ítalía 11548 Finnar eru í 8. sæti með 11421 stig og Svíar níunda 11394. Einokun austur-þýzku stúlkn- anna í sundkeppninni á Olympíu- leikunum var loks rofin í gær — og það heldur betur, því þrjár sovézkar stúlkur voru í öllum verðlaunasætunum i 200 m bringusundi. Marina Koshevaia, sem er 16 ára, sigraði á nýjum heimsmetstíma, 2:33.35 sek. og kom langfyrst í mark. Þessi úrslit — ekki þó með fyrsta sætið — komu talsvert á óvart og að allar þrjár austur- þýzku stúlkurnar í úrslitunum skyldu verða á eftir þeim sovézku. Aðeins þrjár þjóðir áttu keppend- ur í úrslitasundinu, Sovétríkin, Austur-Þýzkaland og Bretland. Sigurvegarinn, Marina Koshe- vaia, sem hafði sett nýtt olymp- ískt met í undanrásum, synti glæsilega og bætti heimsmetið mjög. Það var 2:34.99 mín. og átti Karla Linke það. Sett á Evrópu- meistaramótinu i Vínarborg fyrir tveimur árum. í gær varð Linke aðeins í fimmta sæti. 1 öðru sæti varð Marina Iruchenia, sem einnig er 16 ára, og hin 22ja ára Rusanova þriðja. En þær réðu ekkert við sigurveg- arann, sem tók forustu í sundinu eftir rúma 100 metra. 1 fyrsta skipti urðu austur-þýzku stúlk- urnar án verðlauna. Carola Nitschke, sem er 14 ára og yngsti keppandi Austur-Þýzkalands á leikunum, var langt frá sínu bezta. Hún á heimsmetið í 100 m bringusundi og átti bezta heims- tímann í 200 m í ár þar til i gær. Hún hafði forustu eftir fyrstu 50 metrana, en síðan tók brezka stúlkan, hin 19 ára Margarethe Kelly, forustuna og hélt henni við næsta snúning, 100 m. En þá kom nýi heimsmethafinn með sinn mikla lokasprett. Heimsmeistar- inn, Hannelore Anke var sjöunda á síðasta snúning, en tókst að vinna sig upp í fjórða sæti og ógnaði sovézku stúlkunni i þriðja sætinu þá. Urslit urðu þessi: 1. M. Koshevaia, Sovét 2:33.35 2. M. Iurchenia, Sovét 2:36.08 3. L. Rusanova, Sovét 2:36.22 4. H. Anke, A-Þýzkal. 2:36.49 5. M. Linke, A-Þýzkal. 2:36.97 6. C. Nitschke, A-Þvzkal. 2:38.27 7. M. Kelly, Bretlandi 2:38.37 8. D. Rudd, Bretlandi 2:39.01 1 einstaklingskeppni i fimmtar- þrautinni náði Tékkinn Jan Bartu forustu eftir sundkeppn- ina, en Pavel Lednev, Sovétríkj- unum, sem haft hefur forustu frá upphafi féll niður í annað sætið. Staðan er þessi. 1. Jan Bartu, Tékk. 4304 2. P. Lednev, Sovét, 4242 3. D. Masala, ftaliu, 4232 4. J. Fitzgerald, USA, 4220 5. Peciak, Póliand, 4202 6. J. Steffensen, Danm. 4068 Hélt upp rítugs- afmœlið með sigri! — Pólverjisigurvegariílyftingum Zbigniew Kaczmarek, Póllandi, hélt upp á þritugsafmæli sitt í gær með því að vinna gullverð- laun á Olympíuieikunum. Það var í léttvigt i lyftingum — og hann setti nýtt olympískt met. Lyfti 307.5 kílóum samtals. Pólverjinn sýndi mikla hæfni eftir slæma byrjun. Honum mis- tókst í fvrstu tilraun við 130 kg í snörun, en tókst að snara þessum þunga í næstu tilraun. í þeirri þriðju snaraði hann 135 kg og var þá jafn Pyotr Korol, Sovétríkjun- um, og Daniel Senet, Frakklandi. 1 jafnhöttun skiptust menn á um forustuna nokkrum sinnum, en aðalkeppnin var þó milli Kaczmarek og Korol. En mögu- leikar þess sovézka á gullinu fóru. þegar honum mistókst að jafnhatta 170 kg sem hann byrjaði á. Pólverjinn byrjaði hins vegar á 167.5 kg og fór létt með það. Korol tókst að jafnhatta þessa þyngd í annarri tilraun, en hafði eytt þýðingarmikilli tilraun. Þegar svo Pólverjinn jafnhattaði 172.5 kg Karol revndi við mistókst. Pólverjinn var þar með orðinn meistari — og átti eina tilraun eftir. Honum mistókst þá við 175 kg. Urslit urðu þessi: 1. Z. Kaczmarek, Póll. 307.5 2. P. Korol, Sovét 305.0 3. D. Senet, Frakkl. 300.0 4. K. Czarnecki, Póll. 295.0 5. G. Ambrass, A-Þýzkal. 295.0 6. Y. Shimaya, Japan 292.5 7. R. Urrutia, Kúbu 292.5 8. W. Schraut, V-Þýzkal. 290.0 9. R. Chavigny, Frakkl. 285.0 10. K. Welch, Bretlandi 282.5 999

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.