Dagblaðið - 31.07.1976, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. — LAUGARDAGUR 31. JULÍ 1976
7
Já, sumir getq
ekki veitt sér mikið
— þetta órið
Það voru fleiri en verkamenn-
irnir um áttrætt sem við höfð-
um viðtal við, sem geta ekki
veitt sér mikið þegar búið er að
borga skattana, nema þeim tak
ist að auka tekjur sínar að mun.
Við litum aðeins í skatt-
skrána i Reykjavík, sem er hin
fróðlegasta lesning, sem fiestir
ættu að líta í. Hér á eftir fer
listi um ýmsa menn í ýmsum
stöðum í þjóðfélaginu. Þeir
hafa dálítið mishá laun, eins og
sjá má, en reikna má þau út frá
því að útsvarið er 11%.
—EVI/A.Bj./KL.
Nafn 1. Guðjón Styrkársson Tekjusk. Eignask. Skyldu sp. (Jtsvar Barna- bætur Samt.
hæstaréttarlögm 2. Aðalheiður Bjarnad. 0 0 63.500 93.750 + 30.250
verkakona, 72 ára 3. Júníus Einarsson 41.803 0 0 61.700 0 103.503
verkam. um áttrætt 4. Guðjón Brynjólfss. 88.617 0 0 88.600 0 177.217
verkam. um áttr 5. Guðjón B. Ólafsson 101.373 7.799 0 92.200 0 201.372
framkvæmdastjóri 6. Ellert Schram 240.834 79.577 0 156.200 262.500 214.111
alþingismaður 7. Bergur Guðnason 236.471 0 0 188.300 206.250 218.521
hæstaréttarlögm 8. Páll Björnsson 137.450 2.327 5.000 242.800 150.000 237.577
verkam. um áttr 9. Björn Vilmundars. 133.855 0 0 147.400 0 281.255
forstjóri 10. Kristinn Finnbogas. .0 0 48.000 311.100 37.500 321.600
framkvæmdastj 11. Baldvin Jónsson 245.520 90.667 0 196.100 206.250 326.037
hæstaréttarlögm 12. Sigurður Söbeck 147.550 42.965 0 147.600 0 338.115
kaupmaður 13. Sigurður Pálsson 328.825 5.853 0 190.900 93.750 431.828
bvggingarmeist 14. Halldór Sigfússon 327.492 77.850 10.000 218.100 0 633.442
skattstjóri 15. Ólafur Jóhannesson 452.348 118.786 0 166.000 0 737.134
sjóm. aðstoðarm. í vél 16. Þórarinn Sigþórsson 406.353 0 39.000 295.700 0 741.053
tannlæknir 564.943 0 40.000 246.700 0 851.643
ÞETTA BORGA RÁÐHERRARNIR
Ráðherrar þeir, sem í Reykjavík búa, hafa samkvæmt skattskránni eftirtalda aðalskatta:
Tekjusk. Eignask. (Jtsvar Samtals
Einar Agústsson.................................. 829.906,00 49.399,00 466.100.00 1.345.405
Geir Haligrímsson ............................. 1.241.421,00 276.709,00 478.000-00 1.996.130
Gunnar Thoroddsen............................... 692.748.00 50.065.00 348.900.00 1.091.713
Olafur Jóhannesson.............................. 843.319.00 63.428.00 348.500.00 1.255.247
Nýir hœstaréttarlögmenn
Þrír héraðsdómslögmenn hafa
nýlega lokið flutningi prófmála í
Hæstarétti og þannig fullnægt
skilyrðum laga til þess að mega
sjálfir taka aðsérmálflutningþar.
Ilinir nýju hæstaréttarlögmenn
eru allir stúdentar úr Verzlunar-
skóla íslands og eru einu lög-
mennirnir, sem hafa öðlazt þessi
réttindi frá því sl. haust. Stutt
ágrip af menntun og starfi
þeirra fer hér á eftir.
Óttar Yngvason varð stúdent
frá Verzlunarskóla islands 1959,
Ollar Yngvason.
cand. jur. frá Háskóla Islands
1966 og héraðsdómslögmaður
1967. Hann hefur lengst af síðan
rekið málflutningsstofu í Reykja-
vík auk fjölda annarra starfa sem
hann hefur gegnt. Má þar til
nefna forstjórastarf Ferðaskrif-
stofu ríkisins, formennsku í
Stúdentafél. jafnaðarmanna. For-
maður Varðbergs var Öttar
1966—67, í stjórn Golfklúbbs
Reykjavíkur og einn fremsti golf-
leikari landsins um langt skeið,
golfmeistari islands 1962. Hann
Grétar Haraldsson.
sat um skeið í Ferðamálaráði, var
formaður Neytendasamtakanna, í
stjórn íþróttabandalags Reykja-
víkur, svo nokkuð sé nefnt.
Ottar fæddist í Reykjavík 5.
marz 1939, en foreldrar hans eru
þau Yngvi Jóhannesson forstjóri,
og Guðrún Jónsdóttir Bermann.
Kona Öttars er Elín Birna
Daníelsdóttir bónda á Fróðastöð-
um í Hvítársíðu,- Brandssonar.
Grétar Haraldsson varð
stúdent frá Verzlunarskóla
íslands 1955, grand, jur, frá
Háskóla islands 1960 og héraðs-
dómslögmaður 1962. Hann var
Helgi V. Jónsson.
„Það er
svívirðilegt
hvernig farið er
með fullorðna
fólkið
## — segir Hjördís
Antonsdóttir
„Það er ekkert eins svívirði-
legt eins og það hvernig farið er
með eldra fólkið,“ segir Hjördls
Antonsdóttir þung á brúnina,
þar sem við hittum hana hjá
starfsstúlknafélaginu Sókn.
Hún vinnur í heimilishjálpinni.
Móðir mín, Aðalheiður Bjarna-
dóttir, sem er 72 ára,. hafði 1
tekjur rúm sex hundruð
iþúsund og með ellilaunum
jlosaði þetta rúmJ. 800 þús. kr.
.Skattarnir voru tæpar 114 þús
!kr. Hún vinnur vitanlega, eins
:og sjá má, og er hengt fyrir það.
!Enga íbúð á hún, kom hingað
jþegar byrjaði að gjósa 1 Eyjum.
:Hún leigir sér herbergi hér og
Iþar um hæinn.‘-‘
Hjördls bætir því við að
Félagsmálastofnunin og þá
jafnframt þjóðfélagið í heild
myndi finna fyrir því ef móðir
hennar væri ekki svona dugleg
aðbjargaáer.
Hvað henni sjálfri viðvíkur
þá er maður hennar sjómaður á
Fossunum. „Þetta er I fyrsta
skipti sem hann hefur haft góð-
ar tekjur og ég vinn líka úti,“
segir hún. Tæplega átta
hundruð þús. kr. fengum við I
skatta. „Ég vann mér fyrir 656
þús. kr,. svo að það er meira en
það sem ég hafði I kaup yfir
árið. Þess fyrir utan,“ segir
Hjördís og er mikið niðri fyrir,
„borgum við 39 þús. kr. í
skyldusparnað.“
Þau athugðu hvernig á þessu
stæði. Allt var rétt og satt. Þau
höfðu engan frádrátt og
skulduðu svo sem ekkert. Ekki
nema 1.2. milljónir I íbúðinni
sinni.
Húsbóndinn hefur 121 þús
kr. í fast á mánuði og á að borga
128 þús kr. mánaðarlega næstu
fimm mánuði, 1 skattinn. Hann
'Hjördisi Antonsdóttur finnst
lítið til koma hvernig kerfið fer
með eldra fóikið, sem enn ei
að vinna fyrir sér, því sé bara
hegnt fyrir dugnaðinn.
DB-mynd Bjarnleifur.
er á sjónum oft 17 daga í einu
og lengur. Þá er stoppað í tvo
sólarhringa. Annan sólarhring-
inn er hann á vakt, hinn í fríi.
Allt það sumarfrí sem hann tók
var rúmlega tvær vikur til þess
að geta losað sig út úr því sem
þurfti að borga. „Nú er ekki um
annað að ræða en að elta skottið
á sjálfum sér og byrja hringrás-
ina sem aldrei er hægt að
komast út úr.“ sagði Hjördís.
—EVI
fulltrúi hjá borgardómaranum í
Reykjavík, en síðan um skeið full-
trúi hjá Friðriki Guðjónssyni út-
gerðarmanni. Hann hefur nú um
Iangt árabil rekið málflutnings-
stofu og útgerð ásamt fasteigna-
sölu.
Grétar fæddist I Reykjavík 6.
marz 1935, en foreldrar hans eru
þau Haraldur Guðmundsson fast-
eignasali, og Þórunn Marta
Tómasdóttir. Kona Grétars er
Svana Kjartansdóttir.
Helgi V. Jónsson varð stúdent
frá Verzlunarskóla islands 1955,
cand, jur, frá Háskóla Islands
Skatta-
kóngurinn
í Reykjanes-
umdœmi
Þau stóru mistök urðu i
blaðinu í gær að röng mynd
birtist, átti að vera af skatta-
kóngi Reykjanesumdæmis,
Grétari Sveinssyni. Þar birtist
mynd af Grétari H. Garðars-
s.vni. sem re.vndar er einnig
Hafnfirðingur cins og nafni
hans. en öllu la*gri i skatt-
skránni.
Við birtum hér réttu
myndina af rétta manninttm.
Grétari Sveinssyni og biðjttm
alla aðila málsins afsökunar á
þessari fá 'ánlégu myndbirtingu
1960 og héraðsdómslögmaður
1961. Helgi starfaði hjá endur-
skoðunarskrifstofu Kolbeins
Jóhannsson & Co. um skeið, en
1963 varð hann skrifstofustjóri
borgarverkfræðings. Hann varð
síðan yfirendurskoðandi Reykja-
víkurborgar en rekur nú mál-
flutningsstofu i Reykjavík.
Helgi fæddist í Reykjavík 3.
maí 1936. Foreldrar hans eru Jón
Helgason stórkaupmaður, og
Hanna Alvilda Helgason. Kona
hans er Ingibjörg Jóhannsdóttir,
Gunnars framkvæmdastjóra )
Reykjavík Stefánssonar.