Dagblaðið - 31.07.1976, Qupperneq 13
— D.U'C.AKDACUR :tl. JULl 1976
Börnin hafa ekki
irerið hamingjusöm
vona brosmild á
Þótt Charlie Chaplin hafi
fengið þrjár kynslóðir
til þess að veltast um af hlátri
hefur honum ekki tekizt að
kenna börnum sínum leyndar-
dóminn við að höndla lífsham-
ingjuna
Sjálfur er hann fjórkvæntur.
Síðasta og núverandi kona hans
er Oona og hafa þau eignazt níu
börn saman.
Það hefur gengið á ýmsu
með hjónabönd barna hans.
Dóttir hans, Josefína, 27
ára, er að skilja Við mann
sinn, 38 ára gamlan grískan
milljónamæring, Nieholas
Sistovaris. Hún hitti hann
fyrst þegar hún var aðeins
tólf ára gömul, en varð
ekki ástfangin af honum fyrr
en löngu seinna. Þau giftu sig i
kyrrþey árið 1969 og eiga son-
inn Charlie, sem hejtir í
höfuðið áafasinum.
Victoria, 25 ára, stakk af með
franska leikaranum Jean-
Baptiste Thierry þvert á
móti vilja föður síns. Fjórum
mánuðum seinna eignuðust þau
dótturina Aureliu og þá fyrir-
gaf Chaplin dóttur sinni.
Michael, sonur Chaplins,
stakk einnig af frá föður sínum
fyrir tólf árum og kvæntist leik-
konunni Patrice Johns sem var
sex árum eldri en hann. Þau
eignuðust saman tvö börn en
skildu árið 1969. Michael er
núna kvæntur svartri stúlku,
Patricia Beauduviðr.
Geraldine, dóttirin sem orðin
er 32 ára, hagar sér heldur ekki
samkvæmt óskum föður síns.
Hún býr með hinum 44 ára
spánska kvikmyndaleikstjóra
Carlos Saura, sem enn er
kvæntur annarri konu. Þau
eiga saman eitt barn.
Paul
Newman í
hlutverki
Hversu margar kvikmyndir
sk.vldu hafa verið framleiddar
um þjóðsagnapersónuna
William F. Cody, sem betur er
þekktur sem Buffalo Bill? Það
er erfitt að segja um, en svo
mikið er víst, að enn er verið
að. Sú nýjasta er á leiðinni og
það er enginn annar en Paul
Newman sem leikur þar hinn
þekkta veiðimann. Heiti
myndarinnar er „Buffalo Bill
og Indíánarnir".
Stjórnandi kvikmyndarinn-
ar, Robert Altmann, er viss um
að megnið af þeim sögum sem
um Buffalo Bill ganga eru upp-
spuni. ,.Eg reyni að halda mig
sem næst sannleikanum,“ segir
hann. Mótleikari Newmans í
þessari mynd er Geraldine
Chaplin, sem fer með hlutverk
Annie Oakley.
mmmemsm
■
RBBHHHH
f Ég skipti ekki
ágóðanum af þessu
asvintýri með neinum.
En ekki áður
en þú ert
dauðurl Það
hefurðu fyrir^
mótþróa við
handtöku.