Dagblaðið - 31.07.1976, Side 24
[ Krgfin: Borqnir án árangurs) Vjf{ri|J|l
í febrúar draumórar?
frjáJst, úháð dagblað
' AyGARDAGUR31. JÚLfl976
Borun fjóröu holunnar viö
Kröflu er nú lokið og hefur enn
ekki komið í ljós nýtanleg gufa,
en aö sögn Rögnvaldar Finn-
bogason hjá Jarðborunum á aö
ljúka við aö fóðra hana á næst-
unni. Er það gert til að koma í
veg fyrir að hún hrynji saman.
Sagði Rögnvaldur að smáæðar
niður holuna hefðu fyllzt á
meðan á borun stóð og gerði
hann sér vonir um að einhver
virkjanleg gufa kynni að vera
þarna. Kvaðst hann sannfærður
um að nýtanleg gufa væri á
Kröflusvæðinu. Eins og stend-
ur er verið að hitamæla holuna
til að ganga úr skugga um gufu.
Borað hefur verið niður á 200
metra dýpi og verður ekki farið
dýpra.
„Gufa ætti að vera komin í
ljós ef hún leynist i þessari
holu,“ sagði Þorleifur Einars-
son jarðfræðingur. Hann benti
á að fóðrunin og það að holunni
væri leyft að blása breyttu
engu með það. Sagði Þorleifur
að það tíðkaðist um allan heim
að holur væru látnar blása um
eitt ár áður en farið væri að
nýta þær. Er þetta gert til að
ganga úr skugga um hvort um
varanlega gufu sé að ræða.
Rögnvaldur telur hins vegar
að slíkt eigi ekki að þurfa að
seinka framkvæmdum, það taki
aðeins stuttan tíma fyrir
holuna að jafna sig.
Gífurlega mikið virðist liggja
á því að hefja virkjun og er
reiknað með að báðar vélasam-
stæðurnar verði komnar i gang
um áramótin, hvernig sem allri
gufu líður.
Þurfa 5—6
virkar holur
Gufu þarf úr 5—6 fullvirkum
holum til að unnt sé að keyra
báðar vélasamstæðurnar. í dag
lítur hins vegar heldur illa út
með að takist að fá þær holur
innan 5—6 mánaða.
Þær þrjár holur sem boraðar
voru í fyrra reyndust ónot-
hæfar. Sérfræðingum hefur
ekki tekizt að útskýra hvað olli
því að þær skemmdust. Nú
reynist fjórða holan vera orku-
snauð eða orkulítil.
Bor númer tvö hefur nú
verið fenginn til að þrautreyna
það hvort ekki sé hægt að ná
upp gufu.
Þorleifur Einarsson benti á
að þessar misheppnuðu boranir
hækkuðu gífurlega kostnaðinn
við Kröflumannvirkin. Hver
hola kostaði um það bil 75 millj-
ónir. Myndi kostnaðaráætlun
sem er upp á tæpa 8 milljarða
verða orðin alltof lág.
Fjárhœttuspil
Þorleifur sagði að glapræði
hefði verið að fara út i fram-
kvæmdir áður en séð var hvort
gufa væri fyrir hendi. Þetta
væru þveröfug vinnubrögð
miðað við það sem tíðkaðist al-
mennt.
Allt útlit væri einnig fyrir
því að tímasetning Kröflu
myndi ekki standast. Og þar
mætti ekki gleyma jarðhrær-
ingunum, sem verið hafa á
Kröílusvæðinu og eru enn.
Kröflusvœði rís
— hœttumerki
Þorieifur sagði að það væri
skoðun margra jarðfræðinga að
eitthvað væri á seyði þegar
land sem sigið hefði tæki að
rísa á nýjan leik. í jarðhræring-
um í vetur bólgnaði Kröflu-
svæðið fyrir gos og seig síðan
um VA metra, en nú hefur það
risið um 75 sentimetra.
Þá munu kippirnir vera að
aukast og hættan virðist alls
ekki um garð gengin. Benti
Þorleifur á það að svo virtist
sem viðvaranir jarðfræðinga
hefðu engin áhrif.
Óðagot
Þorleifur sagði að þurft hefði
2ja ára rannsóknir áður en
unnt væri að segja hvort þarna
væri hagkvæmt að virkja. Hér
hefði hins vegar verið farið
öfugt að hlutunum. Byrjað
hefði verið á því að kaupa véla-
-samstæður, stöðvarhús og
turnar verið reistir. Og enn
væri ekki vitað hvort virkjan-
lega gufu væri að finna. —BA
Fer fjölgandi á
Keflavíkurvelli?:
„Það getur
verið nokkrum
hermönnum
fleira"
— segír í
tilkynningu f rá
utanríkisráðuneytinu
Frá því í aprilbyrjun í fyrra
hefur islenzkum starfsmönnum á
Keflavíkurflugvelli fjölgað ,um
249. í fréttatilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu segir að þeir
hafi verið 694 hinn 1. apríl 1975
en 942 1. júlí 1976. Mismunurinn
er áðurnefnd tala 249. Hvort í
þeirri tölu sé eitthvað um sumar-
fólk er leysi fastráðna af í sumar-
leyfum segir ekkert. 1 til-
kynningunni er því statt og
stöðugt haldið fram að Islend-
ingar hafi verið ráðnir í 249 ný
störf.
Tafla fylgir um breytinguna á
áðurnefndu tímatali. Af henni
kemur í ljós að verkamönnum
hefur fjölgað mest eða um 83 á
tímabilinu,. Næsthæst í fjölgun-
inni er skrifstofu- og verzlunar-
fólk. Því hefur fjölgað um 51
síðan 1. apríl 1975. Iðnaðar-
mönnum hefur fjölgað um 38 til
1. júli sl. miðað við 1. apríl í fyrra
og í slökkviliðinu hefur fjölgað
um 20 á sama tíma og um sömu
aukningu er að ræða í Navy
Exchange og meðal ferðaskrif-
stofufólks (Af hvaða ástæðum
sem þeir hópar eru samanteknir í
fréttatilkynningunni).
I tilkynningunni segir og: „Auk
þess sem föstum starfsmönnum
■ varnarliðsins sjálfs hefur fjölgað
verulega fara einnig fram mjög
auknar framkvæmdir á vegum
þess samkvæmt samkomulaginu
(frá 22. okt,1974). Þannig hefur
starfsmönnum tslenzkraaðalverk-
taka, sem annast nýbyggingar
fjiilgað úr 249 í 610 á umræddu
tímabili eða aukning um 361.“
Fullyrl er i fréttatilkynningu
utanrikisráðuneytisins að her-
miinnutn á vi'llinum fari
fiekkandi. Tekið er þö fram að
mannaskipti fari fram yfirsumar-
mánuðina og er sagt m.a. að
meðan á skiptunum slandi geti
verið „nokkrum liermöntmm
fleira á eiiislaka vinnustiiðum
varnarliösins.”
— ASl.
Kapparnir tveir sem réðust í að kaupa stórskemmt farartæki í miðri á.
GJÖREYÐILAGÐIST VIÐ BJÖRGUNARTIL
RAUNIR TRAKTORSGRÖFU
Jepparæksni hefur nú litið
dagsins ljós eftir að hafa marað í
kafi i 15 daga. Ekki má þó skilja
þetta sem svo að jeppinn hafi
verið svona illa útlítandi fyrir
,,sundið.“ Svo illa tókst til við
björgunartilraunir að þetta
verður ekki bíll á nýjan leik.
Fólkið sem í bifreiðinni var
yfirgaf hana í miðri Jökulgils-
kvislinni 13. júlí. Síðar frétti það
að gerðar hefðu verið björgunar-
tilraunir með traktorsgröfu, sem
það bað um.
Það var svo ekki fyrr en á mið-
vikudaginn að tókst að ná
bílnum og kom þá fyrst í ljós
hversu gjöreyðilagður hann var.
Björgunarsveitin Ingólfur í
Reykjavík gerði varnargarð fyrir
ofan jeppann og breytti þannig .
rennsli árinnar. Rann aðalvatns-
flaumurinn framhjá. Að loknum
5 tíma greftri með litlu ýtublaði var
hægt að strengja víra i jeppann en
hann mun ekki að sjá á
götum bæjarins 1 framtíðinni.
Tveir menn skelltu sér í það að
kaupa hann meðan jeppinn var
enn í ánni. Kaupverð var 10
þúsund krónur og mun láta nærri
að þeir fái dekkin fyrir þetta.
Þetta sýnir vel hversu varlega
verður að fara í björgunarað-
gerðum. —BA
Rannsókn
Grjotjötuns-
mólsins ö
lokastigi
„Við höfðum ástæðu til að
athuga málið og aðstöðu til að afla
nauðsynlegra upplýsinga,"
svaraði Björn Tryggvason
aðstoðarseðlabankastjóri
spurningu DB um hver hefði
verið kveikja rannsóknarinnar á
kaupum Sandskips h.f. á sand-
dæluskipinu Grjótjötni til
landsins.
„Þegar frumathugun
Seðlabankans var lokið sendum
við með bréfi ríkissaksóknara
ítarlegar upplýsingar um málið
28. maí og þaðan fór það rakleiðis
í Sakadóm,“ sagði Björn enn
fremur. „Rannsókn þar er nú um
það bil að ljúka, að ég held, og
slðan fer það aftur til saksóknara,
sem tekur ákvörðun um ákæru og
málshöfðun."
Eins og fram hefur komið hafa
tveir menn, hæstaréttarlög-
mennirnir Knútur Brunn og
Þorfinnur Egilsson, sem
önnuðust skipakaupin fyrir hönd
og með fullu umboði stjórnar
Sandskips hf. játað að hafa gefið
upp falskt kaupverð á Grjótjötni,
2.8 milljónir norskra króna i stað
2.4, og fengið þannig aukna gjald-
eyrisyfirfærslu. Sú spurning
hefur vaknað hvort Sandskip hf„
sem keypti Grjótjötun til landsins
haustið 1974, hafi einnig verið að
tryggja sér aukna lánafyrir-
greiðslu með því að gefa upp
falskt verð. Helgi Bergs banka-
stjóri Landsbankans hefur í
viðtali við Vísi neitað því að svo
hafi verið. DB tókst ekki að ná í
Helga í gær til að spyrjast fyrir
um hvort einstakir hluthafar —
eða jafnvel aðrir hlutaðeigandi —
hafi þá fengið lán til kaupanna.
Þessum spurningum hefur síðan •
tengzt nafn Kristins Finnboga-
sonar, varaformanns bankaráðs
Landsbankans, sem kom verulega
nálægt rekstri Grjótjötuns og kom
með skipinu til landsins er það
var keypt frá Noregi. Sagt var
ítarlega frá þvi 1 grein í blaðinu
11. maí sl.
Blaðið reyndi árangurslaust I
gær að ná í Einar Olgeirsson
formann bankaráðs Lands-
bankans og Kristin Finnbogason
til að spyrja þá hvort bankaráðið
hygðist ræða málið eða taka af-
stöðu til þess.
Sakadómsrannsóknin á Grjót-
jötunsmálinu er í höndum Erlu
Jónsdóttur fulltrúa sakadómara
en tilraunir til að ná tali af henni
í gær voru árangurslausar.
—ÓV
RAFMAGN FRA SIG-
ÖLDU INÓVEMBER
Guðbrandsson,
herrar mínir,
- yfirlýsing frá Björgun hf. vegna Grjótjötunsmálsins
Allt útlit er nú fyrir að raf-
magn frá Sigöldu komi á mark-
aðinn í nóvember eins og síð-
ustu áætlanir gerðu ráð fyrir. I
Sigöldu vinna nú um 600 menn
á vegum júgóslavnesku verk-
takanna og um 100 að auki við
niðursetningu véla og við eftir-
lit.
llalldór Júliusson verksljóri
tjáði DB í simtali að við störf
væri nú einvalalið starfsmanna.
Færi það oft svo við stórverk
sem í Sigöldu að góður kjarni
starfsmanna ynni þar lengst.
Verst væri að þegar þessi
kjarni starfsmanna hefði náð
verulegri samhæfingu, yrði
verkið því miður búið. Lítil sem
engin vetrarvinna verður við
Sigöldu, að minnsta kosti miðað
við það sem verið hefur.
—ASt
Blaðinu barst í gær
svohljóðandi yfirlýsing frá
Björgun hf., en það á og rekur
m.a. sanddæluskipin Sandey I og
Sandey II:
„Að gefnu tilefni viljum .við
undirstrika. að Grjótjötunsævin-
týrið svonefnda er okkur með öllu
óviðkomandi. Við höfurn hvorki
átt aðild að né nein samskipti við
fvrirtækin Sandskip h/f eða
Námuna h/f. Þvert á móti var
yfirlýstur tilgangur þeirra. sem
að þessum fyrirtækjum standa, að
keppa við okkur, og hefði sannar-
lega verið ánægjulegt. ef þeir
hefðu getað aflað byggingarefnis
á sambærilegu verði við það, sem
við höfunt selt okkar efni á.
Þá viljum við taka fram. að
nafn framkvæmdastjóra okkar er
Kristinn Guðbrandsson, og að
sjálfsögðu hefur hann hvergi
komið na'rri framangreindu
a'vintýri.
Björgun h/f”