Dagblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 1976 i Þessi úrklippa er úr bandarísku dagblaði sem gefið er út í Louisville, Kentucky. Sendandinn er Karen Lehman og segir hún greinina hafa vakið gífurlega’ athygli þar meðal lesenda. í .greininni er skýrt frá nafnareglum íslendinga þ.e. að nota föðurnafn með son/dóttir bættu aftan við. Sem kunnugt er tíðkast þetta ekki annars staðar í heiminum og þykir mörgum útlendingum þetta furðulegt fyrirbæri. Einkenni- legast þykir þó flesturn að konur skuli halda sinu 'eigin föðurnafni við giftingu og að allir skuli ávarpaðir með fornafni, meira að segja forsætisráðherrann og biskupinn! Við þökkum Karen kærlega fyrir þessa grein og vonum að þessi „einkennilegi“ siður geri Island enn forvitnilegra í augum útlendinga. All lcekinders areona first-name basis Name a country where people don’t use last names. Give up? The telephone directory in Iceland lists everybody by his/her first name. People at work are called by their first names (even teachers!) and office doors and mailboxes are marked with first names. Here’s how it works. Suppose Olaf has a son Magnus. Magnus is called Magnus Olafson. If Magnus has a son Eric, he is called Eric Magnusson. People use their own first name plus their father’s name with “son” or “dottir” at the end. So, in Iceland, your name might be Susan Fredsdottir or Kevin Mikeson. When women marry, they keep their own names. Children whose fathers died before the children wére born take the mother’s name, such as Eric Heleason. Back to the phoné hook 7~7im now. To find a friend’s //*y number, you need to know your friend’s first name, the name of his/her father and your friend’s occupation. Nobody uses the title Mr. except the prime minister and the bishop, but even they use their first names after the title. Imagine, Mr. Gerald, instead of President Ford! One more thing, if you become a citizen of Iceland, you must take an Icelandic name that sounds like your real name. And of course, you must add your father’s name plus son or dottir as your new first name. Rdi ar« lcelond s major industry. 1 Heybindivélar eru dýr tæki en mestur kostnaður við notkun þeirra liggur þó í heybindigarni, sem þykir mjög dýrt. Heybindingar orðinn gífurlega stór kostnað- arliður í búrekstri sinn vitjun artíma — almenningur rís brótt upp gegn lofsöng kaupmanna Ungur bóndi skrifar: Nú fer í hönd sá árstími sem við bændur förum að huga að ýmsu sem snertir heyöflun. Með alls konar nútíma heyskaparaðferðum hafa skotið upp kollinum hinir ýmsu kostnaðarliðir sem áður voru óþekktir og sem snerta mjög fjárhagsafkomu bænda. T.d. er þar að nefna heybindingu með vélum sem aukizt hefur I ríkum mæli síðustu ár. Vélar þær sem notaðar eru til þessa eru vissuiega dýrar en endingu þeirra er hægt að auka með góðri meðferð og eftirliti. Slíkt er hverjum eiganda og notanda skylt. Öðru máli gegnir með garnið sem notað er til að binda heyið með. Ég tala hér af reynslu og verð að segja að mér finnst sá kostnaðarliður orðinn ískyggi- lega hár. Ekki veit ég hvort búnaðaryfirvöld hafa látið fara fram nokkra könnun á því hvort verðlag á þessari vöru er í nokkru samræmi við fram- leiðslukostnað — en hér mun vera að allmestu leyti um innlenda framleiðslu að ræða — eða hvort kannað hefur verið hvort hægt væri að fá garnið ódýrara, innflutt. Gæti ekki t.d. verið hagstætt að heildarsamtök bænda beittu sér fyrir innflutningi þessum, ef hagkvæmari reyndist? Eða þá að beita sér fyrir því að bændur fengju garnið beint frá verksmiðju innanlands á heild- v söluverði? Þetta er hér með fengið þessum ágætu mönnum til athugunar. DB kom þessari fyrirspurn á framfæri við Magnús Gústafs- son forstjóra Hampiðjunnar og hafði hann eftirfarandi um málið að segja: Verð á heybindigarni verður að teljast frekar hagstætt t ár, þar sem kílóið hefur aðeins hækkað um kr. 10 síðan í fyrra og er núna 360 kr. kílóið. Eitthvað er einnig flutt inn af garninu og hefur verð þess í sumar verið eitthvað lægra en á því innlenda. Við höfum ekki uppi nein áform um breytingar á dreifikerfinu innanlands. Tel.ia nienn lika að þetta form tryggi bezta þjónustu við bændur. Ekki hel' ég trú á ööru en dreifingar- aðilar. sem eru kaupfélög. verkstæði og önnur þjónustu- fyrirtæki, væru til með að slá af álagningu garnsins ef bændur tækju sig saman og keyptu mikið magn í einu. Til þessa hefur ekki komið enn, en ef slíkt kemur upp verður það að sjálfsögðu tekið til athugunar. íþróttir hér óður fyrr ó þjóðhótíð í Eyjum — engin aðstaða á Breiðabakka nú Óskar Óskarsson skrifar: I Dggblaðinu þann 12. ágúst sl. birtist grein sem hét „Þjóðhátíðin svipur hjá sjón.“ Ég ieyfi mér að gera athuga- semd við þessa grein. Það er alls ekki rétt að íþróttir á þjóðhátíð hafi aðeins verið stundaðar hér fyrir 15-20 árum. Þær voru og eru enn stundaðar, aðeins með öðru sniði. Allt fram að gosi var keppt í 100 metra hlaupi 400 metra hlaupi og langstökki ásamt fleiri íþróttagreinum. Eftir að þjóðhátíðin var færð suður á Breiðabakka varð breyting á, þar er ekki aðstaða til þess að keppa en til þess þarf hlaupabraut og fl. Þa.r var nú samt sem áður víðavangshlaup og lyftingamót sem tókst mjög vel. Þetta hefur greinarhöfundur ekki séð einhverra hlutá vegna. Ef þú, Þórarinn M. Friðjónsson, hefur verið á þjóðhátið 1956 og svo ekki aftur fyrr en 1976 þá finnst mér. ekkert skrýtið þótt þér ofbjóði dýrtíðin. Þessi mynd er tekin á síð'ustu þjóðhátið i Eyjum. Þar hefur margt bre.vtzt eftlr gos, m.a. er ekki aðstaða til keppni í íþróttum nú. Allir íslendingar eru nefndir með fornaf ni Úrklippa úr bandarísku dagblaði Að þekkja ll

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.