Dagblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 7
DAÍiBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. AGUST 1976 7 Snemma í morgun var Gerald Ford forseti Bandaríkjanna útnefndur forsetaefni Repúblikanaflokksins. Erlendar fréttir REUTER Flokksþing repúblikana íKansas City: Ford útnefndur í fyrstu umferð — tilkynnir um varaforsetaefni sitt íkvöld Atökin hafa verið hörð milli þeirra Reagans og Fords, eins og þessi skopteikning sýnir, og var mjótt á mununum á fiokksþinginu í nótt, svo og í allri forkosningabaráttunni. Gerald Ford Bandáríkjaforseti, sem tók við embætti fyrir tveimur árum, eftir að Watergate- hneykslið hafði flæmt Riehard Nixon úr Hvíta húsinu, var í morgun valinn frambjóðandi Repúblikanaflokksins í forseta- kosningunum í haust. Ford, sem er 63 ára, vann útnefninguna í fyrstu umferð at kvæðagreiðslunnar, en þá hafði hann trýggt sér fylgi kjörmanna frá Vestur-Virginíu, tuttugu talsing. Þegar stuðningur þeirra var fenginn hafði hann fengið fleiri atkvæði én þau 1130, sem nauðsynleg voru til að tryggja út- nefninguna. Ford mun bíða þár til síðar í dag eða á morgun til að tílkynna hvern hann hefur valið sem vara- forsetaefni sitt, en mjög vafasamt er talið að það verði Ronald Reagan, helzti keppinautur hans um útnefninguna. Þegar atkvæði voru talin eftir fyrstu umferðina hafði Ford stuðning 1135 kjörmanna, en Reagan 1052. Mikið fjör hefur verið á flokks- þinginu og þegar Ford var lýstur sigurvegari ætlaði allt að ganga af göflunum í þingsalnum í Kansas City í Missouri. Stuðningsmenn Fords stóðu upp á stólum, bekkjum og borðum, veifuðu borðum, spjöldum og hrossa- brestum og hrópuðu hvatn- ingarorð eins og þeir ættu lífið að leysa. Eftir þetta flokksþing liggur kosningabaráttan niðri stutta stund, en síðan verður þeim att saman, Ford og Jimmy Carter, frambjóðanda Demókrataflokks- ins. Lockheed-hneykslið í Hollandi: Hitnar undir Bernharði Nýr jarðskjálfti á Filippseyjum: Tala látinna 5000 Nýr jarðskjálfti várð á sunnan- verðum Filippseyjum í gærdag, en samkvæmt fyrstu fréttum virðast ekki hafa orðið miklar nýjar skemmdir af völdum hans. Að sögn visindamanna virðist jarðskjálftinn hafa átt upptök sín á nákvæmlega sama stað og sá, er olli flóðbylgjunni miklu á þriðju- dag, en í henni létu a.m.k. 4000 manns lífið og 90 þúsund misstu heimili sín. Svo virtist ennfremur sem jarð- skjálftinn i gær hefði verið mun minni að styrkleika, en vísinda- menn og yfirvöld á eyjunum vildu ekki tjá sig um tjón, sem kynni að hafa orðið af völdum hans, fyrr en allar skýrslur lægju fyrir. Björgunarsveitir hafa nú leitað í rústunum, sem jarðskjálftarnir og flóðbylgjan skildu eftir og enn er ekki vitað hversu margir hafa látið lífið. Hefur talan 5000 verið nefnd. — fréttamyrkvi skollinn á Hollenzka stjórnin hefur endurvakið gamla þagnarreglu til að koma í veg fyrir nokkurn fréttaflutning af opinberri rannsókn á því hvort Bernharð prins, eiginmaður Hollands- drottningar, hafi þegið miklar mútur frá bandarisku Lock- heed-flugvélaverksmiðjunum. Haft er eftir áreiðanlegum heimildum í Haag, að Joop de Uyl forsætisráðherra hafi i gær átt fund með Júlíönu drottningu til að ræða rann- sóknina, sem snýst um hvort Bernharð prins hafi þegið 1.1 milljón dali frá Lockheed til að flýta fyrir sölu á Lockheed- flugvélum. Stjórnin greip til þess ráðs í gær að vísa til óskráðra hollenzkra laga um að viðræður leiðtoga stjórnar og ríkis eigi að vera levnileeur Þwrkamir íCngbndi: „Astandið hörmulegt — seair landbúnaðarráðherrann. Breskir ráðherrar kvaddir heim úr sumarleyfum vegna ástandsins Brezkir ráðherrar munu verða að gera hlé á sumarleyfi sínu til þess að koma saman á fund í næstu viku, þar sem hinir miklu þurrkar, er herja lahdið, verða ræddir. Er þetta gert vegna þess að mörgTyrirtæki sem nota mikið vatn við framleiðslu sína, hafa tilkynnt að þau verði að stytta vinnuvikuna til muna vegna þurrkanna og vatns- skömmtunar sem komið hefur verið á. Þá hafa bændur, sem ekki sjá fyrir endann á þeim hörmungum, sem yfir þá dynja, hvatt landbúnaðarráðherrann, Fred Peart, til að gangast fyrir greiðslu bóta þeim til handa. -Peart, sem verið hefur á ferðalagi um verstu þurrka- svæðin. Suður-Wales, Austur- Anglíu og allan vesturhluta landsins, hefur sagt uppskeru- horfur hörmulegar. Flestar gróðurtegundir hafa orðið fyrir skakkaföllum, en þó hafa sykurrófur og kartöflur orðið harðast úti. Hvernig ráðizt verður gegn vandanum mun koma fram á fundinum í næstu viku en auk Peart verða iðnaðarráðhera og atvinnumálaráðherra viðstadd- S-Afríka: Átta blökkumem myrtirínátt Átta blakkir Afríkumenn voru skotnir til bana og tuttugu særðir í óeirðum, sem urðu meðal blökkumanna í borginni Port Elizabeth á Indlandshafsströnd Suður-Afriku i nótt. Talsmaður lögreglunnar sagði sfiemma í morgum að lögreglu- mönnum hefði reynzt nauðs.vniegt að skjóta nokkrum sinum í gærkvöld og I nótt. Hópar blökkumanna, allt að þúsund í hverjum. fóru um borgarhverfi sitt í Port Elizabeth, kveiktu i byggingum og rændu verzlanir. Að minnsta kosti átta byggingar, flestar í eigu hins opinbera, voru brenndar til ösku. Lögreglan álítur að tjónið nenii um 130 milljónum króna.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.