Dagblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ KIMMTUDAGUR 19. AGUST 1976 Þróttur beið ósigur fyrir varaliði UBK! — Aðeins þrír af fastamönnum UBK gegn Þrótti en samt sigur Kópavogsliðsins 2-1 í 1. deild íslandsmótsins íknattspyrnu Þróttur sér nú ekki fram á neitt annað en neðsta sæti 1. deildar eftir tajj gegn 2. flokks liði Breiðahliks í gærkvöld, 1-2. Já, Þróttur gat ekki einu sinni sigrað 2. flokk Breiðabliks, aðeins þrír af fastamönnum Breiðabliks léku með. Þegar svo er, þá á lið ekkert annað skilið en neðsta sætið — ekki sást örla á áhuga né baráttu. Furðulegt af liði, sem berst fyrir veru sinni í 1. deild. Já, útlitið er dökkt hjá Þrótti — liðið á aðeins tvo leiki eftir í deiidinni gegn Vikingi og Val. Tæplega fá Þróttarar stig úr þeim viðureignum og tæplega sigra Þróttarar Þór frá Akureyri í leik um 10. sætið að ári í 1. deild. Allt spil er sást í leiknum átti Breiðablik og vissulega er fiam- tíðin björt hjá Blikunum því margir hinna ungu pilta, er komu inn í liðið lofa góðu. Þróttur hins vegar hafði ekkert fram að færa — ekki einu sinni baráttu. Fyrsta mark leiksins kom á 28. mínútu. Hinrik Þórhallsson brauzt upp vinstri kantinn og gaf góða sendingu á Ævar Erlendsson, sem skoraði úr víta- teignum, 1-0. Fátt markvert gerðist það sem eftir var hálfleiksins en í leikhléi stóð 0-1. Blikarnir bættu við öðru marki sinu á 22. mínútu síðari hálfleiks. Hroðaleg varnarmistök Þróttarvarnarinnar stuðluðu mest að markinu. Hár bolti barst yfir vörn Þróttar og Ævar Er- lendsson renndi knettinum til Hinriks. Hann átti ekki í vand- ræðum með að renna knettinum í markið, 2-0. Nokkur rangstöðu- lykt var af markinu en dómari leiksins, Guðjón Finnbogason, sá ekkert athugavert og dæmdi mark. Þrótti tókst að minnka muninn í 1-2 á 31. minútu þegar Leifur Harðarson átti þrumuskot af 25 metra færi, er fór yfir Ölaf Hákonarson og í þaknetið, F-2. Fallegt skot hjá Leifi en vissulega á markvöður að ráða við slíkt skot. Flestir bjuggust við að leik- menn Þróttar reyndu að rífa sig upp en það tókst ekki — Breiða- blik átti aldrei í erfiðleikum með að halda forskoti sinu. Framlína Þróttar var næsta bit- laus og tengiliðir óvirkir. Annars er það áberandí hvað leikmenn Þróttar virðast daufir, rétt eins og vonleysi hafi gripið um sig meðal þeirra. Liðinu hefur vissulega gengið illa í sumar — enn er ekki öll nótt úti. Þrátt fyrir að liðið hafni i neðsta sæti 1. deildar, en nokkuð ljóst er að svo verður, þá eru aukaleikir við Þór frá Akur- eyri og fæ ég ekki séð hvernig þeir standast Akureyringum snúning nema leikmenn Þróttar rífi sig upp. Þór hefur einmitt á að skipa harðsnúnu liði, baráttu- liði. Breiðablik hlaut sitt 16. stig í gærkvöld — í síðustu sjö leikjum liðsins hefur aðeins einn tapazt, en það var fyrir íslandsmeistur- um ÍA. Greinilegt var, að leik- menn Breiðabliks voru að búa sig undir bikarleikinn gegn KR, sem fram fer á mánudag. En þrátt fyrir að aðeins þrír fajtamenn í liði Breiðabliks lékju, þá kom það berlega i ljós að Breiðablik hefur á að skipa nógum mannskap — mönnum, sem á komandi árum munu skipa Breiðabliki á bekk beztu knattspyrnuliða tslands. Leikinn dæmdi Guðjón Finn- bogason og gerði hann hlutverki sínu sæmileg skil. h halls. Celtic ekki í vandrteðum — en Rangers gerði jafntefli við Hibernian í Edinborg Celtie sigraði Dumbarton örugglega í gærkvöld í skozka deildabikarnum og hefur Celtic- þar með unnið tvo fyrstu leiki sína i deildabikarnum en á laugardag sigraði Celtic Dundee United 1-0. Sigur Stockton Dave Stockton sigraði í gær í PGA mótinu í Bandaríkjunum en það er eitt fjögurra stærstu golfmóta í heimi. Keppnin var ge.vsilega hörð þó ef til vill hafi ekki verið leikið golf eins og það gerist bezt í heiminum, eins og BBC orðaði það. Það var ekki fyrr en á síðustu holunni að Stockton tókst að kný ja fram sigur sinn þegar hann ..púttáði" 18. holuna mjög vel og gleði hans var mikil, en þetta var annar sigur Stockton i þessu fræga móti. sigraði áður 1970. ,Jack Nicklaus, sem á sunnudag sýnir golf hjá Golfklúbbi Ness hafði fprystu á síðasta degi en missti 2 högg og þar með fór draumurinn. Januar.v tók forystuna af Nicklaus á 6. holu og hélt henni lil 10., en þá tók Stockton forystúna og hélt henni út. Sigurinn i gærkvöld var öruggur en ekki vitum við hverjir skoruðu mörk Celtic í gærkvöld. Rangers, helzti keppinautur Celtic í Skotlandi fór til Edinborgar í gærkvöld og lék við Hibernian. Jafntefli varð 1-1. Annars urðu helztu úrslit í Skot- landi: Arbroath-Dundee Utd. 1-3 Dundee—Motherwell 2-1 Kilmarnock—Ayr . 2-0 Partick—Hearts 0-2 St. Mirrén—Aberdeen 2-3 Á Englandi fór einnig fram fjöldi leikja í deildabikarnum en þar er keppnin þegar frá upphafi með útsláttarfyrirkomulagi — í 1. umferð er leikið heima og að heiman og samanlögð úrslit gilda. Urslit á Englandi en í sviga setjum við samanlögð úrslit: Blackburn -Rochdale 4-1 (5-1) Darlington-Halifax 1-1 (1-1) Exeter-Plvmouth 1-0 (2-0) Gillingham-Aldershot 2-0 (3-1). Hereford-Chester 4-3 (4-5) Hartlepþol-IIuddersfield 1-2 (1-4) Lincoln-Donc aster 1-1 (2-2) Nortliámpton-Swindon 2-0 (4-3) Peterbro-Reading 0-1 (3-3) Sheff. Wed.-Gnmsby 0-0 (3-0 ) Stockport-Workingt. 0-0 (0-0) Tranmerer-Crewe 3-1 (4-3) Walsall-Shrewsbury 1-0 (2-0) Wrexham-Port Vale 1-0 (2-1) 'Southampton og Liverpool léku síðastliðinn laugardag á Wembley. Hér sést Paul Gilchrist skalla frá og Jimmy Steele stekkur upp með honum. Kevin Keegan fylgist með — og fjær er Peter Osgood. Ýmis óvænt úrslit eins og alltaf hafa komið fram en þó vekur sigur 4. deildarliðs Exeter gegn 2. deildarliði Plymoúth athygli. Bæði liðin eru frá borgum í s- vestur Englandi. Eins kemur á óvart sigur Chester gegn sigurvegaranum úr 3. deild á síðastliðnu vori, Hereford. mil Fram, yfir Albert Gu VALUV — Tekst Valsmönnun kl. 19 eða heldur Fra Hvort verður það Valur eða Fram? Þeirri stóru spurningu verður svarað í kvöld þegar liðin leika á Laugar- dalsieikvanginum. Valur stendur betur að vígi — hefur hiotið stigi meir en nágrannarnir úr austur- bænum. Hitt er jafnvíst að Fram gefur ekkert eftir — það verður hart barizt í kvöld. Fram leikur hins vegar yfirvegaðri knattspyrnu. Liðið er .kipað traustum einstaklingum, sem með leikreynslu sinni og ákveðni hafa unnið marga leiki. Fram byrjaði illa, tapaði tveim af fjórum fyrstu leikjum sínum í 1. deild — siðan hefur Fram ekki litið til baka. Sigrað í hverjum leiknum á fætur öðrum. Valur byrjaði með glæsibrag — slíkum glæsibrag að áhorfendur flykktust að til að sjá leiki þeirra. Hins vegar hefur nokkuð dregið af þeim í síðari hluta íslandsmótsins og munar þar mestu að nokkrir leik- menn, sem byrjuðu ákaflega vel, hafa ekki náð að sýna sömu leikina upp á síðkastið. Langt er nú um liðið síðan Valur varð íslandsmeistari eða 1967 — þá eftir aukaleik um íslandsbikarinn við Ekki vi Nokkur blaðaskrif hafa spunnizt vegna drengjamóts í knattspyrnu, sem haldið var hér í sumar, og þeirrar fréttar að Færeyingar hafi ekki verið samþ.vkktir sem þátttak- endur. Þar sem verulegs ntisskilnings gætir í sambandi við hlut KSÍ (Knatt- spyrnusambands íslands) í þessu máli, vill stjórn sambandsins koma eftirfarandi á framfæri: 1. Á árinu 1974 ákváðu knatt- spyrnusamband Danmerkur, Finn- lands, Noregs, Svíþjóðar og tslands að efna til árlegs móts fyrir drengi 14—16 ára með þátttöku ofantaldra þjóða og þelrrar sjöttu til viðbótar utan Norðurlanda. Þegar ákveðið var að mótið skyldi haldið á íslandi í ár, hafði stjórn KSÍ hug á að bjóða Færeyingum til mótsins i stað þjóðar utan Norður- landa. Það var hins vegar ekki is- lendinga einna að ákveða þátttakend- ur og því var hugsanleg þátttaka Fær- eyinga borin undir aðra fram- væmdaradila mótsins. Kom þá i ljós að þessu frumkvæði KSÍ var ekki vel tekið og þátttöku Færeyinga hafnað, einkum af eftirtöldum ástæðum: í fyrsta lagi þar sem skandinavísku þjóðirnar töldu það einn stærsta kost slíkrar keppni, að etja kapp við sterkar knattspyrnuþjóðir á megin- landinu. í öðru lagi vegna þess að

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.