Dagblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 19.08.1976, Blaðsíða 6
t) DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. ÁGUST 1976 Þannig hugsar teiknarinn sér að framtíðarverkefni Marsáætlunar- innar muni líta út. Fremst á myndinni er Marsbíll og sams konar vagn fjærst á myndinni. Yfir sveimar geimskip, sem hefur það hlutverk að flytja grjót og önnur efni til jarðar, en ferjan þar á milii er að hefja sig á loft fyrir miðri myndinni. Víkingur II. lendiráMars 3. september: Lendir í Útópíu Bandaríska Marsfarið Víkingur II. mun að líkindum lenda á sléttunni Útópíu á norðurhluta stjörnunnar um miðnætti 3. september, að sögn vísindamanna í Pasadena í Kaliforníu í gær. James Martin, yfirmaður Víkingsáætlunarinnar, sagði í gær að hætt hefði verið við tvo aðra lendingarstaði. Hann viðurkenndi, að verið væri að taka áhættu með því að lenda á Utópíu, sem er hrjóstrugt og illa kortlagt, en ástæðan væri sú, að þar væru meiri möguleikar á því að finna vatn en annars staðar á plánetunni. Víkingur II, sem lenda mun á sama hátt og Víkingur I., fór á sporbraut umhverfis Mars 7. ágúst og hefur síðan sent til baka myndir af mögulegum lendingarstöðum. Martin gat þess í samtali við fréttamann Reuters í gær, að vísindamenn hefðu aðeins tak- markaðar upplýsingar um útlit og lögun siéttunnar Útópíu, sem er 1.527.352 ferkílómetrar. Ekki er hægt að nota radar við lendinguna, eins og gert var þegar Víkingur I. lenti, vegna þess hve norðarlega Útópía er. Sjálfvirka rannsóknarstofan um borð í Víkingi I. heldur áfram leit sinni að merkjum úm lífræn efnasambönd í þeim yfirborðssýnum. ■ sem tekin hafa verið á Mars. BIAÐW ÞORSHOFN VANTAR UMBOÐSMANN Á ÞÓRSHÖFN UPPLÝSINGARÁ AFGREIÐSLUNNISÍMI27022 Sendill d vélhjóli óskast hálfan eða allan daginn frá nœstu mánaðamótum. Hafið samband við BIADIÐ Þverholti 2 — Sími 27022 Sfúlka óskast strax V við blaða- og bókadreifingu. Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir f östudagskvöld merkt „ÚTGÁFA" Var Meinhof nauðgað áður en hón var myrt? — sœðisblettir og áverkar á líkinu benda tilþess Pðir hafa getaö ímyndaA sór Ulrike Meinhof sem heimakœra húsmóAur en þaö var hún nú samt og atti tvo oorn. tviburana Reginu og Bettinu. Hún var gift blaAamanninum Klaus Röhl, sem lýsti henni eftir fyrstu kynni þeirra sem „mjög alvarlegri 24 éra gamalli stúlku, alinni upp í strangri trú". Tíu árum síAar yfirgaf Ulrike mann sinn og börn og varA skœruliAi. Alþjóðleg nefnd, undir forsæti v-þýzka rithöfundarins Gerhard Zwerenz, mun nú ræða öll möguleg sönnunargögn þess að skæruliðaforingjanum Ulrike Meinhof hafi verið nauðgað skömmu áður eða um leið og hún var myrt. Að sögn Zwerenz mun nefndin koma saman í næstu viku. í nefndinni munu eiga sæti læknisfræðilegir sér- fræðingar, lögfræðingar og rithöfundar frá Italíu, Bretlandi og Vestur- Þýzkalandi. Meinhof, sem var 41 árs, fannst látin í klefa sínum í fangelsi í Stuttgart I byrjun maí í vor. Hafði hún þá verið í fangelsi í fjögur ár og marg- sinnis verið stödd hin langdregnu réttarhöld, sem þar fara fram yfir skæruliða- hópnum, sem kenndur er við hana og Andreas Baader. Tvær krufningar voru gerðar í líki Meinhof eftir lát hennar, en vegna þess hversu læknana tvo grejndi mikið á, hefur ekki verið unnt að kveða niður þann orðróm, að Meirihof hafi verið myrt. Dr. Werner Janssen, sem framkvæmdi seinni lík- skoðunina, að beiðni systur Ulrike, segir nú að ljóst sé, að Ulrike hafi annað hvort verið beitt valdi áður en hún lézt eða þá, að hún hafi slasað sig við sjálfsmorðið. Hins vegar telur hann líklegt, að henni hafi verið nauðgað, vegna þess að á líkinu fundust sæðisdropar, og munnvatn, sem venjulega er samfara hengingu, fannst ekki á fötum þeim sem líkið var klætt. Bendir það til, að hún hafi verið færð í þau föt, eftir að hún hafi verið myrt. Eins höfðu neglur hennar verið klipptar upp í kviku, sem eindregið bendir til þess, að reynt hafi verið að eyða sönnunargögnum. ENN MILLIVONAR OG OTTA Enn óttast visindftmenn, aö eldfjalliA Soufriere á Guadeloupe kunni aö springja í loft upp meA krafti margra atómsprengja. Tugir þusunda íbúa höfuAborgarinnar Basre Terrr hafa veriA fluttir á brott, enda er borgin í hlíAum fjallsins. EdlfjalliA Soufriere, sem hefur ekki veriA taliA virkt i fjölda ára. hof skyi. lega aö gjosa samfara öflugum jaröskjálfta. eu hraunrennsli hefur ekki veriÖ mikiA. Á myndinni sóst eldfjalliö og öskuregniö, en staöscminoi ryjarinnar má sjn á litla kortinu til hægri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.