Dagblaðið - 19.08.1976, Síða 9
9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 19. AGUST 1976
—
/ \
Stjórnar-
formaður
Laxór-
virkjunar:
-*
Laxá verður virkjuð
f rekar í framtíðinni
— Viðhorfin munu breytast og orkuþörfin vaxa
„Þaö eru engin ný söguleg
sannindi að viðhorf manna
breytist, ekki bara hér, heldur
um allan heim. Fyrir nökkrum
árum var t.d. talið sjálfsagt að
virkjun fallvatna gengi fyrir
öðrum sjónarmiðum, sem síðan
breyttist þannig að náttúru-
verndarsjónarmið hafa verið
látin ganga fyrir virkjunar-
sjónarmiðum í sumum tilvik-
um.' Þó býst ég fastlega við að
þegar frá líður komist menn
niður á fæturna i þessum
málum, menn muni í vaxandi
mæli sjá þarfirnar fyrir
nýtingu náttúruauðæfa og
finna einhvern meðalveg milli
nýtingar- og náttúruverndar-
sjónarmiða,“ sagði Valur Arn-
þórsson, stjórnarformaður Lax-
árvirkjunar í viðtali við DB í
gær.
Tilefni viðtalsins við Val var,
að í útvarpsþætti fyrir skömmu
sagðist hann þess fullviss að
Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu
yrði virkjuð frekar í fram-
tíðinni, nýir menn og ný
Á þessari mynd sjást nokkrar stúlknanna sem ritað hafa
menntamáiaráðherra bréf. en myndina tók Bjarnleifur í gær-
morgun er stúikurnar komu með bréfið upp á ritstjórn DB.
Á að svikja 30
stúlkur með
nœga einkunn
um skólavisi?
Erfitt að komast til náms í hjúkrun, þar sem
mikill skortur er á f ólki
„Við erum að vonum mjög
sárar yfir þessum viðbrögðum
sem við fáum frá skólastjórn
Hjúkrunarskólans. Við vonum
bara að ráðherra taki athuga-
semdir okkar til greina og geri
eitthvað í málinu." Það er Ragn-
heiður Ragnarsdóttir sem þessi
orð mælir, en hún ásamt bekkjar-
systrum sínum úr 6. bekk Lindar-
götuskólans og fleiri stallsystrum,
hefur sent menntamálaráðherra,
Vilhjálmi Hjálmarssyni, bréf
vegna svika, sem þær telja sig
hafa orðið fyrir af hálfu Hjúkr-
unarskólans.
Inntak bréfsins er á þessa leið:
„Þrátt f.vrir að við undirritaðar
höfum lokið tilskildu námi og
einkunn, sem krafizt er til inn-
töku í Hjúkrunarskóla íslands,
hefur okkur verið synjað um inn-
göngu i skólann á þeim forsend-
um að ekki sé nægilegt kennara-
lið fyrir hendi. Leitum vér því
aðstoðar menntayfirvalda.
Eftir að hafa fengið synjun
fvrir ári síðan, er við höfðum
lokið 5. bekkjarnámi, var okkur
heitið skólavist að ári, ef við
héldum áfram og næðum
einkunninni 6.50 úr 6. bekk. Þetta
tókst hjá okkur og lögðum við enn
á ný inn umsókn, sem aftur var
hafnað.
Við höfum lagt í mikinn
kostnað og bætt heilu ári við
okkur í námi til þess eins að
komast í skólann, en erum síðan
sviknar. Hvað eigum við að gera?
Halda áfram i 7. bekk til þess eins
að fá aðra synjun?
Því skorum við á yður mennta-.
málaráðherra að ráða þegar í stað
bót á þessum vanda, sem tryggi
okkur örugga leið inn í Hjúkr-
unarskólann."
Undir þetta bréf rita 17 stúlkur
og höfðu þær reynt að ná sam-
bandi við ráðherra og biðja um
viðtal. Hann var ekki í bænum á
þeim tíma sem til hans var leitað,
en brá skjótt við er hann frétti af
málinu og hafði samband við
stúlkurnar. Mun hann hafa gefið
þeim loforð um nánari athugun á
málinu og hyggjast þær heim-
sækja hann í ráðuneytið við
fyrsta tækifæri.
Þess má geta að 30 stúlkur eru
á biðlista um nám í Hjúkrunar-
skólanum i vetur, en ekki eru
likur á að nein þeirra komist að.
Sá biðlisti sem nú er til staðar
fyrir veturinn. mun ekki ganga
beint til næsta árs, heldur fellur
hann niður þegar skólinn hefur
verið fullskipaður og verður nýr
listi gerður f.vrir næstu innritun
JB
viðhorf ættu eftir að koma
fram. Valur var að því spurður
hvort hann ætti við einhverja
sérstaka menn í þessu tilviki og
sagði hann það siður en svo
vera, þessi orð sín væru al-
menns eðlis og t.d. benti hann
ekki á neina tímasetningu
varðandi hugsanlegt áframhald
virkjunar í Laxá.
Hins vegar kæmi fyrr eða
síðar að þeirri spurningu hvort
láta ætti einstök fallvötn óvirkj-
uð vegna hagsmuna tiltölulega
fárra manna, eða hvort þau
yrðu virkjuð í þágu þjóðar-
heildarinnar. Sjálfur liti hann
svo á að í framtíðinni yrði að
nýta allar auðlindir landsins.
Að mati Vals hafa náttúru-
verndarhugsjónir hérlendis
gengið út í öfgar í sumum til-
vikum og taldi hann það
hugsanlega stafa af harkaleg-
um aðgerðum náttúruverndar-
manna erlendis, sem væru að
berjast við margfalt meiri
mengun og náttúruspillingu en
um er að ræða hérlendis.
Séð eftir dalverpinu sem færi i kaf ef efri stiflan væri hækkuð
um 20 metra. Neðar er gijúfur er einnig færi í kaf. Einkum er
það hraun sem myndi ienda undir vatni lítið af ræktanlegu landi
og nær ekkert óræktað. Nánar til tekið myndi lónið ná upp að
brúnni sem liggur heim að veiðiheimili Ármanna og bæja þar
ofar, en neðan þeirrar brúar er engin byggð. DB-mynd Friðgeir
Axfjörð.
Varðandi Laxárvirkjun sagði
nann að lengi hafi verið uppi
sterkar raddir meðal margra
Þingeyinga að virkja Laxá eitt-
hvað frekar og það væri regin
misskilningur að líta svo á að
frekari virkjun væri eitthvert
einkamál Akureyringa. Á
Akureyri og í Þingeyjarsýslu
væru hópar sem vildu frekari
virkjun, en á báðum stöðum
væru einnig hópar, sem legðust
gegn því.
Loks sagði hann að frekari
virkjun Laxár væri Norðlend-
ingum ekkert heilagt mál, ekki
skipti máli hvaðan nægileg og
trygg orka fengist á hagkvæmu
verði.
— G.S.
OTRULEGA
HAGST
V
SOGAVÍGI 188 - SÍMI 37210