Dagblaðið - 19.08.1976, Side 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDACIUH 19. AGÚST 1976
n að tryggjaséríslandsmeistaratitilinníkvöld
m möguleika sínu ó íslandsmeistaratitli opnum
Fram á Lausardalsleikvanginum.
Nú standa liðin í svipuðum sporum —
enn berjast þessi gamalgrónu lið um
íslandsbikarinn.
En lítum á stöðuna fyrir leik Fram
■og Vals í kvöld:
Valur 14 9 4 1 42-13 22
Fram 14 9 3 2 26-15 21
Akranes 14 7 4 3 22-17 18
Breiðablik 14 7 2 5 18-18 16
Víkingur 13 6 2 5 17-17 14
Keflavík 14 5 2 7 19-21 12
KR 14 3 5 6 20-21 11
FH 13 1 4 8 8-26 6
Þróttur 14 1 2 11 10-34 4
Spurningin í kvöld er ef til vill
öðru fremur. Hvernig tekst hinni
marksæknu framlínu Vals gegn
sterkri vörn Fram? Nýlega léku liðin
i bikarnum — Valur sigraði 2-1.
Ingi Björn Albertsson öðrum fremur
sá um sigur Vals — hann skoraði
bæði mörk liðs síns. En hann naut
líka aðstoðar félaga sinna úr fram-
línunni, þeirra Hermanns Gunn-
arssonar og Guðmundar Þor-
björnssonar. Guðmundur átti mjög
góða sendingu á Inga sem komst í
gegn og skoraði fyrra mark Vals.
Hermann átti frábæra sendingu á
Inga og aftur komst Ingi í gegn, en
var þá brugðið og vítaspyrna dæmd,
en úr henni skoraði Ingi.
Vörn Fram hefur undanfarin ár
verið hin sterkasta í 1. deild. Liðið
varð fyrir miklu áfalli þegar það
missti Martein Geirsson í atvinnu-
mennsku til Belgíu. En Sigurbergur
Sigsteinsson hefur komið ágætlega
frá leikjum liðsins og fylit upp í
Marteins.
Kristinn Jörundsson, hinn
marksækni miðherji Fram hefur í
undanförnum leikjum verið
skotskónum fyrir lið sitt og nú hefur
hann skorað 9 mörk. Hvernig tekst
honum upp í kvöld? Tekst honum að
snúa leiknum Fram í vil? Já, það eru
margar spurningar sem verður svar-
að í kvöld.
Valsmenn hafa hafið áheitaher-
ferð. Það er, mönnum gefst kostur á
að heita á Val, vinni liðið íslands-
mótið i ár. Tekið verður á móti
áheitum í bíl við inngang Laugardals-
leikvangs frá kl. 18 í kvöld.
Valur i kvöld þa geta menn greitt
áheitið í bílnum eftir leikinn, annars
í heimili Vals við Hlíðarenda.
ð KSÍ að sakast
keppni þessi skyldi haldin gagn-
kvæmt, og talið var útilokað að Fær-
eyjar gætu staðið fyrir svo umfangs-
miklu móti. í þriðja lagi þar sem
Færeyingar væru ekki aðilar að
UEFA .eða FIFA (alþjóðasamtökum
knattspyrnusambanda) og lands-
leikir við þá féngjust ekki viður-
kenndir, en mjög er upp úr því lagt i
slíkum alþjóðakeppnum.
2. Að fengnum þessum við-
brögðum, kom annað tveggja til
greina fyrir KSÍ — að draga okkur út
úr keppninni eða sætta okkur við
þessa afstöðu og lúta þeim reglum,
sem við höfum sjálfir samþykkt um
fyrirkomulag og þátttakendur.
Ef KSI hefði hins vegar hætt við
framkvæmd mótsins og dregið sig út
úr keppninni, hefði það einfaldlega
þýtt það, að keppnin hefði verið háð
annars staðar í ár og framvegis án
okkar þátttöku og Færeyinga. Það var
mat bæði KSÍ og iþróttasambands
Færeyja, að slík ákvörðun þjónaði
hvorki íþróttalegum hagsmunum
islendinga né Færeyinga.
3. Ákvörðunin um nefnt drengja-
mót var tekin á sameiginlegum fundi
fimm norrænna knattspyrnusam-
banda, sem haldinn er árlega. Færey-
ingar hafa ekki átt aðild að því sam-
starfi og aldrei eftir því sótt.
Engu að síður bauð KSÍ fulltrúa
Færeyja til að sitja slikan fund, þegar
hann var haldinn hér á landi í fyrra.
4. Færeyingar hafa sótt um aðild að
Evrópusambandinu (UEFA) og
Alþjóðasambandinu (FIFA) en hafa
enn ekki verið samþykktir. Öþarft
ætti að vera að taka fram, að íslend-
ingar hafa ávallt stutt umsókn
Færeyja og munu gera það áfram.
KSÍ mun hins vegar ekki segja sig úr
þessum samtökum eða hætta við þátt-
töku i alþjóðakeppni í mótmælaskyni
f.h. Færeyinga.
5. Knattspyrnusamband Íslands er
ekki aðeins eina íþróttasambandið
hér á landi, heldur á öllum Norður-
löndum, sem heldur uppi reglulegum
samskiptum við Færeyinga. Nú
nokkur undanfarin ár, hafa verið
leiknir árlega bæði A-landsleikir og
unglingalandsleikir til skiptis í
Færeyjum og á íslandi. Nú hafa
drengjalandsleikir bætzt við.
Það eru örgustu öfugmæli, þegar
því er haldið fram, að KSÍ hafi
Færeyingum tillitsleysi eða lítils-
virðingu. Samskiptin á knattspyrnu-
sviðinu hafa verið mikil og góð, og
það er ekki við KSÍ að sakast ef aðrar
þjóðir vilja ekki taka upp þau
sainskipti.
f.h. stjórnar KSI
Ellert B. Sehram form.
li Fram og Vals. Þá sigraði Valur 2-1 — en þarna gnæfir Asgeir Elíasson, hinn
iðmundsson úr Val. Jón Pétursson fylgist með álengdar. DB-mynd Bjarnleifjir.
Uppgjörið stendur
milli Hauka og ÍR
I— ía-riðli þar sem ÍR mœtir jafntefli. Ólafur Einarsson brákaðist
á hendi á sinni fyrstu œfingu með Víking I
Islandsmótið í handknattleik
utanhúss hélt áfram í gærkvöld
og voru þá leiknir þrír leikir. Það
sem helzt bar tiltíðindavar sigur
2. deildarliðsins Ármanns gegn
Þrótti 22-18 en annars urðu úrálit
eins og búizt var við — Víkingur
sigraði HK og Haukar — Gróttu
21-16.
Snúum okkur að fyrsla leik
kvöldsins, sem var Víkingur —
HK. Austurbæjarliðið sigraði
örugglega 27-16 en þrátt fyrir
ellefu marka sigur þá gekk
Víkingum illa að hrista af Sér 2.
deildarlið Kópavogs framan af.
En hægt og bítandi þó — aldrei
fór á rnilli mála að Íslands-
meistararnir utanhúss voru mun
sterkari. Staðan í hálfleik var 12-7
og í síðari hálfleik jóst munurinn
sífellt.
Viggó Sigurðsson og Þorbergur
Aðalsteinsson voru markhæstir
Víkinga með 8 mörk hvor.
Hins vegar sást Ólafur Einarsson
með hönd i gipsi á mótinu — en
hann hafði þá brákað hægri
höndina á sinni fyrstu æfingu
með sínum nýju félögum í
Víkingi en meiðslin voru ekki al-
varlegri en það að Ölafur losnar
við gipsið eftir 10 daga.
Nú er eins og í fyrri leikjum
HK í mótinu var hinn kornungi
leikmaður HK, Stefán Halldórs-
son, markhæstur, nú skoraði
hann 6 mörk.
Ármann og Þróttur léku að leik
islandsmeistaranna og 2. deildar-
liðsins loknum. Leikurinn var
allan tímann jafn, og sást oft
skemmtilegt spil til liðanna.
Staðan í hálfleik var 11-9,
Ármanni í vil og tókst hinum
ungu leikmönnum Ármanns að
halda forystunni og gott betur,
þegar upp var staðið skildu fjögur
mörk, 22-18.
Friðrik Jóhannsson og Hörður
Harðarsson voru markhæstir
Ármenninga með 5 mörk hvor.
Bjarni Jónsson og Kristján
Friðriksson skoruðu 6 mörk hvor
fyrir Þrótt.
Haukar unnu öruggan sigur á
vængbrotnu liði Gróttu, en þar
vantaði fjórða máttarstólpa frá í
fyrra, en stórleikur Árna
Indriðasonar gat ekki komið í veg
fyrir sigur Hafnarfjarðarliðsins
21-16 eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 13-8 Haukum í vil.
Jón Hauksson skoraði 10 mörk
fyrir Hauka í rigningunni en það
sama gerði Árni Indriðason.fyrir
Gróttu, 10 mörk.
Staðan í a-riðli er nú:
ÍR
Haukar
Víkingur
Grótta
HK
3 3 0 0 60-48 6
3 2 0 1 61-47 4
3 2 0 1 63-54 4
3 1 0 2 48-55 2
4 0 0 4 63-91 0
I b-riðli bítast FH og Valur en
staðan er:
Valur 3 3 0 0 69-38 6
FH 3 3 0 0 79-56 6
Ármann 4 1 1 2 66-84 3
KR 4 0 2 2 79-92 2
Þróttur 4 0 1 3 73-96 1
Markhæsti leikmaður mótsins
er Sigurgeir Marteinsson úr
Haukum með 23 mörk en Stefán
Halldórsson úr HK hefur skorað
22 mörk.
■ '
u'i’ii (riiín l'
Jón KarlsSon hefur verió liði sínu drjúgur. Hér skorar Jón í leik Vals
gegn KR á útimótinu í hanuknattleik. DB-mynd Bjarnleifur.
Oruggur sigur Boit
— Kenyabúinn sem ekki f ékk að keppa í Montreal átti ekki
í vandrœðum með silfurhafann frá Montreal
Mike Boit frá Kenya sigraði
silfurhafann í 800 metra hlaupi
frá Montreal, Ivon Van Damme, á
vegalengdinni í Zurich í gær-
kvöld. Boit átti aldrei í vand-
ræðum með Belgann og sigraði á
ágætum tíma — 1.43.90. Það vakti
ntikla athygli að Boit skuli hafa
tekið þátt í mótinu þar sem Ný-
Sjálendingar tóku einnig þátt —
að vísu ekki í sömu grein.
John Walker sigraði í 1500
metra hlaupinu og var aldrei í
vandræðum með Thomas
Wessinghage, sem reyndi að
komast upp að honum á beinu
brautinni. Tími Walker var
3:37.80.
Diek Quax frá Nýja-Sjálandi I
átti ekki i vandræðum með að
sigra Carlos Lopez frá Portúgal — |
silfurhafann í greininni i
Montreal. Quax fékk tímann
13:24.07 en Lopez 13:25.52.
Hunt varð fjórði í Austurríki
John Watson, 30 ára gamall Iri
sigraði í Grand Prix
kappakstrinum í Zeltweg í
Austurríki og skaut þar með
Bretanum James Hunt aftur f.vrir
sig — en hann hafnaði aðeins í
f jórða sæti.
Þetta var fyrsti sigur VVatson í
Grand Prix keppni en hann ekur
bandarískuni Pcnzka híl. Eftir
sigurinn lofaði Watson að raka
sig — hann hafði heitið að raka
sig ekki f.vrr en sigur i Grand
Prix keppni ynnist.
Nicki Lauda fylgdist með
keppninni úr rúmi sínu i
sjúkrahúsi í sjónvarpi. Hann var
yfir sig ánægður að Hunt skyldi
ekki hafa unnið — heldur enn í
vonina um sigur um
heimsbikarinn.
Þar hefur Lauda 11 stiga
forystu — 58 stig gegn 47 stigum
Ilunt.