Dagblaðið - 23.08.1976, Side 7
DACBLAÐIÐ. MAN’T.'DAGUR 23. AGUST 1976.
7
Erlendar
fréttir
REUTER
Geimför:
Luna 24
komin
frá
tunglinu
með
grjótið?
Ömönnuð sovézk eldflaug er
væntanleg til jarðar í dag með
jarðvegssýni frá tunglinu.
Sovézkar fréttastöðvar hafa
hins vegar ekkert sagt um
málið og ekki er vitað, hvernig
ferð flaugarinnar til jarðar
hefur gengið.
Er flauginni var skotið á loft
frá tunglinu sl. fimmtudag,
tilkynntu sovézk yfirvöld, að
hún mvndi lenda ,,22 ágúst
1976“.
En i gærkvöldi lauk
sjónvarpið útsendingum
sínum án þess að minnast á
eldflaugina og aðrir fjölmiðlar
hafaverið þögulir semgröfin.
Með flauginni tii jarðar eru
jarðvegssýni og grjót, sem
vísindastöð Luna-24 boraði
eftir niður á allt að tveggja
metra dýpi á stað á tunglinu,
sem nefndur hefur verið
Vandræðahaf.
Kórea:
Afsökunarbeiðni N-Kóreu
ekki tekin til greina
— bandarísk herskip og flugvélar inn ílandhelgina
Talsmaður Hvíta hússins
sagði í gær, að þangað hefði
borizt orðsending, þar sem
segir, að Kim Il-Sung foseti
Norður-Kóreu, harmi mjög
dráp tveggja bandarískra liðs-
foringja nú fyrir helgina, en að
kveðjum þessum hafi verið
hafnað af Ford forseta, sem
segir, að hérlið allt verði að
vera áfram t viðbragðsstöðu,
vegna aukinnar spennu í
Kóreu.
Segja talsmenn foretans, að
Kim Il-Sung hafi ekki í bréfi
sínu beðizt afsökunar á
morðum liðsforingjanna, sem
urðu í bardaga vegna þess, að
Bandaríkjamennirnir hugðust
höggva niður tré, sem þeir
sögðu hindra útsýni sitt yfir
einskismannslandið á landa-
mærunum. Segir ennfremur í
bréfinu, að Bandaríkjamenn
hafi oftsinnis áður gert sig seka
um slíkt athæfi áður. Sagði tals-
maður forsetans, að bréfið
sýndi, að Kóreumenn „viður-
kenndu verknaðinn að hluta“,
en ekki væri hægt að taka það
sem fulla afsökunarbeiðni, þar
eð í því séu bornar þungar
sakir á Bandaríkjamenn.
Forseti Suður-Kóreu, Park
Chung-Hee, hefur boðað til
annars fundar í öryggismála-
ráði landsins á tveim dögum,
þar sem hin vaxandi spenna í
landinu er rædd.
Flugmóðurskipið Midway,
sem er 51 þúsund tonn að
stærð, er nú komið inn fyrir
landhelgi Kóreu í fylgd með
eldflaugaskipi og fjórum
smærri freigátum. Að sögn
sjónvarpsstöðvar í Japan mátti
sjá sovézk herskip sigla í hum-
átt á eftir skipunum, þegar þau
fóru fram hjá Japan. Um 40
flugvélar voru tilbúnar til flug-
taks á þilfari flugmóðurskips-
ins.
Enn er ekki vitað, hvert flot-
inn mun stefna, en fylgzt er
náið með aðgerðum hans í aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna,
sem gegnt hafa friðargæzlu-
hlutverki í Kóreu.
Ford forseti hefur áður for-
dæmt morðin, en forsetaefni
demókrata, Jimmy Carter,
sagði í gær, að Bandaríkjamenn
„verða að sýna nógu mikla
hörku, til þess að þetta gerist
hvergi annars staðar í heimin-
um“ og sagði hann atburðinn
vera „augijóslega morð með
köldu blóði“.
Mafían í Bandaríkjunum:
Jimmy Hoffa var kyrktur
— íkjallara íbúðarhúss íDetroit, segir Newsweek
ConnaBy hafnar
kostaboði Fords
Bandaríski verkalýðsleiðtoginn
Jimmy Hoffa, sem saknað hefur
verið í rúmlega eitt át, var kyrkt-
ur og morðið undirbúið af leigu-
morðingjum, að því er bandaríska
fréttaritið Newsweek hefur eftir
rannsóknarlögreglumönnum í
dag.
weresjlMMY HOFFfl
Call (313) 962-7297
Jimmy Hoffa verkalýðsleiðtogi;
Var hann kvrktur?
„Morðið var skipulagt og fram-
kvæmt af utanaðkomandi leigu-
morðingjum,“ segir Newsweek i
grein um málið. Blaðið hefur
einnig eftir háttsettum embættis-
manni í dómsmálaráðuneytinu:
„Það varð ekkert slys í sambandi
við hvarf Hoffa."
„Sambandslögreglan (FBI)
hefur nú upplýsingar um að
honum hafi verið rænt og hann
fluttur í kjallara einkaheimilis ör-
skammt frá veitingahúsinu, þar
sem hann sást síðast á lífi. Þar var
hann kyrktur," segir Newsweek.
Blaðið bætir því við, að rann-
sóknarlögreglan hafi ekki
hugmynd um hvar líkið sé niður-
komið. Segir einnig, að þrír
meintir Mafíubófar frá New
Jersey hafi verið yfirheyrðir af
lögreglunni í Pontiac í Michigan í
fyrravetur, grunaðir um að vera
valdir að hvarfi Hoffa. Þeim var
sleppt án þess að ákæra væri lögð
fram á hendur þeim.
„Við erum engan veginn búnir
að tala við þá pilta,“ hefur blaðið
eftir starfsmanni lögreglunnar.
Fyrrum fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, John Connally,
á að sögn Times að hafa afþakk-
að boð Fords forseta unt að
verða formaður alríkisnefndar
Repúblikanaflokksins.
Að sögn þeirra, er næst
Connally standa, á hann að hafa
sagt, að of seint væri að skipu-
leggja kosningabaráttu
flokksins þannig, að hægt verði
að vinna sigur gegn Jimmy
Carter.
Á Conally, sem eitt sinn var
ríkisstjóri í Texas, að hafa sagt,
.að hann sæi enga möguleika á
því að Ford sigraði Carter og að
hann vildi ekki láta kenna sér
um það eftir á.
Connally með Ford forseta:
„Ég vil ekki taka á mig skellinn
vegna ósigurs forsetans."
Guadeloupe:
AUKIN GOSHÆTTA EFTIR
11MÍNÚTNA SKJÁLFTA
— vaxandi jarðskjúlftatíðni
þykir benda til þess, að
gosið sé skammt undan
Snarpur jarðskjálftakippur,
sem stóð í ellefu minútur, skók
eyna Guadeloupe í Karíbahafi í
gærkvöld. Vísindamenn hafa
varað við þvi, að eldfjallið
Soufriere gæti sprungið á
hverri stundu. Styrk hugsan-
legs goss hefur verið líkt við
nokkrar kjarnorkusprengjur,
eða 30 megatonn.
Frá því á laugardagskvöld og
þar til um hádegi í gter
mældust 122 jarðskjálftakippir
á eynni. Tíðni jarðskjálftanna
fer vaxandi.
Ellefu mínútna skjálftinn í
gær var ltinn harðasti, sem
mælzt hefur síðan 8. júlí. Af og
til í gærdag spýtti eldfjallið frá
sér grjóti og öskuskýjum.
Yfirvöld höfðu þó í hyggju í
morgun að leyfa nokkrum
íbúanna, sem fluttir voru á
brott, að snúa heim í nokkrar
klukkustundir í dag til að
sækja eigur sínar. Rúmlega
sjötíu þúsund manns voru
fluttir á brott frá eynni í
síðustu viku.
Vondu veðri er spáð á eynni
— sem heyrir undir Frakka — í
dag, enda var um tíma í gær
búizt við að hvirfilbvlur færi
þar yfir. Hvirfilbylurinn —
sem kallaður er Emmy —
breytti siðan um stefnu.
Snarpur jarðskjálftakippur varð á Guadaloupe í gær og jók enn á
ótta manna um að Soufriere-eldfjallið kynni að springa í loft upp
innan skamins. Hér ntá sjá Iest herflutningabifreiða flytja fólk frá
heimilum sínum í fjallshlíðinni.