Dagblaðið - 24.08.1976, Qupperneq 12
12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGUST 1976
Tryggir Valur sér
titilinn í kvðld?
Valur leikur í kvöld sinn síðasta
leik í 1. deild — gegn neðsta liðinu í
deildinni, Þrótti. Eins og öllum
knattspyrnuunnendum er sjálfsagt
kunnugt, þá nægir Valsmönnum
sigur í leiknum til þess að hljóta
ísiandsmeistaratitilinn í ár.
Ef tekið er mið af leikjum
sumarsins ætti Valsmönnum ekki
að verða skotaskuld úr því að sigra
hið slaka lið Þróttar. í fyrri umferð
mótsins sigraði Valur 6-0. En hvern-
ig er ekki knattspyrnan — hið ótrú-
lega getur ávallt gerzt.
Þróttur hefur aðeins unnið einn
leik í 1. deild í sumar — gegn FH í
Kaplakrika. Ef liðinu á að takast að
halda sæti sínu í deildinni verða
hinir ungu Þróttarar að hljóta að
minnsta kosti tvö stig úr tveimur
síðustu leikjum sínum í deildinni.
Hvort það tekst er ómögulegt að
segja — en ef marka má leiki liðs-
ins í sumar virðist það liðinu um
megn.
Leikurinn í kvöld hefst kl. 19.
STAÐAN
Staðan í 1. deild eftir lcikina í
gærkvöld: Valur 15 9 5 1 43-14 23
Fram 15 9 4 2 27-16 22
Akranes 15 8 4 3 25-17 20
Breiðablik 15 8 2 5 21-19 18
Víkingur 15 7 2 6 19-21 16
Keflavík 15 6 2 7 20-21 14
KR 15 3 5 7 20-22 11
FH 15 1 4 10 19-31 6
Þróttur 14 1 2 11 10-34 4
Markhæstu leikmenn 1. deildar
eru nú:
Ingi Björn Albertsson Val 13
Guðmundur Þorbjörnsson Val 11
Hermann Gunnarsson Val 11
Hinrik Þórhallsson UBK 10
Kristinn Jörundsson Fram 9
Teitur Þórðarson ÍA 8
Jóhann Torfason KR 7
llla gengur hjá
Bayern
Fæst gengur í haginn fyrir
Bayern Munchen þessa dagana.
Síðastliðinn laugardag mátti
Bayern þola slæmt tap gegn Duis-
burg í Bundeslígunni þýzku, 2-5.
í gærkvöld lék Bayern við FC
Zurich — svissnesku meistarana.
Einungis var um vináttuleik að
ræða. Evrópumeistararnir máttu
þola tap 1-3 eftir að jafnt hafði verið
í hálfleik 1-1. Um 22 þúsund áhorf-
cndur fylgdust með leiknum og sáu
heimamenn taka forystu þegar á 2.
mínútu þegar Botteron skoraði. En
Dúrnberger jafnaði fyrir Bayern á
23. mínútu.
Martinelli skoraði síðan bæði
mörk Zurich í síðari hálfleik og
trvggði liði sínu sigur.
Kópavogsmenn
og Hafnfirð-
ingar í Kerlingar-
fjallaferð
Skíðamenn úr Kópavogi og
Hafnarfirði eru um þessar mundir
að taka fram skíðin sín, þeirra
vertíð á að hefjast snemma að þessu
sinni. Ákveðið hefur verið að fara
hópferð i Kerlingarfjöllin á
fimmtudaginn kemur, og líklega
verða þeir sem þangað fara síðustu
ferðalangarnir í fjöllin þetta
sumarið. Fyrirgreiðslu alla fyrir
þessa hópferð annast ferðaskrif-
stofa Zoega i Hafnarstræti og ættu
þeir sem áhuga liafa að snúa sér
þangað með fvrirspurnir.
— JBP —
Aftur tap
hjá QPR!
— liðið sem haf naði í öðru sœti á Englandi
hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum
QPR — Lundúnaliðið sem á
síðastliðnu vori hafnaði í öðru
sæti ensku 1. deildarinnar hefur
hafið hið nýja keppnistímabil
illa.
Síðastliðinn laugardag lék QPR
við Everton á Loftus Road í
Lundúnum. Þrátt fyrir að leik-
menn QPR væru einum fleiri
lengst af í leiknum urðu leik-
menn Lundúnaliðsins þola stór-
tap, 0—4.
í gærkvöld fór QPR yfir í
austurhluta Lundúna og heim-
sótti West Ham á Upton Park.
West Ham fékk einnig skell á
laugardag — tapaði á Villa Park
fyrir Aston Villa 0—4.
t gærkvöld sigraði West Ham
1—0. Markið skoraði Graham
Paddon á 76. mínútu þegar hann
skoraði af 25 metra færi. BBC
kenndi Phil Parkes, markverði
QPR um markið — sagði að það
hefðu verið mistök Parkes að
verja ekki. Á laugardag urðu
Parkes einnig á mistök þegar
hann á furðulegan hátt missti
knöttinn innfyrir marklínuna.
Annars urðu úrslit í gærkvöld:
West Ham — QPR 1—0
3. deild
Port Vale — Chesterfield 1—1
4. deild
Darlington — Newport 1—0
Rochdale — Cambridge 2—2
Stockport — Brentford 2—0
Á siðasta keppnistímabili unnu
leikmenn QPR hug og hjörtu
knattspyrnuunnenda víðs vegar
um England vegna skemmtilegrar
sóknarknattspyrnu.
Leikmenn eins og Bowles,
Givens, Masson, Francis og
Thomas léku andstæðingana oft
grátt og aðeins á síðasta leik
sínum tókst Liverpool að komast
upp fyrir QPR. Þá lék Liverpool í
Wolverhampton og sigraði þar
3—1. Liverpool fékk því stigi
meir en QPR. En til gamans skul-
um við láta röð efstu liða á Eng-
landi fylgja:
Liverpool 42 23 14 5 66-31 60
QPR 42 24 11 7 67 33 59
ManchUtd. 42 23 10 9 68 42 56
Derby 42 21 11 10 75-58 53
Leeds 42 21 9 12 65-46 51
Ipswich 42 16 14 12 54-48 46
Leicester 42 13 19 10 48-51 46
Manch C 42 17 11 14 64-46 45
Sigur
Anderlecht
Anderlecht — Evrópumeist-
arar bikarhafa — sigraði Nice frá
Frakklandi í úrslitaleik á knatt-
spyrnumóti, sem fram fór í Rabat
í Saudi-Arabiu. Staðan í hálfleik
var 0-0.
Á Spáni — Malaga — sigraði
Toredo frá Moskvu lið Penarol
frá Uruguay 5—0. Staðan í hálf-
leik þar var 3—0.
Hið heimsþekkta lið Penarol
hefur undanfarið ferðazt um
Evrópu en ekki gengið vel í leikj-
um sínum. Liðið lék við Glasgow
Celtic á Parkhead og tapaði þar
fyrir liði Jóhannesar 0—3.
Á laugardag fékk Arsenal Bristol City í heimsókn en tapaði 0:1. Hér
hefur Geoff Merick betur en MacDonald, hinn nýi miðherji Arsenal
frá Newcastle.
Með knöttinn í fanginu — Diðrik Olafsson markvörður Víkings hefur
Pétur Pétursson hinn efnilegi framherji Skagamanna er greinilega
Svo auðvelt
meisturum i
\
— ÍA sigraði Víking 3-0 í 1. deild íslar
íslandsmeistarar Akraness
unnu í gærkvöld^verðskuldaðan
sigur á Viking 3-0 í 1. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu. Þar
með hefndu meistararnir
ósigursins á Skaganum fyrr í
sumar þegar Víkingur sigraði 1-0
— fyrst liða í þrjú ár til að sigra
þar efra.
Það l'ór hins vegar ekkert á
milli mála hvort liðið var sterkara
í gærkvöld — Akurnesingar voru
gæðaflokki betri á öllum sviðum
knattspyrnunnar. Greinilegt er að
Akurnesingar eru nú i mikilli
sókn — og í síðusiu leikjum hafa
Skagamenn sýnt bezta knatt-
sp.vrnu allra liða á íslandi.
Liðið virkar sterkt sem heild —
spil hefur alltaf forgang.
Markvarzlan, scm verið hefur
helzti höfuðverkur liðsins var nú
ólíkt traustari en undanfarið.
Kemur þar til, að Einar Guðleifs-
son kom í markið og að vísu
ógnuðu sóknarmenn Vikings lítið
en Einar verkaði öruggur í öllum
sinum athöfnum.
Nú er Evrópukeppnin
framundan hjá Skagamönnum og
úrslit Bikarkeppni KSl nálgast.
Skagamenn koma því upp
einmitt á réttum tima hvað það
snertir — þó auðvitað íslands-
bikarinn komi til Reykjavíkur.
Mikil skelfing er að sjá til
Víkinga þessa dagana. Allur
kraftur er úr liðinu. Baráttan sem
einkenndi liðið í sumar og færði
liðinu 13 stig í fyrri umferð er
horfin. Enda hefur afrakstur
síðari umferðarinnar í Islands-
mótinu verið rýr — aðeins þrjú
stig í 7 leikjum. Nánast furðulegt
eins og liðið virkaði sterk heild í
fyrri umferðinni.
Nú, ef við snúum okkur að
leiknum í gærkvöld þá fengu
Akurnesingar sannkallaða
óskabyrjun., Þegar á þriðju
mínútu skoraði Jón Gunnlaugs-
son af stuttu færi eftir að Diðrik
Ölafsson markvörður Víkings
hafði beinlínis sofnað í markinu,
Eftir áfallið náðu Víkingar sér
aldrei á strik — baráttan náðist
ekki upp, sóknir voru tilviljunar-
kenndar.
Enda fór svo að Skagamenn
skoruðu sitt annað mark.
Karl Þórðarson fékk knöttinn
úti á hægri vængnum á 30.
mínútu — sendi áfram til Jóns
Alfreðssonar, sem nú er óðast að
komast í sitt gamla form. Jón
sendi knöttinn vel fyrir markið —
Árni Sveinsson stökk upp
óhindraður og skallaði knöttinn í
netið. — Vikingsvörnin víðs
fjarri. Já, það var svo auðvelt.
Staðan í leikhléi var þvi 2-0
Skagamönnum í vil. Síðari
hálfleikur var hinum fyrri lítið
frábrugðinn nema Víkingar
reyndu aðeins að spyrna á móti —
en sú mótspyrna var fál'mkennd.
Skagamenn bættu sínu þriðia