Dagblaðið - 14.10.1976, Page 1

Dagblaðið - 14.10.1976, Page 1
t í V \ 2. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 14. OKTÖBER 1976 —230. TBL. BITSTJÓRN'SÍÐUMÚI^A 12, SÍMl 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2. SÍMI 27022 II MINI ## TOLVURISTAÐ RIKISEINOKUNAR er vilji sérfrœðingo í tölvuvísindum, en tala fyrir doufum eyrum Margar opinberar stofnanir íhuga nú kaup á eigin tölvum af minni gerð en þeim, sem Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkurborgar hafa til umráða. Vegagerð ríkisins, Háskóli Islands og Póstur og sími, vegna fjarskiptastöðvar- innar í Gufunesi, eru meðal þeirra stofnana, sem nú hafa ákveðið kaup á slíkum tölvum og rekstur þeirra. Dagblaðinu er kunnugt um, að forstöðumenn fleiri stofn- ana, svo sem sjúkrahúsa ríkis og Reykjavíkur, hafa í samráði við kunnáttumenn, leitað eftir heimildum til slíkra tölvu- kaupa. Er það mat sérfróðra manna, að hina öra þróun í gerð svokallaðra ,,mini“-tölva, hafi að ýmsu leyti farið fram hjá forráðamönnum ríkis- og borgarstofnana. * Sé rekstur þeirra nú orðinn svo miklu hagkvæmari en hinna stóru tölva Skýrsluvéla, að löngu sé orðið tímabært að gefa þeim, gaum. „Þróunin í smátölvum hefur orðið svo ör, að það er að verða alveg úrelt þjónusta að safna saman verkefnum í stórar tölv- ur, eins og t.d. hjá Skýrsluvél- um ríkisins," sagði Helgi Sig- valdason, verkfræðingur, í við- tali vió Dagblaðið. „Með hliðsjón af svokölluð- um „mini“-tölvum, er nú svo komið, að einokunarstefna' Skýrsluvéla ríkisins og Reykjavíkurborgar, er í beinni andstöðu við tækniþróun nú- timans," sagði Elías Davíðsson, tölvusérfræðingur Borgar- spítalans í viðtali við DB. „Af prinsípástæðum treysti ég mér ekki til að segja um, hvernig þjónustuaðili Skýrslu- vélar hafa reynzt," sagði Klemenz Tryggvason, hag- stofustjóri. Hann kvað engar breytingar vera fyrirhugaðar á samskiptum Skýrsluvéla og Hagstofunnar. A næstu vikum og mánuðum má telja víst að þær ákvarð- anir verði teknar sem marki tímamót í þróun tölvuþjónustu hérlendis og verður reynt að fylgjast með henni. —BS Frá talningu atkvæða í Dómkirkjusókninni í morgun. Frá vinstri: Baldur Möller ráðuneytisstjóri, Þorleifur Pálsson ráðuneytisstarfsmaöur, Jón Tómasson, fulltrúi sr. Hjalta, sr. Hjalti Guðmundsson, sr. Hannes Guðmundsson, Þór Magnússon formaður sóknarnefndar, herra Sigurbjörn Einarsson biskup og sr. Jón Þorvarðarson. DB-mynd: Arni Páll. Talning i prestskosningum i morgun: FRAMBJÓÐENDUR í HÁTEIGSSÓKN TALDIR MJÖG JAFNIR — Yfirburðosigur sr. Hjalto i Dómkirkjusókninni Urslita í prestskosningunni í Háteigssókn var beðið með miklum spenningi í morgun, en talning atkvæða hófst rétt fyrir hádegið. Eftir því sem blaðið hefur fregnað, taldi hver fram- bjóðendanna þriggja sér örugg þúsund til 11 hundruð atkvæði og kemur það heim við heildartölu atkvæða, sem var 3300. Er því greinilega mjög mjótt á mununum og ekki dregur úr spennunni að margir Sr. Hjalti og sr, Hannes telja atkvæðin. DB-mynd: Arni Páll. bíða spenntir eftir hvort eini kvenpresturinn, sr. Auður Eir, nái kosningu. Hinir frambjóð- endurnir eru sr. Magnús Guðjónsson og sr. Tómas Sveinsson. Laust fyrir hádegið var lokið við að úrskurða um ýmis vafaatriði og verða úrslit því væntanlega ekki kunn fyrr en eftir hádegið. Sr. Hjalti Guðmundsson sigraði með yfirburðum í prestskosningum í Dómkirkju- prestakallinu og hlaut 1647 af 1795 greiddum atkvæðum, en sr. Hannes Guðmundsson hlaut 130 atkvæði. Þrátt fyrir það er kosning sr. Hjalta ólögmæt því aðeins 1795 af 4656 á kjörskrá greiddu atkvæði. Ögildir og auðir seðlar voru 5. Sr. Hjalti hefur verið prestur í Stykkis- hólmi að undanförnu, en hann þjónaði í Dómkirkjunni um tíma fyrir nokkrum árum í for- föllum sr. Jóns Auðuns. —G.S. ISLENZK RALLI-KAPPAKSTURS- BRAUT í N0TKUNINNAN TÍÐAR — félag stofnað um þessa bilaíþróttagrein Fámennur hópur manna, aðallega úr FÍB, hefur að und- anförnu unnið að undirbún- ingi rally cross keppnisbrautar og ef allt gengur samkvæmt áætlun, hefst vélavinna við brautina í næstu viku. Er áætlað að brautin verði tilbúin til keppni strax í haust, en ekki er reiknað með að keppni geti þó hafizt strax þar sem nokkurn tíma tekur að sérbúa bíla. Bílar, sem þátt taka í svona rallykeppnum erlendis, eru með mikinn sérbúnað og stendur til að á íslenzku braut- inni verði farið eftir reglum FIA um búnað, en FIA eru alþjóðasamtök bílasport- manna. Ekki er blaðinu nákvæm- lega kunnugt um hvar brautin verður, en það mun vera í 30 til 40 km fjarlægð frá Reykja- vík. Verður hún 10 metrar að breidd og geta því 4 til 6 bílar keppt í einu. Verður hún 900 metra löng, vel hlykkjótt og mishæðótt. Brautin verður lokuð þannig að enginn fær að aka þar nema með leyfi og á bil búnum til akstursins en mjög miklar öryggiskröfur eru gerðar. Á sunnudag hyggjast svo aðstandendur brautarinnar stofna til opins félagsskapar með fundi á hótel Loftleiðum og mun sá félagsskapur væntanlega verða bifreiða- íþróttadeild innan eða í tengslum við FlB. —G.S. Leikgleðin í hámarki Víða um Iand leggja áhuga- menn um leiklist nótt við dag áð heita má. Það á að fara að frumsýna næstu daga. Við fylgjumst með hvað er að ger- ast hjá fjórum leikhúsum á landinu, í Kópavogi, á ísafirði og tveim leikhúsum Akur- eyringa. — Sjá bls. 9. Axel og Ólafur slógu í gegn: GETUM VIÐ ÁN ÞEIRRA VERIÐ í LANDSLIÐI? — iþróttir um Dankersen - FH i gœrkvöld — OPNA Hversu hœttulegt er hoss? Sjó kjallaragrein bls. 10-11 Kröfupólitík lœkna rœður kostnaðinum Sjó kjallaragrein bls. 15 Rœkjuveiði bönnuð í Axarfirði Mjög mikið af rækjuseiðum hefur að undanförnu komið í troll rækjubáta á Axarfirði. Gerðu sjómenn Hafrannsókna- stofnunni viðvart og nú hefur öllum Axarfirði verið lokað fyrir rækjuveiðum. Gekk rækjuveiðibannið í gildi í gær. Eriþað von rækjuveiðimanna að friðunin leiði til meiri veiði síðar en lokun veiðisvæðisins er nú til komin f.vrir frum- kvæði rækjuveiðimannanna sjálfra. —ASt.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.