Dagblaðið - 14.10.1976, Side 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1976.
þróttir
þróttir
íþróttir
róttir
Jafntefli Tyrkja
og íra i Istanbúl
Írland geröi jafntefli í Istanbul
í gærkvöld við Tyrkland. Hvort
lið skoraði þrjú mörk — en írar
fengu sannkallaða óskabyrjun
því eftir aðeins 14 minútna leik
höfðu írar skorað tvö mörk gegn
engu Tyrkjanna.
Arsenal leikmaðurinn Frank
Stapelton skoraði fyrir írland
þegar á 3. minútu og Gerry Daly
frá Manehester United bætti við
öðru marki fyrir Írana á 14.
mínútu. Þannig var staðan í leik-
hléi 2-0 fyrir Írland.
En næstu þrjú mörk gerðu
Tyrkir — Chemil skoraði
tvívegis og Isab bætti við hinu
þriðja og því staöan 3-2. En Irar
voru ekki af baki dottnir —mark
vörður Tyrkjanna skoraði sjálfs-
mark og tryggði irum jafntefli
3-3.
Sigur Ungverja
í Vinarborg
Ungverjar sigruðu Austurríkis-
menn í Vín í gærkvöld 4-2. Tvö
mörk á fyrstu 7 mínútum leiksins
settu Austurríkismenn úr jafn-
vægi. Nuyalisi skoraði tvívegis
með skalla.
Austurríkismönnum tókst að
minnka muninn fyrir leikhlé en
Krankl skoraði úr víti og Krankl
var aftur á ferðinni í síðari hálf-
leik er hann jafnaði 2-2. En dýrð-
in stóð aðein í tvær minútur—
Kereki skoraði með skalla fyrir
Ungverja og síöar bætti hann við
fjóra marki Ungverja er hann átti
skot efst í vinstra hornið.
Ungverjar léku um síðustu
helgi i Aþenu og gerðu jafntefli
1-1 í undankeppni HM. Ungverjar
hafa því leikið tólf leiki án taps.
Lauda gagn-
rýnir Hunt
Nicki Lauda gagnrýndi James
Hunt fyrir aö „öskra á sig“ vegna
þcss að sigurinn í brezka Grand-
Prix kappakstrinum var dæmdur
af Hunt.
Lauda sagði, að sér fyndist að
einnig heföi átt að dæma sigurinn
af Hunt í spánska Grand Prix
kappakstrinum en bíll Hunts var
aðeins of breiður — þar munaði
sentimetra. Þetta kom fram í
viðtali Lauda í BBC sjónvarpinu í
gajrkvöld.
En á síðustu vikum hefur Hunt
bara öskrað á mig. sagði Lauda.
— Ilann hefur gefið í skyn að það
hafi verið rangt af okkur að mót-
mæla sigri hans á Bretlandi.
Þetta held ég sé rangt af Hunt —
hann á að virða mig sem öku-
mann, sagði Lauda.
Lauda og Ilunt berjast nú hat-
rammri baráttu um heims-
meistaratitilinn í kappakstri og
þegar aðeins einn Grand-Prix
kappakstur er eftir — í Japan —
hefur Lauda aðeins þriggja stiga
for.vstu á Hunt. Hunt hefur nú
unniö tvo síðustu kappakstra — í
Kanada og Bandaríkjunum.
Bretland - írland
og S-Afrika
i forystu
Sameiginlegt lið Bretlands og
írlands hefur forustu ásamt S-
Afríku eftir fyrstu umferð Eisen-
howerkeppninnar en hún er
heimsmeistarakeppni áhuga-
manna í golfi. island tekur ekki
þátt i mótinu vegna fjárskorts
íslenzka golfsambandsins.
Bretland — írland og S-Afríka
hafa leikið á 219 höggum — fjórir
beztu frá hverri þjóð eru taldir.
Rhódesía og Sviþjóð eru i
þriðja til fjórða sæli á 223
höggum og i fimmta sæli eru
heimsmeislararnir, Bandaríkin,
en þeir eru fjórum höggum á
eflir —227.
HM í blaki
frq Kanadq
— Alþjóða blaksambandið hefur
ákveðið að halda ekki heimsmeistara-
keppni sina i Kanada eins og ákveðið
hafði verið vegna
framkomu Kanadamanna i garð Taiwan
Alþjóða blaksambandið hefur
ákveðið að halda heimsmeistara-
keppni sína í blaki ekki í
Kanada, en hún átti að fara fram í
Calgari í Alberta í Kanada. Er
það vegna framkomu Kanada-
stjórnar í garð Taiwan. Þetta eru
fyrstu afleiðingar hinna storma-
sömu Olympíuleika, sem fram
fóru í Kanada í sumar — þar sem
pólitískar deilur settu mark sitt á
Ieikana.
Kanadamenn neituðu Taiwan-
búum um aö koma inn í landið
með vegabréf frá lýðveldinu
Kína. Þetta gerðu Kanadamenn í
blóra við fyrri yfirlýsingar sínar
um, að pólitík og íþróttir færu
ekki saman.
Fram lagðl
meistarana
Þau óvæntu úrslit urðu á
Beykjavíkurmótinu í körfuknatt-
leik að Fram sigraði Re.vkja-
víkurmeistara ÍR 84-74. Fram Iék
oft ágætlega á köflum og
greinilegt er, að Framliðið er nú
að smella saman — leikmenn enn
ungir að árum og framtíðin
þeirra.
i síðari leiknum í gærkvöld
sigraði ÍS lið Vals 93-87 en Vals-
menn lentu í miklum villuvand-
ræðum og misstu sterka menn
útaf.
Blaksambandið hefur ekki
ákveðið hvar keppnin fari fram
— það verður tekin ákvörðun um
það síðar. Þessi ákvörðun var
tekin í Barcelona á Spáni þar sem
Alþjóða ólympíunefndin heldur
fund nú og mjög er rætt um
hvað gera skuli til að losa íþróttir
við stjórnmáladeilur. Kröfur hafa
orðið æ háværari um að Alþjóða
olympíunefndin taki upp harðari
stefnu gagnvart þjóðum, sem nota
íþróttir einungis sem peð á tafl-
borði stjórnmálanna.
Charles Palmer, forseti Alþjóða
júdósambandsins, hefur komið
fram með tillögu um að banna
Kanada þátttöku í alþjóðakeppni
í 10 ár. Sömuleiðis að banna
afrísku þjóðunum sem héldu burt
frá Montreal að taka þátt í alþjóða
keppni í 10 ár. Afrísku þjóðirnar
fóru þar sem ekki var gengið að
kröfu þeirra um að Nýja-Sjálandi
yrði meinuð þátttaka á Olympíu-
leikunum vegna stefnu stjórnar
Nýja-Sjálands gagnvart S-
Afríku.
Stjórnmál hafa í æ ríkari mæli
sett mörk sín á íþróttir og meðal
annars er skýringuna að finna í
því að Alþjóða ólympíunefndin
hefur æ ofan í æ gengið að
kröfum þjóða, sem setja stjórn-
mál ofar íþróttum. Því verður að
setja skýrar reglur um, hvað
gerist ef þjóðir reyna að leika
þann leik. Jafnvel hefur verið
gengið svo langt að íhuga hvort
leyfa eigi Alþjóða olympíu-
nefndinni að fresta leikum. jafn-
vel eftir að þeir eru hafnir, ef
þjóðir reyni að kúga Alþjóða
ólympíunefndina til pólitískra
hrossakaupa.
Ennþá hafa engar ákvarðanir
verið teknar — en jafn ljóst er
að slíkar ákvarðanir verða að líta
dagsins ljós fyrr en síðar því
stjórnmál eru að kæfa Ólympíu-
leikana.
fólafur H. Jónsson og Axel Axelsson áttu góðan dag með Dankersen í
gærkvöld — raunar báru þeir af í liði Dankersen. DB-mynd Bjarn-
leifur.
Ólafur H. Jónsson skorar eitt marka sinna af línu. Viðar og Þórarinn
Meistarar F
við íslending
— Axel Axelsson skoraði 10 mörk, þ<
— Það kom talsvert fram í leik
okkar, að víð höfum ekki þol til
að vera á tveimur stífum
æfingum sama daginn og
leikinn er hörkuleikur um
kvöldið, sagði Ólafur H. Jóns-
son, fvrirliði Islands um árabil.
eftir að liö hans Dankersen hafði
sigrað islandsmeistara FB 22-17 í
íþróttahúsinu í Hafnarfirði í
gærkvöld. Dankersen-liðið lék
mjög vel í byrjun. en Hafn-
firðingar áttu að sama skapi
slakan leik og eftir tæpar 12 mín.
var staöan 6-0 fyrir Dankersen.
Þessi leikkafli varð FII aö falli í
leiknum, enda kannski ekki fvrir
öll lið að standa Dankersen
snúning eins og leikmenn
léku þá. En baráttuvilji Ís
landsmeistaranna var gífurlegur.
Þeir gáfust ekki upp. þó útlitiö
væri allt annað en bjart og tókst
að minnka muninn niður í tvö
mörk fyrir hlé. 9-7. Um tíma i
síöari hálfleik var eins marks
munur. 11-10 fyrir Dankersen. en
oftast tveggja til þriggja. Loka-
kafla leiksins var þýzka liðiö
sterkara og vann með fimm
marká mun.
Það voru Íslendingarnir í liði
Dankersen, sem lögöu grunninn
að sigri liðsins með störgóðum
leik. Aberandi beztu menn
liðsins. Axel Axelsson var hreint
óstöðvandi eins og á þeim tíma.
þegar hann var mestur skorari
íslenzka landsliðsins. Axel
skoraði 10 mörk í leiknum og átti
nokkrar frábærar línusendingar.
Ólafiir var klettur í vörn og
skoraði þrjú mörk af línu. Leik-
menn, sem íslenzka landsliðið
getur ekki verið án í forkeppni
heimsmeistarakeppninnar í
vetur.
FH liðið á hrós skilið fyrir að ná
sér jafn vel á strik og raun var
eftir hina slæmu byrjun. Birgir
Finnbogason varði ekki skot
framan af — enda ákaflega erfitt
fyrir hann með mótherjana oft-
ast fria inn á línu — en svo kom
kempan Hjalti Einarsson i
rnarkiö. Stóð sig frábærlega vel
eins og svo oft. þegar é’H hefur
mest þurft á því að halda. Viðar
Simonarson byrjaði lieldur ekki.
en kom fljótt inn á og var um
tíma hreint óstöðvandi. Skoraði
átta mörk — þar af sex i röö um
miðjan síðari hálfl. Þá hafði
þýzki markvörðurinn Martin
Karcher fengið nóg af Viðari og
för úr markinu. En þó að þessir