Dagblaðið - 14.10.1976, Qupperneq 24
frfálst, úháð dagblað
FIMMTUDAGUR 14. OKT. 1976
Boðskapur
fjárlaga-
frumvarpsins:
— fimm sinnum mikilvœgari en sjávarútvegur og níutíu og þrisvar sinnum
mikilvœgari en verzlun
Landbúnaður er fimm
sinnum mikilvægari en sjávar-
úvegur, ef marka má fjárlaga-
frumvarpið, sautján sinnum
mikilvægari en iðnaður og níu-
tíu og þrisvar sinnum mikil-
vægari en verzlun. Þetta er
niðurstaðan, ef athugað er,
hversu miklu ríkið hyggst verja
til einstakra atvinnugreina
samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu.
Þegar teknir eru út úr út-
gjöldum ráðuneytanna þeir
liðir, sem ekki eiga beinlínis
við viðkomandi atvinnuveg sem
slíkan, standa eftir níu millj-
arðar, sem falla eiga landbún-
aðinum í skaut. Sjávarútvegur-
inn fær 1730 milljónir, iðnaður-
inn 536 milljónir og verzlunin
97 milljónir.
Landbúnaðarráðuneytið
eykur útgjöld sín mest allra
ráðuneyta að þessu sinni, um
meira en sextíu af hundraði.
Til að finna hlut einstakra
atvinnuvega, færum við niður-
greiðslur frá viðskiptaráðu-
neyti yfir til landbúnaðarráðu-
neytis, sem eðlilegt er. Utgjöld
vegna Rannsóknarstofnunar at-
vinnuveganna eru tekin út úr
gjöldum sjávarútvegsráðuneytis
Gjöld vegna Orkustofnunar,
Rafmagnseftirlits og Orkusjóðs
eru tekin út úr gjöldum
iðnaðarráðuneytis. Frá gjöld-
um viðskiptaráðuneytis er tek-
inn oliustyrkurinn. Eftirstanda
þá framangreindar tölur. Til
samanburðar tökum við eftir-
farandi útgjöld út úr útgjöldum
landbúnaðarráðuneytis: Skóg-
rækt, landgræðslu, Veiðimála-
stjóra, Landgræðslusjóð,
Bændaskólana Hvanneyri og
Hólum, Garðyrkjuskólann og
Odda.
Með þessum hætti fást sam-
bærilegar tölur, sem leiða í ljós,
hversu mikið ríkið leggur upp
úr landbúnaðinum í saman-
burði við aðra atvinnuvegi!
— HH
mikilvœgari
Landbúnaður
saulján sinnum
en iðnaður!
r
Frétt sem átti að
fara á íþróttasíðu:
Meistarar í
gönuhlaupi
Af öllum þeim eðlu íþrótta-
greinum, sem stundaðar eru i
heiminum, er einni sinnt sýnu
minnst á íþróttasíðum blað-
anna, gönuhlaupinu. Það eru
nemendur í Menntaskólanum
við Hamrahlíð sem reynt hafa
að halda uppi merki gönu-
hlaupara og í gærdag fór frarn
meistarakeppni skólans í gönu-
hlaupi. Og hér eru hinir stoltu
sigurvegarar í keppninni. 1
Ekki eru allar (gœsaveiði)ferðir til fjár:
JÚ, MIKIÐ RÉn
GÆSIRNAR LÁGU!
en jólasteikin náðist ekki í þetta skiptið
Rjúpnaveiðin byrjar á
morgun og af því tilefni er hér
smáfrétt um gæsaveiðimenn:
Þrír gæsaveiðimenn úr Vest-
mannaeyjum brugðu undir sig
betri fætinum og héldu upp í
Landeyjar á sunnudaginn til
gæsaveiða. Höfðu þeir með-
ferðis þrjár gervigæsir,
málaðar á krossviðarplötur.
Var þeim síillt upp úti á túni
hjá bænum, sem leyfi hafði
fengizt á til gæsaveiðanna. Var
að svo búnu haldið heim að bæ,
og beðið átekta. Bar þá heim að
bænum glæsijeppa mikinn úr
Reykjavik með tveimur mönn-
um innanborðs.
Engan gerðu þeir stanz hjá
bænum heldur óku rakleitt
niður undir túnjaðarinn. Þar
snöruðust mennirnir tveir út úr
bílnum með alvæpni, og nú
voru engin umsvif, þeir ofani
skurð og skriðu allt hvað af tók
i átt til gervigæsanna góðu.
Þegar nær dró snöruðust þeir
upp úr skurðinum og nú var
hleypt af skottólunum allt hvað
af tók. Og mikið rétt, gæsirnar
lágu, en ekki koma þær til með
að skreyta jólaborð jeppamann-
anna úr Reykjavíkinni. Það
voru því hálf skömmustulegir
veiðimenn sem Eyjapeyjarnir
hittu eftir skotbardagann við
krossviðsgæsirnar góðu, en hitt
f.vlgdi sögunni að veiðiút-
búnaður hefði verið mikill og
góður, þótt ekki hefði hann
haft meiri árangur en svo að
jólasteikina verða þeir að sækja
á önnur mið.
—JR
Betra að fara að
Slátursalan hefur verið mjög
svipuð i lausasölunni og undanfar
in ár,“ sagði Vigfús Tómasson hjá
Sláturfélagi Suðurlands. Salan á
pakkaða slátrinu hefur einnig
verið góð, en SS pakkaði 3 þús.
slátrum.
Slátursölu fer nú senn að ljúka.
Hún verður lit þessa viku og þá
næstu hja SS.
Hjá afurðasölu Sambandsins
fengum við að vita að þessi þjón-
usta, sem þeir byrjuóu á í fyrra.
að selja slátrið fr.vst i 5 slátra
pakkningu, hefði mælzt mjög vel
f.vrir. Ekki sizt hjá barnaheimil-
um og öðrum stærri stofnunum.
sem tækju þá slátrið eftir hend-
inni. Nú þarf fólk ekkert að
standa í biðröð eftir slátrinu,
aðeins i Afurðasölunni. því að
menn geta keypt það í þeim
hverfisbúðum, sem hafa kæla til
Þess að geyma það í. Slátur frá
Sambandinu verður að minnsta
kosti út þessa viku og jafnvel þá
næstu. KVI
sig
r
I
Það eru enn margir senr vilja kaupa sér slátur upp á gamla móðinn og
sem betur fer hefur þessi árlegi siður okkar íslendinga ekki lagzt
niður. þrátt fvrir sívaxandi tímalevsi húsmæðra.
DB-m.vnd. Sv. Þorm.
Þýzku togararnir með rangar staðsetningar
— mœlingar varðskipsins Óðins réttar
Þýzki togarinn semstaðinn var
að ólöglegum veiðum á Kögur-
grunni hinn 2. okt. sl. hafði ranga
viðmiðunarpunkta við staðsetn-
ingu á því veiðisvæði, þar sem
honum var heimilt að veiða. Skip-
stjóri togarans taldi því, sam-
kvæmt sinni staðsetningu, að
hann væri að löglegum veiðum.
Þýzka eftirlitsskipið Minden, sem
einnig var haft samband við,
miðaði við sömu röngu punktana.
Réttu viðmiðunarstaðirnir eru
á 66.58 norðurbreiddar og 23.37
vesturlengdar. Við þessa staði
miðaði varðskipið Óðinn, er það
stöðvaði togarann Hagen hinn 2.
okt. sl. Togaraskipstjórinn miðaði
við 66.59 norðurbreiddar og
23.32.5 vesturlengdar, og taldi sig
því vera á leyfilegu veiðisvæði,
þar sem varðskipið kom að
honum. Nákvæmlega sömu við-
miðun taldi eftirlitsskipið hina
réttu.
Engin skýring helur enn venð
gefin á þessu ósamræmi en eins
og Dagblaðið skýrði frá í gær,
reyndust mælingar islenzka varð-;
skipsins réttar. Hefur þýzki togar-
inn Hagen verið strikaður út af
skrá skipa, sem mega veiða hér
viðland. BS
Dr. Bragi, skólasérfrœð-
ingurinn sem ekki fœr
inni í skólakerfinu:
Fer til starfa
í rannsóknar-
lögreglu
„Eg tek ekkert mark á þvi sem
stendur í Tímanum og vil ein-
hverjar ábyggilegri heimildir
fyrir því, að ég hafi verið
skipaður í stöðu rannsóknarlög-
reglumanns," sagði dr. Bragi
Jósepsson, blaðamaður, er frétta-
maður Dagblaðsins' innti hann
eftir því, hvort rétt væri frá skýrt
í frétt í Tímanum í morgun. Þar
segir, að dr. Bragi hafi verið skip-
aður í fyrrgreint starf.
„Menn þurfa að borða þótt þeir
hafi doktorspróf og samúð
manna," sagði dr. Bragi. Hann
kvaðst hafa verið atvinnulaus í 9
mánuði. „Þessa stöðu rannsóknar-
lögreglumanns sótti ég um fyrir
fjölda mánaða, en hef ekkert
heyrt frá^þeirri umsókn síðan.
Mér hefur* ekkert verið tilkynnt
um stöðuveitinguna,“ sagði dr.
Bragi. BS.
kvennaflokki voru hlutskarp-
astar Aðalbjörg Hafsteinsson,
Sólrún Ásvaldsson, Bryndís
Guðmundsson og Ólöf Haf-
steinsdóttir. I piltaflokki þeir
Guðmundur Geirdal, Þráinn
Hafsteinsson og Helgi Gústafs-
son.
íþróttafólkið æfir nú með
keppni á Ölympíuleikunum í
Moskvu i huga, en þar verður
gönuhlaup loksins á dagskrá.
Umferðarslys ó
Akureyri:
Ellefu óra
drengur
fyrir bíl
Ellefu ára drengur varð
fyrir bíl á mótum Þingvalla-
strætis og Hamragerðis á
Akureyri um klukkan fjögur
í gærdag. Drengurinn var á
reiðhjóli. Var höggið er
hann hlaut við áreksturinn
allmikið Lenti hann upp á
bilnum og braut framrúðu
hans og féll sfðan í götuna.
Drengurinn var fluttur i
sjúkrahús og dvelst þar.
—ASt.