Dagblaðið - 18.10.1976, Síða 9
I/ACBLAfHÐ. MÁNUDACUR 1«. OKTOBKK 19TH.
9
EBE TEKUR AFSTÖÐU Tll
200 MÍINANNA ÍDAG
Búizt er víð hörðum deilum
Breta og Ira þegar utanríkis-
ráðherrar aðildarríkja Efna-.i
hagsbandalags Evrópu koma
saman til fundar í Luxembourg
í dag til að ræða hvort færa eigi
fiskveiðilögsögu ríkjanna út í
200 mílur.
Bretar hafa lýst því yfir að
þeir muni færa út einhliða fall-
ist bandalagið ekki á að gera
200 mílur að algildri reglu frá
og með 1. janúar næstkomandi.
írar vilja ekki samþykkja þetta
nema samfara fylgi samkomu-
lag um að hvert aðildarríkj-
anna um sig fái einkarétt á fisk-
veiðum innan 50 mílna frá
landi.
Anthony Crosland, utanríkis-
ráðherra B,retlands, mun í dag
leggja áherzlu á þá kröfu
stjórnar sinnar að samkomulag
urn 200 mílna fiskveióilögsögu
náist þegar í stað svo EBE geti
hafið samningaviðræður við
ríki utan bandalagsins sem
tekið hafa sjálfstæða stefnu í
þessum málum, þ.e. ísland og
Noreg.
Haldi irar fast við kröfu sina
um að samkomulagið verði tví-
þætt, eins og áður segir, er hætt
við að fresta verði 200-mílna
áætluninni þar sem flest
aðildarríkja EBE eru andvíg 50
mílna hugmyndinni.
Framkvæmdanefnd Efna-
hagsbandalagsins leggur þess í
stað til að aðildarríkin fái
einkarétt á veiðum allt að tólf
mílur frá landi og aó Bretar og
írar fái auk þess ákveðinn afla-
kvóta þar fyrir utan.
Erlendar
fréttir
ÁSGEIR
TÖMASSON
1
REUTER
B
Assad Sýrlandsforseti ásamt
Arafat, leiðtoga Palestínu-
skæruliða.
Leiðtogar aðildarríkja
Arababandalagsins á. fundi í
Riyadh kanna í dag egypzkar
tillögur í 13 liðum um lausn
deilunnar i Líbanon. I tillög-
unum felst ákveðin fyrirheit
til handa Palestínumönnum og
Líbönum, en ekki hefur verið
skýrt frá hver þau eru.
Á þessum fundi hittast í
fyrsta sinn í langan tíma
Hafez E1 Assad, Sýrlands-
forseti, og Anwar Sadat,
Egyptalandsforseti, ásamt
Yasser Arafat, leiðtoga Palest-
ínumanna. Þessir þrír menn
munu skipta mestu máli í þeim
samningaviðræðum sem telja
má að hefjist fyrir alvöru í
Riyadh í dag. Tuttugu og tvö
þúsund sýrlenzkir hermenn
eru I Líbanon.
Fundurinn, ■ sem hófst
óformlega á laugardagskvöld-
ið, er haldinn að tilhlutan
Sádi-Arabíu og Kuwait í þeim
tilgangi að • binda endá á
borgarastyrjöldina í Líbanon
og eins til að koma á sáttum á
milli Egypta og Sýrlendinga,
en þar á milli hefur gustað kalt
síðan Egyptar gerðu Sinai-
samkomulagið við ísraelsmenn
í fyrra.
Utanríkisráðherrar Araba-
bandalagsins, ásamt Elias
Sarkis, forseta Líbanon og
Yasser Arafat sátu fram eftir
sl. nóttu og undirbjuggu
vinnuplagg sem lagt var fram
á fundinum laust fyrir hádeg-
ið.
„lan Smith á að segja af sér og
biðjast afsökunar á gjörðum sínum
á undanförnum árum"-
„Svartir Afríkuleiðtogar sáu
aldrei samninginn um frið í
Ródesíu áður en 'Ian Smith sam-
þykkti hann. Dr. Kissinger sagði
okkur ekki hvað hann hygðist
ræða um við Smith er hann fór til
S-Afríku.“ Þetta er haft eftir
dr. Kenneth Kaunda forseta
Zambíu í nýjasta tölublaði News-
week.
Og Kaunda heldur áfram:
„Kissinger sagði okkur aðeins að í
stuttu máli væri ætlun hans að fá
Smith forsætisráðherra til að
samþykkja að meirihlutastjórn
tæki við völdum í Ródesíu. Hann
gekk jafnvel svo langt að segja, að
hann væri ekki kominn til Afríku
til að láta sér mistakast. Hann
hygðist sjá Smith samþykkja
meirihlutastjórnina, —fyrr færi
hann ekki.“
Að sögn Kaunda var það ekki
fyrr en í bakaleiðinni til Banda-
ríkjanna, sem Kissinger kom við í
Zambíu og sagði frá því hvaó
Leiðtogar ródesískra þjóðernissinna. Frá vinstri: Muzorewa, Mugabe, Sithole og Nkotno.
gerzt hefði og Smith hefði sam-
þykkt.
Spurningunni um hvar Ian
Smith ætti helzt að slaka til á
friðarráðstefnu, sem Englend-
ingar hafa boðað til i Genf 28.
Minnstu munaði að
ferð Soyuz 23.
endaði með skelfingu
október næstkomandi, svaraði
Kaunda á þennan hátt:
„Hver er þessi Smith? Smith er
uppreisnarmaður ekki aðeins
gegn brezku krúnunni heldur
einnig gegn mannkyninu í heild.
Við vitum hvað hann ætti að gera.
Hann ætti þegar í stað að segja af
sér öllum embættum og hætta af-
skiptum sínum af málefnum
Ródesíu.
Ian Smith ætti að koma til ráð-
stefnunnar í Genf og segja að nú
væri hann hættur sjálfs sín vegna
og biðjast afsökunar á því sem
hann hefur gert á undanförnum
árum. Og hann á síðast en ekki
sízt að viðurkenna meirihluta-
stjórn í landinu. Það er í takt við
tímann því meirihlutastjórnir eru
komnar til valda í svo til allri
Afríku.“
Sovézkir geimvísindamenn
hyggjast kanna í smáatriðum í
dag hvað gerðist á meðan tenging
Soyuzar 23 við geimrannsóknar-
stöð stóð yfir. Geimfarið náði ekki
að vera tvo sólarhringa á lofti
áður en einhver bilun fannst
stjórnstöðinni í Baikonur
Síberíu. Geimfarið var þvi þegar í
stað sent til jarðar aftur.
Er Soyuz 23. kom inn í neðra
gufuhvolfið tókst ekki betur til en
það að hann lenti í óveðri. Fall-
hlífar geimfarsins báru það síðan
inn í snjóhríð og báru það af leið
yfir sléttur Sovétrikjanna, unz
það skall í stöðuvatninu Tengiz.
Þar geisaði hríðin af hvað
mestum krafti.
Að sögn talsmanns sovézku
stjórnarinnar sýndu björgunar-
sveitir á bátum og þyrlum mikla
hetjulund við björgun geimfar-
anna. Þær þurftu að vinna í
niðamyrkri, snjóbyl og 15 stiga
frosti.
Geimfararnir tveir, þeir
Vyacheslav Zudov og Valery
Rozhdestvensky fóru aftur til Bai-
konur og hafast þar við í góðu
yfirlæti. Þeir munu hjálpa
vísindamönnunum við að upplýsa
hvað bilaði í raun og veru í geim-
ferðinni.
Ritarí flokksins f
Shanghai handtekinn
Ritari í Shanghaideild kín-
verska kommúnistaflokksins,
Ma Tien-shui, var ákærður í
morgun um að hafa haft í
hyggju að hertaka stórborgina
Shanghai. Ákærurnar gegn
Tien-shui birtust á veggspjöld-
um og þar sagði einnig uð hann
hefði haft yfir að ráða milljón
manna herliði. Hann hefði haft
í hyggju að hertaka höfnina i
Shanghai og útvarpsstöðina.
Ma Tien-shui var í sterkum
tengslum við róttæku stjórn-
endurna fjóra, sem sitja nú í'
fangelsi. — Shanghai hefur
verið helzta vígi róttækra
manna í kommúnistaflokknum
til þessa Síóan á föstud. hefur
hvers kouar fot;l...i gegn nú-
verandi valdhöfum verið barin
niður þar eins og annars staðar.
Kínverjar tilkynntu einnig í
morgun að þeir hefðu sprengt
enn eina kjarnorkusprengjuna.
Tilgangur hennar var að vekja
athygli á nýja flokksformannin-
um, Hua. Þá átti sprengingin að
sannfæra ibúa landsins um, að
enda þótt innanríkisdeil-
ur stæðu yfir hefði ekkert verið
slakað á í vörnum landsins.
VESTUR-ÞYZKA
MARKIÐ TEKIÐ
ÚR SAMBANDI
— hœkkar um allt að 6% miðað
við aðra gjaldmiðla í Evrópu
Vestur-þýzka markið verður
hækkað gagnvart öðrum gjald-
miðlum i sameiginlega
evrópska flotinu, eða „snákn-
um“, frá og með deginum í dag,
að því er vestur-þýzki seóla-
bankinn hefur tilkynnt. Tals-
maður bankans sagði í Frank-
furt í Vestur-Þýzkalandi I
morgun, að markið hækkaði um
tvö prósent gagnvart hollenzka
gyllininu og belgísk-
lúxemborgska frankanum, um
þrjú prósent gagnvart norsku
og sænsku krónunum og um
sex prósent gagnvart þeirri
dönsku.
Þessi ákvörðun var tekin á
fundi fjármálaráðherra og
seðlabankastjóra aðildarrikja
snáksins í Frankfurt í gær.
Hækkun marksins kemur í kjöl-
far margra mánaða orðróms á
gjaldeyrismörkuðum heimsins
— og neitana Bonn-
stjórnarinnar — um aö eitthvað
slikt væri i uppsiglingu. Ekki
eru nema tvær vikur síðan Hel-
mut Schmidt. kanslari Vestur-
Þýzkalands, sagðist vera and-
vígur slíkum aðgerðum. Vestur-
þýzka markið er sterkasti gjald-
miðill Evrópu.
Samkvæmt sérstöku sam-
komulagi nokkurra Evrópu-
ríkja er gengi þeirra látið fljóta
sjálfstætt innan ákveðinna
marka, en sameiginlega gagn-
vart Bandaríkjadal og nokkrum
öðrum gjaldmiðlum. Undan-
farna mánuði hefur markið
verið á uppleið á flestum gjald-
e.vrismörkuðum.
Þessi ráðstöfun getur haft
verulegar afleiðingar á aðra
gjaldmiðla í Evrópu en ennþá
er of snemmt að segja til um
hverjar þær afleiðingar verða.