Dagblaðið - 18.10.1976, Side 12
12
FESTI
FRAKKASTÍG
Símar 10550 og 10590
11 eða 12 réttir
Vinníð i getraunum
Sé um utfyllingu getraunaseöla að kostnaðarlausu, nota
mjög góð kerfi. mikil revnsla í þátttöku íslenzkra get-
rauna, ég tippa. þið vinnið stórt.
Leggið inn nafn og símanúmer á pósthólf 9012 Revkjavík
EIGENDUH!
Við viljum minna ykkur á að það er áríðandi að koma
með bílinn í skoðun og stillingu á 10.000 km fresti eins
og framleiðandi Mazda mælir með.
Nú er einmitt rétti tíminn til að panta slíka skoðun og
yfirfara bílinn fyrir veturinn. Notið ykkur þessa ódýru
þjónustu og pantið tíina strax.
BÍLABORG HF
Borgartúm 29
Verkstæói sími 81225
Ovateon
Mjög vandoður kassagitar með pickup
ó hagstœðu verði. Upplýsingar í
Hljómbœ og i síma 24610.
Hljómbœr 108
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu skiptaréttar Kópavogs og skattheimtu
ríkissjóðs í Kópavogi verða eftirgreindir lausafjármunir
seldir á nauðungaruppboði, sem hefst á bæjarfógeta-
skrifstofunni að Hamraborg 7 mánudaginn 25. október
I!I7(> kl. 14. en verður síðan fram haldið á öðrum stöðum.
þar sem nokkrir lausaf jármunir eru staðsettir.
1. Húsgögn og heimilsta'ki: sjónvarpsta'ki. isskápar.
þvottavélar. Nilfisk ryksuga, útvarpsta'ki og plötu-
spilarar. magnari. sófasett (4). borðstofuborð og (i stólar.
stofuskápur, bornborð.
2. Vinnuskúrar (nú staðsettir við Vallartriið)
:i. Kantlímingarvél (Ilolz —IIKR).
4. Djúpfrystir og kjötsög.
5. Saumavél (rvkkingavél) Pfa.ff.
(>. Na'lon-lniðu naroln.
7. Skurðgrafa. Jolin Deere.
S. Valtari. (iallion. III sinál.
(ireiðsla fari fram við bamarsbögg.
Bœjarfógetinn í Kópavogi
I)A(iBLADIÍ). MANUDACUR 18. OKTÓBFiR 1976
Spartaeus vann frækilega sigra á hestbaki i mörgum orustum. Dýravinir hafa stundum haft orð á að
ekki væri sæmandi að fara svona „illa“ með hestana eins og lítur út fyrir í stríðsmyndum. En þeir
hestar sem taka þátt í slíkum myndum eru þjálfaðir sérstaklega til þess að detta og taka þátt I
„hernaði" og meiða sig þar af leiðandi ekki neitt.
Spartacus heldur manni við efnið allan timann
Fróbœrir leikarar
og stórbrotið
landslag
Kvik
myndir
Laugarásbíó:
Kirk Douglas, Laurence Olivier, Jean
Simmons, Charles Laughton, Peter Ustinov,
John Gavin og Tony Curtis.
Leikstjori er Stanley Kubrick.
Þegar ljósin slokknuðu í
kvikmyndahúsinu, sem var
alveg troðfullt, upphófst mikið
hóstakjöltur. Þaó læddist að
ntanni sá grunur að heilsufar
bæjarbúa væri mjög bágborið.
Síðan heyrðist hið hræðilega
hljóð sem fylgir hverri einustu
kvikmyndahússýningu, — því
fleiri sem áhorfendurnir eru
því ægilegra er þetta hljóð.
Skrjáfið í poppkorns-
pokunum fór um salinn eins og
fossniður, — dæmalaust væri
það gott ef fólk fengi nóg af
poppkorni og hætti að seðja sig
á því í kvikmyndahúsum. —
Það er ekki fyrr en um það bil
hálftími er liðinn af sýningar-
tíma. sem maður getur farið að
f.vlgjast almennilega með
myndinni.
Að þessu sinni var það engin
smámynd sem var á tjaldinu, —
stórm.vndin Spartaeus með
Kirk Douglas i titilhlutverkinu.
Myndin er tekin árið 1960 og
er leikstjórinn enginn annar en
s.jálfur Kubrick.
Myndin gerist um 70 árum
fyrir Kristsburð og er um spart-
verska þrælinn Spartacus sem
lendir i skóla fyrir gladíatora.
Þar k.vnnist hann nokkrum
öðrurn þrælum og þykir þeim
vistin í skólanum harðneskju-
leg svo ekki sé meira sagt.
Loks kemur að því að
mælirinn er fullur og þrælarnir
gera uppreisn og hyggjast
komast af landi brott. Það kost-
aði miklar fórnír og á leið
flokksins suður eftir Ítalíu
slógust sifellt fleiri í hópinn.
Fjöldinn allur af frægum
leikurum leikur í þessari mynd
sem fékk Oskarsverðlaun á
sínum tírna. Má þar nefna sir
Laurence Olivier. Peter Usti-
nov, Charles Laughton og Jean
Simmons.
Þar leikur hver öðrum betur
og landslagsmyndirnar eru
stórkoStlegar. Undir lok rnynd-
arinnar. þegar lokabardaginn
er að hefjast. eru tilfæringar
hersins alveg með eindæmum
„flott".
Þessi mynd er með lengri
myndum, sem hér hafa verið
sýndar, eða 198 minútur. En
manni er svo sannarlega haldið
við efnið allan tímann. Hún er
spennandi frá upphafi til enda
og ástarsagan í m.vndinni er
alveg laus við væmni.
Það tók tvö ár að búa þessa
kvikmynd og kostnaðurinn var
12 milljón dalir (sem er svo há
upphæð í íslenzkum krónum að
það nálgast að vera stjarn-
fræðilegt hugtak).
í kvikmyndahandbókinni
okkar fær þessi mvnd fjórar
sljörnur og þar er að sjálfsögðu
lokið lofsorði á nteðferð
Kubricks á efninu. Þar er hand-
ritið einnig talið mjög gott.
-A.Bj.