Dagblaðið - 18.10.1976, Síða 22
DA(;BI,AÐIÐ. MANUDACUK 18. OKTOBEK 1976.
ÞAÐ GETUR SKIPT ÖLLU MÁLI
AÐ UNGBARNIÐ FÁIBRJÓST
A milli barna ok mærtra. scm hafa |)au a br.jósfi. mvndasl órofa liiind. Bórniii u-röa oinnin ÍH'ilbriaóari n« |)aö bl'for aö auka á
hamingju mæðranna.
Konur í hinum vestrœna heimi hverfa
aftur til brjóstagjafarinnar
Vlösvegar um heim eru millj-
ónir mæöra sem gefa ungbörn-
um sínum frekar pela en aö
hafaþauá br.jósfi — ogmeö því
stofna þær heilsu barna sinna i
voða.
Rannsóknir hafa leitl 1 l jós aó
í Chile hefur tala þeirra mæóra.
sem hafa börn sín á brjósti.
hrapað úr 95% niður í 6% á
síðustu tuttugu árum. Dánar-
tala pelabarna í Chile er
þrisvar sinnum hærri en
brjóstabarna.
Svipaða sögu er að segja frá
öðrum löndum þar sem dánar-
tala ungbarna er sorglega há.
Einn af matvælasérfræðingum
Sameinuðu þjóðanna, Alan
Berg, heldur því fram að fyrir
tvo þriðju hluta mannkyns
nálgist það dauðadóm yfir ung-
börnum að gefa þeim pela í stað
brjóstsins.
Ekki bara
heilsufarlegt
vandamól
Vandamálið er einnig
víðtækara en að vera einungis
heilsufræðilegt vandamál. Það
er einnig fjárhagslegt atriði.
Kostnaðurinn við að gefa börn-
um pela er gífurlegur, bæði
fyrir fjölskyldurnar og þjóð-
irnar í heild. Þegar börn eru
látin fá pela í stað móðurmjólk-
urinnar eykur það einnig á
fæðingartöluna og það er auka-
álag á þjóðir sem eru bláfá-
tækar fyrir.
Alan Berg segir í bók sinni
um fæðuvandamál heimsins að
sú staðreynd að mæður séu
mikið til hættar að hafa börn
sín á brjósti sé álíka alvarlegt
vandamál og olíukreppan.
Það er hálfhjákátlegt að
mæður skuli einmitt nú snúa
sér frá aldagömlum venjum, —
einmitt á sama tíma og fæðu-
vandamál heimsins er orðið
jafngeigvænlegt og nú.
Hin algjörlega
heilsusamlega fœða
Brjóstamjólkin hefur verið
nefnd ,,hin algjörlega heilsu-
samlega fæða“. Alþjóðaheil-
brigðismálastofnun Sameinuðu
þjóðanna kallar brjóstamjólk-
ina ..heppilegasta fæðið fyrir
smábörn fyrstu sex mánuði æv-
innar“. Brjóstamjólkin inni-
heldur öll næringarefni sem
ungbarnið þarfnast og auk þess
nauðsynlegar amínósýrur. Eng-
in tilbúin mjólk getur komið
algjörlega í staðinn fyrir
móðurmjólkina. Aðaluppi-
slaðan í flestum tegundum
pelamjólkur er kúam.jólk.
„Kúamjólk er alveg prýðileg
— fyrir kálfa." segja sér-
fræðingarnir En l'yrir inanna-
börn er móöurmjólkin það
bezta.
Kúa- og kanínum.jólk eru
rikar af eggjahvítuefnum sem
nauðs.vnleg eru fyrir unga teg-
undanna til þess að þeir geti
byggt upp vefi sina og vaxið
kröftuglega strax eftir fæðing-
una. Hvalamjólk er mjög fitu-
rík vegna þess að kálfarnir
þurfa á mikilli fitu að halda til
þess að halda á sér hita i sjón-
um.
Móðurmjólkin er fullkomin
l'æða fyrir ungbörn. Hún er rík
af efni er nefnist laetosa og er
-tauðsynlegt til uþpbyggingar
aeilans á fyrstu ævidiigunum.
Ef börnin fá ekki móðurmjólk-
ina getur orðið hætta á heila-
skemmdum. Móðurmjólkin
inniheldur sérstök efni sem
gera líkamanum kleift að nýta
eggiahvítuefnin.
Þar að auki er móðurmjólkin
bézta vörnin gegn ofnæmi en
kúamjólk er algengasta orsök
ofnæmis í ungbörnum. Brjósta-
mjólkin er auðmeltari en mjólk
annarra dýrategunda og veitir
ungbarninu einnig örugga vörn
gegn inflúensu, magakvillum
og niðurgangi, sem er algeng-
asta dánarorsök ungbarna
hvarvetna í heiminum.
Brjóstmylkingar eru einnig
ipriekari en önnur börn. segir
.le;m Eianeois Saucier, gi-ð-
lieknir við sjúkrahús í
Montreal. Aörir sérfræðingar á
því sviði eru sammála um að
milli brjóstmylkinga og mæðra
þeirra verði ómetanleg tengsl
sem séu báóum aðilum til góðs.
„Þegar þreifað er á útlimum
brjóstmylkinga," sagði læknir
nokkur, „þá leynir sér ekki að
þeir eru mjög stæltir. Brjóst-
mylkingar hafa góðan litarhátt
og heilbrigðari húð og eru í alla
staði almennt miklu heilbrigð-
ari."
„Kwashiokor" er orð sem
notað er af sérfræðingum og
læknum urn gjörvallan heim
um börn sem eru vannærð.
Þetta er úr afrískri mállýzku og
þýðir raunverulega „sá sem
hefur verið tekinn of fljótt af
brjósti".
Þvi er haldið fram að mæður
sem hafa fjárhagslegt bolmagn
til þess að kaupa góða mjólkur-
blöndu. hafi ráð á góðum k;eli-
geymslum og viðhafa fyllsta
hreinheti geti alið upp fullkom-
lega heilbrigð biirn. En pelinn
getur verið mjög hættulegur
fyrir önnur börn.
Vatnið mengað
Vegna þess hve þurrmjólkur-
blöndur eru dýrar nevðast fá-
tækar mæður oft til þess að
blanda mjólkina of mikið og
þar með minnka n.eringargildi
hennar. Enn verra er þó að
vatnið. sem notað er til útþynn-
ingarinnar. er oft á tíðum
mengað og tútturnar eru
óheilsusamlegar. Arangurinn