Dagblaðið - 20.10.1976, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 20.10.1976, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. OKTOBER 1976. Begga kemst ekki í hálfkvisti við Palla Raddir lesenda Asa og Margrét hringdu: „Hingað til hefur okkur þótt barnatíminn ákaflega skemmtilegur. Sérstaklega var það Gísli Rúnar sem átti sinn þátt í því hve hann Palli varð vinsæll. En hann var rekinn, alltaf er það svona h.já þessu sjónvarpi. Það þarf alltaf að taka það bezta úr. Það höfðu allir gaman af P.illa, jafnt börn sem fullorðnir. Nú er verið að koma með eilthvað í.staðinn sem missir alveg marks. Þessi Begga er alveg ómöguleg og við urðum fyrir miklum von- brigðum með hana. Hvers vegna er ekki hægt að fá hann Pál, og þá meinum við Gísla Rúnar, aftur. Það getur ekki neitt komið í hans stað. Þessi Begga verður aldrei á borð við hann. Takið ykkur nú á og komið þessu í lag, það vilja allir fá hann Palla aftur.“ Þá fengi ég barn í hausinn, en ef.... Einn 17 ára skrifar: „Nú þegar sumar stétt- ir þjóðfélagsins eru að krefj- ast launa í samræmi við kollega sina í nálægum löndum datt mér í hug, er ég las í erlendu blaði að þann 1. maí sl. hefði tekið í gildi í Danmörku breyting á lögum þannig að nú mega Danir sofa hjá aðila af sama kyni ef þeir eru orðnir 15 ára. Áður var lágmarks- aldurinn sá sami og er nú hér á landi, eða 18 ár. Mér gremst það mjög að ég má ekki sofa hjá karlmanni. sem er eldri en ég. fyrr en ég er orðinn 18 ára. Aftur á móti má ég sofa hjá kvenmanni mikið fyrr. Ef ég held mig að stelpu get ég átt það á hættu að fá krakka í hausinn sem ég hef alls ekki efni á. Með þvi að vera með strák á ég ekkert slíkt á hættu. Jæja, fyrst tslendingar taka margt.bæði gottog illt, upp eftir öðrum þjóðum. því ekki að taka Dani til fyrirmyndar í þessu máli? Það yrði íslenzkum hómósexúalistum á öllum aldri til ólýsanlegrar hamingju, sér- staklega þeim sem eru yngri en 18 ára. Fyrst ég er á annað borð að skrifa vil ég mótmæla neitun Dagblaðsins að birta auglýsingu frá samtökum er stefna að því að auka kynni hómósexúalista innbyrðis. Að lokum vil ég minna auglýsinga- stjórann á að það er ekki viktoríutímabilið núna, heldur árið 1976. Af skiljanlegum ástæðum vil ég ekki að nafn mitt verði birt að svo komnu máli, en læt það fylgja hér með.“ mm Þessi mynd er l'ra skömmu. Þessa mynd tók Jens IJósmyndari af hennl Beggu heima hjá afa og ömmu hennar I gærkveldi, réU á&ur en hún fór a& hátta. >ara kölluð Bej i»ma hnn hió -”JAO« *** pinarsson*r' --- 7^^ Begga var rækilega kynnt í Visi 16. október en Dagblaðinu var meinað að taka myndir af henni til kynningar fyrirfram. Aðhald og eftirlit með hlunnindum Kunnugur skrifar: Þegar ég las í Dagblaðinu frétt þess efnis að 5 alþýðufl.menn flyti tillögu á Alþingi um meira aðhald og eftirlit rneð svokölluðum hlunnindum til opinberra starfsmanna, varð mér hugsað til þess hvernig skyld mál hafa þróazt í einka- og hlutafélaga- rekstri. J þvi sambandi ber að hafa í huga að mikill fjöldi f.vrirtækja, stórra og smárra, borgar ekki tekjuskatt. Otrúlegustu kostnaðarliðir eru færðir á gjaldareikning þessara f.vrirtækja, M.a. koma þar til alls konar hlunnindi startsmannanna og eigcnda. Vert væri að skattavfirvöld færu að gefa þessu nokkurn gaum. J þessu sambandi íná nefna utanfarir. Hvað segja menn t.d. þegar fyrirtæki senda uppá- halds starfsmenn sina utan. jafnvel í óralangar og dýrar reisur, undir þvi yfirskini að þeir séu að reka erindi fyrirtækisins, þó vitað sé af kunnugum að viðkomandi hafi enga þekkingu né menntun til að reka þau erindi i þágu fyrirtækisins, sem látið er liggja að að þeir séu aðgera.Nei, nér er um að ræða hlunnindi sem forstjórinn eða stjórnarformaðurinn, eða einhverjir aðrir jafngildir, úthluta vinum og skyld- mennum eða þægum undir- t.vllum sinum. Og f.vrirtækið borgar allt saman, ferðir, uppihald og hver veit hvað mikið, og fær summuna svo dregna frá skatti. Og auðvitað eru slík hlunnindi ekki einvörðungu bundin við utanferðir einar sér. Meðan hinn óbre.vtti starfs- maður stritar fyrir lágmarks- launuin leika topparnir þennan leik í síbreytilegri ntvnd á næstum hvaða sviði viðskipta og þjónustu sem er. TÖLVAN DREGUR EKKI RÉn — það er bannað að breyta svona vðru sem maður hefur keypt Skúii hringdi: „Það hafa komið fréttir af þvi núna síðustu dagana að tölva eigi nú að draga út vinninga í Happdrætti Háskólans, DAS og SIBS. Nú hef ég mikla ótrú á þessum tölvum og vil halda því gamla formi sem verið hefur. Mér finnast þetta heldur ekki réttir verzlunarhættir. Eg er búinn að kaupa mina vöru. þ.e ársmiða Svo er þessu breytt á miðju ári Eg hefði kannski ekki kevp þennan ársmiða ef ég hefði vitað að það hefði átt að draga Ú1 vinningana nteð þessu apparati. Þetta eru ekki lögleg- ir verzlunarhættir. Það má ekki gera svona. Maður kaupir ákveona vöru en svo er henni allt í einu bre.vtt án þess að segja fólki það þegar það kaupir vöruna. Eg er viss um að þetta á eftir að valda algjörunt ruglingi á þessu öllu sarnan. Hvað gerist ef tölvan er ekki mötuð.eins og það er víst kallað. rétt. Hún dregur þá allt vitlaust og ætla þá þessir karlar að taka vinninga af fólki sem fengið hefur t.d. þann stóra?" 1

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.