Dagblaðið - 20.10.1976, Blaðsíða 23
OACKLAUli). MIÐVIKUDA(iUR20. OKTÖBEK 1976.
í Útvarp
k Sjónvarp
Sjónvarp kl. 21,55 i kvöld:
SÆNSKIR SNILLINGAR A SKJÁNUM
— Ullmann, Bergman og Josephsson i nýju leikriti
Ný sænsk framhaldsmynd í
fjórum þáttum hefst 1
sjónvarpinu i kvöld kl. 21.55. Er
það myndin Augliti til auglitis
Leikstjóri og höfundur
handritsins er enginn annar en
Ingmar Bergman og bak við kvik-
myndatökuvélina er Sven
Nykvist. Aðalhlutverkin leika
norska leikkonan Liv Ullmann og
Erland Josephsson, — þau hin
sömu sem léku í Þáttum úr
hjónabandi sem sýnt var í
sjónvarpinu hér fyrir fáum árum.
Fyrsti þátturinri nefnist
Brottförin.
..Augliti til auglitis" var
frumsýnd í New York í apríl og
fékk mikið lof gagnrýnenda. Áður
en upptaka verksins hófst fengu
allir. sem að verkinu stóðu, bréf
frá Ingmar Bergman.Þar kallar
hann myndina söguna um lífið,
ástina og dauðann. Hann lýsir
viðfangsefnmu á þessa leið:
„Jenný er dugleg og sam-
vizkusöm kona. sem náð hefur
miklum frama á starfsvettvangi
sínum. Hún er gift gáfuðum
starfsbróður sínum og hjónband-
ið er til fyrirmyndar. Mig langar
að reyna að lýsa því hvernig þessi
persóna bugast algerlega og síðan
hægum en þjáningarfullum bata
hennar."
Bergman segir um drauma sem
skipta miklu máli í myndinni:
„Draumar eru ekki annað en
keðja raunverulegra viðburða er
verða á mikilvægum tímamótum í
lífi Jennýjar. Þótt hún sé
geðlæknir, hefur hún aldrei getað
litið í alvöru á hinn ýkta raunveru
leika. Þrátt fyrir allan sinn
lærdóm veit hún ósköp litið um
mannssálina. Þetta er svo algengt
mein meðal sálfræðinga að það
mætti næstum nefna það
atvinnusjúkdóm."
1 myndinni er Jenný yfirlæknir
á geðsjúkrahúsi. Hún kann vel við
starfið hefur góðar tekjur og
hjónabandið er farsælt.
í upphafi sögunnar hafa þau
hjónin nýlega fest kaup á húsi
sem þau fá afhent eftir nokkra
mánuði en á meðan ætlar Jenný
að búa heima hjá afa sínum og
ömmu.
Afinn og amman eru leikin af
Aino Taube og Gunnar
Björnstrand. Einnig leika Kari
Sylwan, Sif Ruud og Gösta
Eklund veigamikil hlutverk f
myndinni.
Sýningartími er 45 mínútur.
Þýðandi er Dóra Hafsteinsdóttir.
-A.Bj.
teynt var að smvgla fálka-
mgum úr landi í suraar. Alls
oru ungarnir fimm. Hérna
sjáum vió tvu þeirra i töskunni
sem þeir fundust i úti á Kefla-
vikurvelli.
Útvarpið í kvöld
kl. 19,45:
Verndum fugla
NÝ
HÆTTA
— reynt að smygla fólkum úr landi
„Eg mun segja frá fugla-
vernd almennt og taka nokkur
dæmi um útrýmingarhættu
fugla, bæði hér og í Bandaríkj
unurn," sagði Magnús Magnús-
son prófessor sem heldur
erindi 1 útvarpinu um verndun
fugla.
Sérstaklega mun Magnus
ræða um haförninn og fálkann
og rekja nokkuð sögu um
friðun þeirra og ofsóknir. Þá
minnisl hann einnig á nýja
hættu sem ógnar fálkunum en
það er að menn steli þeim og
re.vni að smygla þeim úr landi.
Tilraun til þessa var gerð í
sumar, eins og menn eflaust
muna. þegar fimm fálkaungar
tundust i tösku úti á Kefla-
víkurflugvelli. Smyglararnir
höfðu hætt við að taka þá með
sér út í flugvél á siðustu stundu
af einhverjum ástæðum.
Það er ástæða til þess að vera
vel á verði gegn þessari nýju
hættu. Mönnum gæti einnig
dottió i hug að smyglafálkunum
yfir hafið með skipum.
Þótt viða sé bannaö að nota
fálkana sem veiðifálka tfðkast
það enn í Þýzkalandi að temja
þá til slfkra hluta og nú hafa
fleiri hætzt i þann hóp sem vilja
iðka þetta sport, en það eru
arabi.sku olíufurstarnir.
—EVI
Sif Ruud og Liv Ullmann i hlut-
verkum sinum í f.vrsta þættinum.
I ágúst s.l. kom ævisaga Liv ^
l'llmannút. Bókin var prcntuð í *
4(1 þúsund eintaka upplagi og
hefur runnið út eins og heitar
lumntur. Liv virðist mjög
ánægð sjálf þar sem hún situr á
staflanum.
Sjónvarp
Miðvikudagur
20. október
18.00 ÞúsunddyrahúsiA. Norsk mynda
sana. 2. þáttur. Pönnukökuveislan
Þ.Ýöandi C.réta Sifífúsdóttir. Þului
l»orhallur Siuurósson. (Nortl
vision—Norska sjónvarpið).
18.20 Skipbrotsmennirnir. Aslralskui
myndaflokkur í 13. þáttum. 2. þáttúr.
Hvað er til raða? Þýóandi .lóþanna
.lóhannsdóttir.
18.45 Refurinn. Brosk fríutlslumyud um
refinn og lifnaðarhætti hans árið un-
krinjí- Þýðandi ok þulur Askar In«i
marsson.
Hlé
20.00 Frettir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskra.
20.40 Pappírstungl. Bandariskur mynda-
flokkur. Gyllivonir. Þýðandi Krisi-
inann Riðsson.
21.05 Vaka. Dagskrá um bókmenntir og
listir á liðandi stund. Ums.iónarmaður
Maudaluna Schram. Stjórn upplöku
Andrés Indrióason.
21.55 Augliti til auglitis. Ný. sænsk frarn-
haldsmynd I fjórum þáttum. Leik-
stjóri og höfundur handrits Ingmar
Bergman. Kvikmyndun Sven Nykvist.
Aðalhlutverk Liv Ullmann. Krlaud
Josephson. Aino Taiihu. (iiimtar
Björnstrand og Sif Ruud. 1. þáttur.
Brottförín. Aðalpcrsónatt. .Icnny. »*r
yfirlæknir á geðsjúkrahúsi. Ilenni
fellur starfið vel. Iiiin lnTur eoðar
tekjur, og hjónaband hennar er far-
sælt. 22.40 Dagskrárlök.
* j
BSsMÍé'-í 'i í> i: , E : *'/■ \ ;
É p- l
Barnaafmœli
Fullegar pappirsvörur.
ilukar. diskar. mál. seri-
leltur. hattar. hlöðrur. kerti
ii. t'l. >lcsta úrval ha'jarins.
SOftA
HUSIÐ
LAUGAVEG 178. SÍMI 86780.