Dagblaðið - 20.10.1976, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. OKTÓBER 1976.
1
Hundrað manna Loftleiðalið og
tvœr vélar í pílagrímaflutningum
— fluttir verða 10 þúsund pílagrímar á tveimur mónuðum til og fró Jedda
,.Um þetta le.vti árs er farið
að halla undan á hefðbundnum
fluKleiðum svo þetta er
nokkurs konar framlenging á
sumarönnum," sagði Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi
Flugleiða er DB ræddi við hann
um pílagrímaflutninga í Afrlku
sem fyrirtækið hefur fengið
samninga um.
,,Pílagrímarnir sem flytja á
eru um tíu þúsund talsins en
þetta eru múhameðstrúar-
menn. Flogið verður frá Pano í
Nígeríu til Jedda i Saudi
Arabíu, sem er um fjögurra
klukkustunda flug. Fiogið
verður dag og nótt.
Til þessara miklu mann-
flutninga verða notaðar tvær
DC 8-63 flugvélar Loftleiða sem
taka 250 manns hvor. Flug-
fólkið er allt starfsfólk Loft-
leiða og eru það alls tólf
áhafnir. Flugstjórarnir eru
12, aðstoðarflugmenn 13, flug-
vélstjórarnir 13 og flugfreyjur
og flugþjónar verða 54. A jörðu
niðri verða um tíu manns, þar
af sjö flugvirkjar, og yfir-
umsjón á jörðu verður í hönd-
um Þórarins Jónssonar, yfir-
manns flugrekstrardeildar-
innar, Alfreðs Elíassonar for-
stjóra Flugleiða, sem hefur
tekið mikinn þátt í
skipulagningu þessara
flutninga, og Baldurs Marías-
sonar.
Flutningarnir hefjast í.
nóvember og þeim á að vera
lokið seint í desember. Sex af
áhöfnunum tólf, sem annast
munu þetta flug, verða þarna í
nóvember og hinar sex í
desember.
— Verður ekki framreiddur
matur f.vrir farþegana?
,,Eins og jafnan verður gert
vel við farþegana, sumt af
þessu fólki hefur aldrei út fyrir
sína heimabyggð komið og
hefur kannski verið að safna til
ferðarinnar alla sína ævi.
Annars voru það opinberir
aðilar sem sömdu um þetta fiug
en mér skilst að farþegarnir
greiði sjálfir a.m.k. einhvern
hluta fargjaldsins."
— Eru þetta ábatasamir
mannflutningar?
„Það er ekki svo gott að segja
um það fyrirfram. Auðvitað er
það álitsauki að vera treyst
fyrir að flytja pílagrímana.
Kostnaðurinn er gífurlega
mikill á jörðu niðri, má nefna
að hótelherbergið kostar um
130 dali á dag (nálægt 25 þús.
ísl. kr.) og annar kostnaður ei
eftir þvi.“
— Hvernig verður háttað flugi
á ykkar hefðbundnu flug-
leiðum á meðan á þessu
stendur?
„Við höfum tekið á leigu
flugvélar til þess að annast það
þannig að engin breyting
verður á því,“ sagðj- Sveinn
Sæmundsson. -A.BJ.
FJÖREGG HÓTELREKSTRAR
W W ••
IEYJUMI HONDUM
„Við fengum greinargóðar
upplýsingar um reksturinn"
sagði bœjarstjórinn
BÆIARSTJÓRNARINNAR
„Við fengum greinargóðar
upplýsingar um rekstur hótelsins
hér á þeim fundi sem bæjar-
ráðsmenn áttu með for-
ráðamönnum hótelsins í Eyjum á
mánudaginn,“ sagði Páll
Zóphaníasson bæjarstjóri í viðtali
við DB. „Bæjarráðið gerði hins
vegar enga ályktun í málinu en
það verður lagt fyrir
bæjarstjórnarfund í næstu viku
og þar verður væntanlega tekin
endanleg ákvörðun um vín-
veitingarhál hússins."
Eitt hótel er starfandi í Eyjum.
Hefur það tvívegis verið svipt vín-
veitingale.vfi, f.vrst vegna brota á
reglugerð og öðru sinni um
síðustu mánaðamót er staðfesting
á endurútgefnu vínveitingaieyfi
til hótelsins féll á jöfnum at-
kvæðum í bæjarstjórn.
„Við munum loka í vetur fáist
ekki leyfið,” sagði Birgir V.
Halldórsson, einn af forráða-
mönnum hótelsins, við DB.
„Þannig munum við láta hart
mæta vanefndum loforðum
bæjaryfirvalda hér sem hétu
okkur margs konar stuðningi er
við hófum reksturinn.“
Birgir sagði að þeir hótelmenn
hefðu orðið við óskum bæjarráðs
um að fresta lokun fram yfir fund
bæjarstjórnar en lokunin hefði
verið ákveðin á mánudaginn.
Birgir sagði að iraunværi alls
ekki grundvöllur fvrir
hótelrekstrinum frá
októbermánuði til miðs febrúar,
jafnvel þótt vínveitingaleyfi væri
fyrir hendi. A þessu tímabili í
fyrra hefði hótelið verið rekið
með 3 milljón kr. tapi og sú
upphæð yrði hærri nú vegna
verðbólgu. Hótelinu hefðu verið
veitt vínveitingaleyfi til stutts
tíma í senn og á slíku væri ekki
byggjandi. Það væri sama og
byggja rekstur á stjörnuspám.
Páll Zóphaníasson bæjarstjóri
sagði að það kæmi upp erfið staða
í Eyjum ef hótelinu yrði lokað.
Spurningin væri hvernig mætti
leysa málið á þann veg að flestir
gætu við unað. Málið blður því
enn í viku.
-ASt.
Kaupið tízku-
fatnaðinn SNIÐINN
Sendiö gegn póstkröfu
_ Setjið merki við
j X stærð og lit:
” «n Nr.: AAitti: Mj.:
PILS
Stcrðir 34 46.
BI4. hvlt, rauð.
Varð kr. 23M.
BUXUR:
Stvrðlr 34-«.
Ftaual:
Brúnt. beige.
grátt. gráblitt.
Tarylana:
Hvltl. blátt.
rautt. grcnt.
svari. brúnt.
Varð kr.
tm-24M.
Buxur
& Pils
VEL SKREYTTUR BILL!
Stöðumælavörðurinn á
myndinni vinnur sitt verk af
kostgæfni. Það þýðir ekkert
fyrir menn að leggja bílnum
sinum og ætlast til að fá ltara , skre.vttu jólatré undir kvöiatð.
eina stöðumælasekt allan mvndin var tekin fyrir hádegi i
daginn. Líklega hefur þessi bíll gær og þá var eigandinn að
verið orðinn likastur vandlega
vinna ser fyrir þriðju sektinni
þánn daginn (DB-mvnd Arni
Páll).